Morgunblaðið - 14.04.1989, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1989
Talaðu við
ofefeur um
ofna
/
I
SUNDABORG 1 S. 688588 -688589
Talaðu við
okkur um
uppþvottavélar
SUNDABORG 1 S. 68 85 88 - 68 85 89
^HITACHI
Sjónvarpstæki sem
trcystandi er á.
3ja ára ábyrgð
/M* RÖNNING
•//“// heimilistæki
KRINGLUNNI OG NJÁLSGÖTU 49 SÍMI 685868/10259
NU ÞARF GOTT LY$I TIL AÐ
STYRKJA VARNIR LIKAMANS
Nú er sá árstími þegar mótstöðuafl líkamans gegn kvillum
er í lágmarki. Fjörefnabirgðir hans frá sfðasta sumri eru
á þrotum og því er fyllsta ástœða til að auka þœr.
Gott lýsl er ómetanlegur heilsugjafi. Það er ríkt af A og D
vítamínum, inniheldur fjölámettaðar fitusýrur og treystir
varnir líkamans á margvíslegan hátt.
Gott lýsi. Hrelnt og hollf!
FISKAFURÐiR HF
Skipholti 17, 105 Reykjavík, pöntunarsímar: 672280 og 26950
4-
Fordæmið - besta forvörnin
Til Velvakanda.
Á öllum tímum hefur fjölskyldan
verið hornsteinn þjóðfélagsins. Oft
hefur lífsbaráttan verið hörð, en
aldrei hefur verið sótt eins að Qöl-
skyldunni eins og nú. Foreldrar
vinna báðir utan heimilis og börnin
eiga litla sem enga möguleika á að
leita til þeirra nema í gegnum síma.
Bæði eru vegalengdir allnokkrar og
einnig eru böm illa séð á mörgum
vinnustöðum. Þegar heim kemur
taka heimilisstörf og fjölmiðlar við.
Hvernær er þá tími til að rækta
fjölskylduböndin? Hvenær hafa for-
eldrar tima til að kynnast börnum
sínum? Það er rétt að staldra við
og íhuga sinn gang. Það er mikils-
vert að eiga fallegt heimili og það
sem því tilheyrir. En hveiju er til
kostað og hveijir njóta þess? Ör-
þreyttir foreldrar og ergileg böm.
Það er of seint að ætla að ná sam-
bandi við ókunnugt fólk, sem hefur
jú að vísu búið saman í íbúð en lítil
sem engin samskipti haft, þegar í
óefni er komið.
Aldrei hefur þörfm verið brýnni
Heiðraði Velvakandi!
Ég þakka biskupi, Sigurbimi
Einarssyni, fyrir mjog athyglisverð-
ar greinar um trúmál sem birst
hafa í Morgunblaðinu frá áramótum
en er nú lokið.
Ekki ein einasta setning er skeik-
ul né orðalag. Fullkomið að mínum
dómi. Enginn hefur lýst því betur
sem ég vildi segja um allt sem kem-
ur fram í greinum biskups. Ég vil
enn þakka honum af heilum hug.
Vonandi að fólkið hafi lesið af at-
hygi>-
Oðm vil ég þó víkja að sem get-
ur skipt alla miklu máli til að skilja
gnðs orð. Það er messuform sem
farið er að bera á í auknum mæli,
sá órói og spenna sem farið er að
gæta í messum. Þar er að koma
fram sá áróður að breyta skuli guðs-
þjónustum í léttara form eins og
það er orðað. Þetta á að vera til
að laða að ungt fólk, en ég segi
en nú. Ýmis fíkniefni flæða yfir
heiminn og ísland er ekki lengur
einangrað eyland, heldur hluti af
heiminum og að segja má í þjóð-
braut milli austurs og vesturs.
Rannsóknarlögregla ríkisins segir
að töluverð aukning sé á notkun
kókaíns hér á landi og að „krakk“
sé farið að berast hingað. Það mun
vera eitt fljótvirkasta dráps- og
eyðileggingarefnið á markaðnum í
dag. Það fer nú enginn beint í
„krakkið" segir kannski einhver.
Það er væntanlega alveg rétt. Það
hefur allt einhverja þróun eða stig-
mögnun. Byijað er á vægari vímu-
efnum og síðan er stiginn fetaður
þrep af þrepi. íslensk stjómvöld
hafa nú bætt við einu slíku þrepi
svo ekki þurfi að stíga mjög hátt í
byijun. Þau hafa sett nýtt vímuefni
á markað til að rétta við íjárhag
ríkisins. Ýmsir óttast að þetta nýja
vímuefni auki á vandann og hraði
þeirri þróun sem hefur verið. Þetta
er ósköp sakleysislegt vímuefni. I
daglegu tali er það kallað bjór og
er af mörgum talinn saklaus svala-
ykkur, breytið ekki þeirri helgi og
friðsæld sem lifað hefur með kirkju-
legu helgihaldi um áraraðir, það
veitir frið og ró samvisku og hug-
ar. Fari guðsþjónustan að verða
með æsingastemmningu í poppstíl
eins og heyrst hefur í útvarpi, þá
er með því helgihaldið rekið út og
engan frið að finna ef þessi spilling
kemst inn í kirkjur landsins. Þetta
er framhald af amstri efnishyggj-
unnar sem engum veitir frið né ró
í hugskoti sínu. Óróa í flutningi á
guðs orði gætir í söfnuði Hvíta-
sunnusafnaðarins. Ég hef samt ekki
fundið þar breytingar frá því ég
gat fýlgst með framsögn í ræðu-
haldi og söng.
Þar vil ég að lokum benda á eitt,
enginn getur talið sig frelsaðan, það
er guðs að dæma, með inntöku í
samfélag heilagra. Það er stigs-
munur á að vera, eða vilja vera.
Þorleifúr Kr. Guðlaugsson
drykkur. Þessi saklausi svaladrykk-
ur kemur til með að vera í ísskápum
landsmanna ásamt „öðrum“ mat-
vælum. Börn á íslandi eru dugleg
og sjálfbjarga. Þau munu ganga í
ísskápa heimilanna hér eftir sem
hingað til og borða og drekka það
sem þar finnst. Meðan bjórsins var
beðið létu fjölmiðlar eins og stór-
hátíð væri í nánd. Dagarnir voru
taldir eins og þegar börn telja dag-
ana til jóla. Sum dagblöð hafa látið
að því liggja að hvergi sjáist merki
um aukna áfengisneyslu á al-
mannafæri þó að bjórinn hafi bæst
við. Ég hef heyrt dæmi um hið
gagnstæða. I grunnskóla einum í
Reykjavík gerðist það að morgni
2. mars eða 2. í bjór að drengur
úr unglingadeild kom með bjór í
skólann og seldi félögum sínum.
Að minnsta kosti einn keypti, drakk
sinn bjór og varð drukkinn. Ráð-
stafanir voru gerðar af hálfu skóla-
yfirvalda og vonandi endurtekur
þessi atburður sig ekki. Fólk sem
hefur átt erindi um miðbæ
Reykjavíkur á kvöldin virka daga,
segir að helgardrykkjan hafi færst
yfir á virku dagana einnig. Ungling-
ar, sem áður röltu um miðbæinn
með gosflöskur, veifi nú bjórflösk-
um. Kunningjakona mín fór í versl-
un á höfuðborgarsvæðinu að kvöldi
dags fyrir skömmu. Þar háttar svo
til að hægt er að setjast niður, utan
verslana en undir þaki, og rabba
saman í notalegu umhverfi. Um-
hverfið var ekki eins notalegt og
venjulega. Hópar af bjórdrukknum
unglingum ráfuðu um staðinn og
við eitt borð svaf kona ölsvefni.
Þetta var í miðri viku, snemma
kvölds.
Hvemig geta foreldrar snúist til
varnar? Besta ráðið hefur alltaf
verið og mun trúlega vera áfram
að gefa bömum sínum gott for-
dæmi. Börnin gera eins og þú ger-
ir, ekki eins og þú segir. Foreldrar
verða að gera sér grein fyrir hvoru
megin þeir standa, með eða á móti
vímuefnum. Það er illa hægt að
standa báðum megin. Gakktu niður
í miðbæ nokkur kvöld. Ræddu við
bömin þín. Taktu afstöðu þegar þú
hefur skoðað málin af einlægni og
heiðarleika.
Elísabet Jensdóttir
AÐLOKUM
Yíkveiji skrifar
Nú stendur sem hæst söfnun
Handknattleikssambands is-
lands. Landsmenn hafa fengið
senda heim litmynd af sigurliðinu
í París og gíróseðil að upphæð 400
krónur.
Víkveiji hvetur alla til þess að
greiða þessa upphæð. Með því móti
getur fólk sýnt handknattleiks-
landsliðinu þakklæti sitt í verki.
Þessi upphæð er aðeins rétt rúm-
lega það sem kostar að fara í bíó.
Það er skoðun Víkveija að beina
útsendingin frá úrslitaleik íslands
og Póllands hafi verið á við góða
Óskarsverðlaunamynd!
XXX
Handknattleikssambandið hefur
upplýst að kostnaður við und-
irbúning fyrir Heimsmeistara-
keppnina í Tékkóslóvakíu næsta ár
verði á þriðja tug milljóna. HSÍ
hefur gengið frá endurráðningu
Bogdans Kowalczyks sem þjálfara
og þeir leikmenn, sem voru burðar-
ásar gullliðsins í París, ætla að
halda áfram að leika með liðinu.
Það er því ástæða til að ætla að
ísland geti náð langt í keppninni.
Bogdan er án efa í hópi fimm beztu
þjálfara í heimi og það er með ólík-
indum að við íslendingar skulum
hafa notið hæfileika svo góðs þjálf-
ara á annan áratug.
XXX
Víkveiji hlustar helst á útvarp
þegar hann er á ferð í bifreið
sinni. Fyrir rúmum mánuði skipti
Víkveiji um bíl og rúmar þijár vik-
ur liðu áður en útvarp var sett í
nýja bílinn.
Á þessum skamma tíma hefur
orðið mikil breyting og hún til hins
verra. Stjaman og Bylgjan hafa
sameinast og rásirnar eru sam-
tengdar bæði kvölds og morgna.
Þá hefur Hljóðbylgjan hætt útsend-
ingum á höfuðborgarsvæðinu, en
hún var ein frískasta rásin. Val-
kostimir em orðnir of fáir. Vonandi
sér Stjaman/Bylgjan sér fært að
halda úti tveimur rásum þegar fram
í sækir.
Ef það er satt að hláturinn lengi
lífið eru þeir félagamir í
Spaugstofunni að vinna gott verk
með þætti sínum í Ríkissjónvarpinu
á laugardagskvöldum. Þeir fóra
hægt af stað og sumir vora famir
að efast um að þeir næðu sér á
strik. En síðustu vikumar era
Spaugstofumenn komnir á fulla
ferð og flestir þættirnir era óborg-
anlega fyndnir.
XXX
Það era miklar fréttir að tap
Arnarflugs í fyrra skuli vera
224 milljónir króna. Langt fram
eftir ári í fyrra lýstu talsmenn Arn-
arflugs því yfir að reksturinn gengi
vel og jafnvel mætti búast við hagn-
aði af rekstri félagsins. Undir lok
ársins var svo upplýst að staðan
væri verri og tap yrði á félaginu.
Nú þegar tölumar liggja fyrir era
þær ótrúlega háar. Hvemig má
þetta vera?
T