Fréttablaðið - 10.12.2005, Side 33

Fréttablaðið - 10.12.2005, Side 33
[ ] FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Heimild: Almanak Háskólans TAKTU NÆSTA SKREF F í t o n / S Í A F I 0 1 5 1 2 8 ALLT A‹ 100% LÁNS HLUTFALL LÆGRI VEXTIR EKKERT LÁNTÖKUGJALD TRYGGINGAR- FÉLAG ENGIN SKILYR‹I UM BÍLALÁN Vi› lánum fyrir n‡jum og notu›um bílum á hagstæ›um kjörum án tillits til fless hvar flú tryggir bílinn e›a hefur flín bankavi›skipti. Reikna›u láni› flitt á www.frjalsi.is, hringdu í síma 540 5000 e›a sendu okkur línu á frjalsi@frjalsi.is. Vi› viljum a› flú komist sem lengst! DÆMI UM MÁNA‹ARLEGA GREI‹SLUBYR‹I AF 1.000.000 kr.* Lánstími 5 ár 7 ár 8 ár 5,95% vextir 19.310 kr. 14.585 kr. 13.117 kr. *Lán me› jafngrei›slua›fer› án ver›bóta �������������� ������� ������������������ ������������� �������� ������ ����������������� ��� ���� ������������������� ������� ������� ������������� �������������� �������������� ��������������� �������������� � �������� Hólmfríður Anna Baldursdóttir er upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi og í rúmt ár hefur hún verið stoltur eigandi Toyota Corolla, af árgerð ´93. Hún hefur eytt síðustu dögum með sjálfum James Bond, en eins og flestum er kunnugt heiðraði sjarmatröllið Roger Moore okkur Íslendinga með nærveru sinni á dögunum í þeim tilgangi að vekja athygli á starfsemi UNICEF. Þrátt fyrir að keyra hvorki Jaguar né Aston Martin er Hólmfríður sátt við bílinn sinn. ,,Ég kalla hana Rauðu þrumuna. Hún er alltaf tilbúin að leggja sitt af mörkum og þá sérstaklega fyrir börnin. Hún er notuð í öll erindi sem við þurfum að sinna hér hjá UNICEF og til að mynda á hún sinn þátt í að skila dúkkunum okkar þangað sem þær eiga að fara,“ segir Hólmfríður. ,,Fyrir óeigingjarnt starf sitt biður hún ekki um neitt til baka nema kannski vetrardekk. Ég verðlaunaði hana reyndar í sumar og bónaði hana bæði að innan og utan.“ Allir bílar hafa sína sérstöðu og er Toyotan hennar Hólmfríðar engin undan- tekning. Þrátt fyrir að hann skjóti ekki eld- flaugum, sé ekki búinn leysigeisla og geti ekki breyst í kafbát er Rauða þruman ein- stakur bíll. ,,Hún er orðin svolítið beygluð og lifuð og því komin með sál. Svo skartar hún handmáluðum maríubjöllusteini frá Höfn í Hornafirði á mælaborðinu sem ég fékk í gjöf frá vinkonu minni. Allir bílar verða nefnilega að hafa einhvers konar verndargrip,“ segir Hólmfríður. Aðspurð segir hún að flottasti Bond-bíll- inn hafi án efa verið Aston Martin DB5 sem Bond, þá leikinn af Sean Connery, notaði til að heilla dömurnar og bjarga heiminum í Goldfinger árið 1964. tryggvi@frettabladid.is Rauða þruman er barngóður bíll Reykjavík 11.07 13.21 15.34 Akureyri 11.20 13.05 14.50 Góðan dag Í dag er laugardagurinn 10. desember 344. dagur ársins 2005. Hólmfríður og sjálfrennireiðin hennar Toyota Corolla af árgerð ‘93. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI KRÍLIN Fyrirgefðu hvað ég er seinn, mamma, en ég heyrði ekki í þér fyrr en þú varst búin að kalla þrisvar! Konur sem þora að vera konur, í stað unglingsstelpna, ættu að kíkja við í nýrri verslun í Notting Hill í næstu Lundúnarferð sinni. Verslunin heitir Que Sera Sera og sérhæfir sig í dekurvörum fyrir alvöru konur, frá Damaris undir- fötum yfir í Victoriu Grant hatta og allt þar á milli. Til að tryggja að viðskiptavinir láti það eftir sér að dekra við sjálfa sig eru karlmenn bann- aðir í versluninni. Aðventuferð Ferðafélags Íslands um miðbæ Reykjavíkur verður farin á morgun, sunnudag. Ferðin hefst klukkan 17.00 við styttu Jóns Sigurðssonar við Aust- urvöll. Gengið verður um miðbæinn með leiðsögn og ýmsir þættir úr sögu, byggingarlist og menningu Reykjavíkur dregnir fram í dagsljósið. Fararstjóri í ferð- inni er Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélagsins. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. LIGGUR Í LOFTINU [ FERÐIR - BÍLAR - TÍSKA ] ÖRYGGI Ráðandi þáttur við val á bíl BLS. 2 JÓLASVEINAR á leið til byggða BLS. 6 SKART Gyllt um jólin BLS. 12 MIÐBÆRINN Aðventuferð BLS. 14

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.