Morgunblaðið - 20.11.1963, Qupperneq 1
24 siður
Heimsokn forsetans til Breilands:
Færii drottningu og ráð
herrum góðar gjafir
Snæddi hádegisverð með drottningu
og kvölaverð með borgarstjóranum
1 London
Borgarstjórinn í London, C. James Harman, tekur á móti for-
seta íslands í Guilhall í gærkvöldi.
Neita f rekari ef na-
hagsaistoðar USA
London, 19. nóv.
Frá fréttaritara útvarpsins,
sr. Emil Björnssyni og AP
Á öðrum degi heimsóknar-
innar til Bretlands gekk for-
seti íslands herra Ásgeir Ás-
geirsson m.a. á fund sir Alec
Douglas-Home forsætisráð-
herra og Richards A. Butlers
utanríkisráðherra. Þá sátu
forsetahjónin hádegisverðar-
boð Bretadrottningar og
kvöldverðarhoð horgarstjór-
ans í London. Forsetinn
hlýddi á umræður í brezka
þinginu og sat tehoð brezka
Jnngmannasambandsins.
Skiptust Bretadrottning og
Ásgeir Ásgeirsson á heiðurs-
merkjum auk þess sem for-
setinn færði drottningu að
gjöf eintak af útgáfu Háskóla
tslands af handriti íslendinga
Ketill Oddsson (t. h.) og
Halldór Gestsson, í rúmum
sínum í sjúkrahúsi í Tulsa,
Oklahoma, í gær. Þeir voru
báðir særðir með skamm-
byssuskotum á laugardag,
Ketill í kvið og Halldór í
lunga. Líður þeim háðum
vel eftir atvikum. Myndin
var símsend Mbl. frá Tulsa
í gær. — Sjá ennfremur
viðtal og ítarlega frétt frá
fréttaritara Mbl. í Tulsa á
baksíðu blaðsins í dag.
bókar Ara fróða. Einnig
færði forsetinn brezku ráð-
herrunum gjafir.
Á morgun, miðvikudag,
heimsækir forsetinn m.a.
British Museum og Tate Gall-
eries.
Hefur Iheimsóikn forsetans vaik-
ið talsverða atihygli í Bretlandi.
Setja margir heimsóknina í sam-
foand við „þorskastríðið” og
segja að nú sé endir bundinn á
þá erfiðleika, sem settu svip á
samfoand íslands og Englands.
Þannig segir eitt dagfolaðanna til
dæmis undir fyrirsögninni: „For
seti kemur — við aftur vinir,,
að Bretar og íslendingar, sem um
langt skeið foafa átt í deilum,
foafi sætzt opinberlega þegar
Asgeir Ás'geirsson kom til Lond-
on.
Eins Og sikýrt var frá í gær,
sátu forsetahjónin kvöldverðar-
fooð f'orsœtisráðfoerrans í Down-
ing street 10. Að kvöldiverði lokn-
um var síðan fjölmenn móttaka
þar, og er það sú fyrsta síðan
gagngerg viðgerð, sem kostaði
um eina milljón sterlingspunda,
fór frarn á foúsinu. Að sögn frétta
ritara M'bl. í LondOn er húsið
nú stórkostlegt á að líta, „’gull-
fallegt”, enda ekkert til sparað
að gera það sem bezt úr garði.
„Antik” foúsgögn prýða þar sali,
en silki veggfóður á veggjum.
Ávörpuðu þeir sif Aler og
Ásgeir Ásgeirsson hivorn annan
og þótti báðum takast vel.
HJÁ RÁÐHERRUM
Dagurinn í dag foófst með heim
sókn forsetans til sir Alec Dougl-
as Home forsætisráðfoerra og
Ridfoards A. Butlers utanríkis-
ráðherra.
Hélt forsetinn fyrst til skrif-
stofu Butlers í Wfoitefoail, og
ræddust þeir við í klukkustund.
Þaðan fór forsetinn í fylgd með
Peter Tfoomas aðstoíðar utan-
ríkisráðherra til bústaðar for-
sætisráðherrans í Downing street
10.
Að loknum viðræðum við ráð-
foerrana gaf utanríkisráðuneytið
brezka út stutta tilkynningu.
segir þar aðeins að viðræðurnar
foafi farið vinsamlega fram.
Porsetinn færði ráðherrunum
foáðum gjafir. Hlaut Butler mynd
skreytta Munkgaards-útgófu,
sýnishorn af gömlum íslenzkum
foandritum, sem Helgi Tryggva-
son foókbindari í Reykjavík hef-
ur bundið í foákarlsskráp. Sir
Alec Douglas-Home færði for-
setinn bréfapressu eftir Leif
Kaldal. Er þetta silfurhorn á
fæti með gullinni áletrun, nafni
forsætisráðherrans og fanga-
marki forsetans.
f BUCKINGHAM HÖLL
Skömmu fyrir klukkan eitt
óku forsetahjónin til Buckingham
hallar, þar sem þau snæddu há-
degisverð í boði Elisabetar
Framh. á bls. 2
SPRENGING. i
Gautaborg, 19. nóv. AP: \
Sprenging var í vóiarúmi 1
finnska skipsins Bonny í/
morgun og fórust þrir menn I
tíu særðust. Skipið var í þurr
kví þegar sprengingin varð.
BREZKIR NJÓSNARAR.
Jakarta, 19. nóv. AP: —
Antara-fréttastofan í Jakarta
skýrði frá því í dag að Indó-
nesar hafi tekið „hundruð
brezkra njósnara“ við landa
mæri Indónesíu og Malaysíu
á Borneo að undanförnuu
Washington og Phnom Penh,
19. nóv. — AP: —
Norodom Sihanouk prins, for-
sætisráðherra í Kambodíu, flutti
I dag ræðu á fjölmennum úti-
fundi í höfuðborginni Phnom
Penh. Tilkynnti prinsinn þar að
fé það, er Bandaríkin veita Kam
bodíu í efnahags- og hernaðar-
aðstoð, væri notað til að grafa
undan stjórninni.
Tilkynnt var í Washington í
dag að utanríkisráðuneytið hafi
fengið þau boð frá Sihanouk að
bráðlega yrði hætt að veita
bandarísku efnahagsaðstoðinni
viðtöku.
Sihanouk flutti ræðu sína á
íþróttavelli í höfuðborginni að
viðstöddu fjölmenni. Var ræðu
hans ákaft fagnað. Yfirheyrði
hann þar tvo fanga, sem hann
sagði að væru félagsmenn í sam
tökunum „Khmer Serei“ (frjáls
ir Kambodíubúar), og að samtök
þessi nytu fjárhagsaðstoðar frá
Bandaríkjunum. Skýrðu fangarn
ir frá því að starfsemi samtak-
anna væri rekin frá landamæra
borg í Suður-Vietnam. Þar væru
bandarískir hernaðarráðgjafar,
sem stjórnuðu starfseminni, og
þar væri útvarpsstöð, er sendir
frá sér áróður gegn stjórninni í
Kambódíu.
Bandaríska utanríkisráðuneyt-
SYKUR LÆKKAR.
London, 19. nóv. AP: —
Sykurverð hefur farið hækk-
andi að undanförnu á mark-
aðnum í London, og komst
hæst í £ 105 tonnið. í dag
féU verðið skyndilega um 10
sterlingspund, og er uppi orð
rómur um enn frekari lækk-
anir.
ið ber þessar upplýsingar til*baka
í dag, og kveðst andvígt hverri
þeirri hreyfingu er miði að því
að skerða sjálfstæði og hlutleysi
Kambódíu.
Efnahagsaðstoðin við Kambód
íu nemur um 30 milljónum doll-
urum árlega, og rennur helming
ur fjárins til hernaðarþarfa.
mtmmmmmmmmmmmmmmmmmmrn
Gosið vekur
athygli í
Bretlandi
GOSIÐ við Vestmannaeyjar
vekur gífurlega athygli í
Bretlandi, sagði Jóhann Sig-
urðsson, fréttaritari Mbl. í
London, í viðtali við blaðið i
gær. Mikið er ritað um gosið
í öli dagblöðin, og bæði sjón-
varpskerfin, BBC og ITV,
hafa sýnt myndir af því.
Ekki er þó í ráði enn sem
komið er að auglýsa sérstakar
ferðir til íslands fyrir þá, sem
sjá vilja náttúruhamfarirnar.
Segir Jóhann að árstíminn sé
mjög óheppilegur. Jólin fara í
hönd og jólainnkaupin. „Ég
held við fengjum ekki upp í
auglýsingakostnaðinn, hvað
þá meir, á þessum tíma árs“,
5agði hann.
Nokkrir náttúrufræðingar
hafa haft samband við skrif-
5tofu Flugfélagsins í London
til að afla nánari frétta af gos-
inu, en jafnvel þeir hafa ekki
áhuga á íslandsferð um þetta
Ieyti.
En, sagði Jóhann, ef gosið
heldur áfram til vors, eins og
hugsanlegt væri, þá horfir
málið öðruvísi við. Þá væri
sjálfsagt að auglýsa ferðir til
aðskoða þessi náttúruundur.