Morgunblaðið - 05.03.1971, Page 24
24
MOBGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1971
Járniðnaðarmenn
Nú þegar óskum við að ráða nokkra járnsmiði, lagtæka menn
er geta rafsoðið og aðstoðarmenn.
VÉLSMIÐJAN NORMI S.F.,
Súðarvogi 26, simi 33110.
Skrifstofustúlka
Opinber stofnun óskar að ráða stúlku til skrifstofustarfa.
þarf að vera vön vélritun.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf,
þurfa að hafa borizt blaðinu fyrir 10. marz n.k. merkt: „6442",
Stúlka
Stúika (ekki yngri en 20 ára) óskast í bókaverzlun í Mið-
borginni. Góð málakunnátta nauðsynleg.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist
Mbl. merkt: „Bækur — 6798".
FÉLAGSSTARF
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Hverfasamtök Sjálfstæðismanna
í Breiðholtshverfi.
Skemmti- og kynningarkvöld verður í kvöld kl. 20,30
í Skipholti 70.
Oagskrá:
1. Avarp Dr. Gunnar Thoroddsen.
2. Skemmtiatriði Gunnar og Bessi.
3. Dans.
Sjálfstæðismenn i Breiðholtshverfi eru
hvattir til að fjöbnenna og taka með
sér gesti.
Stjóm Hverfasamtakanna.
SNÆFELLSNES
Félagsmálanámskeið
Félag ungra Sjálfstæðismanna á Snæfellsnesi gengst fyrir
félagsmálanámskeiði dagana 5.—7. marz n.k. Námskeiðið hefst
á föstudagskvöld kl. 20.30 í Félagsheimilinu Röst á Hellissandi.
A námskeiðinu verður fjallað um undirstöðuatriði ræðu-
mennsku og fundarskapa og einnig skýrt frá helztu nýjungum
fundarforma. Leiðbeinandi verður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
stud. jur.
ÖHum er heimil þátttaka í námskeiðinu.
S.U.S. F.U.S. á Snæfellsnesi.
Akureyri Akureyri
Almennurfundur
Mánudaginn 8. marz n.k. verður haldinn almennur fundur i
Sjálfstæðishúsinu, Akureyri og hefst hann kl. 20,30.
Fundarefni:
LANDHELGI — LANDGRUNN
STJÓRNMALAVHÐHORFIÐ.
Ræðumaður:
Jóhann Hafstein, forsætisráðherra.
Akureyringar og nærsveitarmenn eru
hvattir til að mæta.
Sjálfstæðisfélögin ð Akureyrí.
Sjálfstæðisfélögin í Rvík
boða til fundar mánudaginn 8. marz n.k. kl. 20.30 að Hótel
Sögu Súlnasal.
Fundarefni:
Ræða: MARKMIÐ OG LEIÐIR
Jónas Haralz, bankastjórí.
Almennar umræður.
SjáKstæðisfólk er hvatt til að fjölmenna.
Stjórnir Sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavik.
Gísl laus
úr prísund
Montevideo, 3. marz. AP.
RANDARÍSKI búfræðingurinn
Claude L. Fly, sem skæruliðar
Ttipamaros-hreyfingarinnar i
Uruguay slepptu úr haldi í gær-
hvöldi, er við iaka heilsu og
hvílist nú í sjúkrahúsi í Monte-
video. Fly þjáist af hjartasjúk-
dómi og fékk hjartaáfall fyrir
rúmri viku.
Fly fannst með bundið fyrir
augu í vörubifreið skammt
frá ejúkrahúsinu sem hann
dvelst nú í. Hann lá í sjúkra-
börum. Fly hefur verið í haldi
hjá skæruliðum i sjö mánuði.
Talið er að hann dveljist í mán-
aðartíma í sjúkrahúsinu.
—- 50 ára
Framhaid af bls. 5
ir, vöruðu þau alvarlega við
því að líta á þær sem eins kon-
ar biblíu eða lokaorð. Hins veg-
ar hvöttu þau menn til þess að
halda opnum og frjálsum huga
og reyna að skynja með vak-
andi gát, hvaða öldur þróuneir-
innar rísa hæst og rista dýpst
á hverjum tíma t.d. í vísindum,
heimspeki, sálarfræði, listum
o. s. frv. — Þannig skipar sann-
leikurinn öndvegi og hin sam-
eiginlega sannleiksleit félag-
anna er ætlazt til að einkennist
af góðvild og bróðurhug, sem
tengi mennina saman. Þess er
fastlega vænzt, að guðspekinem
ar beri eigi aðeins samúðarhug
hver til annars heldur til allra
manna og sýni öliu lífi lotn-
ingu.
íslandsdeildin samanstendur
nú af 14 stúkum. Almennir fund
ir í félaginu eru vikulega yfir
vetrarmánuðina, á hverju föstu-
dagskveldi. Aúk þess koma
fræðslu- og námshópar saman
einu sinni til tvisvar i mánuði.
Félagið gefur út tímaritið Gang
iera, sem er ailútbreitt og kem-
ur út í 2.500 eintökum. Þá starf-
ar þjónusturegla innan félags-
ins.
Félagar í íslandsdeild Guð-
spekifélagsing eru um 630.
— Eyrarbakki
Framhald af bis. 17
armannvirki, innsigling og
viðieguaðstaða. Spurningin
er aðeins — sagði Þór,
í hvaða röð væri skynsamleg-
ast að framkvæma þau.
Engu að síður væri að verða
skapleg aðstaða fyrir þá 6
báta sem frá Eyrarbakka
eru gerðir út, og aðeins íjár-
hagsgetan virðist hamla því
að nýta til íulls þá mögu-
ieika til hafnargerðar, sem
þarna eru fyrir hendi.
— Þríkeppni
Framhald af bls. 31
Stúlkur 15 til 16 ára sek.
1. Elísabet Þorgeirsd., H 127,3
2. Sigrún Grímsdóttir, H 130,1
3. Kolbrún Svavarsdóttir, V 138,2
Sigrún náði beztuim brautar-
tima í fýxri umnferð sinmi 61,3 siek.
Drengir 15 til 16 ára sök.
1. Valur Jónatansson, H 94,1
2. Guninar Þ. Jónsson, H 94,2
3. Einar Hreinsson, A 98,2
Valur náði beztum brauitar-
tíma í síðari umferð sinni 45,9
sek.
— „Vinstra
afturhald44
Framhald af bls. 10
vinni með framfaraöflunum í
landinu, en víki niðurrifsöflun-
um til hliðar.
Nauðsyn ber tii að nýtt
mat fari fram sem byggist
á þvi að treysta stöðu Islands í
samtökum vestrænna þjóða, og
gera öryggið sem mest um al-
mannavamir og samgöngur um
land alit, varnarsamningurinn
við Bandarikin hiýtur að verða
endurskoðaður með slikt i huga.
Um þau mál hef ég áður skrif-
að ailítarlega í þetta blað, enda
eru þau nú til umhugsunar og
athugunar hjá fjölda manna,
sem munu knýja á um að þeir
sem fara með stjórn landsins
næsta kjörtímabil, leiði þau tll
meira samræmis, við nútímaað-
stæður og treysti um leið sam-
starf og samskiptin við Banda-
ríkin, vegna sameiginlegra hags-
muna og þeirrar nauðsynjar, að
varnir hér við norðanvert Atl-
antshaf séu öflugar, á meðan
siíkt er nauðsynlegt, vegna
þeirrar ógnar sem yfir hvílir og
öllum ætti að vera ljós. Það er
ekki vilji neinna að búa í vopn-
uðum heimi við sifelldan ótta
um eyðileggingu og mannfórnir
af völdum styrjalda. Þess vegna
er mikil viðleitni viðhöfð um ali
an heim af friðarsinnum og í
starfi Sameinuðu þjóðanna að
reyna að finna iausn á þeim
vanda. En það þýðir ekki fyr-
ir kommúnista og áhangendur
þeirra hér á landi að ætla sér
að brjóta niður varnarsamning
Islands og Bandaríkjanna og
telja það vera þjóðfrelsismál, vit
andi að varnarsamtök vest-
rænna þjóða eru megintrygging
fyrir, að ofbeldisöflum komm-
únista hefur ekki tekizt að
vinna einn þumlung lands á
þeim slóðum síðan þau voru
mynduð. En það er reynt að
grafa undan lýðræðinu og frels
inu innan frá og koma þvi hug-
arfari inn hjá fólki, að öll þau
viðbrögð, sem gerð hafa verið til
að tryggja öryggi og starfsfrið
í vestrænum löndum sé af illum
hvötum runnin og auðvalds-
hyggju, eins og nú er túlkað af
kommúnistum, Hannibalistum og
fámennisgrúppunni í Samtök-
um ungra Framsóknarmanna
sem spinka um í þjóðfélaginu
til að túlka vinstri fylkingu, sem
ekki hefur nokkum grundvöll á
aö byggja nema til niðurrifs og
koma hér á samfélagi örbirgðar
og eymdar í formi nýrrar hafta
stefnu og ofstjórnarskipulags,
sem yrði hrein afturhaldsstjórn.
Vitanlega bíða mörg verkefni
fram undan, sem leysa þarf og
rétt að eyða meiri tíma í að
ígrunda hvernig bezt verður að
þeim staðið, þó taka verði mið
að því sem liðið er og varast
það sem miður hefur farið.
Stjórnarandstaðan hefur ekki
verið neitt uppörvandi síðasta
kjörtimabil, sem líklegt forystu-
afl að taka við stjórn landsins.
Baráttan gegn virkjun við Búr
fell og byggingu álverksmiðj-
unnar, sem uppivöðslumenn í
Framsóknarflokknum og komm-
únistar stóðu fyrir og hátterni
kommúnista og fylgjenda þeirra
í verkalýðshreyfingunni gegn
verðstöðvuninni og tilraun
þeirra nú til að skapa óróa á
vinnumarkaðinum eins og skrif
Þjóðviljans bera með sér. Er fólk
búið að gleyma vetrarverkfaliinu
1968 í vetrarhörkunum, þegar
kommúnistar stjórnuðu úr
Höfðatúninu, þegar verst
gegndi vegna áfallanna mikiu
til lands og sjávar og áfergju
þeirra og Hannibalista að draga
verkfallið í fyrravor á langinn,
sem kostaði þjóðina miklar fórn
ir og truflaði ferðamannastraum
inn til landsins, sem færir ís-
lendingum gjaldeyrinn upp í
hendurnar.
Þess vegna er rétt að spyrja
þá sem láta glepjast af hug-
myndum vinstrifylkingarmanna
í framsókn, túlkun og athöfn-
um Alþýðubandalagsforystunn-
ar eða haldleysi og málefnafá-
tækt Hannibalista. Er ekki kom
inn tími til að einhverjir rísi
upp, og láti þá herra vita, að
það er enginn grunnur fyrir
slíkri þjóðmálastarfsemi? Vegna
þess, að hún er ekki tengd at-
vinnulífinu og framförum með
jákvæðu starfi launafólks og
réttri innsýn inn í þá þörf, sem
beizlun orkunnar er, hvort sem
það er til almenningsdreifingar
eða til að knýja stóriðjufyrir-
tæki, sem reist eru í landinu og
erlent f jármagn þarf til og einn
ig réttum skilningi á samskipt-
um þjóðarinnar út á við og
þeirri nauðsyn, að það samstarf,
sem fyrir er við Bandariki Norð
ur-Ameríku, sem hefur styrkt
mjög stöðu íslendinga jafnt inn
á við sem út á við, sem þeir öðl-
uðust i og eftir síðari heims-
styrjöidina, og nú birtist í hin-
um voldugu samtökum vest-
rænna þjóða, sem er homsteinn
að þvi, að heimsbyggðin nái sam-
stöðu um betra líf á jörðu, er
fram líða stundir.
Sifellt tai andstæðinga Sjálf-
stæðisflokksins um að hann sé
afturhaldssamur, er gömul
tugga, sem engan hljómgrunn
á hér á landi. Sjálfstæðisflokk-
urinn er frjálslyndur og öflug-
ur stjórnmálaflokkur, sem sífelit
er unnið að að styrkja á sem
breiðustum grundvelli og laga
stefnu hans og starfsaðferðir að
nútima aðstæðum. Það er ekki
ráðið að einangra hann frá
stjórn landsins. En það væri
kannski frekar ástæða til að lag
færa stefnu og stöðu Framsókn-
arflokksins, sem samanstendur
af fóiki úr öllum starfsstéttum
um land allt, en fær ekki að
taka eðlilegan þátt i stjórn
landsins fyrir ofríki og skamm-
sýni þeirra afla i flokknum, sem
bezt hafa gengið fram í að vinna
með kommúnistum i mörgum mál
um. Norðurfararnir úr Félagi
ungra Framsóknarmanna eru af
sprengi þeirrar stefnu, sem veð-
ur uppi, þar til ábyrgir menn
í Framsóknarflokknum taka í
taumana. Það er ekki sigur-
stranglegt, að stjórnmálaflokk-
ar séu þannig samansettir, að
aldrei sé þorað að taka
ákveðna stefnu eða ákvörðun í
málum, ef menn halda, að það
skapi óþægindi i kjósendafyigi
eða haggi pólitískum frama ein-
stakra manna. Eða á kannski að
fara að stunda það siðferði að
klæða menn í fína jakka og setja
upp tilheyrandi hatt og segja
síðan við fólkið: þama er
stjórnmálamaðurinn fuiiskapað-
ur. Slík múmiustarfsemi skapar
ekki þroska í stjórnmálastarfj
eða áhuga fólks fyrir þjóðmál-
um.
Við búum í heimi mikilla um-
byltinga, framfara og tækni,
sem skapar manninum skýr-
ari mynd af tilverunni en áður
var. En það ætti ekki að koma
í veg fyrir betri heim og bjart-
ari framtíð. Ef sjónarhóllinn er
innsýn í mannvit og þroskað
hugarfar, sem maðurinn á í sjálf-
um sér og sambýlinu við aðra,
sem gefur dýrmætar gjafir.
Stjómmálaflokkar framkaila
ekki siikt, en við eigum hvert og
eitt að framkaiia þá þróun I
stjórnmálaflokkunum. Þess
vegna er sú stjómmálastarfsemi
sem hér er rekin, i mörgu óvið-
unandi. Hana verður að endur-
skoða á hverjum tima og byggja
hana á þroskavænlegum hug-
myndum, sem verði samnefnari
þess bezta, sem unnt er að leysa
á hverjum tima. Unga fólkið 1
landinu má ekki láta æra sig i
hringiðu hugsjónalausra hleypi-
dóma og færa sig aftur fyrir
þann tíma, sem við lifum í, held-
ur að líta á tilveruna sem sina
með hæfiiegri rósemi, sem mun
birtast þvi i skýrara ljósi, þeg-
ar það hefur náð þeim sjónar-
hól, sem hver heilbrigður mað-
ur öðlast á miðjum aldri, er
hann stendur á þeim tindi ævi
sinnar, þar sem sýnir eru til
allra átta. Þar er hinn innri
sjónhringur mannsins og mögu-
leiki til að skilja tiiveruna og
sjálfan sig. Tækni og visindi
með hugsuði veraldar i farar-
broddi leita meir og meir inn á
slíkar brautir. Ef til vill eru
geimsiglingar og ferðir til tungls
ins og síðan lengra út í geim-
inn lykillinn að vitneskju
mannsins um tilveru sína og líf-
ið á jörðinni og hinar miklu
ómælisvíddir alheimsins, er blasa
við sjónum, og honum takist
að varða veginn og ná nýjum
áföngum til að skyggnast betur
um í alheimi. Það ferðaiag gæti
skapað jarðarbúum betri skiln-
ing á hinni litlu vin sem hnött-
ur þeirra er, og hringsólar um-
hverfis sólu í þeirri fjarlægð,
sem gefur jarðarbúum mögu-
leika að lifa því lífi, sem er
veruleiki, en ekki er gefið að
skii ja til fulls. St. í Rvílc.