Morgunblaðið - 18.10.1986, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.10.1986, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1986 ________• ■ ■ ■ . ■ - - ................... V estmannaeyjar: Formanns- skiptí hjá út- vegsbændum Aðalfundur LÍÚ haldinn í Eyjum Vestmannaeyjum. FORMANNSSKIPTI áttu sér stað hjá Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja á aðalfundi fé- lagsins i síðustu viku. Kristinn Pálsson, sem gegnt hefur for- mennsku í féiagi útgerðarmanna i Eyjum í sjö ár, baðst undan endurkjöri og var Hilmar Rós- mundsson kjörinn formaður i hans stað. Hilmar er jafnframt framkvæmdastjóri Útvegs- bændaf élagsins. Á aðalfundinum voru mál rædd og samþykktar ýmsar tillögur um hagsmunamál útgerðarinnar. M.a. var samþykkt eftirfarandi tillaga um landhelgi við Vestmannaeyjar sem svo mjög er nú á dagskrá meðal hagsmunaaðila í sjávarútvegi í Eyjum: „Aðalfundur Útvegsbændafélags Vestmannaeyja, haldinn 10. októb- er 1986, samþykkir að mælst verði til þess við Sjávarútvegsráðuneytið að þriggja sjómílna fískveiðiland- helgi verði ákveðin í kringum Heimaey. Bátum 80 rúmlestir og minni verði þó heimilt að stunda togveiðar á þessu lokaða svæði 1. febrúar til 1. september ár hvert". Eftirtaldir útgerðarmenn skipa aðal- og varastjóm Útvegsbænda- félags Vestmannaeyja: Hilmar Rósmundsson formaður, Sigurður Einarsson, Karl _ Guðmundsson, Leifur Ársælsson, Óskar Matthías- son, Gísli Valur Einarsson, Magnús Kristinsson og Siguður Elíasson. Ákveðið hefur verið að aðalfund- ur Landssambands íslenskra útvegsmanna verður haldinn í Vest- mannaeyjum dagana 5.-7. nóvem- ber nk. Verður það í annað skiptið sem útgerðarmenn ræða mál sfn á aðalfundi í stærstu verstöð landsins. - hkj. Hugmynd um há- skóla á Alþingi 1845 Aðalbygging Háskóla íslands Háskólinn I: eftirÞórð Kristinsson 75 ár eru nú liðin síðan Háskóli íslands tók til starfa, en hann var settur fyrst þann 17. júní 1911 á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar, forseta Hins íslenska bókmenntafé- lags, en regluleg kennsla hófst 4. október þá um haustið. Reyndar var skólinn stofnaður að lögum tveimur árum fyrr, á Alþingi 1909, og hlutu lögin staðfestingu kon- ungs 30. júlí þá um sumarið. Við þessi tímamót er ýmislegt gert tii fagnaðar og hátíðabrigða svo sem eðlilegt er, enda háskólinn hinn eini með smárri þjóð og ein af forsendum sjálfstæðis hennar. En hér er ekki ætlunin að rita af- mælisgrein, heldur verður reynt í fáeinum pistlum að varpa svolitlu ljósi á vettvang háskólans og þá vinnu sem þar er innt af hendi. Háskóli er þess eðlis — eða á að vera — að hann verður aldrei gamall þótt árin færist yfir og af sömu sökum verður engin grein gerð fyrir slíkum skóla í einu vet- fangi, né heldur verður það gert í eitt skipti fyrir öll. En vert er að skyggnast svolítið um. Enda þótt Háskóli íslands sé engin heilög kýr, fremur en önnur mannanna verk, þá er hann íslensku samfélagi býsna mikilvæg- ur um margt og ef til vill yrði það okkur ljósara ef við hugsuðum okk- ur samfélagið án hans — ef við þá getum það. í fljótu bragði er nefhi- lega vandséð hvemig það er hægt En hinu má auðvitað ekki gleyma að hann stendur ekki sömu rótum og náttúrulögmálin; skólinn heldur ekki áfram að vera til og daftia, nema með því einu að stutt sé við hann með ráðum og dáð — í senn af þeim sem starfa við hann og þeim er fara með opinbera sýslan. Og hið sama gildir skiljanlega um samfélagið. Þessi sannindi eru engin ný bóla, þau voru mönnum ofarlega í huga er hugmynd um háskóla var fyrst hreyft á hinu fyrsta endurreista Alþingi árið 1845. Jón Sigurðsson forseti bar þar fram tillögu um „þjóðskóla" á íslandi, er „veitt gæti svo mikla menntun hverri stétt að nægir þörfum þjóðarinnar". En 36 ár liðu uns málið var aftur tek- ið til umræðu á Alþingi. Árið 1881 flutti Benedikt Sveinsson, sýslu- maður, frumvarp til laga um stofnun „háskóla" á íslandi og enn á þingunum 1883 og 1891. Málið var einnig fyrir þinginu 1885 og 1893 og var samþykkt tvívegis, en konungur synjaði staðfestingu. í frumvarpi sínu notaði Benedikt Sveinsson orðið „háskóli" um það menntasetur sem hann vildi að sett yrði á fót og taldi það nýmæli, en hann sagðist hins vegar fús að breyta því í landskóla eða þjóðskóla ef heitið færi fyrir brjóstið á mönn- um; fyrir honum vekti að draga saman í eina heild þær vísinda- stofnanir sem til væru í landinu „og við eigum að hafa“. Andleg sam- vist og samvera yrði „ftjóvgari, innilegri, §örugri og aflmeiri“; hins vegar mætti „ekki ætlast til, að menn skapi fullkomnar vísindalegr- ar stofnanir í fyrstu, heldur að hinar vísindalegu stofnanir skapi þá eig- inlegu vísindamenn; einungis með tímanum ná slíkar stofnanir fúll- komnum blóma, vexti og viðgangi, og þennan vöxt og viðgang fá þær af sjálfum sér. Það er best fyrir oss að sníða okkur stakk eftir vexti; vér verðum að byija þar, sem við erum komnir". íslenska orðið háskóli er sömu merkingar og latneska orðið „uni- versitas" sem tekur til allra fræði- greina sem menn leggja stund á; það birtist fyrst í prentuðu máli í ritum Þorláks biskups Skúlasonar, í þýðingu á Gerhardi-hugvekjum árið 1630 og svo í formála að Þor- láksbiblíu árið 1644. Benedikt Sveinsson vakti því orðið upp af sveftii í frumvarpi sínu og hefur það haldið vöku sinni æ síðan. Skólamir sem Benedikt vildi draga saman í eina heild voru tveir embættismannaskólar, prestaskól- inn, stofnaður 1847, og læknaskól- inn sem stofnaður var 1876, en báðir þessir skólar voru vísar að háskóla eða á „háskólastigi" með nútíðarorðalagi. Árið 1907 fékkst samþykkt þingsályktunartillaga í neðri deild Álþingis þar sem skorað er á landstjómina að endurskoða lögin um embættismannaskólana og semja frumvarp um stofnun háskóla. Hannes Hafstein, ráðherra íslands, fól forstöðumönnum emb- ættismannaskólanna, þeim Jóni Helgasyni í prestaskólanum, Guð- mundi Bjömssyni í læknaskólanum og Lámsi H. Bjamasyni í lagaskól- anum, sem tekið hafði til starfa haustið 1908, að semja téð frum- varp og létu þeir fylgja því frum- varp um laun háskólakennara. Voru bæði frumvörpin samþykkt sem lög og fengu staðfestingu kon- ungs 30. júlí 1909. Með lögum nr. 36,11. júlí 1911 vom forgangsrétt- indi kandídata frá Háskóla Islands til embætta á íslandi staðfest og fé veitt til skólans. Hinn nýstofnaði háskóli, sem settur var fyrsta sinn 17. júní 1911 og hóf starfsemi 4. október um haustið, var í fjómm deildum, guð- fræðideild (prestaskólinn), lækna- deild (læknaskólinn), lagadeild (lagaskólinn) og heimspekideild sem var ný í þeim skilningi að eng- inn skóli var fyrirrennari hennar. Við skólann fyrsta veturinn vom 45 nemendur, 11 fastir kennarar og 7 stundakennarar. Rektor skól- ans var Bjöm M. Ólsen. Höfundur erprófstjóri við Há- skóla Islands. Viðskiptin við Sovétríkin: Stefnir í halla á vöruskiptunum - ef ekkert verður úr saltsíldarsölu VIÐSKIPTIN við Sovétríkin hafa undanfarin ár verið um 10% af inn- og útflutningi íslands. Á árinu 1985 fluttum við út vörur til Sovétríkjanna fyrir 2.271 milljónir kr. og fluttum inn fyrir 3.016 milljónir kr. Var vöru- skiptajöfnuðurinn því okkur í óhag um 744 milljónir kr., eins og reyndar yfirleitt hefur verið. í ár snerist dæmið hins vegar við, aðaliega vegna lækkunar á verði olíu sem er 90% af innflutn- ingi okkar frá Sovétríkjunum, og stefnir nú i að vöruskiptajöfn- uðurinn verði jákvæður fyrir okkur, samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá Jóni Ögmundi Þormóðssyni deildar- stjóra í viðskiptaráðuneytinu. Ef núverandi olíuverð helst óbreytt og ekkert verður úr saltsildar- kaupum Sovétmanna stefnir á nýjan leik í halla á vöruskiptum okkar við Sovétríkin á næsta árí. Olía er 90% af innkaup- um Islands í Sovétríkjunum Árið 1985 vom helstu tegundir útflutningsvara okkar til Sovétríkj- anna eftirfarandi: Freðfískur 1.046 milljónir, saltsfld 750 milljónir, ull- arvömr 287 milljónir og lagmeti 105 milljónir kr. Frá Sovétríkjunum fluttum við inn olíuvömr fyrir 2.718 milljónir, rækjur 147 milljónir, timbur 82 milljónir og bfla fyrir 51 milljón kr., svo helstu tegundur séu nefndar. í Bandaríkjadollurum reiknað var olíukaupareikningurinn í Sovétríkjunum 70 milljónir dollara árið 1985 en vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði olíu fer reikn- ingurinn niður í um 40 milljónir dollara í ár. Á mánudag era fyrirhugaðar í Moskvu viðræður við Soyétmenn um olíukaup á næsta ári. í gildi er rammasamningur um viðskipti á milli landanna á ámnum 1986 til 1990 en í lok hvers árs em gerðir samningar um olíuviðskipti ársins á eftir. Samningamir hafa yfírleitt gengið Jjannig fyrir sig að sendi- nefhd Islends fer til Moskvu að hausti til samningaviðræðna og hefur þá oftast verið gengið frá bráðabirgðasamkomulagi sem síðan er endanlega gengið frá fyrir árs- lok. Verðið á olíunni fer eftir Rotterdamskráningu en verið er að ganga frá magni einstakra tegunda °g ýmsum framkvæmdaatriðum. Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytis- stjóri viðskiptaráðuneytisins stýrir íslensku viðræðunefndinni og er hann þegar kominn til Moskvu. Með honum í nefndinni em forstjórar olíufélaganna þriggja, Þórður Ás- geirsson, Indriði Pálsson og Vil- hjálmur Jónsson, auk Ama Kr. Þorsteinssonar deildarstjóra hjá Olíufélaginu hf. Þeir fara utan í dag. Það er ríkisstjómin sem gerir samninginn en framselur hann síðan til olíufélaganna sem annast framkvæmd hans. 50% af olíunni keypt í Sovétríkjunum Á síðasta ári keyptu íslendingar 304 þúsund tonn af olíuvöram í Sovétríkjunum og er það 50,9% af öllum olíuinnkaupum okkar það árið, miðað við magn. Árið áður keyptum við þar 329 þúsund tonn og er samdrátturinn aðallega vegna minnkandi svartolíunotkunar hér. Hlutfall olíukaupa okkar í Sov- étríkjunum lækkaði við þetta úr um 60%, sem algengast hefur verið á undanfömum ámm, niður í rúm 50%. Olíuinnkaupin árið 1985^ vom þannig I grófum dráttum: í Sov- étríkjunum keyptum við 107 þúsund tonn af svartolíu, sem er öll sú svartolía sem hingað var keypt. Þaðan keyptum við 61 þús- und tonn af bflabensíni sem er 64% af innkaupum okkar af þeirri teg- und. Heildarbensínkaupin vom 95 þúsund tonn og var mest af þessum 34 þúsund tonnum keypt frá Port- úgal, en minna frá Bretlandi og öðmm löndum. Frá Sovétríkjunum keyptum við 136 þúsund tonn af gasolíu en heildargasolíukaupin vom 237 þúsund tonn og er hlut- fall Sovétríkjanna því 57%. Afgang- urinn er aðallega keyptur frá Hollandi en minna kom frá Portú- gal, Noregi og fleiri löndum. íslend- ingar kaupa ekki aðrar en þessar þijár helstu olíutegundir í Sovétríkj- unum. Af öðmm tegundum vegur þotueldsneyti mest en það er mest keypt í Hollandi en einnig lítils- háttar í Noregi, Belgíu og Portúgal. Það litla sem keypt er inn af flug- vélabensíni er keypt frá Hollandi. Þaðan kom einnig megnið af smur- olíunni okkar. Olíukaupasamningurinn við Sov- étmenn fyrir árið 1986 hljóðar upp á 120 þúsund tonn af gasolíu, 120 þúsund tonn af svartolíu og 70 þúsund tonn af bensíni. Er þessi samningur svipaður og árið áður, en reynslan sýnir að innkaupin fara ekki alltaf nákvæmlega eftir hon- um. Til dæmis er búist við að svartolíunotkun hér hafi enn dregist saman í ár og að ekki verði staðið við samninginn að fullu í því efni. Jón Ögmundur Þormóðsson bjóst við að í Moskvu yrðu málin rædd á svipuðum nótum og áður, en sagði að ekkert væri hægt að fullyrða um niðurstöðu fyrr en skrifað hefði verið undir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.