Morgunblaðið - 21.01.1969, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1969.
Annast um skattaframtöl
Tími eftir samkomulagi.
Pantið tíma, sem fyrst eftir
kl. 7 á kvöldin. Friðrik
Sigurbjörnsson, lögfræð-
ingur, Harrast. s. 16941.
Skattaframtöl
JÓN E. RAGNARSSON,
hdl. eftir kl. 19 Símar
20437 og 81942.
Skattframtöl
Sigfinnur Sigurðsson,
hagfræðingur.
Barmahlíð 32.
Sími 21826 eftir kl. 18.
Vil kaupa íbúð
2—4 herbergi og eldhús á
hæð eða góða risíbúð, helzt
í gamla bænum eða Laiug-
arneshverfL Uppl. í síma
14663.
Herbergi til Ieigu
að Leifsgötu 16, innbyggðir
skápar, aðgangur að eld-
húsi og baði. Uppl. eftir
kl. 8 í kvöld.
Fósturbarn
Reglusöm og barngóð hjón
geta tekið barn í fóstur.
Tilb. sendist Mbl. fyrir 25.
janúar, merkt „Barngóð —
6287“.
Iðnaðarhúsnæði óskast
75—100 ferm. húsnæði ósk-
ast fyrir trésmíðaverk-
s’tæði. Uppl. í síma 32519.
Hænsni til sölu
60 stk. unghærnur í varpi,
40 stk. 6 mán. gamlir ung-
ar, 50 stk. 4% mánaða
gamlir ungar. Sími 5161
Hvolsvelli.
Vöggusett
áteiknað og tilbúið, bleyjur
og ungbarnafatnaður, þykk
ar sokkabuxur kvenna.
Hullsaumastofan
Svalbarð 3, sími 51075.
Starfsstúlku vantar
að barnaheimilinu Tjalda-
nesi, Mosfellssveit. Uppl. í
Tjaldanesi.
Hafnarfjörður - nágrenni
Annast skattframtöl fyrir
einstaklinga og félög.
Sigurbergur Sveinsson,
viðskiptafræðingur.
Sími 51717 og 52611.
Heitur og kaldur matur
Smurbrauð og brauðtertur.
Leiga á dúkum, glösum,
diskum og hnífap. Útv.
stúlkur í eldhús oa framr.
Veizlustöð Kópav., s. 41616.
Onnumst alls konar
ofaníburðar- og fyllingar-
verk. Seljum 1. flokks fyll-
ingarefni frá Björgun hf.
VÖrubílastöðin Þróttur.
Sírni 11471 — 11474.
B^freiðastjórar
Gerum við allar tegundir
bifreiða. — Sérgrein hemla
viðgerðir, hemlavarahlutir.
Hemlastilling hf.,
Súðavogi 14 - Sími 30135.
Tökum að okkur smíði
á eldhúsinnr., klæðask. o.fl.
Gerum föst verðtilb. Tré-
smíðaverkstæði Þorvaldar
Björnssonar, sími 35148 og
kvöldsími 84618.
Að störfum í garði
Hinn vinsæli og fjölhæfi leikari,
yrkjustörfum í garði sínum við
ársriti Garðyrkjufélags íslands.
Haraldur Bjömsson að garð-
Bergstaðastræti. Myndin birtist í
B/öð og tímarit
GARÐYRKJURITIÐ, ársrit Garð
yrkjufélags fslands, 48. árg. 1968,
'er komið út og hefur borizt blað-
ínu. Efni þess er fjölbreytt og
myndum prýtt, og má m.a. nefna
þetta: Kveðjuorð Ingóifs Davíðs-
sonar, sem nú lætur af ritstjórn árs-
ritsins eftir 25 ár. Ólafur B. Guð-
mundsson tekur nú við ritstjórn
þess, og skrifar ávarpsorð til les-
enda.
Valdimar Eliasson skrifar tim
burkna. Sagt er frá kjöri Ingólfs
Davíðssonar magisters, sem heiðurs
félaga Garðyrkjufélags fstands. Ein
ar I. Siggeirsson skrifar um frið-
un nokkurra íslenzkra plantna. Þá
er birt ritgerð Ingólfs Davíðsson-
ar um friðlýstar plöntutegundir,
ásamt myndum, en grein þessi og
myndirnar birtust áður hér í Morg-
unblaðinu. Ólafur B. Guðmundsson
skrifar greinina: Leikmenn og lat-
ínuglósur. Einnig á hann greinina:
Skýringar á plötnunöfnum. Ingólf-
ur Davíðsson skrifar um Fjögur inni
blóm. Kristinn Guðsteinsson skrif-
ar um runnamuru. Fjölgun inni-
blóma með græðlingum, heitir grein
eftir Óla Val Hansson. Þáttur um
Daliur eftir Kristin Helgason. Seg-
ir þar m.a. frá Daliudeild G.í. Mait-
jurtafræ eftir Einar I Siggeirsson.
Axel V Magnússon skrifar um
Vaxtartregðuefni Minningairgrein
um Vigfús Helgason. Einnig er
minnzt A.T. Barnes, eins þekktasta
daliusérfræðings Breta. Kveðja að
norðan frá Aðalbjörgu Jóhannes-
dóttur Dalvík. Valdimar Elíass. skrif
ar um Hlyn. Störf stjórnar G.í.
1967. Viðurkenning til bama 1 skóla
görðum Garðahrepps. Þá eru birt-
ir reikningar G.í. Einar I. Siggeirs-
son skrifar um Garðyrkjuritið
Skólagarðar Keflavíkur. Kristinn
Helgason skrifar greinina: Hvemig
á að velja verðlaunagarða? Smá-
einaþátturinn Safnhauguriran. Bóka
þáttur. Vorkveðja úr Hveragerði.
Er þar getið hins merka framtaks
Hallgríms á Grímsstöðum með út-
gáfu plöntuskrár, sem hægt er að
panta plöntur eftir gegn póstkröfu
Þá er getnaun, Einar I. Siggeirsson
skrifar um sýrustig jarðvegs. Frá
Fuglavemdarfélagi íslands er grein
in: Skordýraeitur hættulegt fugla-
lífi. Þá er Skrá yfir skrúðgarða-
meistara og sveina. Félagatal G.í.
Ársritið er 160 blaðsíður að stærð,
auk kápu, prentað í Eddu, hið vand
aðasta að öllum fragangi, þvífylg
ir seðill fyrir nýja félaga, en mikil
nauðsyn er sögð á þvi að fjölga fé-
lögum í G.í. Ritstjóri er Ólafur B.
Guðmundsson, en í ritnefnd með
honum eru Óli Valur Hansson og
Einar Siggeirsson.
FRÉTTIR
Alliánce Francaise
Franski sendikennarinn, M.
Jacques Raymond flytur fyrir-
lestur í Háskólanum (3. kennslu
stofu) miðvikudaginn 22. janúar
kl. 6. Hann talar á frönsku og
fjailar um ævintýri Perraults og
tengsl þeirra við bókmenntir og
þjóðsagnir. öllum er heimill að
gangur.
boðs-
vikan á
Akranesi
Innfæddur
striðsmaður frá
Konsó
Spilakvöld Templara Hafnarfirði.
Félagsvistin í Góðtemplarahúsinu
miðvikudagskvöldið 22. jan kl. 8.30
Allir velkomnir.
Kvenféiag Fríkirkjusafnaðarins i
Reykjavík
miðvikudaginn 29. janúar kl. 8
Spiluð verður félagsvist og fleira.
A1 It Fríkirkjufólk velikomið.
Kristniboðsvikan á Akranesi
Á samkomu kristniboðsvikunnar
á Akranesi í kvöld, sem hefst kl.
8.30 í Akraneskirkju, talar Bene-
dikt Arnkelsson cand. theol. Allir
eru velkomnir á samkomur þessar.
Kvenfélag Bústaðasóknar
hefur hafið fótaagðerðir fyrir aldr
að fólk í Safnaðarheiraili Langholts
sðknar alla fimmtudaga frá kl. 8.30
11.30 árdegis. Pantanir teknar i sím
32855
Fíladelfía, Reykjavík
Willy Hansen frá Nýja Sjálandi
talar áframhaldandi á samkomum
okkar við góða aðsókn. Samkoman
í kvöld hefst kL 8.30. Allir vel-
komnir.
KFUK—AD
Saumafundur og kaffi 1 kvöld
kl 8.30 Jón Oddgeir Jónsson sýnii
fræðslumyndir. Astrid Hannesson
flytur hugleiðingu. Allar konur vel-
komnar.
Kvenfélag Neskirkju
Aldrað fólk I sókninni geturfeng
ið fótaðgerðir í Félagsheimili kirkj
unnar á miðvikudögum frá 9—12
Pantanir teknar á sama tíma, sími
16783
Yfirlýsing frá séra Páli
Annar sóknarprestanna við Nes-
kirkju i Reykjavík, séra Jón Thora
rensen hefur fengið frí frá störf-
um um nokkurt skeið, og mun séra
Páll Þorleifsson frá Skinnastað
sinna störfum hanis á meðan.
Ég hef hins vegar orðið fyrir
miklu ónæði af þessum sökum, þar
sem margir virðast halda að ég
Sæii er sá maður, er gjörir Drott-
in að athvarfi sínu og snýr sér
eigi til hinna dramblátu (Sáim 40.5).
í dag er þriðjudagur 21. janúar
og er það 21. dagur ársins 1969. Eft-
ir lifa 344 dagar. Agnesarmessa. Ár
degisháflæði kl. 8.39
Upplýsingar um læknaþjónustu í
borginni eru gefnar i síma 18888,
simsvara Læknafélags Reykjavík-
i •
Læknavaktin í Heilsuverndarstöð-
iiJii hefur síma 21230.
Siysavarðstofan í Borgarspítalan
um er opin allan sólarhringinn.
Aðeins móttaka slasaðra. Sími
81212 Nætnr- og helgidagalæknir er
( síma 21230.
Neyðarvaktin svarar aðeins á
virkum dögum frá ki. 8 til kl.
sími 1-15-10 og laugard. kl. 8-1.
Keflavíkurapótek er opið virka
daga kl. 9-19, laugardaga kl. 9-2
og sunnudaga frá kl. 1-3.
Borgarspítalinn í Fossvogi
Heimsóknartími er daglega kl.
15.00-16.OOog 19.00-19.30.
Borgarspítalinn í Heilsuverndar-
stöðinni
Heimsóknartími er daglega kl. 14.00
-15.00 og 19.00-19.30.
Næturlæknir I Hafnarfirði að-
faranótt 22. janúar er Bjöngvin M.
Óskarsson sími 52028.
Kvöld og helgidagavarzla í iyfja
búðum í Reykjavík vikuna 18.—25.
janúar er í Ápóteki Austurbæjar
og Vesturbæjarapóteki.
Næturlæknir í Keflavík
21.1 og 22.1 Guðjón Klemenzson
23.1. Kjartan Ólafsson
24.1.25.1 og 26.1 Arnbjörn Ólafs-
son
27.1 Guðjón Klemenzson.
í hjúskapar- og fjölskyldumál-
um er í Heilsuverndarstöðinni,
mæðradeild, við Barónsstíg. Við-
talstími prests er þriðjudaga og
föstudaga, eftir kl. 5, viðtalstími
læknis á miðvikudögum eftir kl. 5
Svarað er í síma 22406.
Framvegis verður tekið á mótl
þeim, sem gefa vilja blóð í Blóð-
bankann, sem hér segir: mánud.
þriðjud., fimmdud. og föstud. frá
kl 9-11 fh og 2-4 eh. Miðviku-
daga frá kl 2-8 eh. og laugardaga
frá kl. 9-11 f.h Sérstök athygli
skal vakin á miðvikudögum vegna
kvöldtímans
Bilanasími Rafmagnsveitu Rvík-
ur á skrifstofutíma er 18-222 Næt-
ur- og helgidagavarzla 18-230.
AA. samtökin
Fundir eru-sem hér segir: í Fé-
lagsheimilinu Tjamargötu 3c: mið-
vikudaga kl. 21 fimmtudaga kl. 21
föstudaga kl. 21. Nesdeild í Safn-
aðarheimili Neskirkju laugardaga
kl. 14 Langholtsdeild I Safnaðar-
heimili Langholtskirkju laugar-
daga kl. 14.
RMR—22—1—20—VS—FR—HV
Kiwanis Hekla Stj. og n. fundur
kL 7.15 í Tjarnarbúð.
I.O.O.F. = Ob. 1 P = 1501218% =
Q Edda 59691217 = 2
n Gimli 59691237 — 1 Frl.
I.O.O.F. Rb. 4 = 1181218% — 9.0.
gegni prestsstörfum fyrir séra Jón.
Fólk hefur verið að koma til mín
og hringja til mín, bæði heirraa og
á vinnustað, til þess að biðja mig
um að framkvæma hin og þessi
prestverk.
En þar sem hér er um algjöran
miisskilning að ræða, vil ég benda
á og ítreka, að það er ekki ég, held
ur séra Páli Þorleifsson, sem gegn
ir nú störfum fyrir séra Jón Thor
arensen.
Vona ég að fólk athugi þetta svo
að ekki þurfi frekari misskilningur
né leiðindi af að hljótast.
Sr. Páll Pálsson,
Kvisthaga 11, Rvík.
Kvenfélag Neskirkju
heldur spilakvöld þriðjudaginn 21.
janúar kl. 8.30 í Félagsheimilinu.
Spilaverðlaun. Kaffi.
Austfirffingar, Suffumesjum
Árshátíð og þorrablót verður
haldið 25. jan. í Ungmennafélags
húsinu. Nánar í götuauglýsing-
um.
Kvenfélagið Heimaey
heldur árshátíð sína í Sigtúni laug
ardaginn 25. jan. kl. 7 og hefst
hún með borðhaldi. Allir Vest-
manneyingar velkomnir.
sú NÆST bezti
Stúdentarnir frá 1920 héldu eitt sinn stúdentsafmaeli og lögðu af
stað í stórum almenningsvagni austur í sveitir. Þeir óku þar fram
á bónda, sem arkaði eftir þjóðveginum. Að sjálfsögðu var hann
tekinn upp í vagninn og veitt góð hressing. Margir vildu hafa tal
af honum og varð hann því oft að skipta um sæti. Fararstjórinn.
sagði hinum jafnan í hvert sinn: „Nú situr þú hjá honum fræga
lækni N. N. Nú situr þú hjá honum alkunna lögmanni N. N.“ o.s.frv.
Lét sveitamaðurinn þetta allt gott heita, en hugsaði sitt Loks sagði
tfaxarstjórinn „Nú skelli ég þér niður hjá sjálfum forsætisráðherr-
anum, honum HennannL“ Þá var karli öllum loktfð og sagði: „Já,
drengir mínir, þið haldið nú að það sé hægt að ljúga öllu að mér."
■5/OrfJ]{_)fSTl •
Greip hún í læri annars lögregluþjóns innanvert, og hélt fast. Hlaut maðurinn mikið mar og verff-
ur aff ganga gleiðfættur fyrst um sinn (Tíminn 14. 1. ’6).