Morgunblaðið - 14.04.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1989
27
Ingi Björn Albertsson og Hreggviður Jónsson:
Hætta í þingflokki
Borgaraflokksins
Stofiia þingflokk Frjálslyndra hægrimanna
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ingi Björn Albertsson tilkynnir stofiiun nýs þingtlokks, þingtlokks
Frjálslyndra hægrimanna, í Sameinuðu þingi í gær.
TVEIR af þingmönnum Borgara-
fiokksins, þeir Ingi Björn Al-
bertsson og Hreggviður Jónsson,
tilkynntu í Sameinuðu þingi í gær
úrsögn sína úr þingflokki Borg-
araflokksins. A sama tíma til-
kynntu þeir stofiiun nýs þing-
flokks, þingflokks Fijálslyndra
hægrimanna.
í Sameinuðu þingi í gær kvaddi
Ingi Björn Albertsson (FH/Vl) sér
hljóðs utan dagskrár. Tilkynnti
hann í ræðu sinni úrsögn sína og
Hreggviðs Jónssonar (FH/Rn) úr
þingflokki Borgaraflokksins. í upp-
hafí ræðu sinnar las Ingi Bjöm úr
bréfí sem hann og Hreggviður skrif-
uðu þingflokki BorgaraflokksinSj
þar sem úrsögnin var tilkynnt. I
bréfinu greinir frá helstu ástæðun-
um, en þar segir meðal annars: „Sú
skattastefna sem hefur náð yfir-
höndinni í landinu með aðstoð Borg-
araflokksins, gengur þvert á stefnu-
skrá hans og er alfarið á ábyrgð
þingflokksins. Þá liggur fyrir yfir-
lýsing einstakra þingmanna flokks-
ins um að þeir muni hafa sam-
þykktir meirihluta flokksins að
engu, ef svo beri undir."
Ríkissósíalismi með hjálp
Borgaraflokksins
Síðar segir í bréfinu: „Borgara-
flokkurinn var stofnaður í anda
hugsjóna Alberts Guðmundssonar
um mannúð og mildi. Sá ríkis-
sósíalismi sem núverandi ríkisstjórn
hefur leitt yfír þjóðina, með aðstoð
Borgaraflokksins, er andstæður
þeim hugsjónum. Við sem þetta rit-
um munum hins vegar starfa áfram
í anda Borgaraflokksins og með
stefnuskrá hans að leiðarljósi. Því
höfum við myndað nýjan þingflokk
á Alþingi íslendinga — þingflokk
Frjálslyndra hægrimanna. Við
fögnum samstarfi við alla þá sem
vilja starfa á þessum grundvelli af
alhug og einlægni. Tíminn einn mun
leiða í ljós hvort leiðir okkar og
þingmanna Borgaraflokksins muni
liggja saman aftur.“
Ingi Bjöm rakti því næst nokkur
dæmi þess hvemig þingmenn Borg-
araflokksins hefðu farið gegn
stefnu flokksins; lækkun skattleys-
ismarka og hækkun eignaskatta,
eignaskattar sem stefndu að eigna-
upptöku hjá öjdruðum og hækkun
vörugjalds. „í steftiu núverandi
ríkisstjómar felst hvorki mannúð
né mildi gagnvart einstaklingum
og heimilum. Það er því sorgleg
staðreynd að Borgaraflokkurinn
skuli í raun vera guðfaðir hennar."
Úrsögnin hörmuð
Júlíus Sólnes (B/Rn), formaður
Borgarflokksins, tók því næst til
máls. Las hann úr bréfi frá sér og
Óla Þ. Guðbjartssyni (B/Sl) þar sem
úrsögnin er hörmuð. I bréfínu segir
m.a. að þingmenn Borgaraflokksins
hafi hingað til borið gæfu til þess
að starfa saman í þeim anda sem
komi fram í stefnuskrá flokksins,
stefnu mannúðar og mildi. „Skilyrði
sem þau að heimilt sé að víkja þing-
manni úr þingflokknum fyrir skoð-
anir hans, og að þingmenn eigi að
skrifa undir yfirlýsingu um að þeir
harmi afstöðu sína til einstakra
mála og viðurkenni mistök sín, eru
ekki í samræmi við þá stefnu. Þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir af hálfu
formanns Borgaraflokksins og ann-
arra stuðningsmanna flokksins,
hefur ekki tekist að sætta þessi
mismunandi sjónarmið.“
ÓIi Þ. Guðbjartsson (B/Sl),
formaður þingflokks Borgara-
flokksins, sagði í þessari umræðu
að afstaða þeirra Inga Bjamar og
Hreggviðs kæmi sér ekkert á óvart,
miðað við yfirlýsingar Alberts Guð-
mundssonar í fjölmiðlum. óli gat
þess að það hefði ekki verið fyrr
en daginn áður að fyrsta og eina
erindi þingmannanna tveggja hefði
borist þingflokknúm. Þar hafi verið
fram sett skilyrði þeirra fyrir endur-
komu í þingflokkinn. Óli kvað skil-
merkilega hafa verið greint frá
þessum skilyrðum í fjölmiðlum, en
þó hefði hið síðasta fallið í skugg-
ann, þ.e.a.s. að tveir þriðju hluti
þingflokks gætu vikið þingmanni
úr þingflokki. Þetta kvað Oli vera
í ósamræmi við stefnuskrá og tilurð
Borgaraflokksins og andstætt 48.
gr. íslensku stjómarskrárinnar um
að þingmenn tækju afstöðu í sam-
ræmi við sannfæringu sína.
Utanríkisráðherra um kafbátsslysið við Bjamarey:
Upplýsingatregða Sovét-
manna brot á samningnm
f UMRÆÐU í sameinuðu þingi gagnrýndi Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra sovésk yfirvöld harðlega fyrir að gefa íslenskum
stjórnvöldum upplýsingar um kafbátsslysið við Bjamarey bæði seint
og illa. Hefðu Sovétmenn brotið samninga um upplýsingaskyldu á
þessu sviði. Kvað ráðherra ríkisstjómina myndu ganga hart eftir
upplýsingum um gerð þess brennsluefiiis sem f kafbátnum var og
hverrar tegundar kjamakleyfirinn i bátnum var. F.nn fremur sagðist
utanrfldsráðherra mynd leggja það til á ríkisstjómarfúndi að islensk
stjómvöld áskildu sér allan rétt til skaðabóta, vegna hugsanlegs meng-
unartjóns.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra gerði Alþingi í gær
grein fyrir gangi mála og atburðarás
þegar sovéskur kjamorkukafbátur
sökk skammt frá Bjarnarey.
Ráðherrann gerði grein fyrir
helstu tímasetningum og staðsetn-
ingum, ásamt þeim staðreyndum
sem þegar hefur upplýst um. Fram
kom í máli ráðherrans að kafbátur-
inn hafi sokkið 15-1600 metra dýpi
og búist væri við því að báturinn
myndi liðast í sundur. Ekki væri
hins vegar gert ráð fyrir þvi að
kjamaofnamir myndu láta undan
og ekki væri talin hætta á geisla-
virku úrfelli.
í skýrslugjöf ráðherra kom fram
að í gær hefðu borist upplýsingar
til Geislavama ríkisins, frá samsvar-
andi stofnun í Noregi, um að ekki
væru um neina geislun að ræða á
svæðinu. Varðandi hættuna af kaf-
bátnum í framtíðinni sagði Jón Bald-
vin, að sérfræðingar treystu sér ekki
til þess að meta hana, nema fram
kæmu upplýsingar um hvaða tegund
eldsneytis hefði verið að ræða og
hvaða tegund af kjamaofni. Það sem
gerði málið enn ógleggra væm þær
getgátur að Sovétmenn hefðu verið
að prófa nýjar aðferðir við að kæla
kjamaofna.
Jón Baldvin greindi þinginu frá
því að hann hefði kallað á sinn fund
sendiherra Sovétríkjanna á íslandi.
Á þeim fundi flutti hann samúðar-
kveðjur frá íslensku ríkisstjóminni
til hinnar sovésku vegna mannfalls-
ins sem varð við slysið.
Á fundinum lýsti ráðherra yfír
óánægju ríkisstjómarinnar með það
að sovésk yfirvöld skyldu ekki hafa
haldið alþjóðlega samninga og þeirri
sjálfsögðu skyldu sinni að tilkynna
strax um slysið. Einnig lýsti ráð-
herra yfir óánægju ríkisstjómarinn-
ar með það hversu langur tími leið
frá því að íslensk stjómvöld óskuðu
upplýsinga frá sovéska sendiráðinu
á laugardagsmorgun, 8. apríl, og þar
til fréttatilkynning barst fimmtán
klukkustundum síðar. Ráðherrann
spurði og sendiherrann hvort rétt
væri að sovésk yfirvöld hefðu hafnað
boði Norðmanna um aðstoð. Að end-
ingu taldi ráðherra upplýsingamar
vera algerlega ófullnægjandi og fór
þess á leit við sendiherrann að hann
aflaði upplýsinga um tegund
brennsluefnis, tegund kjamakljúfs
og fleiri tæknileg atriði, svo og hvað
Sovétmenn hyggðust gera varðandi
áframhaldandi rannsóknir á svæðinu
og að ná flakinu af hafsbotni. „Ég
gerði sendiherranum grein fyrir því
að ég myndi greina Alþingi frá gangi
mála og óskaði eftir því að upplýs-
ingamar lægju fyrir-, fyrir fundinn.
Þær hafa enn ekki borist," sagði Jón
Baldvin og bætti því við að Norð-
menn hefðu óskað sams konar upp-
lýsinga.
Um framhald þessa máls sagði
utanríkisráðherra að hann- myndi
koma fram með á ríkisstjómarfundi
tillögu þess efnis að ríkisstjómin
áskildi sér allan rétt til skaðabóta
ef mer.gun hlytist af þessu slysi. Gat
hann þess að íslenskir söluaðilar
fiskafurða hefðu fengið kröfur um
að upplýsa með óyggjandi hætti að
ekki væri um neina mengunarhættu
að ræða.
Guðmundur Bjamason heil-
brigðisráðherra gerði grein fyrir
því að Geislavömum ríkisins hefðu
borist upplýsingar um það frá sam-
svarandi stofnun í Noregi að ekki
væri fyrir hendi nein geislun á svæð-
inu.
Guðmundur taldj vera tímabært
að íslendingar gerðu samning við
nágrannaþjóðir sfnar um að slíkir
atburðir skyldu tilkynntir samstund-
is. Um Geislavamir ríkisins sagði
Guðmundur að ekki væru þar enn
til staðar þau mælingatæki sem
nauðsynleg væru til þess að mæla
geislun umhverfis landið.
Steingrímur J. Sigfusson sam-
gönguráðherra kvaðst hafa gert
ráðstafanir til þess að kalla saman
samstarfsnefnd aðila á þessu sviði,
Geislavama ríkisins, mengunar-
deildar Siglingamálastöfnunar og
Hafrannsóknastofnunar til að móta
sameiginlegar aðgerðir og stefnu.
„Yta þarf á að reglubundnar mæl-
ingar hefjist." Steingrímur setti og
fram þá ósk að íslendingar breyttu
nú orðum sínum í athafnir og legðum
mikið á okkur til að beijast gegn
mengun hafsins.
Hjörleifur Guttormsson
(Abl/Al) taldi rétt að vekja athygli
á þeim leyndarhjúp sem ávallt hefði
hvílt yfir málefnum er snertu Iqam-
orku hjá stórveldunum. „Við eigum
að ganga mjög hart fram í því að
fá upplýsingar. Kallar þetta á það
að við leitum sem bestra upplýsinga
um vígtólin í höfunum umhverfis
landið og hina geigvænlegu hættu,
sem af þeim stafar.“
Hjörleifur gagnrýndi það að í
málum sem þessum skyldum við
byggja allt okkar á upplýsingum frá
vamarliðinu; slíkum öryggisventli
væri ekki unnt að treysta. Einnig
taldi hann ófullnægjandi að við
skyldum treysta á gagnkvæman
samning stórveldanna um upplýs-
ingaskyldu; íslendingar ættu að
gangast fyrir alþjóðlegum samningi
um slíka skyldu.
Kristin Einarsdóttir (K/Rvk)
kvað vera um verulega hættuleg
efni að ræða; geislavirk brennsluefni
sem fæm inn í lífskeðjuna. Benti
hún á að ef allur geislavirkur úr-
gangur hefði sloppið út samsvaraði
það um helmingi þess sem slapp út
við kjamorkuslysið í Chemobyl. Í
Ijósi þess og fyrri reynslu ættu menn !
að gjalda varhug við yfirlýsingum
Sovétmanna.
Eyjólfur Konráð Jónsson
(S/Rvk) kvaðst fagna nánu sam-
starfi íslenskra stjómvalda við
vamaliðið. Um upplýsingastreymið
sagði Eyjólfur að við gætum hvergi
vænst þess að fá betri upplýsingar
ein frá Atlantshafsbandalaginu og
við fengjum engar þær upplýsingar
sem bandalagið gæti ekki aflað.
Jóhann Einvarðsson (F/Rn)
kvað sovésk yfirvöld hafa sýnt tillits-
leysi gagnvart íslandi og e.t.v.
mannslífum eigin borgara. „Vekur
það mann til umhugsunar hvað gerts
hefði ef ekki hefði tekist að loka
kjamaofnunum." Jóhann taldi rétt
að íslendingar beittu sér fyrir því
að aðilar sem hagsmuna hefðu að
gæta kæmu sér saman um það
hvemig bregðast ætti við atburðum
af þessu tagi.
Ragnhildur Helgadóttir
(S/Rvk) kvað vera orðið alllangt
síðan samþykkt hefði verið að hefja
reglubundnar geislamælingar á Is-
landi. Alþjóða kjamorkumálastofn-
unin hefði boðið fram aðstoð við
þetta en við hefðum ekki haft mann-
dóm til að þiggja hana. Kvaðst
Ragnhildur vonast til þess að þing-
menn styddu það að veita fjármagni
til Geislavama til kaupa á nauð-
synegum rannsóknartækjum. Einnig
taldi Ragnhildur að nauðsynlegt
væri að bæta upplýsingastreymi
milli innlendra aðila í ljósi þess að
Almannavamir ríkisins hefðu engar
upplýsingar fengið fyrr en eftir dúk
og disk.
Friðrik Sophusson (S/Rvk)
kvað það vera mikil tíðindi er stofn-
aður væri nýr þingflokkur. Friðrik
ámaði hinum nýja þingflokki heilla
í starfi fyrir hönd þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins og óskaði góðs sam-
starfs við hinn nýja þingflokk gegn
óvinsælustu ríkisstjóm í manna
minnum.
Borgarflokkurinn hefur
lokið störfum
Hreggviður Jónsson (FH/Rn)
kvað sig og Inga Bjöm hafa reynt
allt til þess að ná sáttum við aðra
þingmenn Borgaraflokksins, en
ekki væri vilji til samstarfs. Það
eina sem þeir færu fram á væri að
menn viðurkenndu mistök sín og
hefðu viðlíka reglur og aðrir þing-
flokkar. Hann sagði það hafa gert
útslagið að formaður flokksins hefði
neitað að kalla saman aðalstjóm
flokksins til að ræða þessi mál.
„Flokknum hefur verið stolið af
ríkisstjóminni og fylgismönnum
hennar. Borgaraflokkurinn hefur
lokið störfum sínum, hann er nú
einn af vinstriflokkunum I landinu."
Júlíus Sólnes kvaðst fordæma
efnahagsstefnu ríkisstjómarinnar
og kvaðst myndu beijast hart gegn
ríkisstjóminni. Vonaðist hann til
þess að geta átt gott samstarf við
hinn nýja þingflokk í þessari bar-
áttu.
• ' •
MMflGI