Morgunblaðið - 17.04.1973, Side 20
20
MORG'UNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRlL 1973
75 ára í dag;
BENEDIKT GRÍMSSON,
HREPPSTJÓRI, KIRKJUBÓLI
1 dag, þann 17. april er Bene-
dikt Grímsson hreppstjóri á
Kirkjubóli í Strandasýsliu
75 áira. Af því tilefni langar mig
að srtinga niður penna og færa
honum þakkir, fyrir áratuga
góða viðkynningu, samstaa-f og
vináttu um íjölda ára, og jafn-
framt minnast hins óvenjumikia
félagsstarfs, sem hann hefir innt
af hendi, sem sveitungar hans
og héraðsbúar hafa notið góðs
af.
Benedikt er fæddur að Kirkju
bóli 17. aprll 1898. Foreldrar
hans voru Grimur Benediktsson
bóndi á Kirkjubóli og kona
hans Sigríður Guðmundsdóttir
firá Vighólsstöðum á Fellsströnd
í Daiasýslu, mikið vinsæJ heið-
urshjón.
Þau Grimur og Sigríður voru
bæði af breiðfirzkuim ætt-
um, Grímur af svokallaðri Orms-
ætt, sem kennd var við Orm Sig
urðsson, er hóf búskap i Fremri-
Langey á Breiðafirði fyrir rúm-
lega 200 árum. Er sú ætt afar
fjölmenn. Benedikt er 5. maður
frá Ormi í Fremri-Langey, og
voru þessir forfeður hans í bein
an karllegg taldir miklir greind-
arkariar og voru allir frammá-
menn i sinum sveitum og héruð-
um.
Og sjaldan fellur eplið langt
írá eikinni, ekki fór Benedikt
Gcímsson í felur, þegar sinna
þurfti frarrufaramálum sveit-
ar hans og héraðs. Á unglings-
ánum Benedikts var aðstaða til
náms svo til engin í sveitum
þessa lands, nema léleg barna-
fræðsla en sveit Benedikts var
að þessu leyti betur sett en flest
ar aðrar, því þar var byggður,
og starfræktur fyrsti unglinga-
skólinn i sveit á íslandi — Hey
dalsárskólinn.
Benedikt fór í bændaskólann
á Hvanneyri og Jauk það-
an prófi 1921. Halldór Vilhjálms
son var þá skólastjóri, og sem
kunnugt er hafði hann sérstakt,
lag á því að glæða áhuga nem-
enda sinna, á ræktun lands og
lýðs, ásamt öðrum framfaramál-
um sveitanna, sem ég ætía að
flestir nemenda hans hafi búið
að ævilangt. Benedikt Grímsson
hóf búskap á Kirkjubóli 1925.
Hann á þá einnig 48 ára afmæld
sem bóndi. Hann kvæntist sama
ár, Ragnheiði Lýðsdóttur hrepp
stjóra á Skriðnesenni í Bitiru.
Þau eiga 3 mannvænlega syni,
Grím og Sigurð bændur á
Kirkjubóli, og Lýð sem vinnur
í Skipadeild S.Í.S. i Reykjavík.
Einnig eiga þau kjördóttur sem
búsett er í Reykjavík.
Kirkjuból er falleg jörð, vel
í sveit sett, með fagurt úsýni
tll aHLra átta. Þar hefir Bene-
dikt ræktað mjög mikið land, og
þar eru miklar og góðar bygg-
mgar. Að sjálfsögðu hafa synir
hans þar unnið í samvinnu við
foreldra sána. Snyrtimennska er
þar í bezta lagi, eins og veg-
farendur hljóta að hafa veitt at-
hygli. 1 Kirkjubólshreppi hefir
nú um langa hríð ríkt mikill og
góður félagsandi, meiri en al-
mennt gerist. Mér er kunnugt, að
þar eiga margir hlut að máli, en
ég held að ég geri engum rangt
tii þó ég segi að þar hefur Bene
dikt Grimsson staðið í fremstu
víglínu, og átt sinn stóra og ómet
anlega þátt í öllu félagslifi, og
framfaramálum sinnar sveit-
ar, um hálfrar aldar skeið enda
hefur hann notið trausts sveit-
ar sinnar og héraðsbúa í heild,
að verðleikum.
Ekki er þess nokkur kostur að
telja upp öll þau félagsmáia-
störf sem Benedikt hefir verið
viðriðinn, því þau munu vera
eins mörg og finnast í sveitum.
Hér skal þó aðeins getið nokk-
urra. Hreppstjóri Kirkju-
bólshrepps hefir hann verið frá
1932, eða um 40 ára skeið. Sýslu
nefndarmaður frá 1946 (aðalmað
ur), sparisjóðsstjóri frá 1941
(eða fyrr). Ýmist sem formaður
eða endurskoðandi Kaupfélags
Steingrimsfjarðar i mörg ár,
Búnaðarþingsfulltrúi, Búnaðar-
sambands Strandamanna um 20
ára skeið, og formaður þess frá
stofnun Búnaðarsambandsins,
er Benedikt lét af störfum, sem
Búnaðarþingsfulltrúi var hann
kosinn heiðursfélagi Búnaðarfé
lags Islands. Þá hefir hann ver-
ið fulltrúi á aðalfundum Stétt-
arsambands bænda flest árin frá
stofnun Stéttarsambandsins
til siðasta kjörtímabils.
öll þessi störf vann Benedikt
af mikiíli lipurð og samvizku-
semi og frágangur á öllum hans
skýrslum var svo hreinlegur og
góður að til fyrirmyndar var.
Það var sagt að Benedikt á
Kirkjubóli þyrfti aldrei að flýta
sér, störfin gengu samt fram, og
voru aldrei leyst af hendi öðru-
vísi en vel.
Það segir sig sjálft að þegar
menn eru kallaðir til starfa, á
félagsmálasviðinu, eins og
hér hefur verið lýst, þá verður
hvort tveggja að ske, að leggja
verður nótt við dag, til að geta
komið störfunum af, og í annan
stað verður ýmislegt annað að
sitja á hakanum af heimilisstörf
um. En þó í það færi, var því
bjargað af hans ágætis- og dugn
aðarkonu, Ragnheiði, sem sá um
að halda öllu í horfinu, og vel
það með börnum þeirra hjóna.
Eins og að líkum lætur þurftu
margir að leggja leið sína að
Kirkjubóli, þar sem húsbóndinn
hafði svo mörgum félagsmáium
að gegna, og er ég þess fullviss,
að hver sá er þar var kominn
inn fyrir dyr, langaði ekkert til
að flýta sér af stað aftur. Slík
var gestrisnin þeirra hjóna og
fjölskyldunnar allrar. Það var
gott að vinna með Benedikt
Grimssyni að félagsmálum.
Fyrsta boðorðið var alltaf að
gera rétt og gera það
bezta, jafna ágreiningsmálin, sem
af eðlilegum ástæðum kunna að
rísa, vegna misjafnra sjónarmiða
á vandamálum dagsins.
Var þá oft af hálfu Benedikts
viðhöfð góðlátleg glettni og gam
anyrði, sem urðu til þess að
vopnin voru slegin úr
hendi deiluaðila.
Ég sagði í upphafi þessarair
greinar minnar að þessi orð ættu
fyrst og fremst að vera þakkar-
orð frá mér fyrir vináttu og sam
starf um langt árabil. Ég vona
Benedikt minn og frú Ragnheið
ur að þið takið viljann fyrir
verkið. Ég vil svo mega bera
fram þá ósk ykkur til handa, að
þið sem nú eruð að ná háum
aldri, megið eiga rólega daga á
þeim stað þar sem þdð hafið int
lífsstarffið af hendi, og að ar-
inn margra liðánna stunda
vermi ytokui.
Að siðustu vil ég einnig bera
fram þá ósk að afkomendur ykk
ar, Benedikts og Ragnheið
ar, megi um langa framtíð halda
uppi merki ykkar á Kirkjubóli.
Lifið heil.
Ólafur E. Einarsson
frá Þórustöðum.
Á þessum tímamóitum í ævi
vinar míns, Benedikts, er hann
á að baki þrjá aldarfjórðunga,
bregður ýmsum myndum á loft. !
Það hefur verið hlutskipti hans
í lífinu að vera mikið í sviðs-
ljósinu í félags- og framfaramál
um okkar Strandamanna um
margra áratuga skeið, enda mað
urinn vel til forystu fallinn.
Ekki h’laut Benedikt langa
skólagöngu, fremur en margir
aóiir aldamótamenn. Ungur að
árum hreifst hann af Ung
meninafélagshreyfingunni og
þedrri hvatnóngar- og framíara-
öldu, sem þá fór um þjóð vora.
Mér finnst að Benedikt hafi
gert hugsjón Ungmennafélags-
skaparins að sinni Mfsskoðun,
þvi að öli hans störf á sviði fé-
lags- og franmfaramála bera því
glöggt vitni. Á yngri árum starf
aði hann mikið innan Ungmenna
félagsskaparins, var m.a. for-
maður ungmennafélags sveitar
siinnar um margra ára skeið og
einnig formaður Ungmennasam-
bands Strandasýslu um fjölda
ára.
Eins og áður hefur verið drep
ið á, hefur Benedikt gegnt og
gegnir enn fjölmörgum trúnaðar
störfum. Umsvifamestur hefur
hamn verið á sviði búnaðarmála,
þar hefur hann verið í fylking-
arbrjósti um áratugi. Búnaðar-
samband Strandamanna var
stofnað árið 1945 eftir alllanga
baráttu um að fá samþykkt fyr-
ir skiptingu Búnaðarsambands
Vestfjarða í tvö sambönd, þann-
ig að Strandasýsla yrði sérstakt
búnaðarsamband. Andstaða
gegn þessari skiptingu hygg ég
að hafi aðallega byggzt á því,
að stjóm búnaðarmála í land-
inu hafi þótt Strandasýsla full
fámenn til þess að vera sérstakt
samband og þar af leiðandi van
treyst þvi, að við gætum rekið
það fjárhagslega. Þessi andstaða
sem hér var drepið á, var í
sjálfu sér ekki óeðlileg, og okk-
ur Strandamönnum var vel Ijóst
að í mikið var ráðizt. Þvi reið i
okkur mjög á að fá hinu nýja
sambandi sterka stjórn. Á stofn
fundi sambandsins, sem var aD-
fjölmennur, urðu allir sammáta
um það að fa.ra þess á leit við
Benedikt að taka að sér for-
mennsku hins nýja búnaðarsam
bands. Það var vel valiið. Byrj-
unarörðugleikar voru tölu-
verðir, einkum hvað fjármálin
snerti og reyndi þá mikið á
Bemedilkt, einkuim fyrstu árin. En
með hyggindum og lagni tókst
að yfirstíga alla örðugleika og
það er langt síðan, að samband-
ið varð traust stofnun fjárhags-
lega. Fyrir um tuttugu árum
beitti Benedikt sér fyrir þvi, að
sambandið réð til sín héraðs-
ráðunaut, og það hefur haft
hann síðan. Upp úr því færðist
mikil gróska í starfsemi sam-
bandsins og búskapinn almennt
og hefur sú framþróun haldið
áíram og farið vaxandi. Þó að
Strandamienn væru hart leilknir
! á kalárunum eins og margir aðr
ir, voru þeir efcki á því að gef-
ast upp. f örugigri trú á byggð
ina, sem hafði fóstrað þá, héldu
þeir velli og í vissunni um að
öll él birtir um siðir. Ég hef
nokkuð unnið með Benedikt að
félagsmálum, einkum búnaðar-
málum og minnist ég þess sam-
starfs með mikilli ánægju og tel
mér það til tekna að hafa átt
þess kost að kynnast Benedikt
og starfa með honum. Benedikt
hefur mikinn persónuleika,
hann er með afbrigðum traust-
ur, dreniglyndur, gætinin, lag-
inn að setja niður deilur, sam-
vinnuþýður, en þó fastur fyrir.
Hann hefur verið sérstaklega
farsæll í störfum og ég held, að
það sé ekki ofmælt, að hann
hafi leyst öll him fjölþættu störf
sem honum hafa verið falin með
hinni mestu prýði.
Það var ekki ætlunin, a8
þetta greinarkorn yrði nokkur
æviminning, heldur aðeins nokk
ur fátækleg orð í tilefni dags-
ins. Á þessum merku tímamót-
um í ævi Benedikts vil ég flytja
honum innilegar þakkir fyrtr
drengilegt samstarf og vináttu
á liðnuan árum. Jafnframt vil ég
flytja honum og fjölskyldu hans
beztu ósðrir um giftu og far-
sæld á ókomnum árum.
Þú getur nú Benedikt minn
litið yfir farinn veg, með
nokkru stolti, þó að það sé
ekki þér eiginlegt. Þú hefur séð
margar hugsjóna þinma rætast
og það er erfitt að benda á
nokkur framfaramál norðúr þar
sem þú hefur ekki átt einhvern
hlut að. Nú þegar halla tekur
undan faeti, liður senn að því,
að þú farir að kveðja þin fé-
lagsmálastörf og hverfa á vit
minninganna. Minninga um vel-
heppnað forystuhlutverk fyrur
beiimabyggð þina. Við þann arin
eld er gott að orna sér.
Jón Kristjánssoii.
Kirkjutónleikar
TÓNVERKIÐ STABAT MATER
eftir ítalska tónskáldið Giovanni
Pergolesi er án efa eitt ástsæl
asta tónverk tónbókmenntana.
Sennilega hafa fá verk náð til
jafn margra áheyrenda sem
þetta aðgengilega tónverk Pergo
lesi, enda hefur það verið upp-
fært oft. Hér á landi hefur það
Matvælakynning
í Chicago
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að þú-
vörudeild S.Í.S. takí þátt
1 kynhingu á íslenzkum matvæl-
um, sem fram fer i Chicago í
maí n.k., ásamt Loftleiðum og
Sölustofnun lagmetisiðnaðarins.
Stendur hún í sambandi við það,
að hinn 2. maí hefja Loftleiðir
flugferðir tíl borgarinnar, og
verða aí þvi tiiefni kymnit í Palm
er House þar I borg íslenzkt
lam.hakjöt og íslenzkar niður-
suðuvörur á matvælakynningu,
sern stendur yfir í eina viku.
tvivegis verið flutt, fyrir all-
mörgum árum undir stjórn dr.
Victors Urbancic' og síðar undir
stjórn Hauks Guðlaugssonar.
Þriðja uppfærslan er nú í und-
irbúningi. Er það stúlknakór
Hliðaskólans í Reykjavík, undir
stjóm Guðmundar Emilssonar,
sern færzt hefúr þetta verkefni
í fang með aðstoð þekktra lista-
manna. Einsöngvarar eru þær
Svala Nielsen og Sólveig M.
Björling, en undirleik annast
Gústaf Jóhannesson orgelleikari
og félagar úr Sinfóníuhljómsveit
Islands, þeir Konstantin Krechl-
er, Vladimir Dedek, Allan Willi-
ams og Pétui Þorvaldsson. Æf-
ingar hafa staðið yfir síðastliðna
tvo mánuði.
Tónverkið var flutt tvívegis í
kirkju Óháða safnaðarins við
Háteigsveg. Fyrri tónleikarnir
verða miðvikudaginn 18. apríl kl.
21.00 en allir aðgöngumiðar á þá
tónleika eru uppseldir. Síðari tón
leikarnir verða fimmtudagínn 19.
april kl. 17.00 (skírdag) og verða
aðgöngumiðar seldir við inngang
inn frá kl. 16.30.