Lesbók Morgunblaðsins - 17.04.2004, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 17.04.2004, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. APRÍL 2004 13 TVÍHLIÐA tríóið, tónlist þriggja alda var yfirskrift tónleika sem haldnir voru í Salnum í Kópavogi. Þar voru á ferðinni þau Guðrún Birgisdóttir sem lék á barokkflautu og nútíma- flautu (þó ekki báðar í einu!), Sigurður Hall- dórsson er spilaði á barokkselló og „venjulegt“ selló; loks Richard Simm, en hann lék ýmist á sembal eða píanó. Eins og vænta má var efnisskráin fjölbreytt og var fyrsta atriðið sónata í C-dúr BWV 1033 eftir Bach. Þar var barokkflautan í aðalhlut- verki og verður að segjast eins og er að frammistaða Guðrúnar olli nokkrum vonbrigð- um, tónmyndunin var ómarkviss, inntónunin ónákvæm og túlkunin almennt stirð og hik- andi. Betra var næsta atriði tónleikanna, sem var sónata í G-dúr k 146 eftir Domenico Scarlatti. Þar var Richard einn á ferð og spilaði af þeirri fingralipurð sem tónlistin krefst, enda rann hún ljúflega niður og var útkoman verulega sannfærandi. Andante í C-dúr K 315 eftir Mozart var líka fagurt, en þar var Guðrún aftur í aðalhlutverki og spilaði í þetta sinn á nútímaflautu. Hér var tónmyndunin fullkomin; Guðrún spilaði ein- staklega fallega og Richard, sem nú lék á pí- anó, fylgdi henni prýðilega. Tríó í g-moll op. 63 eftir Carl Maria von We- ber kom einnig ágætlega út; þetta er lífleg, lit- rík tónlist sem geislar af hamingju og var yf- irleitt vel flutt af þremenningunum. Allar hendingar voru fallega mótaðar en ég hefði gjarnan viljað heyra meira í sellóinu, sem pí- anóið yfirgnæfði oftar en einu sinni. Eftir hlé settu þau Guðrún, Sigurður og Richard upp grímur, og kveikt var á bláu ljósi því á dagskránni var Vox balaenae – Rödd hvalsins eftir George Crumb (f. 1929). Þar var tímalaus neðansjávarstemning ríkjandi, fjöl- breytt hvalahljóð heyrðust sem hljóðfæraleik- ararnir líktu eftir og var tónsmíðin allan tím- ann lágstemmd og dularfull. Nú getur verið að einhverjum finnist svona nokkuð óttalega gamaldags og hippalegt en ég er ekki sammála því; persónulega fannst mér verkið einstaklega hrífandi og ekki meira fallið úr tísku en sjálf náttúran. Túlkunin er svo önnur saga; Guðrún söng í gegnum flautuna í upphafi og var það ekki nægilega vel útfært til að virka sannfærandi. Inntónun á efsta sviði sellósins var sömuleiðis ekki alltaf fullnægjandi og strengjaglissandó píanósins var heldur sterkt miðað við annað. Að öðru leyti var flutningurinn góður, oft náðu hljóðfæraleikararnir ágætlega saman og tókst þá að skapa mjúkan og seiðandi klið sem var unaðslega dáleiðandi. Að mínu mati var þetta merkilegasta atriði tónleikanna og gott dæmi um hve nútímatónlist getur verið mögnuð. Högg og kveinstafir Nútímatónlistin var í öndvegi á tónleikum Hávarðs Tryggvasonar á Nýja sviði Borgar- leikhússins. Frumflutt voru þrjú verk og var fyrst á efnisskránni Ekki hér, alls staðar eftir Þórólf Eiríksson. Þar kallaðist kontrabassinn á við kontrabassahljóð úr hátölurum og var það glæsilega unnið af tónskáldinu. Túlkun Hávarðs var markviss og kraftmikil; útkoman var skemmtilega óhugnanleg og hefði sómt sér ágætlega í kvikmynd eftir David Lynch. Annar frumflutningur tónleikanna, Dúel eft- ir Harald Vigni Sveinbjörnsson einkenndist af snörpum höggum og kveinstöfum, en undir niðri var liggjandi tónn sem varð að hálfgerðu suði er á leið. Þó að margar ágætar hugmyndir kæmu fyrir var úrvinnslan ekki nægilega hnit- miðuð og var verkið í heild fremur sundurlaust þrátt fyrir kraftmikinn flutning. Trúarkeila eftir Atla Ingólfsson var hins vegar bráðskemmtileg, þar gerði Hávarður allt við hljóðfærið nema að bíta það og var tón- smíðin prýðilega skipulögð, framvindan var rökrétt og heildaráhrifin grípandi. Annað á efnisskránni var sónata frá árinu 1975 eftir Sofiu Gubaydulinu, og naut Hávarð- ur þar liðsinnis Snorra S. Birgissonar, sem lék á píanó. Sónatan var lágstemmd og innhverf eins og annað eftir tónskáldið, en þó margt væri áheyrilegt í sjálfu sér var tónlistin í heild svo skelfilega langdregin að einlægur flutn- ingur þeirra Hávarðs og Snorra dugði ekki til að gera hana athyglisverða. Gradus ad profundum eftir Karólínu Eiríks- dóttur í flutningi Hávarðs kom sömuleiðis ekk- ert sérstaklega vel út, inntónun bassaleikarans var stundum alveg á mörkunum, og myndskeið sem varpað var upp fyrir ofan hann af fótum á gangi í sandi ásamt öðru þynnti tónlistina út fremur en hitt. Secret Psalms eftir Úlfar Inga Haraldsson var hins vegar töluvert heillandi; hljóðlátur söngur kontrabassans við klið ýmissa hljóða úr hátölurum var fallegur en hugsanlega var verkið heldur langt miðað við hve dramatísk tilþrif voru takmörkuð. Kannski hefðu styrk- leikabrigðin í túlkun Hávarðs mátt vera ríku- legri til að skapa meiri spennu á völdum stöð- um. TÓNLIST Salurinn í Kópavogi Tónlist eftir Bach, Scarlatti, Mozart, Weber og Crumb. Flytjendur: Guðrún Birgisdóttir, Sigurður Halldórsson og Richard Simm. Fimmtudagur 1. apríl. KAMMERTÓNLEIKAR Hvalurinn syngur Jónas Sen Morgunblaðið/Jim Smart Guðrún Birgisdóttir, Richard Simm og Sigurður Halldórsson skipa Tvíhliða tríóið. Nýja svið Borgarleikhússins Tónlist eftir Þórólf Eiríksson, Karólínu Eiríksdóttur, Sofiu Gubaydulinu, Harald Vigni Sveinbjörnsson, Úlfar Inga Haraldsson og Atla Ingólfsson. Laugardagur 3. apríl. TÓNLEIKAR Í 15:15 RÖÐINNI TVÆR sýningar verða opnaðar í Lista- safni ASÍ kl. 15 í dag. Í Ásmundarsal opn- ar Finna B. Steinsson myndlistarsýninguna „The Anatomy of Melancholy“ og Björk Guðnadóttir sýnir verk sín í Gryfju undir yfirskriftinni Framkvæmd innir athöfn. Á sýningunni í Ásmundarsal bregður Finna upp mynd af málefni sem menn hafa glímt við frá ómunatíð, þunglyndi. Hún styðst við verk Robert Burtons, 1577–1640, The Anatomy of Melancholy. Þetta 1.400 blaðsíðna verk þar sem Burton lýsir ekki einungis þunglyndi í sínum óteljandi myndum heldur einnig öllu sem í mann- legu valdi stendur til að vinna bug á því eða draga úr því. Finna lauk prófi frá Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands árið 1989 og Listaaka- demíunni í München árið 1992 og hefur starfað að myndlist síðan. Hún hefur stundum valið sér óhefðbundna sýning- arstaði, t.d. Vatnsdalshóla 1.000 veifur í Vatnsdalshólum), Norðurárdal í Borg- arfirði (Brýr að baki) og Bankastræti 0 (Kooks00). Af öðrum verkum hennar má nefna Út um stéttar, Tilraun um þúfu og Á frívaktinni. Vefsvæði hennar má finna á slóðinni www.finnabirna.com. Finna var um tíma formaður Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík og sat í menningarmálanefnd Reykjavíkur í nokkur ár. Tilvistarlegar hugleiðingar og mannlegt eðli er drifkrafturinn að listrænni vinnu Bjarkar Guðnadóttur. Björk vinnur í ýmsa miðla og sýnir nú skúlptúra og teikningar. Björk er fædd í Reykjavík 1969. Að loknu stúdentsprófi nam hún klæðskurð við ESMOD í París og myndlist við for- námsdeild Atelier Hourdé. 1994 hóf hún nám við Oslo Kunstakademi og var einn vetur við Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands sem skiptinemi, lauk MA-gráðu frá Umeå Konsthögskola Svíþjóð 1999 og hlaut viðurkenningu Umeå Kommun. Listasafn ASÍ er opið alla daga nema mánudaga kl. 13–17. Sýningin stendur til 9. maí og er aðgangur ókeypis. Tilvistarlegar hugleiðingar í ASÍ Morgunblaðið/Jim Smart Finna B. Steinsson innan um verk sín. Björk Guðnadóttir heldur á lofti boðskorti sýn- ingar sinnar fyrir ljósmyndarann Jim Smart. langflest eru verk nútímatónskálda, m.a. eru tvö ný lög við ljóð Jóns eftir Örlyg Benedikts- son sem voru samin sérstaklega af þessu til- efni. Flytjendur eru Gerður Bolladóttir, sópr- an og Kári Þormar, orgel. Jón Arason hólabiskup var eitt fremsta skáld sinnar tíðar og kveðskapur hans spannar allt frá kerskni, fjörlegum danskvæðum og lausavísum til heitra trúarljóða. Aðgangseyrir að tónleikunum er enginn en óskað er eftir frjálsum framlögum frá tónleika- gestum. KVÆÐI Jóns Arasonar biskups hafa nú verið gefin út á geisladiski, auk nokkurra höfuð- verka frá kaþólskum tíma. Geisladiskurinn ber heitið „Jón Arason – In memoriam.“ Útgáfu- tónleikar verða í Kristskirkju, Landakoti kl. 20 á morgun. Á tónleikunum verður flutt sérstök dagskrá þar sem lög Jóns verða flutt jafnhliða því að Hjörtur Pálsson rithöfundur flytur stutta kafla úr samtímaheimildum, á milli laga, um ævi Jóns biskups og atburðarás siðaskipt- anna. Lögin á disknum eru sum eftir gömlum kaþólskum handritum, önnur eru þjóðlög en Morgunblaðið/Jim Smart Kári Þormar, Gerður Bolladóttir og Hjörtur Pálsson. Kvæði Jóns Arasonar á geisladiski

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.