Fréttablaðið - 10.12.2005, Blaðsíða 56
10. desember 2005 LAUGARDAGUR24
A NEW FRAGRANCE FOR MEN©
B
U
R
B
E
R
R
Y
L
IM
IT
E
D
2
0
0
4
W
W
W
.B
U
R
B
E
R
R
Y
.C
O
M
A4_britmen_homme_Euro.qxd 13/07/04 12:27 Page 1Caroline Rós og Liselotte Emelie á Þingeyri með dúkkurnar sínar í sleðaferð.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Skemmtilegast?
Það er afskaplega margt sem mér finnst skemmtilegt að gera
svo sem að hanga með fjölskyldu og vinum, borða góðan mat
og þess háttar. En talandi um vini, þá finnst okkur félögunum
stundum gaman að lúðast svolítið þegar við hittumst nokkrir og
keppum hver við annan í FIFA-fótboltaleikjunum. Það er óneit-
anlega skemmtileg upplifun þegar nokkrir tapsárir einstaklingar
koma saman og spila íþróttatölvuleiki og stundum taka menn
þessu óþarflega alvarlega en það er bara hluti af góðri kvöld-
skemmtun.
Leiðinlegast?
Ég er smá áhugamaður um golf (mellufær) og finnst ótrúlega
gaman að slá til dæmis með pabba eða vinum. Eins og mér
finnst þetta nú skemmtileg íþrótt þá fer það alveg svakalega í
skapið á mér þegar veðrið er leiðinlegt. Ef það er rigning og vind-
ur eða eitthvað verra þá læt ég það fara óþarflega mikið í skapið
á mér og hitti svona einn bolta af tólf (ekkert grín). Ég enda oft-
ast þá í neðsta sæti af þeim sem ég spila með. Ekki gaman!
SKEMMTILEGAST/LEIÐINLEGAST
Taka FIFA einum of alvarlega
Heiðar Austmann útvarpsmaður með meiru.
SJÓNARHORN
VISSIR ÞÚ...
...að Kristófer Kólumbus fann Ameríku
1492?
...að hann þurfti að bíða í 4 vikur á
Kanaríeyjum vegna logns.
...að Bahamas var fyrsti partur Ameríku
sem Kólumubs sá?
...að þegar leiðangur Kólumbusar sigldi
norður fyrir Kúbu strauk Martín Alonso
Pinzón, skipstjóri Pinta, með skipið í leit
að gulleyju?
...að flaggskip Kólumbusar, Santa Maria,
strandaði á kóralrifi á aðfangadag 1492?
...að Santa Maria sökk svo næsta dag,
jóladag?
...að Kólumbus notaði brak úr skipinu til
að byggja virki við ströndina?
...að virkið kallaði hann La Navidad?
...að La Navidad þýðir jól?
...að án flaggskips síns gat Kólumbus
ekki tekið alla menn sína heim með
sér?
...að 40 skipverjar neyddust til að gera
La Navidad að heimili sínu?
...að Kólumbus hitti Pinzón á Pinta á
leiðinni heim í janúar? Skipin tvö skild-
ust að í miklum stormi.
...að Kólumbus kom heim 15. mars
1493, nokkrum dögum á undan Pinzón?
...að Pinzón hélt að honum yrði tekið
sem hetju en sá heiður hafði þegar
fallið Kólumbusi í skaut?
...að Pinzón lést nokkrum dögum síðar?
...að Kólumbus hélt aftur til Ameríku
1493 en í þetta skiptið með 17 skip og
yfir 1000 menn?
...að þetta var í fyrsta sinn sem evrópsk
húsdýr (hestar, kýr og kindur) komu til
Ameríku?
...áður en yfir lauk fór Kólumbus í tvær
aðrar ferðir til Ameríku?
...að Kólumbus lést 5. maí 1506 í Valla-
dolid á Spáni?