Tíminn - 07.04.1962, Side 15
Árnað heilla
70 ára er í dag Björg Gísladóttir,
Hverfisgötu 67, Reykjavík.
VlÐAVAHGUR
(Framhald af 2. síðu).
margir settu sakleysislegan
kosningakross við íhaldið út á
fölsk loforð — út á loforð, sem
voru svikin svo herfilega, að
lægst launaða fólkið þarf að
vinna þrjár klukkustundir og
12 mínútur á hverjum virkum
degi allt árið til að bæta sér
upp skaðann af lífskjaraskerð-
ingu ílialdsins.
Sjötug
Fr nald af 9 siðu )
og gróðri, trú erfðahlut sínum og
uppeldi. Trjágróð'urinn kringum
M.A. á henni margt hlýtt handtak
að þakka. Og allur blómaskarinn,
utanhúss og innan, átti þar um-
hyggjusemi og ástríki að fagna,
líkt og börnin hennar sjálfrar.
Það var ánægjulegt að sjá frú
Halldóru taka til hendi við hey-
skap. Þar kunni hún líka til verka.
Á sumrin mátti sjá hana þar á
skólatúninu, hressa og glaða með
hrífu í hönd, raka ljá, rífa flekki,
raka í föng eða taka í sátur og
bólstra. Það starf leysti hún cigi
síður kunnáttusamlega af höndum
en gestamóttökur og framreiðslu
kræsinga.
Frú Halldóra Ólafsdóttir er mifc-
ilhæf skörungskona og vel mennt-
uð. Það sópar að henni hvar sem
hún fer. Hún vex við kynni, því að
hún er drengur góður, hispurslaus,
hreinskiptin og hjartalagið gott.
„Hún reynist öllum vel er til henn-
ar leita“, sagði umkomulítil kona
um frú Halldóru, og mun það sann-
mæli.
Ég minnist margra ógleyman-
legra stunda Á heimili þeirra
hjóna í Menntaskólanum. Þar var
stundum margt spjallað og oft
glatt á hjalla. Og milli heimila
okkar og skóla voru vinatengsl.
Fáum var gagnlegra og betra að
kynnast en Sigurði skólameistara
og fáir reyndust mér betur er á
móti blés. Fyrir það allt minnist
ég þeirra hjóna með þakklátum
hug. Og frú Halldóru sendi ég nú
hjartanlegustu hamingjuóskir með
þetta mer'kisafmæli og alla þá vel-
vild og vinarþel, sem hún á í
brjóstum fjölda samferðamanna
sinna. Og ósk mín er sú, að henni
megi allar stundir verða sem
beztar. Snorri Sigfússon.
Reykhólakirkja
Framhaid aí 9 síðu
minna en að yrkja eins og Matthí-
as, þótt segja megi hins vegar að
flestir vildu það kvæði kveðið
hafa, eins og sagt var um Lilju. —
Því er það, að eins og Matthías í
kvæði sínu talar fyi'ir munn allra,
sem átt hafa og eiga góðar mæð-
ur, þamnig á skreyting Reykhóla-
kirkju að verða minnisvarði um
allar þær góðu konur, sem menn
sjá ástæðu til að minnast á þann
hátt að efla minningarsjóðinn við
Reykhólakirkju, þótt nafn Þóru í
Skógum standi þar fremst eins og
í Ijóðinu.
Allmargar gjafir bárust fyrst í
stað í þennan sjóð og gáfu ýmsir
til minningar um mæður sínar, en
auk þess kom eitthvað af gjöfum
öðruvísi, m. a. myndarleg gjöf frá
kvenfélagasambandinu við Breiða-
fjörð.
Verið er nú að gera fallega minn-
ingabók, sem í á að skrá nöfn allra
þeirra mæðra, sem fólk vill heiðra
og minnast á þennan hátt.
Er ástæða til að vekja athygli á
þessum sjóði nú, því nú líður senn
að því að hann þurfi að fara að
gegna hlutverki sínu. Ef það lán-
ast að afla nægjanlegs fjár, mun
verða reynt á komanda sumri að
þoka innréttingu nýju kirkjunnar
það langt áleiðis að hægt verði að
fullgera hana fyrri hluta sumara
1963 og vígja hana þá.
En sjóðurinn er enn svo lítill að
því fer fjarri að hann dugi til að
borga allan skreytingarkostnað
hvað þá meira.
Því eru þeir, sem hugsað hafa
sér að gefa fil minningar uih mæð-
ur sínar, vinsamlegast á það ininnt-
ir að nú þarfnast sjóðurinn fjárins
tilfinnanlega.
Einnig skal á það minnt að senda
með minningargjöfunum nöfn
þeirra, sem gefið er í minningu
um, og helztu æviatriði, sem skráð
verða í minningabókina.
Gjafir má senda til sóknarprests-
ins á Reykhólum eða til séra Árelí-
usar Níelssonar í Reykjavík.
Þórarinn Þór.
Djúpivogur
Framhald af 8 síðu.
inn um hendur okkar og hand-
leggi, hvítu ferðaskyrturnar voru
nú sjóblautar langt upp eftir. Þrátt
fyrir þessa handskírn urðu þessir
4 strákar kunningjar, sem ávallt
glöddust við góð kynni um langan
ævidag.
Karl er fæddur 9. sept. 1877
austur á Berufjarðarströnd, 'en
fluttist barn með móður sinni og
föður til Djúpavogs. Hefur dvalið
þar jafnan síðan, að undanteknum
10 árum sem hann dvaldi í Noregi,
ungur maður mest við sjósókn og
siglingar á norskum skipum. Kom
hann heim fullnuma í talmáli Norð
manna og Dana. Gekk hann þá að
eiga Björgu Árnadóttur Antíusson-
ar frá Hnaukum, sem' orðlögð er
fyrir dugnað og fórnfýsi. Hafa þau
átt 14 börn og eru nú barnabörn
þeirra mörg — gott fólk. Nýtur nú
Karl umhyggju hinnar góðu konu
sinnar og barna þeirra er með hon-
um búa.
Hann er mjög vel greindur mað-
ur, og vel að sér af óskólagengnum
manni. Reikningsglöggur og athug-
ull. Um mörg ár var hann fiski-
matsmaður á Djúpavogi og endur-
skoðandi reikninga Kaupfélags
Berufjarðar.
Oft var Karl sá fyrsti, sem gestir
tóku tali er þeir komu á Djúpavog.
Hvort sem landleið var farin eða
komið með skipi. Ýmist á bryggj-
unni, í búðinni eða heima við hús-
ið hans rétt við þjóðveginn. Góður
var hann á að hitta, alltaf jafnfróð-
ur og fús til frásagna. Hjá honum
fékk maður oft fræðslu um gang
málanna utanlands og innan, flutt
án áróðurs og æsinga, og án ásak-
ana á náungann. Mátti líkja því
við góðan fréttatíma hins hlutlausa
Rlkisútvarps nú á dögum. En und-
iraldan var rík félagshyggja —
málstaður hinna mörgu smáu, er
þjóðfélaginu bæri að hjálpa til
þroska og velmegunar. Karl var
eins og flestir búendur við Beru-
fjörð, bæði bóndi og sjómaður á
smábátum. Þó átti hann um tíma
vélbátinn Síðu-Hall að hálfu, og
var þá skipstjóri með réttindum
þótt aldrei hefði í skóla gengið.
Kýr og kindur átti hann sem aðrir
•bændur og þótti vænt um þær og
var heppinn fjármaður. Hann er
líka talinn bóndi með mynd sem
kom í bókinni ísland, er Almenna
bókafélagið gaf út 1956. Ég er
ánægður með hann þar sem full-
trúa okkar bænda, þakka honum
samfylgdina og óska honum alls
góðs á ævinnar kveldi.
í hljómleikasal
Framhald ct 8. síðu.
var 'frú Sigurveig Hjaltested og
söng hún allmörg lög, sem hún
flutti af myndugleik og festu. Má
þar nefna „Sumarimnning“ eftir
söngstjórann, fallegt lag, svo og
Mansöng F. Sehuberts, hvoru
tveggja prýðilega sungin.
Þá voru 4 sönglög eftir John.
Brahms fyrir kvennakór með und
irleik tveggja hornista og hörpu,
allt mjög falleg Iög og vel sungin.
Einleik á hörpu lék Mariluise
Draheim. Einhvers konar sviðs-
hræðsla virðist grípa ungfrúna þeg
ar til hennar kasta kemur, og því
erfitt fyrir hlustandann að gera
sér nokkra hugmynd af leik henn
ar. Karel Paukfert lék undir á
píanó af öryggi og smekkvísi, og
er auðheyrt að þar var á ferðinni
undirleikari sem má treysta. Þeir
Herbert Buchner og Wolfgang
Miineh léku með á horn í Brahms-
verkinu.
Stjórnandi og einsöngvarar hlutu
verðugt lófatak að lokum.
U. A.
Símanúmer okkar verður
eftirleiðis
20390
BARNAVAGNASALAN
Baldursgötu 39.
2. síSan
hann leggur stund á abstrakt-
málaralist. En honum leiðist að
mála, og einn góðan veðurdag
nennir hann því ekki lengur.
Móðir Dinos, sem er forrik
ekkja, býr í glæsilegri íbúð á
Via Appia. Hún vill gjarnan, að
hann flytji til hennar, en hon-
um leiðist að búa hjá henni.
Á afmælisdaginn hans ætlar
hún að gefa honum rándýran
sportbíl, en honum leiðfet að
aka í rándýrri sportbifreið, hann
vill heldur notast við -gömlu
drusluna sina.
Þannig er nú ástandið, þegar
Dino kynnist Ceciliu. Hún hef-
ur verið ástmær gamals, ósiðláts
málara, þangað til hann dó í ein
um ástaleiknum. Nú sofa þau
Cecilia og Dino títt hvort hjá
öðru, en þó að Cecilia sé hin
bezta ástmær (Moravia lýsir því
nákvæmlega í smáatriðum), þá
leiðist Dino það heldur. Hann er
einmitt að velta því fyrir sér
að segja skilið við hana, af því
ag hann er orðinn svo leiður á
henni, þegar hann kemst a því,
að hún er honum ótrú með leik
ara.
Cecilia skiptir sér réttlátlega
á milli þessara tveggja manna
En þó að Dino „hafi“ hana, eins
og sagt er, annan hvorn dag,
finnst honum, að hann hafi
aldrei „átt“ hana, og er þar átt
vi.ð eitthvað andlegt. Þag kvelur
hann meira og meira, að hann
skuli ekki geta Slitið sig frá
henni, og að lokum biður hann
hennar — út frá þeirri skynsam
legu forsendu, að þegar þau
verði orðin hjón, muni hann
fljótlega verða svo leiður á
henni, að hún muni hætta að
verða til fyrir honum.
En Cecilia neitar bónorðinu,
og til þess að binda nú enda á
þetta, ekur Dino gömlu drusl-
unni sinni á tré. Hann lifir þó
sjálfsmorðið af og kveður les-
endur á sjúkrahúsinu, þar sem
hann Iiggur í gipsi og hugs'ar um
Ceciliu í leiðindum sínum.
—0—
Ag réttu lagi hefði maður átt
að telja saman öll kynlífsatrið-
in, sem Moravia lýsir svo ýtar-
lega í bók sinni. Talan er að
minnsta kosti svo há, að þess-
ar lýsingar verða að yfirþyrm-
andi tilbreytingarleysi, og þar
hefur Moravia bugðizt bogalist
in að krydda réttinn. Hann hef-
ur um of reitt sig á fyrri frægð.
Maður hefur á tilfinningunni,
að ritvélin hans sé smám saman
að taka af honum öll ráð og
framleiði nú skáldsögur næstum
án þess að Moravia sjálfur komi
við hana.
Carl Johan Elmquist.
ÞAKKARÁVÖRP
Hjartans þakkir til ykkar allra, sem sýnduð mér
níræðri, vináttu, með hlýjum orðum, heimsókn-
um, gjöfum, blómum, skeytum, símtölum og
bréfum.
Ég þakka hverja hlýja hugsun, og bið ykkur bless-
unar Guðs.
Sigrún Sigurðardóttir
Alviðru, Ölfusi.
VÉLABÓKHALD
BÓKHALDSSKRIFSTOFA
JÓN R. KJARTANSSON
Sími 17333
Fisksbátar
til sölu
57 rúml. bátur, mikið end-
urnýjaður fyrir tveimur ár-
um, með radar, tveim vökva
drifnum spilum. Sérstak-
lega hagstæðir greiðsluskil-
málar.
60 rúml. bátur, umbyggður
fyrir einu ári. Einnig vél
endurnýjuð. Er með nýjasta
síldveiðaútbúnaði. Útborg-
un ekki mikil.
80 rúml. bátur, í mjög góðu
ásigkomulagi, á sérstaklega
hagstæðu verði, og með
hóflegri útborgun.
58 rúmlesta bátur með ný-
legri vél og öllum nútíma-
siglingatækjum.
40 rúml. bátur í góðu á-
standi, með nýrri vél. Góð
áhvílandi lán.
Bátarnir geta verið til af-
hendingar í maílok.
SKIPA- OG
VERÐBRÉFA-
SALAN
SKIPA-
LEIGA
VESTURGÖTU 5
Önnumst kaup og sölu
verðbréfa.
Nylon
hjólbarðar
af flestum stærðum.
Einnig margar stærðir
með hvítum hliðum.
Gúmmívinnustcfan h.f.
Skipholti 35, Reykjavík.
Sími 18955
Bílhappdrætti F.U.F.
Umboðsmenn út á landi góðfúslega gerið skil, sem aiira fyrst
Dregið 10. apríl Félag ungra Framsóknarmanna
TÍMINN, Iaugardaginn 7. apríl 196?"
1F>