Morgunblaðið - 22.10.1977, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 22.10.1977, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977 41 JL) Ti7 /'s VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—11 FRÁ MANUDEGI • i\yf/JATnp\''LUJ'u\i sem við eigum við að striða hér — og nú, og mér finnst full þörf á að ræða um. Það er unnt að hafa trú án tilfinninga og kærleika, skoð- un eða skoðanir án tillits til til- finninga annarra og lffsgildis þeirra — „en nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, og þeirra er kærleikurinn mestur". Þórir Guðbergsson." £ Dýrt að vera fátækur Oft hefur mikið verið rætt um vanda húsbyggjenda um lána- mál og kjör þeirra, aó vextir og afborganir séu að sliga fólk, sem stendur I því að koma yfir sig húsnæði. Einn þeirra mörgu, er staðið hefur í slikum stórræðum, hefur látið fara frá sér nokkrar tölur um vaxtamál og í framhaldi af þvi er hann með hugmynd, sem hann segist hafa rekizt á erlendis. „Það hefur löngum verið dýrt að vera fátækur, segir fólk stund- um, þeir fátæku þurfa á meiri lánum að halda en hinir, fá þvi meiri vexti og afborganir í haus- inn og eru kannski í sífelldu basli. Húsbyggjendur eru flestir fátæk- ir meðan á framkvæmdum eða kaupum stendur og jafnvel lengi á eftir, eða þann tíma sem þeir eru að jafna sig á vaxtagreiðslum og afborgunum. Við getum tekið sem dæmi mann sem hefur kom- izt yfir nokkur lán, t.d. hjá Spari- sjóði Reykjavikur og nágrennis, svo og vaxtaaukalán. Ef hann er með allt að 1 m. kr. að láni frá SRN greiðir hann hátt I 200 þúsund kr. í vexti fyrsta árið og afborgun er um 130 þúsund. Greitt er tvisvar á ári ef ég man rétt. Sem sagt yfir 300 þúsund á ári. Einnig er greitt tvisvar á ári af vaxtaaukalánum, en þau eru með dýrustu lánum, sem hægt er að taka. Ef hinn sami er með allt að 800 þúsund kr. í vaxtaaukaláni, einu eða tveimur, greiðir hann ekki minna en 160 þúsund i af- borgun af þeim báðum og vextir eru um 200 þúsund fyrsta árið. Þá erum við komnir i yfir 300 þús- und þar, eða samtals um 700 þús- und. Þetta er ekki nákvæmlega reiknað og sennilega of vægt. Við þetta getum við siðan bætt víxlum hér og þar kannski, með öllum sinum afborgunum og vöxtum. Þar að auki skal minna á kostnað við hinar og þessar framkvæmdir við húsbygginguna eða afborgan- ir ef keypt hefur verið tilbúið hús. Sennileg má því bæta við þetta allmyndarlegri upphæð og um leið minna á að venjuleg laun eru e.t.v. um 2 m. kr. á ári, kannski yfir 3 ef konan vinnur lika úti. Að þessu sögðu (og reyndar þarf varla að segja þetta allt, þvi þetta veit helmingur þjóðarinn- ar) mætti skoða hugmyndir frá öðrum löndum um húsamál. Tíðk- ast mun t.d. á Norðurlöndum að hægt er að leigja hús, sennilega af ríki eða bæ, og greiða fyrir það ákveðið verð. Menn eru því leigjendur, en ekki eigendur, en ekki verður þeim kastað á götuna fyrirvaralaust af óprúttnum eig- endum, eins og gæti hugsazt hér- lendis. A hinn bóginn mun það einnig vera til að fólk kaupir hús- næði þannig, að greidd er ákveðin upphæð í byrjun, aðeins brot af útborgun eins og hún tíðkast hjá okkur, síðan reglulega á hverjum mánuði, og þá nánast svipaða upp- hæð og ef um húsaleigu væri að ræða. Þar eru menn sem sé ekki að kaffæra sig í lánum og vöxtum heldur komast jafnt og þétt yfir sitt húsnæði ef þeir ekki vilja leigja. Að auki má siðan nefna að bankar munu vera öllu öflugri og e.t.v. þægilegri viðureignar en hér. En allt þetta má kannski út- skýra með þvi að verðbólgan rugl- ar svona dæmi fyrir okkur, það er ekki hægt annað en hafa háa vexti og jafnframt ekki hægt að fá lánað til langs tima. Mér finnst að þetta allt þurfi umræðu við og það helzt á Alþingi og væri vissu- lega full þörf á því að jafnvel skipa starfshóp um þessi mál, sem tæki þetta til gaumgæfilegrar athugunar og kæmi með raunhæf- ar tillögur, kannski soðnar upp úr því sem tiðkast erlendis. Húsbyggjandi." % Kaffihús f Breiðholti Kona, sem sagðist nýlega hafa lesið i blaði viðtal við Haf- liða, ungt skáld, sagði að skáldið hefði sagt, að ekki væri neitt kaffihús í Breiðholtshverfi. Þessu vildi konan mótmæla, því hún sagði að hægt væri að fá keypt kaffi á griilstað, sem væri í efra Breiðholti, rétt við KRON- verzlunina þar. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlega skákmótinu í Bad Lauterberg í marz kom þessi staða upp i skák þeirra Wocken- fuss, V.-Þýzkalandi og Timmans, Hollandi, sem hafði svart og átti leik. 19 ..; Bxd4, 20. Hxd4 — Bxc2 + !, 21. Kxc2 — b3+ og hvitur gafst upp. Röð efstu manna á mótinu, sem var 100 ára afmælismót V- Þýzka skáksambandsins, varð þannig: 1. Karpov 12. v. af 15 mörgulegum 2. Timman 10 v. 3. Furman 9 v. 4. Sosonko 8V4 v. 5—8. Friðrik Ólafsson, Liberzon, Húbner og Csom 8 v. Þátt- takendur voru alls 16, þar af 13 stórmeistarar. % Spurt um ráðherralaun Þá hefur önnur kona haft samband við Velvakanda og viljað fá að vita hver væru laun ráð- herra og spurði hún hversu mikið ráðherrar hefðu hækkað við sig launin á s.l. vetri, að það væri fróðlegt að vita það. Ekki veit Velvakandi hvort það er rétt að ráðherrar hafi hækkað við sig launin, né heldur hvaða laun þeir hafa en þau eru án efa ekki nema sanngjörn miðað við þann starfa, sem þessum embætt- um fylgir og þeirri ábyrgð. HÖGNI HREKKVÍSI Hús í Borgarnesi Húseignin Þorsteinsgata 19, verður til sýnis sunnudaginn 23. 10. kl. 10 —16. Tilboð ósk- ast. Eigandi KENNSLA í FLUGUKÖSTUM >VFR Kaststarfsemi stangaveiðifélaganna i Reykjavík og Hafnarfirði hefst á sunnu- daginn kl. 10.20 i Laugardalshöliinni. Öllum er heimil þátttaka, en utanfélags- mönnum er bent á að notfæra sér haustnám- skeiðin þar sem vornámskeiðin eru að venju fullsetin. Stangaveiðifélag Reykjavikur. Stangaveiöifélag Hafnarfjarðar. Kastklúbbur Reykjavíkur. Úrvals steikur Lambalæri kr. kg. 772 Svinahryggur kr. kg. 2150 Svínalæri kr. kg. 1250 Svinabógur kr. kg. 1250 Nauta Roast kr. kg. 2180 Folaldabuffsteik kr. kg. 1500 Hreindýrasteik kr. kg. 1250 Kálfasteik kr. kg. 690 Opið tilhádegis ídag laugardag VIÐTALSTÍMI p Alþingismanna og ^ borgarfulltrúa Sjálfstæöisflokksins í Reykjavík Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá klukkan 14:00 til 16:00. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábend- ingum og er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér viðtalstíma þessa Laugardaginn 22. október verða til viðtals: Pétur Sigurðsson, alþingismaður Davið Oddsson, borgarfulltrúi Gústaf B. Einarsson, varaborgarfulltrúi. Davíð Gústaf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.