Morgunblaðið - 20.11.1963, Page 13
J MiSvikudagur 20. nóv. 1963
MORCUNBLAÐIÐ
13
Nýr brezkur Ford
til sýnis í Háskólabíói
Tvær bílveltur
og slys
UM HELGINA urðu tvær bíl-
veltur og slys fyrir austan Fjall.
Á sunnudaginn var lítill fólks-
bíll að aka fram úr öðrum bíl
á veginum við Hveragerði.
Sveigði þá fremri biilinn inn á
veginn og hemlaði ökumaðurinn,
sá sem framúr var að fara, og
sveigði frá. Við þetta valt bíll-
inn á veginum. Fimm manns
voru í bílnum, og meiddist
þrennt. Fór fólkið til læknis á
Selfossi, og reyndist stúlka, sem
í bílnum var, viðbeinsbrotin.
Bíllinn stórskemmdist.
Aðfaranótt sunnudagsins hljóp
hestur yfir veginn fyrir framan
BREZKU Ford-verksmiðjurnar
liggja ekki á liði sínu, þótt stutt
sé síðan ný „módel“ komu á
ir.'.rkaðinn. Consul Cortina sá
dagsins ljós fyrir rúmu ári, og
Zephyr bifreiðin er einnig ný af
nálinni. Nú hafa verksmiðjurnar
sent frá sér nýja bifreið, sem
nefnist Consul Corsair og er
hvað stærð snertir mitt á milli
hinna tveggja.
Fyrstu bifreiðarnar af Corsair
gerð eru nýkomnar til landsins
og nú til sýnis hjá umboðunum.
í því tilefni bauð I*órir Jónsson
Roy Brown, yfirteiknari
j hjá Ford í Bretlandi.
framkvæmdastjóri hjá Sveini
Egilssyni h.f. nýlega blaðamönn-
um að skoða Corsair-bifreið,
sem verður til sýnis þessa viku
í Háskólabíói.
Bifreiðin er hin glæsilegasta
é að líta og minnir nokkuð á
Ford Galaxie frá Bandaríkjun-
um og Taunus 17M frá Þýzka-
landi. En Roy Brown, yfirteikn-
ari brezku Fordverksmiðjanna,
er ekki á þvtí að hér sé um eftir-
öpun að ræða. „Raðið bifreið-
unum upp hlið við hlið,“ segir
ihann, „og þá sést að þær eru ó-
■líkar.“ Brown segir að einna
Ihelzt llíkist bifreiðin „sport“
gerðinni Thunderbird, en hins-
vegar hafi teikningin fyrst og
fremst verið gerð með það fyrir
augum að draga sem mest úr
lot-mó'tstöðunni og auka aksturs
hæfni bifreiðanna.
Ný verksmiðja í Halewood
Hinn 2. október s.l. höfðu að-
eins verið smiðaðar 6 þúsund
Corsair bifreiðir, en engu að
síðux á tegundin sér talsverða
sögu. Undirbúningur að nýrri
tegund tekur venjulega um 2%
ár, og var því Corsair á tilrauna
stigi þegar Cortina kom á markað
inn í fyrra. Bifreiðin er sett sam
an í nýrri verksmiðju Ford í
Halewood hjá Liverpool, en
margir vélahlutar eru þeir sömu
og í Oortina. Engu að síður hafa
Ford-verksmiðjurnar varið um
6% milljón sterlingspunda (780
millj. kr.) til kaupa á nýjum
vélum í sambandi við smiíðina
á Corsair. Bifreiðin, sem sýnd er
í Háskólabíói, er tveggja dyra
De Luxe, og kostar hingað kom-
in um kr. 174 þúsund. Einnig
má fá þessa tegund 4 dyra, og
kostar Corsair frá kr. 168 þúsund
til kr. 184 þúsund. >á má fá
ýmsan aukaútbúnað, eins og t.d.
gírskiptingu í gólfi, hMfðarpönn-
ur undir vél og benzi'ngeymi og
stoppaða stóla í stað bekks að
framan.
Vélin er fjórskipt, rúmtak
hennar 1498 rúimsentímetrar og
hestorkutala 59,5 bremsuhestöfl
á 4.600 snúningum á mínútu.
Mikið er gert til að draga úr há
vaða frá vélinni, og segja fram-
leiðendur að jafnvel á 130 kíló-
metra hraða heyrist lítið í henni.
Sætin eru sérstaklega þægileg,
bæði að framan og aftan, og út-
sýni gott. Því miður höfðu frétta
menn ekki tækifæri til að reyna
bifreiðina, en brezkir sérfræð-
ingar, sem það hafa gert, ljúka
upp einum munni um ágæti
hennar. Þannig segir t.d. Ant-
hony Martin í mánaðarritinu
Town ('oikt. 1963): Þetta er líf-
leg bifreið og þannig úr garði
gerð að hún ætti að fullnægia
kröfum Sterling Moss framtíð-
arinnar.
„Sjóræningi"
Nafnið Corsair þýðir sjóræn-
ingi eða sjóræningjaskip, og var
aðallega notað um sjóræningja
Norður Afríku á tímum Tyrkja-
ránsins á íslandi. Segja talsmenn
Ford verksmiðjanna að nýja bif-
reiðin sé í rauninni nokikurs
konar sjóræningi, því henni sé
ætlað að ræna vandlátum kaup-
endum frá öðrum bifreiðasmiðj-
um, sem óska eftir að fá sem mest
fyrir sína peninga.
Ekki skal hér kveðinn upp
dómur um þessa nýju bifreið.
En fyrirrennarinn, Cortina, hef-
ur reynzt vel og nafnið Ford
•hefur jafnan verið í miiklum met
um. Sjálir eru Bretar mjög
hreyknir af nýju bifreiðinni, og
ekki er ótrúlegt að hún eigi
eftir að verða vinsæl á íslandi.
Ford Consul Corsair.
Austin Gipsy á fer'ð niður Hamrahlíð. Við stýrið er Mr. White
Austin Gipsy
reyndur í Hamrahlíð
Bergur G. Gíslason, umboðs-
maður British Motor Corpocat-
ion bauð fyrir skömmu frétta-
mönnum að skoða nýjustu gerð
Austin Gipsy jeppa sem hann
hefur á boðstólum, og notuð er
víða um heim, einkum þar sem
vegir eru slæmir. Tveir fulltrúar
B.M.C. eru hér í heimsókn um
þessar mundir og hafa ferðast
um landið til að kynna sér hæfni
bifreiðarinnar við íslenzkar að-
stæður
Bretarnir óku með fréttamenn
um Hamrahlíð og var farið leið
sem engum hefði að óreyndu
dottið í hug, að væri fær bifreið-
um. Austin Gipsy er þannig úr
garði gerður, að honum má aka
niður brattari brekku en flestum
öðrum bílum, eða yfir 45gráða
halla. Var fréttamönnum um og
ó, þegar ekið var niður þver-
hnýpta fjallshlíðina, en Bret-
arnir sefuðu þá, og sögðu að á
þessari leið væru þeir öruggari
en í Austurstræti. Hins vegar
hefðu þeir farið niður Hamra-
hlíð á öðrum og verri stað að
morgni sama dags og það hefði
verið dálítið hættulegt
Fjaðraútbúnaður Austin Gipsy
er séstaklega gerður til þýðrar
keyrslu um vegleysur. Sem land
búnaðarbifreið hefur hann marga
kosti. Að framan má tengja við
vélina vindu eða pumpu. Undir
miðjunni er hægt að tengja raf-
magnsvél, sem getur t.d. knúið
rafsuðutæki og að aftan má
tengja við bifreiðina hverskonar
tæki, sem ætluð eru fyrir drátt-
arvélar.
Dudley F. White og Leslie H.
Hussein, fulltrúar Austin verk-
smiðjanna hafa að undanförnu
farið víða um og ekið Austin
Gipsy um 250 þús. kílómetra
vegalengd í ýmsum löndum Ev-
rópu, Asíu, Afriku og Ástralíu.
Dudley F. White (t.v.) og Leslie H Hussein virða fyrir sér vél
Austin Gipsy.
Komin út ævisaga Jón
l’óðsnillingsins og þýðandans frá 18. öld
sonar.
„JÓN ÞORLÁKSSON — þjóð-
skáld íslendinga“, en svo nefnist
ævisagan er um 300 bls. að
stærð prýdd mörgum myndum
Er bókin októberbók AB 1963
og þarf ekki að efa, að almenn-
ingur muni fagna því að eiga nú
greiðan aðgang að ýtarlegri sögu
um ævi síra Jóns og um leið
mörgum þeirra frábæru ljóða og
ljóðaþýðinga, sem hann varð
frægur fyrir á sinni tíð — og æ
síðan, en Jón Þorláksson var
fyrstur nefndur því sæmdarheiti
— þjóðskáld íslendinga.
í bókinni segir frá því
hvernig umhorfs var í íslenzku
þjóðlífi um og eftff miðja 18.
öld, þegar Jón Þorláksson ólzt
upp og lifði sínu ma'rgbrotna
lífi. Sagt er m.a. frá skólavist
hans í Skálholti, amtsskrifara-
starfi á Leirá og Bessastöðum,
prestskap hans í Saurbænum og
hempumissi tvívegis. Þá er
greint frá veru hans við prent-
yerkið í Hrappsey, þar sem hann
fyrstur íslenzkra skálda hand-
lék eigin ljóðabók árið 1774;
síðan uppreist hans og prest-
skap norður á Bægisá, fátækt
og basli þeirra tíma — og óbug-
andi elju síra Jóns við ljóða-
þýðingar og kveðskap, en eins
og allir vita þýddi hann m.a.
Paradísarmissi Miltons og fleiri
meistaraverk. Loks segir frá hjú
skap Jóns, börnum hans og niðj-
Bægisá
Sr. Sigurður Stefánsson.
um. *■
Þetta er fyrsta bók sr. Sigurð-
ar Stefánssonar, vígslubiskups,
en hann hefur í tómstundum
frá prestsstörfum og umfangs-
mikilli bústjórn á Möðruvöllum
lagt stund á íslenzka kirkjusögu
ritað og flutt erindi um það efni.
Hinum margvíslega fróðleik um
ævi og störf síra Jóns á Bægisá
hefur hann viðað að sér nú um
tveggja áratuga skeið og mun
því enginn núlifandi manna taka
honum fram um þekkingu á ævi
ferli hins merka þjóðskálds.
Bókin er prentuð í prent-
smiðju Jóns Helgasonar, mynda
mót eru gerð hjá Prentmót hf.,
bókbandsvinna unnin af Bók-
felli hf. og kápu hefur Tómas
Tómasson teiknað
' ÆVISAGA séra Jóns á
Bægisá, hins mikla ljóðasnill-
ings og þýðanda, sem uppi var
fyrir tveim öldum, er komin út
hjá Almenna bókafélaginu. Er
sagan skrifuð af síra Sigurði
Stefánssyni, vígslubiskupi Hóla-
stiftis, en hann er manna kunn-
ugastur hinum stormsama en
stórbrotna æviferli Jóns Þorláks-
bíl við Skeggjastaði skammt aust
an Selfoss. Ökumaðurinn missti
vald á bílnum, sem snérist á
veginum og valt út í skurð. Öku
maðurinn datt út úr bílnum og
lenti undir honum í skurðinum.
Fólk úr bíl, sem þarna kom
strax að, hjálpaði manninum
undan bílnum. Fór hann til lækn
is á Selfossi en reyndist ekki
mikið meiddur. Bíllinn er hins
vegar ónýtur talinn.
s á