Morgunblaðið - 11.05.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MAl 1974
7
Gustav Heinemann forseti óskar Helmut Schmidt til hamingju með tilnefninguna í
kanslaraembættið
Nœsti kanslari
Vestur-Þjóðverja
HELMUT Schmidt sem vestur-
þýzkir jafnaðarmenn hafa valið til
þess að taka við kanslaraembætt-
inu af Willy Brandt, er t hópi
reyndust forystumanna flokksins
og hefur orS fyrir aS vera hugrakk-
ur og harður f hom aS taka. Hann
hefur góSa forystuhœfileika en
ekki sömu hæfileika og Brandt til
að afla sér vinsælda og miðla mál-
um, en er óhræddur viS óvinsæld-
ir.
Hann er ( hægra armi flokksins
og hefur lengi keppt aS þvi aS
verSa kanslari. Hann hefur átt f
útistöðum við unga vinstri menn f
flokknum, svokallaða Júsóa, sem
hann hefur hvatt til þess að fara
rólegar f sakirnar þar sem krafa
þeirra um eindregnari vinstri-
stefnu fæli burtu venjulega kjós-
endur sem velgengni flokksins
byggist á.
Schmidt og fleiri mönnum f
flokknum hefur fundizt að Brandt
hafi verið of aðgerðarlftill í innan-
rfkismálum og fyrir Schmidt hefði
Brandt ekki getað farið frá á
heppilegri tfma þvf deilur innan
flokksins hafa veikt stöðu þeirra
manna sem geta gert honum Iffið
erfitt.
Schmidt er 55 ára gamall og var
þingleiðtogi sósfaldemókrata
1967 til 1969, landvarnaráðherra
1969 til 1972 og hefur siðan
verið fjármálaráðherra. Hann er
kunnur meðal vestrænna stjórn-
mátamanna og meðal vina hans er
Giscard d'Estaing, sem geturorðið
næsti forseti Frakklands. Hann er
þekktur fyrir eindreginn stuðning
við Efnahagsbandalagið. Atlands-
hafsbandalagið og dvöl banda-
ríska herliðsins f Vestur-Þýzka-
landi. Tilnefning hans mælist þvf
vel fyrir á Vesturlöndum, en sam-
búðin við Austur-Evrópurfkin get-
ur orðið stirðari en áður vegna
afsagnar Brandts og njósnamáls-
ins sem leiddi til falls hans.
Helmud Schmidt er borinn og
barnfæddur f Hamborg og varð
fyrst landskunnur fyrir vasklega
framgöngu f miklum flóðum þar
1962 þegar hann sat f borgar-
stjórn. Hann fæddist 1918 f
verkamannahverfinu Barmbek þar
sem kommúnistar voru allsráð
andi og oft kom til blóðugra verk-
falla.
Heimsstyrjöldin kom f veg fyrir
drauma Schmidts um að verða
arkitekt og hann barðist f Rúss-
landi og f orrustunni f Ardenna-
fjöllum. Hann var sæmdur járn-
krossinum og var fangi Breta f
strfðsiokin.
Eftir strfðið hóf hann nám ! hag-
fræði við háskólann f Hamborg og
var nemandi Karls Schiller, sfðar
efnahagsmálaráðherra Brandts.
Hann gekk f sósfaldemókrata-
flokkinn 1946 og varð ári sfðar
fyrsti forseti landssamtaka sósfa-
listískra stúdenta. Hann var kjör-
inn borgarfullyrúi f Hamborg og
fór með samgöngumál f borgar-
stjórninni 1950—53.
demókrata 1969 varð Schmidt
landvarnaráðherra sem þótti Iftt
eftirsóknarverð staða, en hann
fókk lof fyrir dugnað f starfi og
kOm ýmsum breytingum til leiðar.
Þegar Karl Schiller efnahagsráð
herra tókst ekki að hefta verð-
bólguna og neyddist til að fara frá
varð Schmidt eftirmaður hans,
þótt sú staða væri heldur ekki
eftirsóknarverð.
Schmidt var kjörinn á þing
1953 og var fljótlega talinn f hópi
efnilegustu stjórnmálamanna
sósfaldemókrata af yngri kynslóð-
inni. Hann gerðist foringi f vara-
hernum 1957 þótt sósfal-
demókratar berðust þá gegn
endurvfgbúnaði Þýzkalands. Sið-
an 1958 hefur hann átt sæti f
miðstjórn flokksins. Þar sem hann
þreyttist á þvf að vera í stjórnar-
andstöðu sneri hann aftur til Ham-
borgar 1961 og gegndi i nokkur ár
valdaembætti f borgarstjórninni
og það varhonum meir að skapi.
Árið 1965 sneri Schmidt aftur
til Bonn þegar Brandt virtist ætla
að láta af forystu flokksins eftir
annan kosningaósigur sinn en
Brandt ákvað að halda áfram og
Schmidt varð að gera sig ánægð-
an með stöðu varaþingleiðtoga
sósíaldemókrata. Á árunum 1966
til 1969 var hann síðan aðal þing-
leiðtogi flokksins er sósíaldemó-
kratar og kristilegir demókratar
sátu saman f rfkisstjórn.
Þegar Brandt myndaði stjórn
sósfaldemókrata og frjálsra
Eftir kosningarnar haustið 1972
varð Schmidt að gera sig ánægð-
an með að halda áfram starfi sfnu
sem fjármálaráðherra, en barátta
hans gegn verðbólgunni bar ekki
ýkja mikinn árangur. Jafnframt lét
hann deilurnar innan flokksins æ
meir til sfn taka og fáir eru taldir
standa honum á sporði i kappræð-
um. Hann tók Iftt undir kröfur
ungra vinstrimanna um aukin völd
f flokknum og þeir hafa sakað
hann um að bregðast æskuhug-
sjónum sfnum.
Sennilega er það ekki að
ástæðulausu að allt sfðan 1953
hefur Schmidt verið uppnefndur
„Schmidt-Schnauze" sem mætti
þýða Schmidt kjaftur, en þótt
hann þyki hrokafullur og hafi afl-
að sér óvina efast enginn um for-
ystuhæfileika hans.. Vald er það
sem hann hefur alltaf sótzt eftir.
Nýlega sagði þýzkur embættis-
maður á fundi með blaðamönnum
að i viðræðum um kostnaðinn við
dvöl bandaríska herliðsins f Vest-
ur-Þýzkalandi hefði Schmidt verið
„fullur bjartsýni um framtfð Vest-
ur-Evrópu, Vestur-Þýzkalands.
Atlantshafsbandalagsins og
Helmut Schmidts."
Helmut
Schmidt
KEFLVÍKINGAR Suðurnesjabúar Efni i peysufatasvuntur og blússur í mörgum gerðum og litum Verzl. Sigrfðar Skúladóttur, Keflavfk. EIN MILLJÓN Ein milljón til láns i eitt ár gegn góðum vöxtum og tryggingu Til- boð sendist Mbl fyrir 15 þ m merkt „Peningar 1462"
TÚNÞÖKUR Túnþökur til sólu Uppl. í sima 7 1 464 — 41 896 GETTEKIO BÖRN í gæzlu hálfan eða allan daginn. Er i Breiðholti. Upplýsingar i sima 71387
Opið alla virka daga til kl 7 Opið laugardaga til kl 6 Bílasalan Höfðatúni 10. Simar 18881 og 18870. GAGNFRÆÐINGAR frá Gagnfræðaskóla Verknáms árið 1954, hittumst á Hótel Esju. mánudaginn 13 mai kl 8 30 Mætið vel
ROSKINN MAÐUR vanur næturvakt, óskar eftir hús- varðarst eða næturvakt Þeir, sem vildu sinna þessu, leggi tilb á afgr. Mbl. sem fyrst merkt „Vaka — 4594" GERUM VIÐ kaldavatnskrana og WC-kassa. Vatnsveita Reykjavikur, simi 13 1 34
FORD COMET '72 Fallegur bíll til sölu Má borgast með 2ja — 3ja ára skuldabréfi eða eftir samkomulagi. Skipti koma til greina. Simi 1 6289. TIL LEIGU ný 3ja herb. íbúð á 7. hæð Leigu- tilboð ásamt upplýsingum um fjöl- skyldu og fyrirframgreiðslu sendist Morgunblaðinu fyrir 14 þ.m. merkt „Asparfell 1470— 1461".
Pölap- og Grænlandsúipur
Kostakjör!
Sendum i póstkröfu
Fullur rétturtil endursendingar
flutningsgjald.
dkr. 10 —
Pólarúlpan
er orðin vinsælasta vetrarflikin
1 00% nylon með stungnu og vatt-
eruðu fóðri. Hetta með loðkanti,
vindnám i ermum, rennilás og
hnappar að framan.
4 stórir vasar og þægilegur vasi
með rennilás I vinstri ermi.
Litur: bordeaus.
Danskarkr. 118.—
Grænlandsúlpan
sú bezta af beztum
er af sömu gerð en framleidd úr
extra þykku efni. Litur dökkgrænn
og blár.
Lúxusúlpa sem kostar í búð 268.—
Danskarkr. 168.—
terjhusets
HERREMAGASINER
Fælledvej 16 — (01)35 0619,
2200 Köbenhavn N
Laugav. 22 - Hafnarst. 1 - Bankast. 11 - Reykjavfk
Simi
12527
GLERVÖRUR
Sænskir Skultunapottar frá II
til 161
VerÓlækkun
Vegna 20% tollalækkunar getum við boðið notta fyrir
rafmagnseldavélar á lækkuðu verði.