Íslendingaþættir Tímans - 14.02.1981, Qupperneq 8
75 ára
Zophónías Stefánsson
bóndi og hreppstjóri Mýrum í Skriðdal
Zóphónias Stefánsson hreppstjóri Mýr-
um varð sjötiu og fimm ára þann 28/11
siðastliðinn. Hann er fæddur á Viöilæk i
Skriðdal 28/11 1905. Fluttist með foreldr-
um sinum tveggja ára gamall að Mýrum i
sömu sveit og hefur átt þar heima sfðan.
Foreldrar hans voru þau merku hjón
Stefán Þdrarinsson og Jónina Einars-
dóttir. Stefán var bófræöingur frá Eiðum.
Hann hóf biískap um aldamót. Varð hann
brátt mikill framámaður i bUskap. Hvatti
bændur til að slétta tUnin og stækka.
sami stórhugur var i honum með bygg-
ingu steinhUss sem hann hóf byggingu á
1916, sem var ibUðarhús og einnig fyrir
hey og alla gripi. Þetta stóra hUs stendur
enn og er notað fyrir hey og gripi. Hefur
verið endurbætt.
Stefán var mikill félagsmálamaður.
Hann átti sæti I hreppsnefnd uns hann gaf
ekki kost á sér lengur. Hreppstjóri var
hann til dauðadags, sýslunefndarmaöur
lengi og átti sæti i stjórn bUnaðarfélags
Skriðdæla. Mörgum fleiri störfum gegndi
Stefán,var sæmdur riddarakrossi hinnar
lslensku Fálkaoröu. Stefán lést 1951. Þau
Stefán og Jónina eignuðust 9 börn sem
komust til fullorðinsára, sjö synir og tvær
dætur. ErunU þrjú látin. Zóphónias missti
móður sina 12 ára gamall. ólst upp með
föður sinum og siðari konu hans, Ingifinnu
Jónsdóttur.
Zóphóni'as á fimm hálfsystkini. Allur
þessi stórisystkinahópur er greindar fólk,
vel menntað og hefur gegnt margvisleg-
um störfum i þjóðfélaginu.
Zóphóni'as stundaði nám i Alþýðuskól-
anum á Laugum I tvo vetur. Eftir það var
hann barnakennari hér i sveitinni og
viöar, en vann heima á sumrin. Hann fór
lika á nokkrar vertiöar til Vestmanna-
eyja. Arið 1936stofnaöi Zóphónias nýbýli i
landi Mýrar, sem hlaut nafnið BrUn.
Sama ár byggðihann IbUöarhUs, og næstu
ár gripahUs, heyhlöðu og votheys-
geymslu. Samhliða hóf hann mikiar rækt-
unarframkvæmdir, vélvæddi, fyrst meö
hestaverkfærum og siðar vélknunum.
Hafðialltaf næghey og alla gripi kópalda.
Zópónias er með allra duglegustu
mönnum sem ég þekki. Alltaf sama
kappið, að hvaða verki sem hann gekk,
hvort heldur hann var að vinna við sitt bU,
eða að hjálpa nágrönnunum.
Zóphónias er félagslyndur og tillögu-
góður. Hann gekk ungur I ungmannafélag
Skriðdæla, sem starfaði þá af miklum á-
huga. Tók hann virkan þátt i þeim félags-
skap um langt árabil, og var i stjórn þess.
Sfðan hldöust á hann margskonar störf
fyrir sveitina. Hann átti sæti i hrepps-
nefnd um langt árabil, uns hann gaf ekki
kost á sér lengur. Hreppstjóri varð hann
eftir föður sinn og er það enn. Hann var
lengi i stjórn bdnaðarfélagsins og formað-
ur, deildarstjóri Skriðdalsdeildar K.H.B.
og formaður sóknarnefndar. Mörgum
fleiri störfum hefur hann gengt þó ekki
verði talin hér. öllum störfum gegndi
hann af áhuga og alUð.
Zóphóni'as hefur alltaf verið samvinnu-
maður og framsóknarmaður. Hefur
framsóknarflokkurinn átt þar traustan
stuðningsmann.
Við Zóphónias höfum verið nágrannar,
svo að segja alla okkar bUskapartið, sem
eru rösk 40 ár. Betri nágranna er vart
hægt að hugsa sér. Alltaf sama glaða og
ljUfmannlega viðmótið, og greiðasemin
alveg einstök. Maður var varla bUinn að
bera upp erindið, er hann var kominn með
svarið: Já, það er alveg sjálfsagt. Svona
svör og viðmót gleymast aldrei.
1 afréttar göngum smalaði hann venju-
lega lengsta og erfiðasta stykkið, og varð
manna glaðastur er komið var á áfanga-
stað að kveldi.
Kona Zóphóniasar er Ingibjörg Einars-
dóttir frá Geitadal. Eiga þau fjögur upp-
komin börn. Hafa þau hjón nU látið jörð
og bU til tveggja barna sinna og tengda -
sonar fyrir nokkrum árum.
Þó Zóphónias sé hættur bUskap hefur
hann ekki sest i helgan stein. Hann gegnir
ýmsum opinberum störfum, og tekur
hendi til við heimilisstörfin eftir þvi sem
þörf krefur.
Við hjóninóskum Zóphóniasi, eiginkonu
hans og fjölskyldu hjartanlega til ham-
ingju á þessum merku timamótum.
Stefán Bjarnason,
Flögu-
Magnús Stefánsson
MagnUs Stefánsson, Týsgötu 3,
Reykjavik, andaðist á Borgarspitalnum.
þ. 14. jan. sl. 73ja ára að aldri. Útför hans
var gerð f rá Dómkirkjunni 22. sama mán-
aöar að viðstöddu fjölmenni. Sr. Óskar J.
Þorláksson jarðsöng.
MagnUs var fæddur aö Viðilæk I Skriö-
dal, Suður-MUlasýslu, 19. marz 1907 en þá
8
um vorið fluttist hann með foreldrum sin-
um að Mýrum I sömu sveit. Faðir hans
var Stefán hreppstjóri Þorarinsson,
Sveinsonar bónda á Randversstöðum I
Breiðdal, en Þórarinn var bróðir Bjarna i
Viðfirði, föður doktor Björns. — Móðir
hans var Jónina Salný Einarsdóttir, öla-
sonar pósts, sem var bróðir Jóns á
Útnyröingsstööum, föður Þorsteins M-
Skólastjóra og bókaUtgefenda. Um f°r'
eldra MagnUsar reit Friðrik Jónsson a
Þorvaldsstöðum svo i búnaðarritið Frey
1952. „Stefán var um langt árabil vinsæll
forystumaöur i málefnum sveitar sinnar,
viðsýnn umbótamaður og langt á undan
Framhald ó 7. si&u.
Islendingaþeettir