Lesbók Morgunblaðsins - 28.03.1998, Síða 6
NORRÆNT
GRAFÍKÞRÍÁR
ÞRIÐJA SINNI
RAUNVERULEIKI og ímynd er yfír-
skrift Norræns grafíkþríárs sem er nú
haldið þriðja sinni í Norræna húsinu á
vegum Norræna hússins og félagsins
Islenskrar grafíkur. Sýningin verður opnuð í
dag, laugardaginn 28. mars, kl. 15. Par er að
fínna verk 7 norrænna listamanna sem allir
eru menntaðir á sviði grafíklistar. Gestur
sýningarinnar er pólski grafíklistamaðurinn
Stanislaw Wejman.
Grafíklistakonan Sigrid Valtingojer hefur
haft umsjón með vali á listamönnum _og upp-
setningu sýningarinnar fyrir hönd íslenska
grafíkfélagsins. Pegar blaðamann ber að er
verið að leggja lokahönd á uppsetningu í sýn-
ingarsal Norræna hússins. Um er að ræða
verk dönsku grafíklistakonunnar Helle Fro-
sig, stórar dúkristur sem hafa verið hengdar
beint upp á vegg, án ramma og glers, eins og
almennt tíðkast. 42 smámyndir í innri salnum
eftir Urban Engström frá Svíþjóð hafa ratað
upp á vegg með svipuðum hætti. „Það er mis-
skilningur að ramma grafíkmyndir alltaf
inn,“ segir Sigrid. „I grafíklist mynda pappír-
inn og þrykkið á yfirborði hans eina heild og
þess vegna er engin ástæða til að fela áferð
pappírsins á bak við gler. Pessu held ég að
fólk hér á landi sé smám saman að átta sig á
eins og annars staðar. Einu verkin sem enn
voru ekki komin upp eru um tveggja metra
stór verk eftir þekkta grafíklistakonu frá
Noregi, Sonju Krohn. A morgun, sunnudag-
inn 29. mars, kl. 16 heldur Sonja fyrirlestur í
fundarsal Norræna hússins sem hún nefnir
Mellem Munch og Rubljov.
Aldrei meira að gerast í
grafík en einmitt nú
Fyrir 10 árum var haldin stór alþjóðleg
grafíklistasýning, Grafica Atlantica, að Kjar-
SÆNSKI listamaðurinn Urban Engström sýn-
ir 42 smáar ætingar án titils.
valsstöðum með þátttöku um 20 erlendra
listamanna og fjölmargra íslenskra. Vel þótti
til takast og viðtökur voru góðar. Sigrid segir
að þá hafi verið ákveðið að reyna að halda
áfram og viðhalda þeim áhuga á grafíklist
sem þarna kom svo berlega í ljós. Því var það
að árið 1988 var efnt til fyrstu samsýningar
norrænna grafíklistamanna í Norræna hús-
Morgunblaðið/Kristinn
SIGRID Valtingojer grafíklistakona er sýningarstjóri þriðja Norræna grafíkþríársins sem hald-
ið er í Norræna húsinu. í bakgrunni eru verk eftir dönsku grafíklistakonuna Helle Frosig.
inu að frumkvæði þáverandi forstjóra þess,
Knuts 0degárds. Verkin eru öll unnin sér-
staklega fyrir þessa sýningu en undirbúning-
ur hennar hefur staðið yfír í ár. Auk fyrr-
nefndra eru þátttakendurnir þau Antti
Tanttu frá Finnlandi, Marius Olsen frá
Færeyjum, Anne-Birthe Hove frá Grænlandi
og Hafdís Ólafsdóttir frá íslandi. Petta eru
ungir og reyndari grafíklistamenn í bland og
jafnmargir af hvoru kyni. Færeyingar og
Grænlendingar hafa ekki áður tekið þátt í
Norræna grafíkþríárinu. Þessar þjóðir teljast
nú fullgildir þátttakendur í.Norðurlandasam-
starfi grafíklistamanna og geta norrænir
listamenn sótt um að dvelja á grafíkverk-
stæðum í þessum löndum rétt eins og á hin-
um Norðurlöndunum.
Sigrid segir að þrátt fyrir fjölbreytt val á
listamönnum frá Norðurlöndunum og ólíkan
aldur þátttakenda sé ógerningur að ætla sýn-
ingu sem þessari að varpa ljósi á allt það sem
er að gerast í listgi-eininni á Norðurlöndum.
„Nú sem aldrei fyrr er svo margt spennandi
að gerast. Allskonar nýr tæknibúnaður er að
koma fram sem eykur á möguleika grafíklist-
arinnar. En það er aldrei hægt að ná sömu
áhrifum með nýjum aðferðum og með ætingu
eða öðrum hefðbundnum aðferðum. Þess
vegna ákvað ég, án þess þó að vera á móti
nýrri tækni, að leggja áherslu á handverkið í
vali mínu á listamönnum. Því það tekur alltaf
tíma að tileinka sér handverk þessa listforms
og það krefst bæði kunnáttu og reynslu að
vera góður grafíklistamaður.“
SÁLIR JÓNANNA HJÁ HUGLEIK
, Morgunblaðlö/Þorkell
„ÞVI andskotinn bíður búinn þar, breyskar að hremma sálirnar," segir í Hugleikverkinu Sálir Jónanna ganga aftur, sem frumsýnt verður í
Möguleikhúsinu við Hlemm i kvöld.
HUGLEIKUR stígur á svið 15. árið í
röð með sýningu á nýju leikverki,
Sálir Jónanna ganga aftur, í Mögu-
leikhúsinu við Hlemm. Leikritið
byggist á verki sem Hugleikur sýndi fyrir 12
árum og hét Sálir Jónanna. Grunnhugmynd-
in er gömul þjóðsaga, sú hin sama og í
Gullna hliði Davíðs Stefánssonar. Efnistökin
eru þó allt önnur og Jónarnir nú fjórir auk
þess sem tónlist og söngur skipa stóran
sess, enda eru Hugleiksmenn miklir aðdá-
endur óperuformsins. Segja þeir að leikhóp-
urinn starfi eftir sem áður í þeim póst-
móderníska ungmennafélagsanda sem Hug-
leikur hafi orðið þekktastur fyrir á liðnum
árum. Frumsýnt verður í kvöld, laugardag-
inn 28. mars, og eru sýningar áætlaðar fram
í byrjun maí.
Uppfærslur Hugleiks eru jafnan á frum-
sömdum verkum eftir leikfélagana. Arlega
setur Hugleikur á svið eina til tvær stærri
leiksýningar auk smærri verkefna. í Sálum
Jónanna segir frá fjórum Jónum sem gefa
upp öndina um svipað leiyi hér á uppi á Is-
landi. Djöfullinn hugsar sér gott til glóðar-
innar og hyggst ná þessum fjórum sálum því
þunnskipað er í helvíti. Með ýmsum ráðum
reynir hann að tæla maka Jónanna sem eru
á leið með sálirnar til himnaríkis - og það
tekst - næstum því. Meira fékkst ekki upp
gefið hjá leikhópnum um söguþráð verksins.
Leikarar eru 20 auk Hugleikshljómsveitar-
innar og kórs Hugleiksóperunnar en að-
standendur sýningarinnar eru alls um 50
talsins. Leikstjóri er Viðar Eggertsson.
„Leikritið er orðið hálfgerður söngleikur,"
segir Gunnar Halldór Gunnarsson Hugleiks-
maður. Hulda B. Ingunnardóttir, formaður
leikfélagsins, segir að þau séu öll óperu-
dýrkendur. Sami kjarni fólks hefur staðið að
Ieikhópnum frá stofnun. „Enda þorir ekkert
okkar að fara í persónuleikapróf!" segir
Hulda og hlær. „Þó eru alltaf einhverjir nýir
kraftar sem leggja okkur lið svo um leið og
reynslan er fyrir hendi þá á sér stað endur-
nýjun og það er mjög góð blanda.“ Gunnar
segir að það sé fyrir öllu hjá leikhópnum að
skemmta sjálfum sér - og síðan öðrum.
Ekkert er í húfi nema áhuginn og leikgleð-
inn. „Því ef okkur fyndist ekki gaman þá
værum við ekki enn að.“
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 28. AAARZ 1998