Morgunblaðið - 10.09.1963, Síða 6
6
MORCUNBLAÐIÐ
l
Þriðjudagur 10. sept. 1963
ezta síldveiöi-
vika sumarsins
Nær 200 þús. mál og tunnux á land
I síðastliðinni vikn veiddist
síid á svipuðum slóðum og
næstu viku á undan, NA af
JLanganesi og SA af Dalatanga,
en þar var aðalveiði vikunnar.
Síldin var nú lengra undan landi
en áður og sóttu skipin allt að
140 mílur SA frá Dalatanga.
Þetta var bezta vikuveiði sum-
arsins, segir í skýrslu Fiskifé-
lagsins, og bárust á tand 195043
mál og tunnur, en þess ber að
gæta, að töluvert magn var ó-
landað í veiðiskipunum, sem
kemur á skýrslu í þessari viku,
en löndunartöf hefur verið við
allar Austfjarðaverksmiðjurnar.
Sömu viku í fyrra var aflinn
225187 mál og tunnur.
Heildaraflinn var 1.374.414 mál
og tunnur, en var 2.320.023 mál
og tunnur í lok sömu viku í
fyrra.
Aflinn var hagnýttur þannig:
í salt 462867 uppsalt tunnur í
fyrra 372906. í frystingu 31273
uppmældar tunnur í fyrra 39017.
í bræðslu 880.274 mál í fyrra
1.908.100.
Hérmeð fylgir skrá um afla 174
skipa. Hæstu skip með yfir 20
þúsund mál hafa: Sigurpáll frá
Garði með 26.878, Guðmundur
tórðarson Rvík 25.616, Sigurður
Bjarnason Akureyri 22.249. og
Grótta Rvík 20690.
Mál og tunnur:
Akraborg, Akureyrl 15457
Akurey, Höfn, Hornafirði 8325
Atina, Siglufirði 11278
Arnarnes, Hafnarfirði 5183
Arnfirðingur, Rvík 7602
Árni Geir, Keflavík 10912
Árni Magnússon, Sandgerði 12221
Árni Þorkelsson, Keflavik 2805
Arnkell, Rifi 4343
Ársæll Sigurðsson II, Hainarfirði 6739
Ásbjörn, Reykjavík 2989
Áskell, Grenivík 9620
Ásúlfur, Isafirði 5410
Auðunn, Hafnarfirði 8241
Baldur, Dalvík 9841
Baldvin Þorvaldsson, Dalvík 9242
Bára, Keflavík 13616
Bergvík, Keflavík 6152
Bjarmi, Dalvík 10770
Björg, Neskaupstað 8530
,..með kvöldkaffinu
ÞEGAR ÞÉR gistið í Kaúp-
mannahöfn, getið hér lcsið
Morgunblaðið samdægurs, —
með kvöldkaffinu í stórborg-
inni.
FAXAR Fiugféiags tslands
flytja biaðið daglega cg það
er komið samdægurs i blaða-
söluturninn í aðaijámbrautar-
stöðinni við Ráðhústorgið —
Hovedbanegardens Aviskiosk.
FÁTT er ánægjule.gra en að
lesa nýtt Morgunblað, þegar
verið er á ferðalagi vtra eða
dvalizt þar.
|Ror$iíní)Iajíiiít
Björg, Eskifirði 7044
Björgúlfur, Dalvík 13980
Björgvin, Dalvík 10116
Björn Jónsson, Reykjavík 5464
Búðafell, Búðum, Fáskrúðsfirði 7186
Dalaröst, Neskaupstað 7098
Dorfi, Patreksfirði 7991
Draup'nir, Suðureyri, Súgandafirði 6675
Einar Hálfdáns, Bolungavík 12440
Einir, Eskifirði 5898
Eldey, Keflavík 6352
Engey, Reykjavík 11326
Fagriklettur, Hafnarfirði 4894
Fákur, Hafnarfirði 3831
Faxaborg, Hafnarfirði 6856
Fram, Hafnarfirði 8009
Framnes, Þingeyri 9313
Freyfaxi, Keflavík 6781
Freyja, Garði 6504
Freyja, Suðureyri, Súgandafirði 2826
Friðbert Guðmundsson, Suðureyri,
Súgandafirði 1586
Garðar, Garðahreppi 11224
Garðar, Rauðuvík 3510
Gísli lóðs, Hafnarfirði 3746
Gissur hvíti, Höfn, Hornafirði 8900
Gjafar, Vestmannaeyjum 10405
Glófaxi, Neskaupstað 5654
Gnýfari, Grafarnesi 7561
Grótta, Reykjavík 20690
Guðbjartur Kristján, ísafirði 5362
Guðbjörg, ísafirði 9184
Guðbjörg, Ólafsfirði 7803
Guðfinnur, Keflavík 4891
Guðmundur Péturs, Bolungavík 9631
Guðmundur Þórðarson, Rvík 25616
Guðný, ísafirði 2152
Guðrún Jónsdóttir, ísafirði 8496
Guðrún Þorkelsdóttir, Eskifirði 14522
Gullfaxi, Neskaupstað 15028
Gullver, Seyðisfirði 16907
Gunnar, Reyðarfirði 13603
Gunnhildur, Isafirði 4802
Gylfi II.* Rauðuvík 4504
Hafrún, Bolungavík 14744
Hafrún, Neskaupstað 7191
Hafþór, Reykjavík 7875
Halkion, Vestmannaeyjum 9433
Halkiór Jónsson, Olafsvik 16897
Hamravík, Keflavík 12283
Hannes Hafstein, Dalvík 17074
Haraldur, Akranesi 7720
Hávarður, Suðureyri, Súgandaf. 6737
Heiðrún, Bolungavík 5274
Heimir, Keflavík 4320
Helga, Reykjavík 11716
Helga Björg, Höfðakaupstað 11725
Helgi Flóventsson, Húsavík 18189
Helgi Helgason, Vestmannaeyjum 17711
Héðinn, Húsavík 17542
Hilmir, Keflavík 4778
Hilmir II, Keflavík 4248
Hoffell, Búðum, Fáskrúðsfirði 14113
Hólmanes, Eskifirði 3760
Hrafn Sveinbjarnason II, Grindav. 5171
Hringver, Vestmar.naeyjum 6524
Hrönn II, Sandgerði 3574
Hugrún, Bolungavík 5333
Húni II, Höfðakaupstað 6437
Hvanney, Höfn, Hornafirðl 4102
Höfrungur, Akranesi 7429
Höfrungur II. Akranesi 7934
Ingiber Olafsson, Keflavík 6026
Ingvar Guðjónsson, Sauðárkróki 2199
Jón Finnsson, Garði 13890
Jón Garðar, Garði 19859
Jón Guðmundsson, Keflavík 10753
Jón Gunnlaugs, Sandgerði 7948
Jón Jónsson, Ólafsvík 8719
Jón á Stapa, Ólafsvík 10130
Jón Oddsson, Sandgerði 6099
Jökull, Ólafsvík 4834
Kambaröst, Stöðvarfirði 8250
Kópur, Keflavík 12478
Kristbjörg, Vestmannaeyjum 3975
Ljósafell, Búðum, Fáskrúðsfirði 6969
Loftur Baldvinsson, Dalvík 3723
Lómur, Keflavík 16049
Mánatindur, Djúpavogi 12765
Manni, Keflavík 7968
Margrét, Siglufirði 14106
Marz, Vestmannaeyjum 4975
Mímir, Hnífsdal 6591
Mummi, Flateyri 6727
Mummi II, Garði 6251
Náttfari, Húsavík 6993
Oddgeir, Gremvík 17242
Ófeigur II, Vestmannaeyjum 3525
Olafur bekkur, Ólafsfirði 10068
Ólafur Magnússon, Akureyri 19632
Ólafur Tryggvason, Höfn, Hornaf. 10915
Páll Pálsson, Sandgerði 1921
Páll Bálsson, Hnífsdal 7017
Pétur Ingjaldsson, Rvík 4876
Pétur Jónsson, Húsavík 7757
Pétur Sigurðsson, Reykjavík 9751
Rán, Hnífsdal 5812
Rán, Búðum, Fáskrúðsfirði 7273
Rifsnes, Reykjavík 8921
Runólfur, Grafarnesi 8445
Seley, Eskifirði, 12262
Sigfús Bergmann, Grindavík 8070
Sigrún, Akranesi 9152
Sigurbjörg, Keflavík 6426
Sigurður, Siglufirði 8388
Sigurður Bjarnason, Akureyri 22249
Sigurpáll, Garði 26878
Skagaröst, Keflavík 12364
Skarðsvík, Rifi 13674
Skipaskagi, Akranesi 8987
Skírnir, Akranesi 7858
Smári, Húsavík 3954
Snæfell, Akureyri 18196
Sólrún, Bolungavík 12644
Stapafell, Ólafsvík 7782
Stefán Árnason, Búðum, Fáskrf. 7342
Stefán Ben, Neskaupstað 9042
Steingrímur trölli, Eskifirði 11904
Steinunn, Ólafsvík 4761
Steinunn gamla, Sandgerði 3429
Stígandi, ólafsfirði 10009
Straumnes, ísafirði 5846
Sunnutindur, Djúpavogi 10496
Svanur, Reykjavík 7194
Sæfari, Akran«si 4852
Sæfari, Tálknafirði 18909
Sæfaxi, Neskaupstað 12139
Sæúlfur, Tálknafirði 13362
Sæunn, Sandgerði 5211
Sæþór, Ólafsfirði 6321
Tjaldur, Rifi 7309
Valafell, Ólafsvík 9918
Vattarnes, Eskifirði 15042
Víðir II, Garði 11614
Víðir, Eskifirði 16180
Vigri, Hafnarfirði 3513
Víkingur II. ísafirði 3571
Von, Keflavík 9557
Vörður, Grenivík 4347
Þorbjörn, Grindavík 15238
Þorgeir, Sandgerði 2868
Þórkatla, Grindavík 13150
Þorlákur, Bolungavík — 5984
Þorleifur Rögnvaldsson, Ólafsfirði 5531
Þráinn, Neskaupstað 13520
Hækkun framleiðslu kostnaðar
steínir fiskiðnaðinum í hættu
Yfirlýsing Sölumiðstö&var
hraðfrystihúsanna
VBGNA hins alvarlega ástands
innan hraðfrystiiðnaðarins, sem
þróun kaupgjalds- og verðlags-
mála að undanförnu hefur skap-
að, telur stjórn Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna nauðsynlegt,
að gerð sé nokkur grein fyrir
vandamálum þessarar atvinnu-
greinar.
Þegar í upphafi þessa árs
vöktu hraðfrystihúsaeigendur at-
hygli á, að hækkanir kaupgjalds
á árinu 1Ú62 og í byrjun ársins
1&63, ásamt hækkuðu hráefnis-
verði og auknum kostnaði við
framleiðsluna, vegna hækkana
ýmissa rekstrarvara, hlyti að
leiða til mikilla erfiðleika í
rekstri hraðfrystihúsa.
Síðan þessi aðvörun var birt,
hafa enn orðið hækkanir á fram-
leiðslukostnaðinum, og er nú
svo komið, að yfir vofir algjör
rekstrarstöðvun margra hfrað-
frystihúsa á næstu mánuðum.
Augljóst er, að hraðfrystiiðn-
aðurinn, sem á afkomu sína
undir erlendu markaðsverði, í
harðri samkeppni við þjóðir með
tiltölulega stöðugt verðlag, getur
ekki tekið á sig 11—12% hrá-
efnishækkun, 30% h æ k k u n
vinnulauna á rúmu ári, auk sam-
bærilegra hækkana á öðrum
kostnaðarliðum, eins og launum
til fastra starfsmanna, akstri,
vatni, rafmagni, viðhaldi véla,
áhalda og húsa o.s.frv., á sama
tíma sem frystihúsin fá aðeins
2—3% hækkun á framleiðslu-
vörum sínum á erlendum mörk-
uðum.
Beinar afleiðingar framan-
greindrar þróunar eru, að frysti-
iðnaðurinn getur ekki keppt við
aðrar. atvinnugreinar um vinnu-
aflið, né hefur hann fjárhagslegt
bolmagn til framleiðslu neyt-
endapakkninga, þar sem lán út
á framleiðsluna eru miðuð við
markaðsverð, en ekki innlendan
framleiðslukostnað.
• Suðurnesjavegur,
Ben Gurion og
Lyndon Johnson
Maður kom að máli við Vel-
vakanda á föstudag. Var hann
nýkominn sunnan frá Keflavík
og kvað veginn alveg ferleg
an; varla hægt að lýsa honum.
Ekkert hefði verið gert fyrir
veginn í sumar, hvorki hefði
hann verið heflaður né borið
ofan í hann, nema e. t. v. á eins
kílómetra kafla. Annars hefðu
blöðin annað veifið skýrt frá
ástandi vegarónefnunnar og
tugþúsundir landsmanna vissu
um það, svo að ekki þyrfti að
fjölyrða um það.
En hvernig á að fara, þegar
Lyndon Johnson kemur, og
ekki verður hægt að nota þyrl-
urnar vegna veðurs? Á að
treysta algerlega á veðrið? Ef
hann hleypur nú upp í venju-
legt suðaustanrok og stórrign-
ingu, á þá að þræla varaforset-
anum eftir vegarskömminm?
Þegar Ben Gurion kom hér um
árið, var dyttað að veginum,
svo að hann bjó lengi að því.
Voru Suðurnesjamenn miklir
vinir Bens Gurions og ísraels
fyrir vikið. Væri nú ekki
ástæða til þess að gera eitthvað
fyrir veginn vegna heimsókn-
ar Johnsons, alveg eins og gert
var vegna heimsóknar Bens
Gurions? íslenzku haustveðri
er vart treystandi, þegar þyrlur
eiga i hlut a. m. k.
• Súrmjólkin batnar
„Ákafur súrmjólkursinni"
skrifar:
„Jæja, þar sannast það eitt
sinn enn, að sjaldan er góðs
getið.
Eða hafa súrmjólkurneyt-
endur ekki tekið eftir þvi, að
þessi öndvegis fæða hefir stór-
um batnað, og er vafalaust orð-
in svo góð, sem hún getur orð-
ið? Til skamms tíma hefir súr-
mjólk sú, er á markaðnum hef-
ir verið i grænum eins lítra
hyrnum, . verið bæði kekkjótt
og skilin, þannig að fyrst hefir
komið úr hyrnunni þunn sýra,
en síðan nokkrir vænir súr-
mjólkurkekkir.
Nú hefir þetta breytzt til
muna, þannig að mjólkin er
jöfn og fljótandi. Einnig hefir
bragðið batnað, svo að nú er
komið eitthvert ólýsanlegt, und
ursamlegt rjómabragð að
henni. Ráðlegg ég öllum þeim,
er ekki hafa komizt á að borða
kalda súrmjólk, hrærða með
púðursykri, í eftirmat, að reyna
þennan indælis rétt, og þykist
ég þess fullviss, að þeir verði
ekki sviknir af þeim tilraun-
um.
Að siðustu vona ég, að þessar
línur verði ekki til þess, að súr
mjólkin hækki grunsamlega á
næstunnL
— Ákafur súrmjólkursinni",
Velvakanda hefur þótt súr-
mjólkin góð, en var satt að
segja búinn að gefast upp á
hcnni af þeim ástæðum, seni
lýst er í bréfinu. Þetta hefur
að undanförnu verið hálfgerð-
ur óþverri, ólekja, sem nær
hefði verið að nota í Kjósarost
eða drafla. Grænt mysugutlið
sullaðist upp úr hymunni, þeg-
ar klippt hafði verið á hana, en
síðan varð að kreista kekkina
fram úr henni. — Vonandi hef-
ur þetta batnað, eins og bréf
ritari lýsir, og hlakkar Vel-
vakandi til þess að sannreyna
það.