Tíminn - 07.04.1962, Blaðsíða 4
Leikfélag Reykjavíkur hefur beBið blaðið að vekja athygli fðlks á þvf, að sýningin á gamanleiknum „Tauga-
stríð tengdamömmu" í dag hefst kl. 4 í Iðnó. — Þetta er gert vegna þess að mikið hefur verið um það beðið,
að hafa sýningar á þessum tíma dags fyrir fólk, sem á erfitt með að komast að heiman á kvöldin. — Eftir
undirtektum á sýningum að dœma úti á landi og hér í bænum vlrðist fóik skemmta sér forkunnarvel.
Myndin er af Arndísi Biörnsdóttur, Auroru Halldórsdóttur, Þóru Friðriksdóttur og Sigrfði Hagalín í hlutv. sfnum.
Frá Hlþinsi
Framhald af 7. síðu.
skiptir alveg um frá stefnu Fram
sóknarmanna, sem vilja styðja
landbúnaðinn í landinu með því
að veita í hann fé, en ekki eins
og nú á að gera, taka af honum
fé til þess að lána honum aftur
með háum vöxtum.
„Sfs$ myndarlega átak“
Þegar framlag bændanna
sjálfra er frádregið, verður ár-
legt framlag til s^óðanna ekki
nema um 9 milljónir eða svipað
og árleg höfuðstólsaukning á
tímabili Framsóknarmanna. Beri
menn framlögin saman og beri
saman við þáverandi verðlag og
hæð fjárlaga, sést glögglega,
hve miklu minna er hér lagt af
mörkum til stuðnings landbún-
aði en áður var gert.
Sfefna FramsékRarmanna
Framsóknarmenn vilja, að á-
fram verði' fylgt þeirri stefnu,
sem svo happadrjúg hefur reynzt
landbúnaðinum og þjóðinni í
heild, að þjóðfélagið styðji að
íramförum í landbúnaði með
því að sjá honum fyrir lánsfé
með hagkværúum kjörum, og
vaxtátap og halli á rekstri sjóð-
anna sé greitt af sameiginlegum
sjóðum þjóðarinnar. Og hvaða
rök mæla með því að landbún-
áðurinn megi ekki fá sinn eðli-
lega hluta af sparifjármyndun-
inni í landinu? Er hægt að rök-
styðja það, aö ekki megi lána út
nokkra milljónatugi til uppbygg
ingar og framleiðsluaukningar í
landinu, þegar búið er að safna
innstæðum í Seðlabankann,
seðlapakkhús ríkisstjórarinnar,
á fjórða hundraö milljónum. Þeg
ar skiptin á þessu fé verða gerð
milli fjárfestingar- og rekstrar-
fjár, þá á landbúnaðurinn að fá
sinn eðlilega hlut eins og hver
annar atvinnuvegur í þessu
landi. Það á að halda áfram
stefnu þeirri, sem ríkti á stjórn
artímabili Framsóknarmanna. Á
því tímabili var veitt 300—400
milljónum í lánum til landbún-
aðar. Þessi lán voru með 2Vi
prósent til 4 prós. vöxtum og
þau voru til 25 til 42 ára. Nú
eiga bændur að fá að lání fé,
sem áður hefur verið af þeim
tekið og þeir eiga að borga 6 og
6 hálft prós. vekti af þessu fé.
Lánstímann á að stytta. —
Þeir eiga að auki sjálfir að taka
á sig gengisáhættu af þeim er-
lendu lánum, sem sjóðirnir
kunna að verða látnir taka.
4
FJöldamorð
(Framhald af 3. síðu).
an fann einnig herbúnað, herklæði
og mikilvæg OAS-skjöl.
Daglega lífið í Algeirsborg fær-
ist með hverjum deginum í eðli-
legra horf. Götuhreinsarar hafa
hafið vinnu og verzlanir eru fam-
ar að opna, þótt hryðjuverkin
haldi stöðugt áfram.
Það er greinilegt, að fulltrú-
ar FLN, þjóðernissinnastjórnar
Serkja, eiga þessa dagana fullt í
fangi með að róa hina serknesku
íbúa borganna. Þeir vilja koma í
veg fyrir, að OAS takist að æsa
Serki til gagnaðgerða, þvi þá er
hætta á, að franski herinn geti að
einhverju leyti snúizt á sveif með
OAS. Miklar æsingar hafa verið í
Serkjahverfunum undanfarna daga
vegna stórum hrikalegri hryðju-
verka OAS, er þeir t.d. réðust inn
í sjúkrahús á þriðjudaginn og
myrtu sjúklingana í lúmunum.
Síldin
(Framhaid af 1. síðu).
hér upp. í dag var veiðin treg,
síldin stygg og erfitt að höndla
hana. Hringver kom þó með tæp
ar 300 tunnur. Aðkomubátar á
síldveiðum fá ekki löndun hér í
kvöld, þar sem tækin hjá Lifra-
samlaginu eru upptekin við lifrar-
bræðslu.
Hæstu línu- og netabátar 4. þ.m.
voru Eyjaberg með 557 tonn,
Halkion 532, Björg SU 523, Gull-
v@r MS 503 og Gullborg 497. Heild
araflamagnið um mánaðarmótin
var rúm 20 þúsund tonn. Þá hafði
Lifrarsamlagið tekig á móti 1210
tonnum af lifur, en á sama tíma
árið 1959 hafði það tekið á móti
1400 tonnum, en þá var metár.
i S.K.
Engin sild hefur borist til ann
arra verstöðva undanfarna daga.
Knatfspyrnufréttir
Framhald af bls. 12.
Ipswich, skoraði fyrsta markið, en
síðan Flowers, Úlfunum, úr víta-
spyrnu. í síðari hálflejk skoraði
Roger Hunt, Livérpool, þriðja
mark Englands, en mark Austur-
ríkis skoraði miðherjinn Buzek. —
Vegna undanúrslitanna í Evrópu-
bikarkeppninni léku leikmenn frá
Tottenham ekki í enska landslið-
inu, en þeir Smith og Greaves voru
valdir í liðið, sem leikur gegn Skot
landi í dag. — Á sunnudag léku
Holland og Belgía landsleik í knatt
spyrnu. Belgir sigruðu með 3—1.
Sama dag sigraði búlgarska lands-
liðið brazilíska liðið Gremo með
1—0 í leik í Sofíu.
Togaraverkfall
(Framhald af 16. síðu).
3. í ágústmánuði 1961 hækkun
á aflaverðlaununum af sölum er-
lendis, sem nam 13—14%. Við það
hækkuðu aflaverðlaun um 165.6%
vegna þessara tveggja gengisbreyt
inga, þ.e. miðað við 15. febr. 1960.
(Hækkun sterlingspundsins úr kr.
45.55 í tæplega kr. 121,00).
Á sama tíma og togarasjómenn
fengu þær kauphækkanir, sem að
framan er getið, fengu aðrar stétt
ir engar kauphækkanir eða höfðu
fengið frá því í ársbyrjun 1959,
þangað til s.l. sumar.
Hins vegar eru þessar kauphækk
anir togarasjómanna s.l.'2 fr skýr-
ingin á þeim tiliölulega góðu laun
um, sem þeir höfðu árið 1961,
þrátt fyrir hinn geigvænlega afla-
brest á því ári.
Göngin
(Framhald af 16. síðu).
tilheyrandi hafa kostað um 100
millj. króna, og kringum 1000
verkamenn hafa unnið að þessum
vegabótum í tæp fjögur ár.
8 útskot, viðgerðarpláss,
sterk lýsing og loftræsting
Á 8 stöðum í jarðgöngunum eru
útskot, þar sem m.a. yerður hægt
að gera við bílana. Útskotin eru
48 m. löng og 6,75 m. breið. Með
245 m. millibili verða höggnar
raufar inn í veggina, þar sem kom
ið verður fyrir slökkvitækjura, sím
um o.fl. tækjum til þæginda og
öryggis, en göngin verða lýst upp
með hundruðum 40i watta sterkra
flurosentljósa, sem éru scrstaklega
sterk, þar sem ekið er inn í göng
in og út úr þeim, svo að munur
dagsbirtunnar og birtunnar inni í
göngunum verði ekki alltof mikill
og óþægilegur. Þrefalt loftræsting
arrör uppi undir lofti í göngun-
um sér fyrir nægilegri loftræst-
ingu, sem er sérstaklegá nauðsyn-
leg í svona göngum vegna kolsýr-
ings frá bílunum. — Akbrautirnar
í göngunum eru 7,5 m. á breidd, og
sitt hvoru megin eru 88 cm breið
stétt. Göngin eru 4,5 m. há, en þar
ofan við eru loftræstirörin, svo
að í allt mun hæðin vera um 6
metrar. Tveir ítalskir og einn sviss
neskur verkfræðingur hafa starf-
að að þessari vegarlagningu í sam
ráði við starfsmenn ítölsku Fiat-
verksmiðjanna. Það kostar eflaust
skilding að aka gegnum göngin
fullbúin, en það er fljótlegt og
ævintýralegt. — Á tveim öðrum
stöðum í Ölpunum er nú unnið
að því að gera svipuð jarðgöng
og þessi.
Vauxhall
(Framhald af 16. síðu).
efnum, sem mynda ryðvarnarhúð,
og segir svo: Áðrir bílar, t.d. frá
General Motors, eru meðal annars
ryðvarnir með olíum, sem hrinda
frá sér vatni. Olíunni er spraut-
að inn í hvert einasta holrúm í
stellinu og í hvern krók og kima.
Olían hefur þann eiginleika, að
hún þrengir sér í allar rifur og
sauma, og hrindir frá sér því
vatni, sem þar kann að finnast.
---------Þar að auki er sprautað
þykkari olíu á allan undirvagninn,
þar þornar hún og verður að
seigri varnarhúð.
Einn þeirra bíla, sem Stigö skrif-
ar dóm um, er Vauxhall 4. Segir
hann meðal annars: Vauxhall 4 er
endurnýjun á Vauxhall Victor.
Útlitið er allt annað, en tæknilega
séð eru breytingamar mjög litlar.
— Þetta er fjölskyldubíll í hærra
verðflokki.
Bíllinn liggur prýðisvel í akstrí,
en leggst fullmikið í beygjum,
því fjaðrirnar eru mjúkar. Bezti
hraðinn fyrir þennan bíl er 70—
00 km. á klst. þá er hann mjög
ægilegur bæði fyrir ökumann og
farþega. Það er hægt að ferðast
langt í þessum bíl án þess að
þreytast um of.
Mótorinn gengur hljóðlega og
án titrings. Bíllinn er stefnuviss
og ekki sérlega næmur fyrir hlið-
arvindi. Hámarkshraði er 125 km/
klst, og viðbragðið frá 0—100
km/klst. tekur um 30 sek. Eftir
að bíllimn hefur verið settur í
gang á köldum morgni, gengur
mótörinn ójafnt, og kæfir á sér,
ef maður er of fjörugur í fætin-
um, sem stjómar benzíngjöfinni.
Nokkur stund líður, þar til mótor-
inn er nægilega heitur, en eftir
það gengur hann mjög vel.
Að sinni látum við þetta nægja
um Vauxhall, en þeim, sem vilja
kynnast honum nánar, skal bent á
það, að umboðið fyrir Vauxhall
hér á landi er í höndum Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga,
og umboðið mun halda sýningu á
Vauxhall í dag og áimorgun í ný-
byggingu Véladeildar SÍS í Ar-
múla 3.
_________ ■ j ’ • .
'bróttir
Framhald af bls. 12.
Hjartarson og Helgi Jóhannsson,
sem jafnframt er landsliðsþjálfari.
Nefndin valdi 28 pilta til að taka
þátt í landsliðsæfingum, og eru
þrekæfingar fyrir nokkru hafnar,
en þær hafa verið illa sóttar
hingað til. Á fundi með piltunum,
sem nýlega var háður í Beiðfirð-
ngabúð, brýndi Bogi Þorsteinsson
fyrir piltunum, að leggja sig bet-
ur fram en þeir hafa gert hingað
til, og virðist mikill áhugi hjá
þeim, að taka æfingarnar nú al-
varlegar en áður.
Norðurlandakeppni
Eins og áður hefur verið skýrt
frá, er ákveðið, að fsland sendi
lið á Norðurlandakeppnina í körfu
knattleik, sem verður í Stokk-
hólmi 2.-4. nóvember næstkom-
andi. Þetta er hin svokallaða
Polar-cup keppni sem nú er hald
in í Stokkhólmi í tilefni af 15 ára
afmæli sænska körfuknattleiks-
sambandsins. Öll Norðurlöndin,
nema Noregur, senda 'lið til keppn
innar, og er þetta í fyrst.a sinn,
sem ísland sendir þátttakendur.
Á fundi hjá alþjóðakörfuknatt-
leikssambandinu, sem Bogi Þor-
steinsson sótti í Casablanka bah
hann fram þá tillögu, að þesi
keppni yrði notuð sem úrtökumót,
(svæðamót) og það liðið sem
sigrar kemst þá í Evrópukeppr.-
ina, sem haldin verður í Póllandi
1963 í tilefni af 50 ára afmæli
pólska körfuknattleikssambands-
ins. Þessi tillaga Boga hlaut sam-
þykki — og er því til mikils að
vinna fyrir íslenzku piltana, því
í Stokkhólmi verður ekki aðeins
barist um meistaratitil Norður-
landa heldur einnig þátttökurétt-
I inn í Evrópukeppnina.
Flenzan \ Árnes-
hreppi
Árneshreppi, 4. apríl.
Flenzan hefur herjað hér á
menn að undanförnu og margir
legið veikir. Hafa af þessu skap-
azt’ nokkrir erfiðleikar, en nú
virðist fólk vera að ná sér aftur.
Barnaskólinn að Finnbogastöð
um hefur verið lokaður í nokkra
daga. enda hafa flestir nemend
ur skólans legið veikir í flenz-
unni, en engin eftirköst hafa
komið fram af völdum veikinn-
ar enn sem komið er.
Veður hefur verið heldur
slæmt undanfarnar vikur, geng-
ið á með norðan átt og éljum, og
frostið hefur verið þetta frá 5
upp í 8 stig dag hvern. Um síð-
ustu helgi slotaði veðrinu, en í
gær gerði aftur norðanátt með
hríð.
Veðrið hefur verið þessu líkfc
síðan um áramót, nema hvað
dagana 16. til 24. marz hlýnaði'
heldur og snjó leysti upp af tún-i
um og allt þiðnaði.
Fénaður allur hefur staðið
inni síðan um áramót en yfirleitt
hvergi orðið heylítið, og enda
þótt nokkrir bændur gætu orðið
uppiskroppa héldi þetta veðurfar
lengi áfram enn, þá eru aðrir,(
sem enn eru vel birgir og gætu
hlaupið undir bagga ef illa færi.
G.
SKIPAÚTGCRÐ RIKISINS
Breyttar áætlanir
M.s. Hekla
Vegna mikils flutnings til
Norð-Austurlainds, breytist
næsta áætlunarferð þannig, að
skipið fer héðan 12/4 alla leið
til Akureyrar og snýr þar við.
Viðkomur austur til Vopna-
fjárðar samkv. áætlun, en síð-
an áætlaðar sem hér greinir:
15/4 Þórshöfn, Raufarhöfn,
16/4 Kópasker, Húsavík, Akur-
eyri, Húsavík, 17/4 Kópasker,
Raufarhöfn, Þórshöfn, Vopna-
fjörður, Borgarfjörður, 18/4
Seyðisfjöiður, Norðfjörður,
Eskifjörður, Reyðarfjörður, Fá-
skrúðsfjörður, 1/94 Stöðvar-
fjörður, Breiðdalsvík, Djúpi-
vogur, Vestmannaeyjar, 20/4
Reykjavík.
Vörumóttaka til Fáskrúðs-
fjarðar, Reyðarfjarðar, Eski-
i fjarðar, Norðfjarðar, Seyðis-
I fjarðar, Vopnafjarðar, Raufar-
j hafnar og Húsavíkur þriðjudag-
inn 10/4. Farmiðar óskast sótt-
ir sama dag.
1 Niður fellur sérstök ferð til
ísafjarðar 18/4.
Herðubreið
fer austur um land 9/4 til
Kópaskers og væntanlega það-
an beint til Reykjavíkur.
ELPSPÝT0R
ERU EKKI
BARNALEIKFÖNC!
HÚSEIGENDAFÉLAG
REYKJAVÍKUR
T f MIN N, laugardaginn 7. apríl 1962