Fréttablaðið - 17.02.2006, Page 66

Fréttablaðið - 17.02.2006, Page 66
 17. february 2006 FRIDAY30 timamot@frettabladid.is Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, systur og ömmu, Mattheu Katrínar Pétursdóttur Álfaborgum 9. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Rimaskóla og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Snæbjörn Ólafsson Ágústa Sigurðardóttir Lýður Ásgeirsson Hilmir Freyr Sigurðsson Svanhildur Jóna Erlingsdóttir Eva Björg Sigurðardóttir Aðalsteinn Jóhannsson Auður Pétursdóttir Haraldur Finnsson og barnabörn. TILBOÐ Á LEGSTEINUM, FYLGIHLUTUM OG UPPSETNINGU 10-50% AFSLÁTTUR Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is Eiginmaður minn, Tómas Einarsson kennari, Skúlagötu 40, lést á Líknardeild Landspítalans, Landakoti, sunnudaginn 12. febrúar. Guðlaug Jónsdóttir Afmæli Ég varð 60 ára fimmtudaginn 16. febrúar. Þeim sem vilja samgleðjast mér í tilefni af deginum er boðið að Skipholti 70 laugardaginn 18. febrúar kl. 12.00-15.00. Guðrún Erla Aðalsteinsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Ingi Berg Guðmundsson loftskeytamaður, Völvufelli 42, Reykjavík, verður jarðsunginn frá kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg föstudaginn 17. febrúar kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð hjúkrunarþjónustunnar Karitas. Tekið er á móti framlögum í síma 551 5606. Fanney Vigfúsdóttir Auður Björg Ingadóttir Elías Jón Sveinsson Jóna Rán Ingadóttir Rúnar Þór Vilhjálmsson Ingi Berg Ingason Anna Lísa Hassing og barnabörn. Á þessum degi árið 1992 var fjöldamorðinginn Jeffrey Dahmer dæmdur í fimmtánfalt lífstíðar- fangelsi af dómstól í Wisconsin í Bandaríkjunum. Hann var dæmd- ur fyrir að drepa og sundurlima fimmtán unga menn og drengi. Hann veittist iðulega að ungum samkynhneigðum blökkumönn- um, byrlaði þeim svefnlyf og gerði meðal annars grófar heilaskurð- aðgerðir á þremur þeirra. Töluvert af líkamshlutum fannst í íbúð Dahmers þegar hann var hand- tekinn. Nokkur höfuð voru í ísskápnum og í fataskáp fannst altari með kertum og höfuðkúpum. Var talið að Dahmer hefði lagt sér mannakjöt til munns en Dahmer játaði að hafa étið upphandlegg af áttunda fórnarlambi sínu. Lögmenn Dahmers héldu því fram að hann væri náriðill, það er væri haldinn sjúklegri þrá til að hafa mök við lík. Dahmer sýndi iðrun í réttar- höldunum sem þóttu ein þau ógeðfelldustu enda voru sönnun- argögn næg. Halda þurfti aftur af ættingjum fórnarlamba hans sem veittust að Dahmer og kölluðu hann djöfulinn sjálfan. Þó Dahmer hafi verið dæmdur fyrir fimmtán morð játaði hann að hafa orðið sautján að bana á árunum 1978 til 1991. Hann varð trúaður í fangavist sinni og lét skírast. Þann 28. nóvember 1994 var hann myrtur af sam- fanga sínum, sem barði hann með járnstöng. ÞETTA GERÐIST > 17. FEBRÚAR 1992 Mannæta í fimmtánfalt lífstíðarfangelsi JEFFREY DAHMER MOLIERE (1622-1673) LÉST ÞENNAN DAG. „Við deyjum aðeins einu sinni, en í mjög langan tíma.“ Moliere var franskt leikrita- skáld, leikari og leikstjóri. Oft talinn einn af meisturum satírunnar. MERKISATBURÐIR 1866 Kristján Jónsson Fjallaskáld yrkir kvæðið Þorraþrællinn sem hefst á orðunum, Nú er frost á fróni. 1943 Vélskipið Þormóður frá Bíldudal ferst á Faxaflóa og með honum 31 maður. 1972 Richard Nixon Banda- ríkjaforseti heldur af stað í fræga för til Kína. 1979 Kínverjar ráðast inn í Víetnam. 1984 Vopnað rán er framið við Austurbæjarútibú Landsbankans. 1990 Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvakíu, kemur til landsins. ANDLÁT Tómas Einarsson kennari, lést á líknardeild Landspítala Landakoti sunnudaginn 12. febrúar. Guðrún Jónsdóttir, Hringbraut 97, Keflavík, lést á Hlévangi þriðjudag- inn 14. febrúar. Sigríður Eyjólfsdóttir, Selvogs- grunni 22, lést á Vífilsstöðum þriðjudaginn 14. febrúar. Garðar Sigjónsson, Hrafnistu í Hafnarfirði, áður til heimilis á Höfn í Hornafirði, lést á gjörgæsludeild Landspítala Fossvogi aðfaranótt miðvikudagsins 15. febrúar. JARÐARFARIR 13.30 Stefán Karl Þorsteinsson, Einholti 8a, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrar- kirkju. 14.00 Ingi Berg Guðmundsson loftskeytamaður, Völvufelli 42, Reykjavík, verður jarð- sunginn frá kirkju Óháða safnaðarins. FÆDDUST ÞENNAN DAG 1888 Otto Stern, eðlifræðingur og nóbelsverðlaunahafi. 1752 Friedrich M. Klinger leikritaskáld. AFMÆLI Guðjón Ólafur Jónsson lögfræð- ingur er 38 ára. Skúli Eggert Þórðar- son skattrannsókn- arstjóri er 53 ára. „Ég ætla að hafa þetta þannig að sem fæstir verði varir við þetta. En það er víst erfitt,“ segir Magnús Ólafsson leikari sem allir Íslendingar þekkja og virða sem einn okkar albesta leikara. Hann tekur þessum tímamótum í lífi sínu með stóískri ró og er þakklátur. „Ég er ánægður með að fá að eldast og lít bara jákvætt á það. Það eru ekki allir sem njóta þeirra forréttinda. Það sem er eftirminnilegast er að hafa eignast góða konu og börnin okkar. Það er það sem situr eftir, fjölskyldan.“ Magnús ætlar ekki að halda neina stórveislu heldur ætlar að fara með konunni upp í sveit í sumarbústað og láta engan vita hvar. En hann hefur fengið margt góðra gjafa. „Konan mín gaf mér gjöf fyrirfram og splæsti á mig ferð til Liverpool á leik. Ég fór á Anfield og sá Liverpool vinna Totten- ham. Það var stórkostlegt og í þriðja skipti sem ég fer þangað og það er allt- af jafn gaman. Það er sérstök stemn- ing að heyra sönginn You never walk alone. Maður tárast bara.“ Svo rammt kveður að áhuga Magnúsar að hann dregur fána að húni í hvert sinn sem Liverpool spilar leik. Magnús er prentari að mennt en fyrst og síðast leikari í hugum lands- manna. Hann hefur leikið í 24 kvik- myndum og honum finnst það sérstak- lega áhugavert. Spurður um sína eftirlætissýningu á sviði nefnir hann leikverkið Hvað um Leonardo eftir Evald Flisar sem var í leikstjórn Hallmars Sigurðsson- ar. „Þar fékk ég mína bestu dóma á sviði og Súsanna Svavarsdóttir sagði að ég hefði verið hinn svarti senuþjóf- ur. Það er mér ógleymanlegt. Þar lék ég þroskaheftan mann sem kunni allar óperur utan að. Annars er líka alltaf yndislegt að leika fyrir börn, þau eru bestu áhorfendurnir og ég er stoltur af barnasýningunum sem ég hef tekið þátt í. Þar lék ég með Bessa Bjarna- syni sem sannar það sem ég hef alltaf sagt: Leikarinn deyr aldrei, hann bara hverfur af sviðinu.“ ■ MAGNÚS ÓLAFSSON LEIKARI: SEXTUGUR Í DAG Hinn svarti senuþjófur TEKUR TÍMAMÓTUNUM MEÐ STÓÍSKRI RÓ Magnús ætlar að stinga af upp í sumarbústað með eiginkonu sinni og láta engan vita.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.