Morgunblaðið - 22.10.1977, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 22.10.1977, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977 25 Þingið og þjóðin Þjóðkjörið þing. Þessi litla mynd sýnir hluta af fundarsal Sameinaðs þings. Fremst á mynd má sjá Þorvald Garðar Kristjánsson og Guðmund H. Garðarsson. 1 næstu röð: Jón G. Sólnes, Axel Jónsson, Albert Guðmundsson og Odd Ólafsson. Enn aftar: Þórarinn Þórarins- son og Stefán Valgeirsson. — Að baki þingmanna sést frétta- maður sjónvarps (enda ekkert verkfall er myndin var tekin) ásamt vélum sínum, er nema mynd og tal til flutnings í frétt- um fjölmiðiisins. Efst sést fólk á öllum aldursskeiðum, er brugðið hefur sér á þingpalla til að sjá og heyra. Myndin sýn- ir sum sé tengsl þings og þjóð- ar, sem að vísu mættu meiri vera, en eru öngvu að síður traustari en svartsýnir hyggja. sinf£nju_ hljómsveit íslands 65 fastrádnir hljómlistarmenn Sveitarfélög á höfudborgarsvæði kostnaðaraðilar FRAM hefur verið lagt í neðri deild Alþingis stjórnarfrum- varp um Sinfóniuhljómsveit íslands. Frumvarpið kveður á um nafn hljómsveitarinnar, varnarþing i Reykjavík og að hún skuli heyra undir menntamálaráðuneytið. Þá segir að starf hljómsveitar- innar skuli miða að þvi að efla áhuga og þekkingu á æðri tónlist og auðvelda mönnum að njóta hennar m.a. með hljómlistarflutningi viðs veg- ar um landið. Kostnaður skiptist þannig skv. frumvarpinu (stofn- og rekstrarkostnaður): Ríkissjóður 37%; Ríkisútvarp 28%; Þjóð- leikhús 10%; Borgarsjóður Reykjavíkur, bæjarsjóður Kópa- vogs, Hafnarfjarðar, G .rðabæj- ar og Seltjarnarness 25%. Með samþykki rekstraraðila getur ráðuneytið heimilað fleiri sveit- arfélögum aðild að rekstri hljómsveitarinnar. Stjórn Sinfóníuhljómsveitar skal skipuð fimm mönnum: einum frá viðkomandi sveitar- félögum, einum frá starfs- mannafélagi hljómsveitar, ein- um frá Þjóðleikhússráði, einum frá fjármálaráðuneytí og út- varpsstjóra, sem jafnframt er stjórnarformaður Stjórnin ræð- ur framkvæmdastjóra til fjög- urra ára í senn, en endurráðn- ing er heimil. Gert er ráð fyrir heimild þl að ráða allt að 65 hljóðfæraleikara til fastra starfa. Sinfóníuhljómsveit og Þjóð- leikhús hafi samvinnu um flutning söngleikja. Heimilt er að semja við Ríkisútvarp um skrifstofuhald fyrir hljómsveit- ina gegn eðlilegri þóknun. MMnGI Skipulagslög og fatlað fólk: Stjórnarfrumvarp til iðnaðarlaga Sagt frá nýjum þingmáhun # Öryggi og hollustu- hættir á vinnustöðum Benedikt Gröndal (A) mælti sl. fimmtudag fyrir tillögu til þingsályktunar, er hann flytur í S.Þ. um allsherjarathugun og úttekt á öryggi og hollustuhátt- um á vinnustöðum. Skal ríkis- stjórnin gangast fyrir úttekt- inni en Heilbrigðiseftirlit rikis- ins annast framkvæmd hennar í samráði við vinnuveitendur og verkalýðsfélög. Benedikt lagði áherzlu á nauðsyn slíkrar úttektar, m.a. vegna tíðra vinnuslysa. Úttekt þessi kæmi og að góðum notum við endur- skoðun gildandi laga um aðbúð, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, sem nú er að unnið á vegum .ríkisstjórnar- innar vegna tilmæla verkalýðs- hreyfingarinnar. 0 Aðild Græn- lendinga að Norðurlandaráði Magnús Kjartansson (Abl) mælti og fyrir tillögu sinni til þingsályktunar um aðild Græn- lendinga að Norðurlandaráði, þar sem skorað er á ríkisstjórn íslands og fulltrúa lýðveldisins í Norðurlandaráði að beita sér fyrir því að Grænlendingar fái aðild að Norðurlandaráði og velji fulltrúa sina sjálfir. Marg- ir þingmenn tóku þátt i umræð- unni, allir velviljaðir Græn- lendingum, en skiptar skoðanir voru um, hverjar leiðir væru líklegastar til árangurs og stuðnings við þá. 0 Frumvarp til iðnaðarlaga Fram hefur verið lagður á Alþingi yfirgripsmikill frum- varpsbálkur til iðnaðarlaga, stjórnarfrumvarp. Núgildandi iðnaðarlöggjöf er að megin- stofni frá árinu 1927, með nokkrum breytingum 1936 og 1970 og 1971. A árinu 1975 var samþykkt þingsályktun frá Gunnari J. Friðrikssyi|i (S) um samningu nýrra iðnaðarlaga og hvern veg skyldi að því staðið. 1 nefnd þeirri, sem samdi síðan framkomið stjórnarfrumvarp, voru: Björgvin Fredrikssen framkvæmdastjóri, Páll S. Páls- son hrl., Sigurður Kristinsson málarameistari, Axel Gíslason framkvæmdastjóri, Guð- mundur Þ. Jónsson iðnverka- maður, Sigurður Guðgeirsson prentari, Þorvarður Alfonsson, aðstoðarmaður ráðherra og Steinþór Jóhannesson hús- gagnasmíðanemi (áheyrnar- fulltrúi með tillögurétti). Nefndin var sammála um frum- varp það, sem nú liggur fyrir. Nánar verður gerð grein fyrir frumvarpi þessu, er ráðherra mælir fyrir því. • Upplýsinga- og fræðslustarfsemi í sjónvarpi Jón Skaftason (F) flytur til- lögu til þingsályktunar um þetta efni. Þar er skorað á menntamálaráðherra að beita sér fyrir því að sjónvarpið hef ji svo fljótt sem verða má reglu- lega upplysinga- og fræðslu- þætti um efnahagsmál í umsjá viðskiptadeildar Háskólans og Þjóðhagsstofnunar. # Flugsamgöngur á Vestfjörðum Karvel Pálmason (SFV), Sig- hvatur Björgvinsson (A), Sigurlaug Bjarnadóttir og Gunnlaugur Finnsson (F) flytja svohljóðandi tillögu: Alþingi ályktar að fela sam- gönguráðherra að láta athuga nú þegar með hvaða hætti tryggja megi sem bestar og ör- uggastar flugsamgöngur við Vestfirði. Athugun þessi skal fyrst og fremst beinast að eftirfarandi: 1. Lýsingu og öryggistækjum vegna aðflugs og lendingar á ísafjarðarflugvelli. 2. Endurbótum og lengingu á flugbrautinni við Holt í Önund- arfirði og flugbrautinni í Bol- ungarvík með það í huga að þær gegni því hlutverki að vera varavellir fyrir Isafjarðarflug. 3. öryggisútbúnaði og lýsingu á Þingeyrarflugvelli. 4. Lýsingu og öryggistækjum vegna aðflugs og lendingar á Patreksfjarðarflugvelli. Athugun þessari skal hraðað svo sem frekast er kostur og skulu niðurstöður Iiggja fyrir það snemma árs 1978, að hægt sé að gera ráð fyrir fjárveiting- um til framkvæmda á fjárlög- um 1979. # Tekjustofnar sveitarfélaga Ragnar Arnalds, Geir Gunn- arsson, Helgi F. Seljan og Stefán Jónsson (Abl) flytja frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitar- félaga. Þar er gert ráð fyrir að í hóp þeirra fyrirtækja er greiða landsútsvör bætist: Vátrygging- arfélög, flugfélög, Eimskipafél- ag Islands, Hafskip h.f., Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna, Sölusamband ísl. fiskframleið- enda, Innkaupadeild ,LIU, ferðaskrifstofur, Samband ísl. samvinnufélaga. 1 frumvarpinu er og nánar'kveðið á um hvern veg slíkt útsvar er út reiknað. # Frumvarp til stjórnskipunarlaga Sömu þingmenn flytja frum- varp til breytinga á stjórnar- skrá lýðveldisins Íslands, svo- hljóðandi: Við 67. gr. bætast þrjár nýjar málsgreinar, svo hljóðandi: Öll verðmæti i sjó og á sjávar- botni innan efnahagslögsögu, svo og almenningar, afréttir og önnur óbyggð lönd utan heima- landa, teljast sameign þjóðar- innar allrar, einnig námur í jörðu, orka í rennandi vatni og jaróhiti neðan við 100 m dýpi. Eignarrétti á íslenskum nátt- úruauðæfum, landi og land- grunni skal að öðru leyti skipað með lögum. Tryggja ber lands- mönnum öllum rétt til eðlilegr- ar umgengni og útivistar i land- inu. Við eignarnám á landi, i þéttbýli sem dreifbýli, skal al- mennt ekki taka tillit til verð- hækkunar, sem stafar af upp- byggingu þéttbýlissvæða i næsta nágrenni, opinberum framkvæmdum eða öðrum ytri aðstæðum, heldur ber að miða mat við verðmæti hlióstæðra eigna. þar sem þess háttar ástæður hafa óveruleg áhrif til verðhækkunar. Með þeim takrhörkunum, sem hér greinir, skal við það miða, að bændur haldi eignarrétti á jörðum sinum, beitirétti í óbyggðum og öðrum þeim hlunnindum í heimalöndum og utan þeirra, sem fylgt hafa ís- lenskum búskaparháttum á liðnum öldum. # Skipulagslög og fatlað fólk Oddur Olafsson (S) hefur flutt eftirfarandi breytingartil- lögu við frumvarp að skipulags- lögum: „Ráðherra skal, að fengnum tillögum skipulagsstjórnar, setja reglugerð um gerð skipu- lagsuppdrátta, samkv. 10.—11. gr. Þar skal meðal annars ákveðið um mælikvarða og frá- gang uppdrátta og hver grein- argerð skuli fylgja uppdrætti. Einnig skal þar ákveðið, hvaða lágmarkskröfur skuli gera um fjölda opinna bifreiðastæða, er fylgja hverju húsi eða bygging- arreit, og skal í því efni miðað við notkun þess, svo og um stærð leiksvæða fyrir börn á lóðum íbúðarhúsa og athafna- svæði fyrir íbúa að öðru leyti. Ennfremur skal þar kveðið á um lágmarksfjarlægð milli húsa, og skal í því efni við það miðað að í ibúðarhverfum njóti fullnægjandi birtu á aðalsólar- hlið húss. Þá skal og kveða þar á um nýtingarhlutfall i hinum ýmsu hverfum, en nýtingarhlutfall er hlutfallið milli samanlagðs gólf- flatar húss og lóðarstærðar. Kveðið skal á um, að hið skipulagða svæði geri fötluðum og öldruðum auðvelt að komast leiðar sinnar. Ef um sérstök íbúðarhús fyrir fatlaða og aldr- aða er að ræða á framkvæmda- svæðum, skulu þau sett sem næst miðju, þar sem umferðar- möguleikar eru bestir, og i ná- grenni þjónustustofnana. Göt- ur, gangstéttar, bílastæði og op- in svæði skulu gerð þannig, að fatlaðir og aldraðir eigi þar greiðan gang um. Bifreiðastæð- in næst aðalinngangi hvers húss skulu ætluð fötluðum og stærð miðuð við þarfir þeirra. Gangbrautir yfir götur skulu merktar í sterkum litum vegna sjóndapurra og afmarkaðar með nokkurra millimetra upp- hækkunum. Ákveða má að auð- kenndir skuli sérstaklega á uppdrætti þeir staðir, sem eru áberandi t.d. við torg og aðal- götur, og sé leyfi til byggingar þar bundið samþykki skipulags- stjórnar." # Skipulag orkumála Þréttán þingmenn Framsókn- arflokks (fyrsti fl.m. Stein- grímur Hermannsson) hafa flutt tillögu til þingsályktunar um skipulag orkumála, svo- hljóðandi: „Alþingi ályktar, að stefnt skuli að jöfnun orkukostnaðar um land allt. I þvi skyni skal lögð áhersla á að tengja saman raforkukerfi einstakra lands- hluta og tryggja þannig sem hagkvæmastar framkvæmdir og rekstur með samkeyrslu allra orkuvera og dreifikerfa. í þessum tilgangi skal stefnt að eftirgreindu skipulagi orku- mála: 1. Unnið verði að því að koma á fót einu fyrfrtæki, sem annist alla meginraforkuvinnslu og flutning raforku á milli lands- hiuta. Ríkisstjórnin taki í þessu skyni upp samninga við Lands- virkjun, Laxárvirkjun, Anda- kílsárvirkjun, Rafveitu Vest- mannaeyja, Rafveitu Siglu- fjaróar og aðrar rafveitur, sem eiga og reka orkuver, um sam- einingu slíks rekstrar í einni landsveitu. Aðilar að þessu fyr- irtæki og stjórn þess verði ríkis- sjóður og landshlutaveitur. Eignarhluti ríkissjóðs skal aldrei vera minni en 50 af hundraði. Fyrirtækið undirbýr virkjanir og lætur virkja. 2. Unnið verði að því að koma á fót landshlutaveitum, sem ann- ist alla dreifingu og sölu á raf- orku í viðkomandi landshluta. Landshlutaveitur þessar geti einnig annast rekstur hita- veitna. Þær sjái um fram- kvæmdir, sem nauðsynlegar eru vegna viðkomandi rekstrar. Aðilar að slikum landshluta- veitum og stjórnum þeirra verði sveitarfélögin og lands- veitan. 3. Orkustofnun verði ríkis- stjórninni til ráðuneytis um orkumál og annist upplýsinga- söfnun hvers konar um orku- lindir þjóðarinnar, geri áætlan- ir um nýtingu þeirra og annist frumrannsóknir fyrir virkjanir. Orkustofnun veiti landsveit- unni og landshlutaveitum nauð- synlega þjónustu." 0 Úthafsrækja n.vröra Stefán Jónsson (Abl) og Ragnar Arnalds (Abl) flytja tillögu til þingsályktunar, þar sem Alþingi felur ríkisstjórn að láta nú þegar hefja ítarlega leit að djúprækju fyrir Norður- landi, jafnframt því sem lagt verði af mörkum nægilegt fé til rannsókna á þeim hafsvæðum, svo að úr því verði skorið meó sem skjótustum hætti, hversu miklum flota mætti beina á slikar veiðar nú um sinn. Framhald á bls. 29.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.