Morgunblaðið - 20.11.1963, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLADID
Miðvikudagur 20. nóv. 1963
Útgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvaemdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Kom'áð Jónsson.
Auglýsingar: Árm Garðar Kristinsson.
ÍTtbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðs.lstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 80.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 4.00 eintakib.
ALLTKALLA ÞEIR
Tilmæli Rússa að slíðra
sverðin aðeins yfirvarp
RUSSANIÐ
— segja kínverskir kommúnisfar
¥ áratugi hafa kommúnistar
hér á landi og málgögn
þeirra haldið því blákalt
fram, að öll gagnrýni á Sovét-
ríkin og hið kommúníska
skipulag væri „Rússaníð“.
Þegar Morgunblaðið og önn-
ur vestræn blöð skýrðu frá
hungursneyð í Sovétríkjun-
um og fjöldamorðum Stalíns,
réttarhðldunum yfir ýmsum
leiðtogum kommúnistaflokks-
ins og aftökum þeirra, þá
kölluðu málgögn kommúnista
hér á landi allar þessar frá-
sagnir „Morgunblaðslýgi“ og
„Rússaníð“.
En fyrir nokkrum árum
gerðust þau undur og stór-
merk'í, að sjálfur þáverandi
og núverandi forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, Nikita
Krúsjeff, staðfesti í ræðu á
flokksþingi kommúnista í
Moskvu, að allt það sem Morg
unblaðið sagði um ástandið í
Rússlandi á Stalínstjórnar-
tímabilinu hafi verið heilag-
ur sannleikur. Krúsjeff lýsti
því yfir, að Jósef Stalín hefði
verið ótíndur glæpamaður,
sem hefði nærri því verið bú-
inn að steypa Sovétríkjunum
og rússnesku þjóðinni í eilífa
glötun.
Þetta þótti Moskvumönn-
um hér á landi heldur slæm-
ar fréttir en létu þó kyrrt
liggja. Hinir harðsoðnustu
héldu áfram að tala um
„Morgunblaðslýgi“ og „Rússa
níð“, en nagandi efa setti að
öðrum.
Nú hefur það til viðbótar
gerzt, að Halldór Laxness
Nóbelsskáld hefur gefið út
bók, þar sem hann lýsir átak-
anlega eymdinni og volæðinu
í Rússlandi, ofbeldinu og ein-
ræðinu undir stjórn Stalíns.
Þessar lýsingar Nóbelsskálds-
ins hafa vakið því meiri at-
hygli, þar sem Halldór Lax-
ness hafði áður lýst Sovét-
ríkjunum sem hinu mikla
sæluríki.
SIC TRANSIT-!
essi bók Halldórs Laxness
hefur orðið mikið áfall
fyrir kommúnista hér á landi.
Þeir hafa þó fram til þessa
látið kyrrt liggja, en látið sér
nægja að fara ófögrum orð-
um um hana og höfund henn-
ar í samtölum manna í milli.
En nú hefur „Þjóðviljinn“
fengið harðsoðnasta Moskvu-
kommúnistann hér á landi,
v
Gunnar Benediktsson rithöf-
und, til þess að skrifa ritdóm
um þessa síðustu bók Lax-
ness. Voru birtir kaflar úr
þessum ritdómi hér í blaðinu
í gær. Ræðst Gunnar Bene-
diktsson þar heiftarlega *á
Halldór Laxness og skamm-
ar hann fyrir „Rússaníð“, „til-
gerð og tildur“, og finnur þá
skýringu eina á gagnrýni
hans og hreinskilnislegum
lýsingum á ástandinu í Sovét-
ríkjunum, að Nóbelsskáldið
hafi verið „heilaþvegið“!
í niðurlagi ritdóms síns
deilir Gunnar Benediktsson
einnig harðlega á Halldór
Laxness fyrir að hafa með
þessari nýjustu bók sinni
„ruglað um fyrir alþýðu
manna“!
í áratugi hafa íslenzkir
kommúnistar dýrkað Halldór
Kiljan Laxness. Nú þegar
hann kemur fram af hrein-
skilni og segir sannleikann
um Sovétríkin þá er hann
allt í einu fallinn engill, sem
skrifar rétt og slétt „Rússa-
níð“.
Sic transit gloria mundi.
RÍKISSTJÖRNIN
OG HINIR LÆGST
LAUNUÐU
T ágætri ræðu, sem Magnús
A Jónsson alþingismaður
flutti í útvarpsumræðunum
um daginn um vantrauststil-
lögu kommúnista, gerði hann
m.a. að umtalsefni þá stað-
reynd, að engir tapa meira á
kapphlaupinu. milli kaup-
gjalds og verðlags en hinir
lægst launuðu í þjóðfélaginu.
Magnús benti á, að Viðreisn-
arstjórnin hefði allt frá upp-
hafi lagt kapp á að tryggja
einmitt launalægsta fólkinu
raunhæfar kjarabætur. Um
þetta komst hann m.a. að orði
á þessa leið:
„Sannleikurinn er sá, að
engin stjórn hefur fremur
þessari lagt áherzlu á að
tryggja hinum launalægri
raunhæfar kjarabætur. Auk
hinna stórkostlegu hækkana
almannatrygginga hefur rík-
isstjórnin ítrekað beitt sér
fyrir því, að hinir lægst laun-
uðu fengju kauphækkun, en
því miður hefur árangur orð-
ið lítill, því að þeim aðvör-
unum hefur ekki verið hlýtt,
að þessar kaupbætur yrðu
einskis virði, ef allir fylgdu
á eftir með kauphækkanir.
Um þetta hefur hin kommún-
íska forysta ASÍ ekki verið til
viðtals. Þá var ennfremur
freistað að fá samstarf við
Peking og Moskvu,
15. nóv. AP—NTB
+ KÍNVERSYíA fréttastof-
an „Nýja Kína“ segir í dag,
að síðustu tilmæli Sovétstjórn
arinnar um, að stjórnirnar í
Peking og Moskvu geri hlé á
hinum opinberu hugsjóna-
deilum sínum, séu einungis
til þess ætluð að breiða yfir
hinn hömlulausa andróður
Rússa gegn Kínverska al-
þýðulýðveldinu.
Fréttastofan bendir á, þessu
til sönnunar, að sovézku blöðin
hafi haldið áfram að birta grein
ar, illgjarnar í garð Kínverja,
eftir að sovézkir stjórnarleið-
togar fóru fram á, að hlé yrði
gert á deilunum. Frá því 27. okt.
s.l. hafi nokkur blaðanna birt
tilmæli Krúsjeffs um, að deil-
London 15. nóv. NTB-AP
RIOHARD Butler, hinn nýi utan '
ríkisráðherra Breta, hélt fyrstu
ræðu sína um utanrikismál í
brezka þinginu í dag. Hann sagði
að menn skyldu ekki taka það
sem veikleikamerki, þót>t Vestur
veldin freistuðu þess að ná sam-
komulagi við Sovétríkin með
samninigaumleitunum. Óvarlegt
væri líka að aetla, að megin-
stefnumið Sovétstjórnarinnar
hefðu breytst, 'þótt þau sýndu nú
verkalýðssamtökin um sama
efni með því að samþykkja
tillögu Alþýðubandalags-
manna um að rannsaka mögu
leika á að tryggja lífvænlegt
kaup fyrir 8 stunda vinnu
með aukinni framleiðni og
betri nýtingu vinnuaflsins.
Síðast í vor beitti ríkisstjórn-
in sér fyrir samstarfsnefnd til
að rannsaka af raunsæi mögu
leika atvinnuveganna til að
greiða hærra kaup. Engu að
síður er því blákalt haldið
fram, að ríkisstjórnin vilji
launþegum og raunar þjóð-
inni allri allt hið versta.“
Þetta voru ummæli Magn-
úsar Jónssonar. Fyllsta á-
stæða er til þess að láta þá
von í ljós, að samkomulag
takist nú um að tryggja hin-
um lægst launuðu raunhæf-
ar kjarabætur. En því aðeins
getur það tekizt að þing og
þjóð leggist á eitt um að
stöðva áframhaldandi víxl-
hækkanir kaupgjalds og verð-
lags og koma þannig í veg fyr
ir nýtt verðbólguflóð.
unum verði hætt, en jafnframt
hafi þau haldið áfram árásum
sínum á Alþýðulýðveldið.
Þá segir „Nýja Kina“, að frá
því 14. júlí s.l., er sovézki komm-
únistaflokkurinn sendi hinum
kínverska opið bréf um hug-
sjónaágreininginn, hafi sóvézk
blöð birt meira en tvö þúsund
greinar og orðsendingar, er
beint sé gegn Kínverjum og
landi þeirra — hafi þessum árás-
um ekki einu sinni linnt á byit-
ingarafmæli Sovétmanna.
„Smáborgaraleg afstaða"
í tímariti Sovétmanna um
hugsjónamálefni kommúnismans
— „Kommúnistinn“ birtist í dag
grein eftir einn af leiðtogum
kommúnistaflokksins í Uruguay.
Ræðzt hann þar mjög á skoð-
anir Kínverja á Kúbudeilunni.
Hins vegar er þar engar persónu
meiri hófsemi en áður í skiptum
' við Vesturveldin. Því mundu
Vesturveldin ekki fórna neinum
mikilvægum hagsmunum á alt-
■ari sLíks samkomulags, enda
hefðu þau yfir ag ráða öflugum
herstyrk, til að verja þann rétt,
er þau teldu sig eiga.
• Hann sagði, að svo liiti út sem
Sovétstjórnin hefði gert sér
grein fyrir þeirri staðreynd, að
áhættusöm pólitík, eins og t.d.
í sam/bandi vig Kúbu í fyrra,
gerði aðeins að þjappa Vestur-
veldunum fastar saman. Kynni
það í og með að hafa verið or-
sök þess, ag Rússar fengust til
að semja um bann við kjarn-
orkutilraunum í sumar.
En þótt Sovétstjórnin bafi
verið þægilegri viðskiptis í
seinni tíð, þá sýna þó atburðir-
nir við Berlin á döigunum, að
enn er valt að treysta friðfýsi
hennar, sagði Butler. Komi til
fleiri slókra atburða þar, þá verð
ur það varla tekið á annan veg
en þann, að Sovétstjórnin óski
þess að auka enn á spennuna í
Berlín.
Butler vísaði á bug gagnrýni
Gordions Walker, talsmanns
Verkamannaflokksins, þess efn-
is, að stjórnin legði allt of mikila
áherslu á kjarnorkuvopna herbún
að, en hefði ónógan útbúnað
venjulegra vopna. Taldi hann
Breta einnig vel búna slíkum
varnarvopnum.
Butler sagði, að nú sem stæði
væri ekiki tíimabært að ræða um
aðild Breta að markaðsbanda-
Lagi Evrópu. Hinsvegar teldi
hann, að hinum lýðfrjálsu ríkj-
um Evrópu væri bezt borgið
með sem nánustum stjórnmála-
legum tengslum, og rnundi
brezka stjórnin vinna að því,
að bæði Bretland og Norður-
Amerika yrðu sem nánastir að-
iiljar að slíku bandalagi.
legar árásir á kínverska flokks-
leiðtoga, svo sem verið hefur í
tímaritinu að undanförnu.
Flokksleiðtoginn frá Uruguay,
Anrique Rodriques, segir í grein
sinni, að afstaða kínversku þjóð-
arleiðtoganna í Kúbu-deilunni
hafi ekki einungis verið aftur-
haldssöm og smáborgaraleg þjóð-
erniskennd, heldur hafi sú af-
staða einnig miðað að því að
kljúfa hina alþjóðlegu kommún-
istahreyfingu. Segir Rodriques,
að nú, er ár sé liðið frá átök-
unum um Kúbu, muni engin
viti borin manneskja í Suður-
Ameríku vera þeirrar skoðun-
ar, að viðleitni Sovétstjórnarinn
ar til að hindra kjarnorkustríð,
sé í mótsögn við baráttu „hinna
kúguðu þjóða gegn kúgurum
sínum“.
„Kínversku kommúnistaleið-
togarnir fara mjög villir vega,
ef þeir halda, að þjóðir S-
Ameríku hafi ekkert lært af
hinum ógnþrungnu stundum
Kúbu-átakanna í október s.l.“,
segir Rodriques.
Viðskiptn-
sanuúngni við
Búlgarín
Greiðsla í frjáls-
um gjaldeyri
HINN 29. október 1963
var í Genf undirritaður verzl
unarsamningur milli íslands
og Alþýðulýðveldisins Búlg-
aríu. Er þetta fyrsti verzl-
unarsamningurinn, sem ís-
land gerir við Búlgariu.
Samningur þessi byggist á
grundvelli hinna almennu
reglna um brezk-kjara á-
kvæði að því er snertir verzl-
un og siglingar. Allar greiðsl-
ur vegna viðskipta landanna
fara fram í frjálsum gjald-
eyrir (U.S. dollurum eða ann
arri frjálsri mynt). Engir
vörulistar fylgja samningn-
um og engin skuldbinding er
um, að jöfnuður skuli vera í
viðskiptum landanna.
Af hálfu íslands undirrit-
aði dr. Oddur Guðjónsson,
viðskiptaráðunautur ríkis-
stjórnarinnar, samninginn, en
af hálfu Búlgaríu hr. P.
Stefanov, forstjóri í utan-
ríkisverzlunarráðuneytinu í
Sofía.
Samningur þessi gildir til
eins árs og framlengist sjálf-
krafa sé honum ekki sagt upp
með þriggja mánaða fyrir-
vara.
Frá UtanríkisráðuneytinH.
Jarðskjálfti
Belgrad, 15. nóv. AP-NTB.
STERKIR jarðskjálftakippir
mældust í borginni Ljubljana í
Júgóslavíu í dag. Voru upptök
þeirra rakin til staðar 20 km
utan borgarinnar. Ekki er vit-
að um skemmdir eða meiðzl á
mönnum af völdum jarðskjáift-
ans.
Stefnumið Sovét-
stjórnarinnar óbreytt
— segir Butler