Fréttablaðið - 17.02.2006, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 17.02.2006, Blaðsíða 24
 17. febrúar 2006 FÖSTUDAGUR24 Umsjón: nánar á visir.is Fyrrverandi framkvæmdastjóri Metro-dagblaðanna telur að nýtt fríblað á vegum Dagsbrúnar eigi eftir að njóta velgegni í Danmörku. Segir hann í viðtali við vefsíðu Berlingske tidende í gær að honum finnist hugmyndin mjög spennandi og hann telji að pláss sé fyrir fleiri fríblöð á danska markaðnum. Framkvæmdastjóri útgáfufé- lags Berlingske tidende er einnig jákvæður og segir að blaðið muni hafa góð áhrif á dagblaðamarkað- inn. Hann segist ekki óttast sam- keppnina. Samkvæmt frétt viðskiptablaðs Berlingske tidende í gær mun frí- blaðið í fyrsta lagi koma út í haust, en nú standi yfir samningavið- ræður við prentsmiðjur og dreif- ingaraðila. Einnig er sagt frá því að Fréttablaðið hafi náð góðum árangri á Íslandi og fljótlega velt Morgunblaðinu úr sessi sem mest lesna dagblaði landsins. Haft er eftir Mikael Torfasyni, fyrrverandi ritstjóra DV, að dönsku dagblöðin muni nú sjá fram á harða samkeppni og án efa missa hluta af auglýsingatekjum sínum. - ks Kynt undir gengi hjá vélstjórum. Gengi stofnfjárbréfa í SPV hefur hækkað um 20 prósent á einni viku, úr 50 krónum á hlut í 60. Um helgina varð mikil hækkun á sjóðnum þegar sjálf- stæður fjárfestir hóf að hringja í stofnfjáreigendur og bjóða í bréf þeirra. Frá áramótum hefur stofnféð hækkað um 100 prósent og kostar nú einn stofnfjárhlutur 2.352.900 kr. Markaðsvirði SPV er því um 7,5 milljarðar króna. Stjórn SPV mun funda næstkomandi miðvikudag þar sem væntanlega verða tekin til samþykktar breytingar í stofnfjáreigandahópnum. Menn eru því að drífa sig í að kaupa fyrir fund og verður í framhaldinu spennandi að sjá hvaða blokkir verða sterkastar í sjóðnum á komandi aðalfundi. Norðlensk viðvörunarbjalla Markaðurinn tók að lækka eftir hádegið í gær. Skýringin er líklegast taka hagnaðar hjá fjárfestum eftir miklar hækkanir að undan- förnu. Þá kann einnig að hafa haft áhrif að úr við- skiptadeild Háskólans á Akureyri mátti heyra rödd um það að hækkanir sem þær sem hafa verið að undanförnu ættu sér ekki neinar líkar í víðri veröld. Íslendingar eru jú einstakir, þannig að það teljast nú varla fréttir. Hins vegar mátti greina pirring í mörgum á markaði yfir þessum orðum og fannst skotið yfir markið. Hækkanir að undanförnu væru ekki sjálfkrafa merki um að markaður myndi lækka eða um bólu væri að ræða, Flestir sérfræðingar eru á því að markaðurinn beri ekki merki bólu, þótt telja megi að kátínan sé stundum dáldið hressileg á honum blessuðum. Alltént geta þeir sem kaupa nú á fullu ekki sagt að viðvörunarbjöllur hafi ekki hljómað, en þær byrja oft að hljóma dáldið löngu áður en eldarnir kvikna. Nýskráning bíla í janúarmánuði jókst um átta prósent í samanburði við janúarmánuð í fyrra, samkvæmt nýjum tölum ACEA, samtaka evrópskra bílaframleiðenda. Aukningin er heldur yfir meðaltali Evrópusambands- og EFTA-ríkja á sama tíma sem er 2,6 prósent. Athygli vekur að mjög dregur úr nýskráningum milli ára, því þegar borinn er saman desember 2004 og 2005, nam aukning 41,3 prósentum. Einungis Lettar gerðu betur með 46,2 prósenta aukningu. Þar virðist uppsveiflan hins vegar í fullum gangi enn og aukning í nýskráningum í samanburði janúarmánaða 2005 og 2006 nemur 58,5 prósentum. „Átta pró- sent er gríðar- leg aukning, því árið í fyrra var metár,“ segir Runólf- ur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra bif- reiðaeigenda. Hann segir aukninguna ekki síst mikla því í janúar í fyrra hafi einn stærsti bílsalinn, Toyota, verið með sér- stakt tilboð í gangi á ákveðnum árgerðum, en núna í janúar hafi verið ákveðin þurrð þar vegna þess að beðið hafi verið eftir nýrri útgáfu RAV-smájeppans. „Það geta verið svona staðbundn- ar ástæður sem skekkja heildar- myndina, en mér heyrist á bíl- greinunum að árið fari betur af stað en menn áttu von á. Bílavið- skipti ganga í ákveðnum bylgjum og fylgja gjarnan hagsveiflum. Auðvitað getur ákveðin mettun átt sér stað, en neyslan er líka stór þáttur í þessu. Bílabylgja byrjar yfirleitt á undan hagsveifl- unni upp á við og byrjar að hníga aðeins áður en hagsveiflan fer að ganga niður,“ segir Runólfur og telur því óvitlaust að hafa auga með þróun á bílamarkaði, þótt ekki sé hann að spá neinni niður- sveiflu nú. Í tölum ACEA kemur fram að sem fyrr séu bílar frá VW Group vinsælastir, en meðal tegunda samstæðunnar eru Volkswagen, Audi, Seat, Skoda, Bentley og Lamborghini. ólikr@frettabladid.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 6.876 -0,71% Fjöldi viðskipta: 1.431 Velta: 9.780 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 57,70 +1,80% ... Alfesca 4,28 +0,50% ... Atorka 6,15 -0,80% ... Bakkavör 53,10 +0,80% ... Dagsbrún 6,21 +3,50% ... FL Group 26,40 -4,00% ... Flaga 3,91 +1,00% ... Íslandsbanki 22,00 -2,70% ... KB banki 985,00 -1,40% ... Kögun 65,00 -0,20% ... Landsbankinn 31,40 +1,00% ... Marel 62,00 +0,00% ... Mosaic Fashions 18,20 +1,10% ... Straumur- Burðarás 21,00 -1,40% ... Össur 105,00 -0,50% MESTA HÆKKUN TM 8,57% Dagsbrún 3,50% HB Grandi 2,70% MESTA LÆKKUN FL Group 4,00% Íslandsbanki 2,66% Avion 2,12% The International Business Academy Skamlingvejen 32 . DK-6000 Kolding . Tlf. +45 72 24 18 00 . Fax +45 72 24 18 08 iba@ibc.dk . www.iba.dk Alþjóða Markaðs- og Viðskiptanám. Kynningarfundur Mánudaginn 20. febrúar 2006 kl. 17 – 19 á Nordica Hotel, Reykjavík. IBA býður upp á 2 ára markaðs-og viðskiptanám með áherslu á markaðsfræði, viðskipti og hagfræði. Boðið er upp á fimm brautir: Alþjóðabraut –áhersla er lögð á markaðsfræði, samskipti og alþjóðaviðskipti. Hægt er að velja um verklega þjálfun í 3 - 6 mánuði hjá erlendu eða dönsku fyrirtæki. Stjórnunarbraut –áhersla er lögð á stjórnun, (HRM), og stjórnunarfræði. Samskiptabraut –áhersla er lögð á markaðssamskipti og alþjóða markaðssetningu. Auglýsingabraut –áhersla er lögð á hönnun/auglýsingar. Nýsköpunarbraut Áhersla lögð á nýbreytni og sköpun. Verkleg þjálfun Á öllum brautum getur námið tengst verklegri þjálfun hjá þekktum fyrirtækjum í Danmörku og erlendis eins og t.d.: Microsoft, Maersk, IBM, Alfa Laval, Danfoss, LEGO, B-Young o.fl.. Framhaldsnám Bachelor, MBA, HA, HD - í Danmörku eða erlendis. Upplýsingar gefur Íris í síma 860 8888. Hringdu eða sendu okkur tölvupóst og finndu út hver- nig þú getur orðið hluti af þessu spen- nandi námsu- mhverfi sem IBA býður uppá. Einnig getið þið fengið ýtarlegar upplýsingar hjá skólanum. GREIÐA GÓÐAN ARÐ Hluthafar í TM eiga von á 200 prósenta arði. Stjórn TM leggur til að greiddur verði 200 prósenta arður, eða tvær krónur á hlut, til hluthafa vegna ársins 2005. Samtals nemur arðgreiðslan 1.809 milljónum króna sem er fjórðungur af hagnaði síðasta árs. Stærstan skerf fær Eyjafjöl- skyldan, Guðbjörg Matthíasdóttir og fjölskylda, sem á um 43 prósent hlutafjár í TM en gangi tillaga stjórnar eftir fær hún 806 millj- ónir króna fyrir sinn snúð. TM hefur greitt háan arð á undanförnum árum. Þannig var greiddur út 100 prósenta arður af nafnverði hlutafjár í fyrra, eða 907 milljónir króna, og einn millj- arður króna árið 2004. - eþa Myndarlegar arð- greiðslur í TM Í VERKSMIÐJU VW Í ÞÝSKALANDI Starfskona kemur Volkswagenmerkinu fyrir á nýjan bíl í Wolfsburg. VW Group selur bílaframleiðenda mest í Evrópu. NORDICPHOTOS/AFP RUNÓLFUR ÓLAFS- SON Hægir á nýskráningu bíla Vísbendingar eru um að hægt hafi á nýskráningu bíla hér á landi. í fyrra var metár í sölu nýrra bíla og segir framkvæmdastjóri FÍB ákveðinn sigur felast í að halda í horfinu. MARKAÐSPUNKTAR... Tap að jafnvirði 2,9 milljónum evra varð á rekstri Finnair PLC á síðasta ársfjórð- ungi. Straumur Burðarás á rúmlega 10 prósenta hlut í félaginu. Í gær gaf þýski bankinn kfW út krónu- bréf fyrir 10 milljarða króna. Bankinn hefur nú alls gefið út 43 milljarða króna og er stærsti útgefandi krónubréfa um þessar mundir. Kortavelta Íslendinga erlendis nam tæplega 2,9 milljörðum króna í janúar og hafði þá vaxið um 50 prósent frá því í fyrra á föstu gengi krónunnar. Flaga tapaði 1,4 milljónum banda- ríkjadala á árinu sem var að líða eða 90 milljónum króna. Tapið kemur að mestu leyti fram á fjórða ársfjórðungi þegar kostnaður við skipulagsbreyt- ingar var gjaldfærður að upphæð 160 milljónir króna. Að ððru leyti var nokkur vöxtur á milli ára, tekjur jukust þannig um 31 prósent. Á fjórða ársfjórðungi var sett sölumet þegar selt var fyrir 570 milljónir króna sem var fjögurra prósenta aukning frá sama tímabili í fyrra. Flaga er fjársterkt félag með eig- infjárhlutfall um 66 prósent. - eþa Tap hjá Flögu RÝMI FYRIR FLEIRI BLÖÐ Tveir aðilar sem unnið hafa við danska fríblaðamarkaðinn telja að pláss sé fyrir fleiri fríblöð. Jákvæðir á gengi nýs fríblaðs Peningaskápurinn...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.