Morgunblaðið - 20.11.1963, Side 24
*r i- 53 « ” II Ifenwrood » » CHEF jia|
3 V5 i < Frá Jfeklu
248. tbl. — Miðvikudagur 20. nóvember 1963
V
T 1 TVÖFALT 4» EINANGRUNARGLER 20ára reynsla herlendis
Braut bjórf lösku á
hnakka konunnar
16 dra piltui hugðist afla sér peninga
með öllum ráðum eftir 3 sólarhringa drykkju
S Á atburður gerðist í húsi
einu í Vesturbænum í gær-
morgun að 16 ára piltur,
svangur og slæptur eftir lang-
varandi drykkjuskap, réðst á
konu, sem var að segja honum
til vegar, og barði hana í höf-
uðið með bjórflösku. Var
höggið svo mikið að flaskan
brotnaði en ekki féll konan við
svo búið. Hugðist pilturinn
þá berja hana, en hitti ekki.
Komst konan með hljóðum út
á götu, og fór þá pilturinn út
úr húsinu og hvarf. Nokkru
síðar var hann handtekinn í
annarri íbúð, að þessu sinni
við Hávallagötu, en þangað
hafði hann brotizt inn. Gefur
hann þá skýringu á framferði
sínu að hann hafi ekki bragð-
að mat í þrjá sólarhringa og
verið drukkinn þann tíma
allan. Hafi hann í gærmorgun
ákveðið að verða sér úti um
Aðal-
fundur
Þorsteins
Ingólfs-
sonar
Aðalfundur
Sjálfstæðisfé-
lagsins I»or-
steins Ingólfs-
sonar í Kjósar-
sýslu verður
haldinn að Hlé-
garði annað
kvöld kl. 2L
Sigurður
Bjamason, alþm., ræðir stjóm-
málaviðhorfið.
peninga, hvað sem það kost-
aði.
Nánari atvik voru þau, aS því
er rannsóknarlögreglan tjáði Mbl.
í gær, að um 11-leytið í gærmorg-
un knúði piltur dyra að Vestur-
götu 65, hjá Jóhönnu Ouðmunds-
dóttur. Kvaðst hann sennilega
hafa farið í rangt hús, og fór út.
Kom pilturinn þó fljótlega aftur
og spurði Jóhönnu hvað gatan
héti. Sneri hún sér þá frá honum
og hugðist sýna honum út um
gluggann.
Tók þá pilturinn npp bjór-
flösku og braut hana á hnakka
Jóhönnu. Þegar hún féll ekki við
höggið, reyndi hann að slá hana,
en Jóhönnu tókst að komast út
kallandi á hjálp. Hljóp pilturinn
þá út úr húsinu og hvarf.
Um það bil hálfri klukkustund
síðar braut pilturinn rúðu í kjall-
ara hússins að Hávallagötu 37.
Fór hann inn og síðan upp á loft,
þar sem hann settist inn í íbúð.
Þangað kom inn gömul kona, frú
Ágústa Helgadóttir, og bað hann
fara út, en pilturinn neitaði því.
Við svo búið fór konan í aðra
íbúð og hringdi til lögreglunnar
sem kom að vörmu spori og hand
tók piltinn, sem átti sér ekki ills
von.
Við yfirheyrslur í gær skýrði
pilturinn frá því að hann hefði
verið á „fylliríi" þrjá síðustu
daga, og hefði ekki bragðað mat-
arbita allan þann tíma. í gær-
morgun hefði verið svo komið að
hann hafi ákveðið að ná sér í
peninga hvað sem það kostaði.
Kvað hann konuna í húsinu við
Vesturgötu hafa „verið fyrir sér“,
þar sem hann hefði þurft að leita
í íbúðinni. Hafi hann ætlað að
rota hana með flöskunni, og
bætti því við að hann hafi orðið
mjög hissa er konan missti ekki
meðvitund. Ætlaði hann þá að
reyna að rota hana með hnefa-
höggi en hitti ekki.
Þegar hann komst út, kveðst
Jóhanna Guðmundsdóttir
pilturinn hafa ráfað í suðurátt.
Kvað hann konuna á Hávallagötu
hafa verið svo „gamla og kurt-
eisa“ að hann hafi ekki „kunnað
við að berja hana“.
Eins og fyrr getur er piltur
þessi aðeins 16 ára gamall. Hefur
hann áður komizt í kast við lög-
in, fyrir nokkrum árum. Situr
hann nú í gæzluvarðhaldi.
SJÁ BLS. 2.
Mikill eldur
■ Pípuverksmiðjunni
ÞEGAR blaðið fór í prentun var
'mikill eldur í Pípuverksmiðj-
unni við Rauðarárstíg. Stóðu log
ar upp úr þakinu og var erfitt
um slökkvistarf. MUli 50 og 60
slökkviliðsmenn unnu að því að
ráða niðurlögum eldsins.
Slökkviliðið var kvatt út
vegna brunans kl. 22.15 og á
sama tíma var það kvatt að Hvíta
bandinu, en þar reyndist enginn
eldur. Þurfti að kaUa vara-
slökkviliðið út.
Mjög erfitt var fyrir slökkvi-
liðið að vinna bug á eldinum,
enda stafaði mjög mikill reyliur
af sementspokum, sem timbur-
þak og norðurendi verksmiðjunn
ar var klæddur með.
Útlit var fyrir, um það leyti,
sem blaðið fór í prentun, að mik
ið tjón hlytist af eldsvoðanum.
Tryggvi Helgason
kaupir 4 flugvélar
TRYGGVI Helgason, flugmað-
ur, er nýkominn heim eftir tvegg-
;ja miinaða dvöl vestan hafs.
Þangað fór hann til að svipast
um eftir hentugum flugvéla-
kosti til notkunar við vaxandi
starfserr.i sína.
Árangurinn varð sá, að hann
festi kaup á fjórum flugvédum
Ihjá Bandarikjaiher, sem nú er
sem óðast að leggja niður skrúfu-
vélar og nota þobur í þeirra stað.
Hinar nýkeyptu flugvélar
Tryggva eru af tegundinni Twin
Beefih C-45 og hafa 2. 450 hest-
afla Pratt & Whitney hreyfla
með sj'álfvirkum skiptiskrúfum.
Vænghaf er 15 metrar, meðal-
hraði 300 km á klst., flugjþol
Frh. á bls. 23
Samanburður á lífskjörum
sýnir, að íslendingar standa
mjög framarlega
Frd aðalfundi Fulltrúardðs Sjólfstæðis-
félaganna — Úr ræðu Gunnars Thoroddsen
AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vík var haldinn í Sjálfstæðishús-
iiiu á mánudagskvöld.
Formaður fulltrúaráðsins,
Birgir , Kjaran, setti fundinn.
Fundarstjóri var Jóhann Haf-
stein, en fundarritari Styrmir
//
Þá dró hann upp skammbyssu
//
og skaut á Ketil
Árásarmaðurinn skaut mörgum skotum
að íslendingunum, eitt strauk kinn
Ketils — Viðtal við íslendingana í Tulsa
Einkaskeyti til Mbl.
Tulsa, Oklahoma, 19. nóv.
J. D. Scaggs, maður sá, er
skaut og særði íslenzku
piltana tvo í Tulsa á laug-
árdag, eins og Mbl. skýrði
frá í gær, skaut mörgum
skotum að piltunum. Gerð-
ist atburður þessi í einum
af hinum svonefndu „trail-
er courts“ í borginni, en
það eru nánast smáþorp,
sem byggjast öll af vögn-
um, „trailerum“. — Átti
Scaggs umrædda vagna og
leigði út. Skaut hann fyrst
einu skoti að Katli Odds-
syni, sem rispaði kinn hans,
en síðar hófst eltingaleikur
umhverfis vagninn, og
skaut Scaggs 4—5 skotum
að íslenzku piltunum án
þess að hæfa. Kúlunum,
sem særðu piltana, skaut
hann af mjög stuttu færi,
en piltarnir héldu að hann
væri með hvellhettubyssu
og væri að reyna að hræða
þá. Voru þeir að reyna að
koma vitinu fyrir Scaggs
er hann skaut á þá og
særði. Scaggs hefur nú ver
ið ákærður fyrir morðtil-
raun, en var í dag látinn
laus gegn 2000 dollara
tryggingu.
Það var Bob Randolph, lög
reglumaður, sem handtók
Scaggs á staðnum eftir að
hann hafði skotið piltana.
Scaggs skýrði lögreglumönn-
unum svo frá að hann hafi
skotið í sjálfsvörn eftir rifr-
ildi við piltana. Haíði hann
áður hringt til lögreglunnar
og sagt að hann ætti í vand-
ræðum með tvo menn. Voru
lögreglumenn á leið til vagna
þorpsins er skotárásin átti
sér stað.
Piltarnir tveir voru í heim-
sókn í vagni, þar sem stúlka
að naíni Jacquelyn Owings
býr.
Stunduðu þeir báðir nám
við Spartan School of Aer-
onautics í Tulsa, en þar er nú
20 manna hópur frá íslandi
við flugvirkjanám.
í sjúkrahúsi því, þar sem
íslenzku piltarnir liggja, var
fréttaritara Mbl. skýrt frá
því í dag að þeim liði báðum
vel eftir atvikum. Hlaut Ket-
ill kúlu í kvið, og fór hún í
gegnum hann, en Halldór
fékk kúlu hægra megin í
brjóstið. Fór hún í gegnum
lungað og staðnæmdist í bak-
vöðva.
Fréttaritari Mbl. heimsótti
Halldór Gestsson í sjúkrahús
ið í dag og átti við hann við-
tal. Halldór sagði að ungfrú
Owings hefði boðið sér og
Katli að heimsækja sig. Hefðu
þau setið þrjú og spjallað sam
an, er Scaggs bar að til þess
að gera við glugga. „Hann
skipaði okkur að fara, eða
hann mundi hringja á lög-
regluna“, sagði Halldór. „Við
sögðum honum að við værum
gestir ungfrú Owings og við
svo búið fór hann“.
Halldór sagði að Scaggs
hefði síðan komið aftur og
sagt þeim að fara, en þeir fé
lagar hefðu þá sagt honum
að þeir myndu bíða eftir lög
reglunni.
„Þá dró hann upp skamm-
Frh. á bls. 23
Gunnarsson. Formaður minntlst
síðan fulltrúaráðsmanna, sero
látizt höfðu á s.l. starfsári, þeirra
Einars Ásmundssonar, hrl., Guð-
mundar Sveinssonar, verkstjóra,
Hauks Eyjólfssonar, skrifstofu-
stjóra, og Ólafs Ólafssonar, sölu-
manns.
Þá flutti fráfarandi formaður
skýrslu sína um starfsemina.
Framkvæmdastjórar á starfsár-
inu voru Bjarni Beinteinsson og
Ragnar Kjartansson. Skrifstofu-
stúlka var Sigríður Gústafsdótt-
ir. — Birgir Kjaran lýsti síðan
yfir því, að hann og Guðmund-
ur Benediktsson mundu ekki
gefa kost á sér til endurkjörs.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, þakkaði
þeim Birgi og Guðmundi vel
unnin störf í fulltrúaráðinu.
Þá var gengið til stjórnarkjörs.
Aðalmenn í stjórn fulltrúaráðs-
ins voru kosnir Baldvin Tryggva
son, Gunnar Thoroddsen og
Höskuldur Ólafsson. Auk þeirra
sitja í aðalstjórn formenn Sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík,
María Maack, formaður Hvatar,
Sveinn Guðmundsson, formaður
Varðar, Styrmir Gunnarsson,
formaður Heimdallar, og Svein-
björn Hannesson, formaður Óð-
ins. — Varamenn í stjórn vortt
kosnir Ágúst Hafberg, Gróa Pét-
ursdóttir og Jóhann Hafstein.
★
Þá flutti Gunnar Thoroddsen
fjármálaráðherra, erindi, sem
hann nefndi „Lífskjör í nokkrum
löndum“.
Hóf hann mál sitt á því að
minna á þann dóm útlendinga,
sem hingað til lands kæmu, að
hér væru lífskjör jafngóð eða
betri en í nágrannalöndum okk-
ar. Sama dóm felldu íslending-
ar, sem farið hefðu út fyrir lands
steinana. Þetta væri þó ekkl
annað en ágizkun, og raunveru-
lega væri ekki til neinn algild-
Framh. á bls. 3