Morgunblaðið - 08.12.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.12.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979 afgreiðslusal á 2. hæð hússins, en sem kunnugt er hefur lögreglan í Kópavogi 1. hæð hússins til af- nota. Þjófavarnakerfi gaf þegar merki til lögreglunnar, og handtók lögreglan í Kópavogi innbrotsþjóf- ana rétt er þeir höfðu skriðið inn um gluggann. Ekki hafði innbrots- þjófunum gefist ráðrúm til að athafna sig inni í húsinu og ekki valdið öðru tjóni en smávægi- legum skemmdum á gluggaum- búnaði. Voru mennirnir afhentir Rann- sóknarlögreglu ríkisins sem flutti þá í fangelsið við Síðumúla og tók að sér framhaldsrannsókn máls- INNLENT Jólasveinar nokkrir skemmtu vegfarendum í miðborg Reykjavíkur í gær sem komu í verslunarerindum á útimarkaðinn og fengu þeir hinar bestu móttökur hjá eldri sem yngri. Ljósm. Rax. TVEIR ungir menn, sem brutust inn í skrifstofu bæjarfógetans i Kópavogi aðfaranótt s.l. fimmtu- dags hafa verið úrskurðaðir í gæzluvarðhald til 12. desember. Leikur grunur á því að þeir hafi fleiri afbrot á samvizkunni og þótti nauðsynlegt að hefta för þeirra á meðan rannsókn færi fram á málinu. Þjófarnir brutu upp glugga á Flugleiðir: Pílagrímaílugi lokið — Ein DC-8 leigð til Cargolux PÍLAGRÍMAFLUGI Flugleiða í ár átti að ljúka i gær en þá var DC-10 þota félagsins í síðustu ferð sinni frá Jeddah í Saudi — Arabiu til Surabaja i Indónesiu og er hún siðan væntanleg til Luxemborgar um kl. 14:30 i dag. Breiðþotan fer þá í tveggja daga skoðun, en síðan á hún að hefja beint flug milli Luxemborgar og New York samkvæmt þeim breyt- ingum á vetraráætlun sem til- kynnt hefur verið um og greint frá í Mbl. Ein DC-8 þota félagsins sem verið hefur í leigu að undanförnu hjá Seabord og Air Bahama hefur verið leigð næstu þrjá mánuði til Cargolux. Fylgja henni 4 áhafnir og verður vélin næstu 3 mánuði notuð í vöruflutningum fyrir Cargolux og hefst leigutíminn núna í desember. Hinar tvær DC-8 þotur félagsins verða notaðar í Norður—Atlantshafsfluginu og flugi milli íslands og Norðurlanda ásamt annarri Boeing vélinni, en hin er í leiguflugi í Guatemala fram á næsta ár. Flest starfsfólk Flugleiða er starfað hefur að pílagrímafluginu er væntanlegt til landsins með áætlunarvél frá Luxemborg síðdegis í dag. Alls hafa verið fluttir 30.200 farþegar í 96 ferðum í pílagrímaflugi félagsins í Indó- nesíu og Alsír í haust og tóku um 155 starfsmenn þátt í þessu verk- efni. Norðurstjarnan hf. Hafnarfirði: Framleiðsluverðmæti á árinu um 1.130 m.kr. NIÐURSUÐUVERKSMIÐJAN Norðurstjarnan hf. í Hafnarfirði hefur verið í fullum gangi allt þetta ár eftir rúmlega þriggja ára hlé á niðursuðu og hafa á árinu verið framleiddar 4,3 millj- ónir dósa af léttreyktum síldar- flökum að verðmæti 600 miiljónir króna á núverandi gengi. Eru flökin öll seld til Bandarikjanna. Undanfarnar vikur hefur verið unnið að flökun og frystingu síldar sem hráefni fyrir fram- leiðslu á næsta ári. Hefur verk- smiðjan fengið um 1.500 tonn til vinnslu og samsvarar það 8—9 mánaða vinnslu eða 5—6 milljón- um dósa og hefur hún aldrei fengið svo mikið hráefni áður á einni vertíð. Nýlega var samið um sölu á 2,6 milljónum dósa til Bandaríkjanna að verðmæti 430 m.kr. og er nú unnið að frekari sölu á þessum markaði. Þá voru fryst 310 tonn af loðnu fyrir Japansmarkað að verð- mæti 112 m.kr. Gert er ráð fyrir að heildarverðmæti framleiðslu Norðurstjörnunnar á þessu ári verði um 1.130 m.kr., en fyrirtækið hefur milli 50 og 60 manns í vinnu. Þá segir að lokum í frétt frá Norðurstjörnunni að unnið sé nú að breytingum með það fyrir augum að taka upp fjölbreyttari framleiðslu til að renna traustari stoðum undir starfsemina á kom- andi árum. Eignaraðild er þannig háttað að Framkvæmdastofnunin á 52% fyrirtækisins, ríkissjóður um 30%, Hafnarfjarðarbær um 6% og einstaklingar 11%. Stjórn- arformaður er Guðmundur B. Ól- afsson og forstjóri Pétur Péturs- son. Góður línuafli Bol- ungarvíkurbáta Bolungarvík, 7. des. AFLI línubáta héðan hefur verið mjög jafn og góður að undan- förnu, samkvæmt upplýsingum Hálfdáns Einarssonar útgerðar- stjóra hjá Einari Guðfinnssyni hf. Bátarnir hafa verið allt frá 10 upp í 14 tonn í róðri. Héðan eru gerðir út fimm bátar, tveir af stærri gerðinni, sem róa með 40 bjóð og þrír af minni, sem róa með 32 bjóð. Línufiskurinn hefur verið stór og fallegur. Af togbátunum er það að segja að þeir hafa undanfarið verið í þorskveiðibanni en þeir fóru út eftir síðustu brælu og samkvæmt fréttum virðast þeir afla vel. Rækjuvertíðinni er að ljúka fyrir áramót. Rækjuveiðin var góð til að byrja með en um tíma voru Jökulfirðirnir lokaðir og setti það strik í reikninginn. Sjómenn í Bolungarvík þakka þennan góða afla á línuna sérstaklega góðri beitu en 70—75% af þeirri beitu, sem notuð hefur verið er smokkur, sem aflaðist í Djúpinu í haust. Mikil og jöfn vinna hefur verið í landi vegna góðra aflabragða að undanförnu. — Gunnar. Getraun Rauða krossins: Niðurstöður eftir helgi ENN er verið að yfirfara getraunaseðla úr kosninga- getraun Rauða krossins og hefur fundist aðeins einn seðill er hafði þingmannatölu flokkanna rétta. Fékk Mbl. þær upplýsingar í gær á skrifstofu Rauða krossins að lokið yrði við á mánudag að fara yfir seðlana og þá ættu endanlegar niðurstöður að liggja fyrir. 595 atvinnu- lausir á skrá ATVINNULEYSI heíur aukist nokkuð að undanförnu og sam- kvæmt skrá félagsmálaráðuneyt- isins voru í lok nóvember 549 atvinnulausir um landið allt, en 295 í lok október. í kaupstöðum voru 407 atvinnu- lausir nú, 235 við síðustu mánaða- mót, 8 í kauptúnum með 1.000 íbúa, en 2 í októberlok og í öðrum kauptúnum 134 atvinnulausir nú en voru 40 í lok október. í öllum kaupstöðum hefur atvinnulausum fjölgað nema í Siglufirði þar sem þeim fækkaði úr 35 í 3 og í Keflavík fækkaði atvinnulausum úr 18 í 13. Fógetaþjófarnir í gæzluvarðhald Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins á fyrsta fundi sinum eftir alþingiskosningarnar í gær. Ljósm.: Kristján. Þingflokkur sjálfstæðismanna: Tók jákvætt í tillögu Benedikts ÞINGFLOKKUR Sjálfstæðis- flokksins kom í gær saman í Alþingishúsinu til fyrsta fundar síns eftir kosningarnar. Á fund- inum var rætt um stjórnmálavið- horfið á breiðum grundvelli og byrjun þingstarfa. Formaður og varaformaður þingflokks svo og aðrir starfsmenn hans verða ekki kjörnir fyrr en þing hefur verið sett. Á fundinum . var ennfremur fjallað um tillögu formanns Al- þýðuflokksins, Benedikts Grön- dals, um kjör forseta og í nefndir, sem hann gerði formönnum allra stjórnmálaflokkanna á fundi í forsætisráðuneytinu í fyrradag. Tillagan var þess efnis að þing- styrkur réði atkvæðagreiðslunni. Þingflokkur sjálfstæðismanna tók jákvætt undir þá tillögu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.