Morgunblaðið - 05.03.1971, Síða 28
t ! AUGCf’SINGASTOPA KRISTlNAR U=Þ-
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1971
ar við förum að rannsaka til-
ganginn með þessu.
— Við höfum sannfærzt um,
að X hefur ekki keypt skotin í
Lydenbridge. Er nokkur leið
að komast að þvi, hvar hann
hefur keypt þau?
— Það er ég hræddur um
ekki. Jafnvel þó að við, fyrir
alveg sérstaka heppni, rækj-
umst á þann, sem hefur selt
þau, þá er mjög ólíklegt, að
hann viti nokkuð um kaupand
ann.
Finnst yður það að böggull-
inn var settur í bílinn hjá Mow
bray gefa til kynna, að einhver
íbúi hér í bæ hafi gert það ?
— Ekiki þarf það að vera. Að
komumaður í borginni gæti hæg
lega komizt að þvi, hver ekur
til Farningcote, og hvar billinn
hans stendur. Og það nota fleiri
húsagarðinn hjá Drekanum en
vörubílstjórar. Ég tók eftir því
í dag, að þar stóðu nokkrir
einkabílar. X hefði getað ekið
inn í húsagarðinn og lagt bdln
um sinum þar og svo neytt tæki
færis til að skjóta bögglinum
inn í bíl Mowbrays, þegar eng
inn sá til. Hafi hann verið að-
komumaður hefði hann aldrei
lagt það á hættu að fá Mow-
bray böggulinn sjálur. Ef bíl
stjórinn hefði yfirleitt munað,
hvernig hann leit út, hefði lýs-
ing hans verið of óákveðin tii
að koma að nokkru gagni.
•— En hvers vegna setti X bögg
ulinn inn i bil Mowbrays? Það
var talsverð áhætta, að hann
gæti sézt og þekkzt í húsagarð
inum.
— Það var áhættuminnsta að
ferðin til þess að koma böggl-
inum sína leið. Hann hefði
ekki kært sig um að afhenda
hann sjálfur, eða fá einhvern
annan til þess. Og það er bann
að í póstlögunum að senda skot
í pósti. Hann hefði getað sent
þau með járnbraut, en þá hefði
komið i ljós hvaðan þau voru
send.
—Þá höfum við enn sem kom
ið er enga bendingu um, hver
X er?
—-Þvi miður ekki. Nema þá
mjög þokukenndar hugmyndir,
sem sé það, að maðurinn hafi
verið hér í Lydenbridge þann
6. ágúst. Og jafnvel sá fróðleik
ur byggist á minni þeirra Horn
ings og Mowbrays. Böggullinn
getur vel hafa verið afhent
ur einum föstudegi fyrr eða
seinna.
—Við erum á einu máli um,
að ætlun X var að myrða Cal-
eb. En hver var tilgangur hans
með því?
—Það má guð vita! sagði
Jimmy. — Það er nú einmitt
það dularfulla í málinu. Venju-
lega er það svo, að þegar erf-
ingi að einhverri eign er myrt-
ur, er spurt um, hver standi þá
næstur til arfs. 1 þessu tilviki
er það Benjamín Glapthome,
sem er sennilega að stússa við
vélarnar sínar einhvers staðar
úti á Atlantshafi. En hvað í
ósköpunum getur hann grætt á
fráfalli gróður síns? Alls ekki
neitt, nema skuldasúpu. Erfing-
inn f.ð Farningcote, eins og frú
Horning kallar hann, er svei
mér ekki öfundsverður. Að
mínu viti er ekki nema einn mað
ur, sem getur haft nokkuð upp
úr fráfalli Calebs.
— Og hver er það? spurði
Appleyard.
— Hr. Woodspring. Nei, verið
þér ekki svona hissa. Mér er al-
vara. Benjamín kann að takast
að fá föður sinn til að selja
eignina, og þá á Woodspring
möguleika á að eignast þetta
land, sem hann þráir svo mjög.
En að halda, að gamaU og virðu
legur bóksali fari að myrða
mann af svo litlu tilefni, er auð
vitað hlægilegt að láta sér detta
í hug. Ég nefndi þar bara vegna
þess, að það virðist útilokað, að
nokkur maður gerði þetta í
hagnaðarskyni.
— Hvaða annan tilgang gæt-
uð þér nefnt?
—■ Hefnd. Caleb virðist hafa
eignazt fleiri óvini en vini. Það
var ekki einasta, að hann kom
sér upp á móti fjölskyldu sinni
heldur næstum öllum, sem
hann átti samskipti við. Við vit-
um, að honum lenti illilega sam
an við Ghudley, til dæmis að
taka. Og hve margir aðrir óvin-
ir gætu ekki leynzt hér og þar?
—--Hvaða þýðingu hefur þetta
pappírsblað með rithönd Benja-
míns?
— Það veit ég ekki enn.
Greinargerð ungfrú Blackbrook
getur bæði verið sönn og ósönn. í
fyrsta lagi getur frásögn henn
ar vel verið sannleikanum sam-
kvæm, en svo er hitt til, að hún
hafi vitað hvar miðinn fannst og
hagað sögu sinni samkvæmt því.
— Og hvort teljið þer trú-
legra?
— Hið fyrra og vegna þess,
að miðinn gefur til kynna, að
sendandinn hafi verið Benjamín.
Hins vegar mælir framburður
hennar gegn þeim möguleika.
Hafi hún vitað, að miðinn var
þarna i kassanum, hefur hann
verið settur þar með hennar
samþykki, og hún hlýtur að
hafa vitað, hvað hann gaf í
skyn. Hvers vegna ætti hún þá
að fara að búa til einhverja
sögu, sem gengur í öfuga átt?
— Þetta virðist rökrétt. Og ef
f,
• bolir 0 leðurjakkar •
Mauelsjakkar dömu 0
stuttjakkar dömu • út-
saumaðar skyrtur 0 den-
im skyrtur • denim frakk
ar • ensk föt • enskir
smokingar meö vesti
RO Y AL
SKYNDIBÚÐINGARNIR
ÁVALLT FREMSTIR
ENGIN SUÐA
Tilbúinn eftir
fimm mínútur
5 bragðtegundir
í dag mátt þú aka.
við tökum sögu hennar góða og
gilda, hvað má þá af þvi ráða?
— Að X hafi einhvem veg-
inn náð i miðann, klippt hann
laglega til og sett hann i skot-
hylkjakassann. En þvi miður er
okkur bara litið gagn í þvi, því
að hún man ekki hvenær eða
hvar hún eyðilagði bréfið. Og
við getum alls ekki getið okkur
til um það. Ég hef séð fóik rífa
sundur bréf í jámbrautarvagni
og fleygja snyfsunum út um
gluggann.
—Hvað finnst yður við eiga
að gera?
— Ég held, að i bili sé rétt
að segja sem allra minnst um
þetta. Við viljum ekki láta X
vita, hvað við höfum þegar upp
götvað. Og svo verðum við að
taka tillit til réttarhaldsins. Þar
verður að gefa formlegar upp-
lýsingar og síðan mundi ég
biðja um frest, á þeim grund-
velli, að lögreglan væri að leita
álits kunnáttumanna á því,
hvers vegna byssan hefði
sprungið. Og þá getið þér feng-
ið tóm til að leita frekari upp-
lýsinga hér i nágrenninu.
— Ef þér viljið, skal ég svo
fara til London með fyrstu ferð
á morgun og taka með mér byss
una og annað, sem máli skiptir.
Svo læt ég kunnáttumanninn
okkar athuga það og gef síðan
yfirmanni mínum skýrslu. Síðan
ætla ég til skipafélagsins og fá
að vita, hvar Niphetos er stadd
ur. Síðan ætla ég að fá að vita
á loftskeytastöðimii, hvaða loft
skeyti hafa verið send héðan til
Niphetos eftir að Caleb dó. Og
um leið ætla ég að biðja um að
láta mig vita, hvort nokkur
skeyti verða send til skipsins áð
ur en það kemur til landsins.
Þá vitum við, hvort ungfrú
Blaekbrook eða einhver annar
hefur viljað ná sambandi við
Benjamín.
Appleyard brosti. —- Þrátt fyr
ir allt, sem þér hafið sagt um til-
ganginn með þessu, haldið þér
enn, að Benjamín sé eitthvað
við þetta riðinn, sagði hann.
— Nei, sannast að segja held
ég það ekki, en maður verður
að hafa auga með öllum, sem
gætu hugsanlega hafa komið eitt
hvað nærri þessu. Þar á meðal
ætla ég að fá upplýsingar um
bróður ungfrú Blackbrook,
þennan Arthur, og sennilega
tala við hann. Caleb var hvort
sem er náfrændi hans og hann
kynni að geta grætt okkur eitt-
hvað. Og ef Niphetos kemur til
London á miðvikudaginn kem-
ur, ætla ég sjálfur að tilkynna
Benjamín lát bróður hans.
Hvernig lízt yður á þetta?
Mér finnst það ekki geta
betra verið, sagði Appleyard.
— Þér látið mig svo auðvitað
vita, hvernig gengur. Og ef eitt
hvað upplýsist hér, hringi ég
auðvitað til Scotland Yard. Og
nú ættuð þér að ganga til náða,
Hrúturinn, 21. inarz — 19. apríl.
Nú væri ráð að fara að taka ákvarðanir
einkaniálunuin.
Nautið, 20. april — 20. maí.
Einbeittu þér aft vinnunnl og rraniliðarniöguleikum,
Tvíburarnir, 21. »naí — 20. júni.
llaltu áfrain eins og ekkert sé. Gerðu þér það ómak að gæta
heilsunnar.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Ef þú notar txmann til að vinna markvisst að ákveðnu verkefni
geturðu vænzt árangurs af erfiðinu.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Vertu viss um að það scm þú leitar eftir sé einmltt það sem
þú hefur ágirnd á.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Reyndu ekki að smeygja þér undan öllum vanda. Að mörgu
ieyti er léttbærara að horfast í augu við hann,
Vogin, 23. september — 22. október.
Xreystu á gæfuna í fjármálunum og óhætt ætti að vera að
taka smáá-hættu.
Sporðdrekiiin, 23. október — 21. nóvembcr.
Leitað verður hjálpar þinnar og skaltu bregðast vel við og snagg
aralega.
Bogniaðurinn, 22. nóvember — 21. deseinber.
I»ú græðir á öllu mögulegu, Oættu þess að sóa ekki fjármunun-
um í tóma vitleysu,
Steingeitin, 22. desenibe.r — 19. janúar.
Þú verður var við cinhverja gagnrýni á verk þín í dag og skalt
taka því með hrosi á vör og mcslu stillingu.
VatnsÍK'rinn, 20. janúar — 18. febrúar.
I'ér verður launað fyrir fyrri áreynslu þína. Athugaðu þinn
gang og gerðu upp hug þinn 1 ákveðnum málum.
i'iskarnir. 19. felirúar — 20. marz.
Þér hættir UI að reyna of mlkið á þig. Það er sérstaklega
áríðandi að þú reynir að fara vel með þig núna.