Morgunblaðið - 18.10.1986, Qupperneq 26
26
sser aaaOTHO si imoAaaAouAj jgigAjanuagoM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. OKTOBER 1986
Þjóðhagsáætlun fyrir 1987:
Aðhald í þjóðarutgjöldum verður
forgangsverkefni á næsta ári
FORSÆTISRÁÐHERRA lagði sl. þriðjudag fram Þjóðhagsáætlun
fyrir árið 1987. í henni eru m.a. lögð fram markmið efnahagsstefnu
ríkisstjóraarinnar fyrir árið 1987. Aðhald að þjóðarútgjöldum verð-
ur forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar á næsta ári og er stefnt að
því, að aukning þjóðarútgjalda verði í heild innan við 2%. Einnig
stefnir ríkisstjórnin að „sem næst“ hallalausum viðskiptum við út-
lönd, að hlutfall erlendra skulda af landsframleiðslu lækki, atvinna
verði næg, hagvöxtur verði á bilinu 2-3% og verðbólga 4-5% frá
upphafi til loka ársins.
Sr. Bjarni Sigurðsson.
Rit um ís-
lenskan
kirkjurétt
VESTUR-ÞÝSK bókaútgáfa í
borginni Köln, sem nýtur mikils
álits fyrir útgáfustarfsemi sína,
hefur gefið út í ritröð evrópskra
háskólaritgerða doktorsritgerð
sr. Bjarna Sigurðssonar frá Mos-
felli, við Kölnarháskóla, um
íslenska kirkjurétt, sögu hans og
stöðu.
í kynningarorðum í bókinni, en
þetta er viðamikið rit á fímmta
hundrað blaðsíður, er bent á að hér
sé um að ræða gnindvallarrit, þar
sem komið sé saman mikið sögulegt
efni. Heimildir eru einkum ís-
lenskar. Einnig er komið inn á rétt
annarra Norðurlandaþjóða og þýsk-
an kirkjurétt.
í kynningarorðum er einnig bent
á að íslenska kirkjan hafí tekið á
sig svipmót lútherskrar siðbótar,
sem sé í nánum tengslum við aðrar
lútherskar kirlqur um Norðurlönd.
Bókin sem heitir á þýsku
Geschichte und Gegenwartsgestalt
des Islándischen Kirchenrechts.
Hún er komin í Bóksölu stúdenta.
Hagvöxtur á þessu ári virðist
ætla að verða mun meiri en fyrri
spár gerðu ráð fyrir. í þjóðhags-
áætlun er gert ráð fyrir að hagvöxt-
ur á mælikvarða landsframleiðslu
verði um 5% en fyrri spár gerðu ráð
fyrir 3,5% hagvexti. Vegna batn-
andi viðskskiptakjara munu þjóðar-
tekjur einnig vaxa all mikið meira
en gert var ráð fyrir, og er nú
áætlað að þær muni vaxa um 7%
í stað 5% áður. Hagvöxtur verður
því samkvæmt þessum spám meiri
hér á íslandi en í flestum öðrum
Evrvópulöndum og þjóðartekjur
jafnvel heldur hærri en þær voru í
upphafí þessa áratugar.
Laun hafa hækkað
um 31%
Góður árangur hefur einnig náðst
í baráttunni við verðbólguna, segir
í Þjóðhagsáætlun, þrátt fyrir að
launahækkanir urðu meiri en áætl-
að var þegar gengið var frá
samningum í febrúar. Nú er gert
ráð fyrir að laun hækki að meðal-
tali um 31% frá því í fyrra, þegar
tekið er tillit til launaskriðs og þess
að vinnutími hefur almennt lengst.
Þennan góða árangur í verðbólgu-
málum má að miklu leyti þakka
hagstæðum ytri skilyrðum, s.s. góð-
um aflabrögðum og lækkun olíu-
verðs og vaxta í heiminum, og er
í þjóðhagsáætlun minnt á mikilvægi
þess, að menn geri sér ljóst, að
ekki er hægt að búast við slíkum
búhnykk ár eftir ár.
Kaupmáttur á mælikvarða at-
vinnutekna hefur aukist um 8% að
meðaltali á á milli áranna 1985-86,
sem er meira en nokkru sinni fyrr.
Ráðstöfunartekjur á mann hækka
þó minna en atvinnutekjur vegna
aukinnar skattbyrði, eða um 6,5%
að meðaltali frá þvf í fyrra.
Þjóðarútgjöld aukist
ekki meira en 2%
Þjóðhagsáætlun fyrir árið 1987
byggist á því að útgjöld þjóðarbús-
ins aukist ekki um meira en 2% á
næsta ári. Til þess að það mark
náist ætlar ríkisstjómin að halda
aftur af útgjöldum ríkisins til íjár-
festinga og samneyslu, en telur
einnig að ráðstöfunartekjur heimil-
anna megi ekki í heild aukast
umfram þetta mark nema spamað-
ur aukist vemlega.
Stefnt er að því, að viðskipti við
útlönd verði nánast í jafnvægi á
næsta ári og halli innan við 0,5%
af landsframleiðslu.
Óbreytt gengisstefna
Ríkisstjómin ætlar að halda
áfram óbreyttri gengisstefnu, þ.e.
sem mestum stöðugleika í gengi
krónunnar. Þessi stefna getur þó
komið til endurskoðunar ef veruleg-
ar breytingar verða á skilyrðum
þjóðarbúsins t.d. óvæntar breyting-
ar á gengi erlendra gjaldmiðla á
alþjóðagjaldeyrismarkaði.
Á næsta ári er áætlað að stíga
skref til að rétta við fjárhag ríkis-
sjóðs með aðhaldi að útgjöldum,
hóflegri skattastefnu ogtakmörkun
á erlendum lánum. „Því er ljóst",
segir í þjóðhagsáætlun, „að ekki
verða eftii til þess að beita ríkis-
Qármálaaðgerðum á sama hátt og
gert var á síðastliðnum vetri". Að-
hald að opinberum útgjöldum má
þó, að mati ríkisstjómarinnar, ekki
ganga svo langt „að félagslegar
úrbætur stöðvist".
Tryggt verði innlennt
lánsfjármagn
Stjóm peningamála á næsta ári
mun miðast við það, að í sem
ríkustu mæli tryggja atvinnulífinu
og ríkinu fjármagn á innlendum
peningamarkaði. Ríkisstjómin og
Seðlabankinn munu reyna að stuðla
að því, að raunvextir verði hóflega
jákvæðir og vaxtaákvæði á lána-
markaðinum verði í betra samræmi
við innbyrðis stöðu lántakenda en
verið hefur, þ.e. vextir á ríkis-
skuldabrefum verði svipaðir og á
ýmsum öðrum skuldabréfum og
peningaeignum.
Stefnt hefur verið að auknu
frjálsræði í starfseminni á peninga-
markaðinum á þessu ári og má
segja að grundvallarlöggjöf úm
peningamarkaðinn og lánamál hafí
verið endumýjuð á þessu ári. Seðla-
bankinn getur þó, með samþykki
ráðherra, takmarkað útlánsvexti
bankanna, til þess að raunvextir
verði ekki hærri en í helstu viðskipt-
alöndum íslendinga eða óeðlilegur
munur sé milli inn- og útlána. Raun-
vextir inn- og útlána hafa hækkað
með lækkandi verðbólgu og eru nú
hærri en verið hefur um langt
skeið. Þannig er t.d. raunávöxtun
nýrra, almennra skuldabrefa metin
3%, samanborið við +1% á sama
tíma í fyrra.
Afkomuhorfur
Horfur virðast á, miðað við fyrir-
liggjandi álit fískifræðinga, að
sjávarafli geti aukist nokkur árið
1987 og næstu ár þar á eftir, þó
að óhjákvæmilegajgeta orðið sveifl-
ur í fískgengd. A næsta ári má
ætla að sjávarafurðaframieiðslan
geti aukist um 4-5% á næsta ári.
í landbúnaðinum virðist sem
framleiðslustjómun með búmarki
muni bera árangur á þessu ári og
því næsta. Gert er ráð fyrir 1%
samdrætti í mjólkurframleiðslu og
allt að 3% minni framleiðslu kinda-
kjöts á verðlagsárinu 1986-87 en á
undangengnu verðlagsári.
Framkvæmdir við rafvirkjanir og
hitaveitur em nú minni en áður og
hefur þar af leiðandi dregið úr fjár-
þörf til þeirra málaflokka. Einnig
hefur hagur flestra orkufyrirtækja
batnað og orkuverð lækkað. Raun-
verð Landsvirkjunnar til almenn-
ingsveitna hefur.svo dæmi sé tekið,
lækkað um þriðjung frá því það var
hæst 1983, og orkuverð hefur lækk-
að til almennings vegna afnáms
verðjöfnunargjalds og niðurfærslu
orkuverðs í tengslum við kjara-
samningana í febfuar.
Takist að framfylgja þjóðhagsá-
ætlun fyrir árið 1987 munu þjóðar-
tekjur hafa vaxið um 17% samtals
á ámnum 1984-1987 en á erfíð-
leikaárunum 1982-83 drógust þær
saman um rúmlega 5%.
Á ámnum 1981-1985 nam við-
skiptahallinn að meðaltali um 5%
af landsframleiðslu en stefnir í 1,5%
árið 1986 og gert er ráð fyrir „sem
næst“ jöfnuði í utanríkisviðskiptum
1987.
Skuldasöfnun hefur stöðvast en
ekki verið snúið við. Hlutfall er-
lendra skulda af landsframleiðslu
var 55% í árslok 1985 en verður
að öllum líkindum 51,5% í lok þessa
árs og 49% í árslok 1987.
Fékk 125
atkvæði
í FRÉTT um úrslit i prestskosn-
ingum í Hrunaprestakalli í gær
féU niður atkvæðafjöldi HaUdórs
Reynissonar sem flest atkvæði
hlaut. HaUdór hlaut 125 atkvæði.
Pjetur Maack, formaður SÁÁ, tekur við gjöfinni úr hendi Magnúsar Kjartanssonar
í Gallerí Borg.
Jón Axel Björnsson við eitt oUumálverka sinna.
„Upphengi“ í Gallerí Borg
GALLERÍ BORG heldur næstu dagana
„upphengi" á verkum Magnúsar Kjartans-
sonar og Jóns Axels Björnssonar. Magnús
sýnir málverk, einþrykk og skúlptúr, en Jón
Áxel olíumálverk. „Þetta er ekki formleg
sýning. Við ákváðum þetta og undirbjuggum
á tveimur dögum - þótti ekki stætt að láta
okkar eftir liggja í þessum hasar kringum
leiðtogafundinn," sagði Úlfar Þormóðsson,
framkvæmdastjóri gaUerísins.
Þegar upphengið var opnað almenningi af-
henti Magnús Samtökum áhugamanna um
áfengisvandamálið skúlptúrinn „Ahyggjur" að
gjöf. Hann samanstendur af átta lóðum úr leir,
og er bókstafur greyptur í hvert þeirra. Þau
mynda saman heiti verksins. Myndir Magnúsar
eru unnar með blandaðri tækni á pappír, en
ein þeirra strekt á léreft. Einþiykkin eru máluð
á gler og síðan þrykkt á pappa.
Jón Axel sýnir fjögur olíumálverk á striga.
Þau eru öll unnin á þessu ári.
Upphenginu lýkur 28. október nk. Gallerí
Borg er opið virka daga frá kl. 10.00- 18.00
og frá kl. 14.00-18.00 um helgar.
Morgunblaðið/S.P.B.
Umskipanir um
höfnina aukast
Húsavik.
MIKLAR umskipanir hafa faríð
um Húsavíkurhöfn á þessu ári
og mun meiri en undanfarín ár.
Rækjubátar vfðsvegar af landinu
hafa landað á Húsavík og sjófrystri
rækju umskipað í önnur skip til
útflutnings og ferskri rækju verið
landað til vinnslu hér eða flutninga
á bílum til Kópaskers, Akureyrar
og allt til Skagastrandar.
Þegar meðfylgjandi mynd var
tekin sl. þriðjudag var verið að
umskipa til útflutnings sjófrystri
rækju úr Hilmi SU og Sjávarborg
GK yfír í Ljósafoss og Óskar Halld-
órsson var að landa ferskri rækju
sem flutt er á bflum til Akureyrar
til vinnslu hjá K. Jónssyni.
Heimabátar hafa séð Fiskiðju-
samlaginu fyrir rækju og veitt það
vel að þar hefur verið stöðug vinna.
Fréttaritari.