Lesbók Morgunblaðsins - 28.03.1998, Side 19
AF KORVERKUM
MOZARTS OG
HÁNDELS
í dag og á morgun, 28. og 29. mars, heldur Söngsveitin
Fílharmónía tónleika í Lanqholtskirkiu. ÞÓRHILDUR SIG-
URDARDÓTTIR og LIUA ÁRNADÓTTIR, félagar í Söngsveit-
inni, segja frá verkunum sem flutt verða á tónleikunum.
Morgunblaðið/Ásdís
SÖNGSVEITIN Fílharmónía á æfingu fyrir tónleika helgarinnar.
SÖNGSVEITIN Fflharmónía er með
elstu kórum sinnar tegundar hér á
landi og árlega gengst kórinn fyrir tón-
leikum þar sem flutt eru valin verk kór-
tónbókmenntanna sem skrifuð hafa verið fyrir
kór, einsöngvara og hljómsveit. Að þessu
sinni hafa verið valin verk eftir Georg
Friedrich Hándel (1685-1759) ogW.A. Mozart
(1756-1791).
Hándel samdi fjóra krýningarlofsöngva í
tilefni af krýningu Georgs II Englandskon-
ungs og Karólínu drottningar í október árið
1727 og verða tveir þeirra íluttir á þessum
tónleikum. Hándel hafði sýnt fram á að hann
hafði gott vald á vinsælum tónlistarstefnum
síns tíma og átti vel við hann að semja verk
hvort heldur var fyrir leikhús, knkjulegar at-
hafnir eða þjóðlegar hátíðir. Segja má að í lof-
söngvunum fyrir krýningarathöfnina sýni
Handel allar þessar hliðar í tónsköpun sinni.
Löng hefð var fyrir flutningi lofsöngva við
slíkar krýningarathafnir og voru textar sóttir
í Biblíuna, oft þeir sömu aftur og aftur. Sagan
segir að þegar Hándel var falið að semja lof-
söngva fyrir krýningarathöfnina hafi honum
verið gert að nota tiltekna texta. Hann á að
hafa svarað því til að hann þekkti Biblíuna
sína nógu vel til að treysta sér til að velja úr
henni texta við hæfi.
Prátt fyrir að lofsöngvar Hándels hafí ekki
verið í fullkomnu samræmi við viðteknar regl-
ur um slíkar athafnir, fór hann þó nokkuð
troðnar slóðir og sjálfstæði hans gagnvart
verkefninu kemur ef til vill einkum fram í vali
hans á einstökum versum. Má vera að hann
hafí einnig breytt röð lofsöngvanna í athöfn-
inni. Athöfnin hófst með „smurningu" og þar
var Zadok the Priest vel við hæfi. Textinn er
sóttur í Fyrri bók konunganna. Lofsönginn
The King shall rejoice hefði að réttu átt að
flytja þegar konungur var kynntur fyrir þjóð
sinni. Líklegra þykir þó að hann hafí verið
fluttur við sjálfa krýninguna. Textinn er úr
Sálmunum (21:2, 6 og 4). Stór kór og hljóm-
sveit tóku þátt í frumflutingnum og nýtti
Handel krafta þeirra vel. Textar lofsöngvanna
eru fagnaðarboðskapur, enda lýkur þremur af
þessum fjórum lofsöngvum með „hallelúja“-
kór, en í flestum þeirra eru líka lágværari
kaflar þar sem einungis lítill hluti hljómsveit-
arinnar leikur. Lofsöngvarnir hafa notið mik-
illa vinsælda og verið fluttir við ýmis tæki-
færi, bæði af andlegu og veraldlegu tilefni.
Fagnandi lofsöngur
Verk Mozarts á þessum tónleikum verða
mótettan Exultate, jubilate K. 165 og Messa í
c-dúr K. 317, sem kunn er undir heitinu Krýn-
ingarmessan. Mótettuna Exultate, jubilate
samdi Mozart fyrir geldinginn Venanzino
Rauzzini og var hún frumflutt af honum í
Mílanó í janúar árið 1773. Mótettan er fagn-
andi lofsöngur saminn fyrir einsöngvara (sópr-
an) og hljómsveit. Hún er í þremur þáttum;
hinn fyrsti hraður og glaðlegur: „Fagnið, gleðj-
ist ...“, annar þáttm-inn hlýtt og innilegt ákall
til Maríu, og sá síðast aftur hraður og fagn-
andi: Hallelúja. Alfred Einstein hefur lýst
þessari þriggja þátta mótettu sem „agnarlitl-
um konsert, sem í glæsileika og mýkt stendur
þó nánast jafnfætis fullgildum konsert fyrir
einleikshljóðfæri og hljómsveit," en mótettan
er með vinsælustu æskuverkum tónskáldins.
Krýningarmessan varð til skömmu eftir að
Mozart fékk stöðu hirðorganista í Salzburg.
Stórbrotinn stfll hennai’ og hljóðfæraskipan
benda til þess að hún hafí verið samin af sér-
stöku tilefni og mun hún hafa verið frumflutt í
dómkirkjunni í Salzburg á páskum árið 1779.
Lengi var talið að viðurnefnið „Krýningar-
messa“ tengdist því að hún hefði verið flutt við
helgun Maríu-líkneskis í kirkju einni nærri
Salzburg. Nú hallast menn fremur að því að
nafnið hafi messan fengið þegar hún var flutt
þegar konungur var krýndur í Prag, hvort
heldur það var við krýningu Leopolds annars
árið 1791 eða þegar Frans, sem tók við kon-
ungdómi af honum ári síðar, var krýndur.
Messumar sem Mozart samdi í Salzburg
urðu að hlíta kröfu erkibiskupsins um að mess-
ur tækju ekki lengri tíma en 45 mínútur. Þetta
skýrir knappan stfl einstakra þátta „Krýning-
armessunnar" og sömuleiðis „hómófónískan"
rithátt kórþáttanna. Hluta af verkinu má
þekkja aftur í tveimur af óperum Mozarts og
er það annars vegar vissir þættir sem minna á
atriði í Cosi van tutte og Agnus dei-kaflinn
svipar til ákveðinnar aríu í óperunni Brúðkaup
Fígarós.
Einsöngvarar á tónleikunum verða þau
Signý Sæmundsdóttir sópran, Alina Dubik alt,
Snorri Wium tenór og Eiríkur Hreinn Helga-
son baríton. Hljómsveitin er skipuð 26 hljóð-
færaleikurum og er konsertmeistari Rut Ing-
ólfsdóttir. Stjórnandi er Bernharður Wilkinson
sem hefur verið kórstjóri Söngsveitarinnar frá
haustinu 1996.
ERFITT AÐ PRÍLA HÁA E-IÐ
Skólahljómsveit Grafarvogs er eina brassbandið hér ó
1 andi, í daq heldur hún afmælistónleika í Félaqsmið-
stöðinni Fjörqyn í Grafarvogi. HILDUR EINARSDÓTTIR
/Iqdist með a ífinqum oq ræddi við stjórnanda hljóm-
sveitarinnar oq nokkra meðlimi.
AÐ var ys, þys og læti í krökkunum áður
en hljómsveitaræfingin hófst í Folda-
skólanum. Þegar stjórnandi sveitarinnar
og stofnandi hennar, Jón E. Hjaltason,
sté fram og sagði þeim að nú ættu þau að setj-
ast og taka fram hljóðfærin sín þurfti ekki að
segja þeim það nema einu sinni. Jón gaf síðan
merki með tónsprotanum og æfíngin hófst.
Það eru fimm ár síðan Skólahljómsveit Graf-
arvogs var stofnuð. Hljómsveitina skipa nem-
endur úr grunnskólum Grafarvogs og
nokkrum framhaldsskólum. Kennslan á hljóð-
færin fer fram í grunnskólunum sjálfum eftir
skólatíma þannig að tónlistarkennslan fellur
inn í hefðbundinn skóladag. Allh- nemendurnir
hafa aðgang að hljómsveitinni svo lengi sem
hljóðfæri eru til.
„Þessi hljómsveit er sérstök að því leyti að
hún er eingöngu skipuð málmblásturshljóðfær-
um og er því eina brassbandið á íslandi," segir
Jón þegar við ræðum við hann fyrir æfinguna.
I hljómsveitum sem þessum eru gerðar miklar
hæfniskröfur til hljóðfæraleikaranna. Jón út-
skýrir af hverju það er. „í Bretlandi og Frakk-
landi var það aðeins aðallinn sem fékk að
spreyta sig á að leika á það sem þá var kallað
alvöru hljóðfæri eins og fiðlu, selló og pínaó.
Þeir sem minna máttu sín léku á málmblást-
urshljóðfæri sem ekki þóttu eins fín. Málm-
blásturshljóðfæraleikararnir sættu sig ekki við
að spila óæðri tónlist heldur vildu leika sin-
fónísk verk sem voru sérstaklega útsett fyrir
málmblásturshljóðfæri, rödd fyrir rödd. Það er
að segja kornettar tóku við fiðluröddunum og
tenór túban við selló röddunum og svo fram-
vegis en svona hljóðfæraleikur krefst mikillar
leikni," segir Jón. „Það er einmitt þetta sem
við erum að gera, við leikum sinfónísk verk
jafnframt því að takast á við léttari lög sem við
flytjum á skemmtunum og ýmsum uppákom-
um.
Eg var svo heppinn að fá í upphafi úrvals
nemendur og leika þeir enn með hljómsveit-
inni,“ heldur Jón áfram. „I hljómsveitinni eru
nú fimmtíu og fimm hljóðfæraleikarar og
skiptast þeir í þrjá hópa eftir aldri og getu.“
Það er óhætt að segja að efnisskráin á tón-
leikunum á laugardaginn, sem hefjast stund-
víslega klukkan tvö, sé fjölbreytt. Yngstu börn-
in leika meðal annars létt dægurlög eins og
Lemon tree. Þá verða leikin lög sem krefjast
mikillar tæknikunnáttu hjá þeim sem leika á
kornett og er Tropet polkinn dæmi um það.
Básúnuleikararnir fá að spreyta sig á Tronbo-
ne rockanova sem er fjörugt sveiflulag. Og sólo
kornett leikari hljómsveitarinnar, Steinar
Björnsson, mun leika verkið Rendezvous eftir
Jan Hadermann við undirleik hljómsveitarinn-
ar. I því verki þarf hann að prfla háa E-ið eins
og Jón orðar það en það getur verið erfitt.
Eftir afmælistónleikana verður svo yngstu
meðlimum hljómsveitarinnar boðið upp á pizzu
og verða það eldri nemendurnir sem þjóna
þeim til borðs. Eftir pizzuveisluna fara eldri
nemendurnir út að borða með kennurum og
stjórnanda hljómsveitarinnar.
í tónleikaferð til Portúgal
Jón segir að krakkai-nh- haldi mjög vel sam-
an félagslega ekki síður en á tónlistarsviðinu.
„Það má segja að tónlistarskólinn virki eins og
félagsmiðstöð," segh1 hann. ,A bak við þetta
starf stendur svo öflugt foreldrafélag sem tek-
ur þátt í starfseminni af lífi og sál.“
Morgunblaðiö/Þorkell
Á TÓNLEIKUM Skólahljómsveitar Grafarvogs má heyra fjörug sveiflulög og klassíska tónlist í
flutningi þessara ungmenna. Þau heita, talið frá vinstri, Auður Hreiðarsdóttir, Steinar Björns-
son og Sandra Lind Jónsdóttir.
Undir þetta tekur Steinar Björnsson sem á
að leika einleik á tónleikunum eins og áður
segir. Hann hefur verið í hljómsveitinni frá
upphafi. Segir hann andann í hópnum góðan og
þau standi vel saman.
En ætli hann sé stressaður fyrir tónleikana?
„Nei, ekki tiltakanlega. Þó er verk Jan
Hadermanns krefjandi. En það er mjög fallegt
og rólegt verk. Skemmtilegast finnst mér þó að
spila hraða tónlist sem krefst fingratækni eins
og í Spanish Gypsy sem verður flutt á tónleik-
unum,“ segh’ hann.
Það kemur fram í máli Söndru Lindar Jóns-
dóttur að hún hefur mest gaman af að leika
dægurlög. Sandra hefur verið tvö ár að læra á
kornett. Hún segist æfa sig reglulega en eftir
klukkan átta á kvöldin og á laugardagsmorgn-
um sé bannað að æfa sig heima hjá henni.
„Jú, mömmu finnst stundum leiðinlegt að
hlusta á mig æfa mig þó sérstaklega þegar ég
er að spila stef úr lögum sem ég er að æfa með
hljómsveitinni en ekki heilar laglínur," segir
hún.
Auði Hreiðarsdóttur finnst skemmtilegast
að leika á tónleikum en hún leikur á kornett.
Er þetta þriðja árið sem hún leikur með Skóla-
hljómsveit Grafai-vogs. Hún á tvö systkini sem
bæði leika á hljóðfæri; annað á kornett og hitt
á píanó og svo leikur faðir þeirra á gítar.
Stundum leika þau saman lag heima hjá sér og
það finnst Auði ekki síður skemmtilegt en að
leika á tónleikum.
Hvað er framundan hjá hljómsveitinni?
„Það eru æfingar og tónleikar til skiptis. Við
erum beðin að spila við hin ýmsu tækifæri eins
og við vígslu bygginga, í afmælum og skemmt-
unum hjá íþróttafélögum svo eitthvað sé
nefnt,“ segir stjórnandinn. „I sumar fórum við
svo í tónleikaferð til Portúgal og hlakka allir til
þeirrar farar.“
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 28. MARZ 1998 19