Morgunblaðið - 17.04.1973, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1973
3
Rússar verja
allt að 50%
til landvarna
KÚSSAR verja 40 til 50% þjöð-
artekna sinna til landvama, eða
fjórnm tii fimm sinnum hærri
upphæð en opinberar tölur segja
til um, samkvæmt óopinberri
rannsókn tveggja ónafngreindra
sovézkra hagfræðinga og anciófs
manna, sem hafa aðeins stuðzt
við opinberar skýrslur.
Þótt vestrænir sérfræðingar
hafi tekið lítið mark á opinber-
iim tölum sovézkra stjómvalda,
hafa fáir gert ráð fyrir að svona
háum upphæðum væri varið til
varnarmála. t>ó nefndi Andrei
Sakharov, faðir sovézku vetnis-
sprengjunnar, töluna 40% í opnu
bréfi til Leonid Brezhnevs í
fyrra.
Samkvæmt útreikningum hag-
fræðinganna eru herútgjöidin á
bilinu 54 milljarðar dollara til 97
milljarðar dollara. Þeir segja að
ekki sé hægt að nefna nákvæma
tölu þar sem erfitt sé að áætla
verðmæti sovézku þjóðarfram-
leiðsiunnar í dollurum.
Samkvæmt opinberum tölum
hafa Rússar varið 17,9 milljörð-
um rúbina til landvama á ári
undanfarin fimm ár, eða um 24
milljörðum dollara samkvæmt
núverandi gengi. Árið 1969 voru
herútgjöldin 7% þjóðarteknanna
samkvæmt hinum opinberu töl-
um, en rannsókn hagfræðinganna
miðaðist við það ár.
Aðferð hagfræðinganna var í
aðalatriðum á þá leið, að þeir
drógu öll útgjöld, sem vitað var
um, frá heildarútgjöldum ríkis-
ins og drógu þá ályktun að megn
ið af afganginum, sem var um
87 milljarðar rúblna, færi til
landvarna. Raunverulegra út-
gjalda til landvarna er ekki get-
ið í opinberum tölum.
Kissinger og
Palme hittast
á leynifundi
Stokkhólmi, 16. apríl. NTB.
HENRY Kissinger, ráðiinautiir
Nixons forseta í öryggismálum,
hittir Olof Palme, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, að máii um
niiðjan næsta mánuð.
Kissinger og Palme hittast á
ráðstefnu Bilderberg-hópsins svo
kallaða sem> verður haldinn i
Saltsjöbaden skammt frá Stokk-
hólmi.
Bilderberg-hópurinn er skipað-
ur stjórnmálamönnum og fjár-
málamönnum frá mörgum lönd-
um og kemur saman til funda
öðru hverju til þesis að ræða
sameiginleg áhugamál.
Bilderberg fundirnir eru haldn-
ir fyrir luktum dyrum og það
er leyndarmál hverjir eru í sam-
tökunum og fyrir hverju þau
berjast.
Fyrir 11 árum héldu Bilder-
berg-samtökin fund í Svíþjóð,
meðal annars með þáttöku Tage
Erlanders þáverandi forsætisráð
herra, Arne Geijer, forseta verka
lýðssambandsins og Gunnars
Lange, fyrrverandi viðskiptaráð-
herra.
Wmm **'"''*S
Eíjui Kinverjimi málar rautt veggspjald til skreytingar Kjarvalsstaða. (Ljósm. MbJ. Ó1.K.M.)
Kínverjar
undirbúa
sýningu
ÞEGAR að iokinni Kjarvais-
sýmingunmi í Kja rvalsstöð»m
á siimnndagskvöWið var hafizt
handa iun að taka nlður mál-
veirkim í sýnimgasölunum og
jafnframt hófust kinverskir
memgn handa um að undirbúa
uppsetningu kínverskrar list-
munasýningar, sem opmuð
verður í næstu viku.
Sýningin mun stamda í 11
daga, og verða þa.r munir úr
postulíni, málmi, tré, silki og
fleiru. Sýningin kom hingað
til Iands frá Noregi, og fer
héðan til Kanada og víðar.
í tengslum við hana er ráð-
gert að sýna kínverskar kvik-
myndir og selja smámuni til
minja. Það er kínverska
sendiráðið í Reykjavík, sem
Kínverjarnir bera kassa með listmunum inn í Kjarvalsstaði.
gengst fyrir þessari sýningu. Kassarnir með sýningargripun Um vógu aamtals um 50 lestir.
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
# KARNABÆR
LAUGAVEGI20A OG LAUGAVEGI 66
HREINT ALVEG
ÓTRÚLEGT
Úrval af nýjum vörum teknar upp í dag:
OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD
— Blússur — Kvenpeysur — Herra- og dömuvesti
— Bolir — Kjólar — Pils — Gallabuxur — „Baggy“-
buvur úr alls konar efnum — Smekkbuxur — Föt með
vesti — Stakir „Dumgal“ tweed jakkar — Kvenjakkkar
— Bindi, skyrtur, slaufur — Leðurstuttjakkar — Led
Zeppelin V, „Oh, La, La“ með Faces og margar aðrar
plötur — Allt nýjar og glæsilegar vörur.
Við auglýsum einnig á bls. 11, 13, 15, 19, 21 og 25.