Lesbók Morgunblaðsins - 28.03.1998, Side 2
ERILL HJÁ SÓLRÚNU BRAGADÓTTUR í ÞÝSKALANDI
Syngur í lítt þekktri
óperu eftir Haydn
SÓLRÚN Bragadóttir sópransöngkona tekur
þátt í frumsýningu á óperu Haydns, Orlando
Paladino, í Ríkisleikhúsinu í Kassel í Þýska-
landi í kvöld. Fer söngkonan með hlutverk
drottningarinnar í sýningunni.
Orlando Paladino er ekki í hópi þekktari
verka Haydns og segir Sólrún langt um liðið
frá því óperan var flutt síðast í Þýskalandi.
„Þessi ópera er nánast óþekkt, eins og flestar
óperur Haydns. Nóturnar fást ekki á
aímennum markaði og aðeins er til ein plötuút-
gáfa.“
Þykir söngkonunni þetta sæta furðu, því um
ákaflega fallegt verk sé að ræða. „Þar fyrir ut-
an er alltaf gaman að gera hluti sem ekki er
hefð fyrir og það hefur verið virkilega góð
stemmning í hópnum. Þá höfum við fundið fyr-
ir þvl að íbúar Kassel bíða spenntir eftir þess-
ari uppfærslu og mér kæmi ekki á óvart þótt
fólk ætti eftir að koma víða að til að sjá hana.
Haydn trekkir alltaf að!“
Stefnt er að því að taka óperuna upp á
geislaplötu í júní næstkomandi.
Það er skammt stórra högga á milli hjá Sól-
rúnu því annað kvöld heldur hún áleiðis til Ki-
el, þar sem æfingar á Don Carlos eftir Verdi
hefjast á mánudag. Frumsýnt verður 10. maí
og mun Sólrún einnig fara með hlutverk
drottningar í þeirri sýningu, Elísabetar.
„Þetta er hvort tveggja frábært hlutverk,
þótt þau séu ólík. Hlutverkið í Orlando Palad-
ino er hærra en bæði eru þau krefjandi. Það er
reyndar alltaf krefjandi að æfa eitt hlutverk og
læra annað á sama tíma.“
Sólrún segir leiklistina gegna veigamiklu
hlutverki í sýningunni í Kassel - leikstjórinn
fari djúpt ofan í persónur óperunnar. I Kiel á
hún aftur á móti von á hefðbundnari óperusýn-
ingu, með minni hreyfingu og minni „sálkönn-
un“, ef svo má að orði komast.
A þessu má sjá að erilsöm tíð er framundan
hjá Sólrúnu, sem mun verða tíður gestur í lest-
inni frá Kiel til Kassel á næstunni. Þá gerir
hún sér vonir um að geta stungið annað veifið
FRÁ Sjónþingi Braga Ásgeirssonar sem haldið var í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi 10.
febrúar 1996. F.v. Jón Proppé, Sigurður A. Magnússon, Bragi, Hannes Sigurðsson og Einar
Hákonarson.
SJÓNÞING
HEFJAST AÐ NÝJU
SJÓNÞING Gerðubergs hefjast aftur eftir
árslangt hlé nk. laugardag, 4. apríl, kl. 11 árdeg-
is. Myndlistarkonan Hulda Hákon situr þá fyrir
svörum og rekur feril sinn í máli og myndum.
Sjónþinginu verður eftir sem áður fylgt úr hlaði
með tveimur sýningum, í Gerðubergi, þar sem
20 ára ferill listakonunnar verður rakinn og í
Galleríi Sævars Karls í Bankastræti 7, þar sem
opnuð verður sýning á nýjum verkum Huldu.
Stofnað var til Sjónþinganna að tilhlutan
Hannesar Sigurðssonar listfræðings, sem þá
starfaði sem menningarfulltrúi Gerðubergs og
rak jafnframt sýningarsalinn Sjónarhól við
Hverfisgötu. Fyrir ári sagði Hannes starfi sínu
lausu í Gerðubergi og á sama tíma var húsnæði
Sjónarhóls selt. Þegai' Islenska menningarsam-
steypan art.is tók að sér umsjón með sýningar-
haldi í hinu nýja Galleríi Sævars Karls gafst
tækifæri til að taka aftur upp þráðinn þar sem
frá var horfíð og art.is og Gerðuberg hafa nú
gert með sér samstarfssamning um áframhald
Sjónþinganna. Umsjónarmaður þeirra er Hann-
es Sigurðsson, forstjóri art.is.
Sjónþing Huldu Hákon er það tíunda í röð-
inni. Spyrlar að þessu sinni verða Halldór Björn
Runólfsson, listfræðingur, og Egill Helgason,
fréttamaður. Þá verður tekið við fyrirspurnum
úr sal. Sjónþingum Gerðubergs er ætlað að
veita persónulega sýn inn í feril þekktra ís-
lenskra samtímalistamanna með það fyrir aug-
um að endurskoða framlag þeirra og rifja upp
farinn veg.
DÓMUR TLS UM ÞÝÐINGAR Á ÍSLENDINGA SÖGUM
AfbragSsgóSar, ná-
kvæmar og læsilegar
í NÝJASTA tölublaði The Times Literary
Supplement birtist ritdómur um nýja enska út-
gáfu á íslendinga sögum sem kom út í ritstjóm
Viðars Hreinssonar hjá íslenska útgáfufyrir-
tækinu Leifi Eiríkssyni í fyrra. Höfundur
dómsins er Carolyne Larrington og gefur hún
þýðingunum lofsamlega dóma. Hún segir að ís-
lendinga sögur séu ekki lengur hluti af al-
mennri þekkingu fólks um allan heim eins og
þær virðast hafa verið fyrr á öldinni, það hafi
því verið brýn þörf á þessum þýðingum.
„Þýðingamar era yfirleitt afbragðs góðar,
nákvæmar og læsilegar,“ segir Carolyne, „þær
eiga örugglega eftir að verða hin viðurkennda
enska útgáfa á sögunum.“
Carolyne segir enn fremur að sami gmnd-
vallartónninn sé í öllum þýðingunum sem komi
til af því að þýðing á föstum orðasamböndum
sem koma fyrir aftur og aftur 1 sögunum er
samræmd. Samt sem áður segir Carolyne að
einstaklingsbundinn tónn þýðenda skíni stund-
um í gegn. Þýðendur hafi líka að rnestu forðast
fymsku og að binda sig um of við íslenskuna.
Vísur segir hún og vel þýddar.
Stundum segir Carolyne þó að þýðendum
takist misvel að koma til skila ummælum hinna
ólíku hetja, svo sem þegar Gunnari þykir hlíðin
svo fögur að hann ákveður að fara hvergi.
Carolyne segir að þegar útgefendurnir hafi
fundið leið til að markaðssetja þýðingarnar
muni þær aftur fá þann sess í evrópskri menn-
ingarsögu sem þær eigi skilið.
Sólrún Bragadóttir
við stafni í Hannover, þar sem hún býr ásamt
fjölskyldu sinni. „Eg er búin að vera í hálf-
gerðri útlegð frá heimili mínu frá því síðastliðið
sumar, fyrst heima á Islandi, m. a. vegna sýn-
ingar Islensku ópemnnar á Cosi fan tutte eftir
Mozart og nú út af þessum sýningum tveimur.
Nú bind ég aftur á móti vonir við að geta skot-
ist heim inn á milli æfinga og sýninga."
Prix-Jeunesse-hátíðin
Músin Marta
í úrslit
BARNAMYNDIN Músin Marta, framlag Sjón-
varpsins í leikinni þáttaröð innan barna- og
unglingadeilda norrænu sjónvarpsstöðvanna
1996, var valin í úrslit á
Prix-Jeunesse kvikmynda-
hátíðinni, sem haldin verður
í Múnchen í Þýskalandi í
júní næstkomandi. Myndin
var valin fyrir aldurshópinn
7-12 ára ásamt fleiri mynd-
um frá þekktum sjónvarps-
stöðvum hvaðanæva úr
heiminum. Leikstjóri og
handritshöfundur myndar-
innar er EgOl Eðvarðsson
kvikmyndagerðarmaður.
Myndin er byggð á sögu
Jennu Jensdóttur rithöfundar sem upphaflega
var skrifuð íyrir lítinn vin hennar og frænda,
Hrólf Þorrason. Byggir Jenna hana á eigin
reynslu er hún var bam í sveit. Þar voru haga-
mýsnar vinir hennar og hún fylgdist með lífi
þeirra og baráttu.
Kvikmyndatöku annaðist Páll Reynisson. 21
mynd komst í úrslit og fer verðlaunaafhending-
in fram við hátíðlega athöfn i lok hátíðarinnar.
MENNING/
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinsson-
ar.
Gallerí Fold
Ólöf Kjaran. Til 5. apríl.
Gallerí Horn
Ljósmyndasýning Kjartans Einarssonar. Til
15. apríl.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
Bjarni Sigurbjömsson og Helgi Hjaltalín Eyj-
ólfsson. Til 2. apríl. Stefán Geir Karlsson. Til 1.
apríl
Gallerí 20 fm
Svava Bjömsdóttir. Til 29. mars.
Gallerí Sýnibox: Sýning á símbréfum.
Gallerí Hlust: Haraldur Karlsson kynnir
„Harðstjórann". Síminn er_551 4348.
Gallerí Barmur: Sigurður Arni Sigurðsson.
Kvennasögusafn íslands, Þjóðarbókhlöðu
Rúna (Sigrún Guðjónsdóttir) er myndlistar-
maður marsmánaðar.
Listasafn Akureyrar
Vatnslitamyndir Asgríms Jónssonar. Til 19.
apríl.
Listasafn Einars Jónssonar
Verk í eigu safnsins. Leiðsögn um safnið og
íbúð listamannsins laugardag og sunnudag kl.
15.
Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn
Elías B. Halldórsson, Matthea Jónsdóttir og
Einar Þorláksson. Til_29. mars.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sýning vetrarins nefnist Svífandi form. Verk
eftir Sigurjón Ólafsson. Til 5. apríl.
Listhús Ófeigs Bjömssonar, Skólavörðustíg 5
Jóhann G. Jóhannsson. Til 29. mars.
Hallgrímskirkja, anddyri
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar í Iist
Sveins Björnssonar til 5. apríl.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Sigurður Ámi Sigurðsson. Til 29. mars.
Kjarvalsstaðir
Vestursalur: Rúrí. Miðsalur: Ólafur Elíasson.
Til 13. apríl.
Landsbókasafn Islands - Háskólabókasafn
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar - frá
handriti til samtíðar. Til 9. apríl.
Listasafn ASÍ - Ásmundarsalur,
Freyjugötu 41
Ásmundarsalur: Sigurður Magnússon. Gryfja:
Steingrímur Eyfjörð. Til 29. mars. Arinstofa:
Ný aðföng. Til 29. mars.
Listasafn íslands
Salur 4: Ásgrímur Jónsson, Þórarinn B. Þor-
láksson, Jón Stefánsson Jóhannes Kjarval.
Mokkakaffi
Nína Magnúsdóttir. Til. 2. apríl.
Norræna húsið
Norrænt grafíkþríár: Helle Frosig, Antti
Tanttu, Marius Olsen, Anne-Birthe Hove, Haf-
dís Ólafsdóttir, Sonja Krohn, Urban Engström
og Stanislaw Wejman. Til 26. apríl.
Nýlistasafnið
Marlene Dumas, Þór Vigfússon, Gary Hume,
Georgie Hopton, Ráðhildur Ingadóttir og Tumi
Magnússon. Til 29. mars.
Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaðastræti 74
Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Til marsloka.
SPRON, Álfabakka 14, Mjódd
Bragi Ásgeirsson. Til 5. júní.
Stofnun Árna Magnússonar,
Árnagarði v/Suðurgötu
Handritasýning. Til 15. maí.
Stöðlakot, Bókhlöðustig 6
Jónas Bragi Jónasson.
TÓNLIST
Laugardagur 28. mars
Selfosskirkja: Kammerkór Suðurlands og
Agnes Löve. Kl. 16.
Víðistaðakirkja: Kvennakór Hafnarfjarðar. Kl.
17.
Langholtskirkja: Söngsveitin Fílharmonía;
Signý Sæmundsdóttir, Alina Dubik, Snorri Wi-
um og Eiríkur Hreinn Helgason. Kl. 17.
Ráðhús Reykjavíkur: Borgarkórinn. Kl. 15.
Sunnudagur 29. mars
Hafnarborg: Tríó Reykjavlkur. KI. 20.
Langholtskirkja: Söngsveitin Fílharmonía;
Signý Sæmundsdóttir, Alina Dubik, Snorri Wi-
um og Eiríkur Hreinn Helgason. Kl. 20.
Digraneskirkja: Kammerkór Suðurlands og
Agnes Löve. Kl. 16.
Listasafn fslands: Stefán Ragnar Höskuldsson,
flautuleikari og Elizaveta Kopelman, píanóleik-
ari. Kl. 20.30.
Hveragerðiskirkja: Kammertónleikar; Jón Að-
alsteinn Þorgeirsson klarinettuleikari, Sigurð-
ur Halldórsson sellóleikari og Örn Magnússon
píanóleikari. KI. 17.
Mánudagur 30. mars
Hafnarborg: Mda Ingibergsdóttir. Kl. 20.30.
Gerðarsafn: Ármann Helgason, Guðmundur
Kristinsson, Miklos Dalmay. Kl. 20.30.
Þriðjudagur 31. mars
Norræna húsið: Háskólatónleikar. Jazztríó
Carls Möller ásamt strengjasveit. Kl. 12.30.
Miðvikudagur 1. apríl
Hafnarborg: Kolbeinn Bjarnason og Valgerður
Andrésdóttir. Kl. 20.30.
Listasafn íslands: Kór MR. Kl. 20.30.
Fimmtudagur
Háskóli Islands: SÍ. Óperutónlist. Sigrún
Hjálmtýsdóttir.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Óskastjaman, þrið. 31. mars. Fim. 2. april.
Fiðlarinn á þakinu, lau. 28. mars. Fös. 3. apríl.
Grandavegur 7, sun. 29. mars.
Meiri gauragangur, mið. 1. apríl.
Poppkorn, fim. 2. apríl.
Borgarleikhúsið
Sumarið ‘37, lau. 28. mars. Fim. 2. apríl.
Galdrakarlinn í Oz, sun. 29. mars.
Hár og hitt, fös. 3. apríl.
Feitir menn í pilsum, fös 3. apríl.
Sex i sveit, lau. 28. mars. Fim. 2. apríl.
Feður og synir, sun. 29. mars.
Loftkastalinn
Bugsy Malone, lau. 28., sun. 29. mars.
Fjögur hjörtu, lau. 28. mars. Fös. 3. apríl.
Trainspotting, fim. 2. apríl.
fslenska óperan
Ástrardrykkurinn, lau. 28. mars.
Hafnarfjaröarleikhúsið
Síðasti bærinn í dalnum, lau. 28., sun. 29. mars.
Kaffileikhúsið
Svikamyllan, lau. 28. mars. Mið. 1. apríl.
Leikfólag Akureyrar
Söngvaseíður, Iau. 28., sun. 29. mars. Fös. 3.
apríl.
Möguleikhúsið
Sálir Jónanna ganga aftur, frums. lau. 28.
mars. Sun. 29. mars. Fös. 3. apríl.
Einar Áskell, sun. 29. mars.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er
eftir að birtar verði í þessum dálki verða að
hafa borist bréflega eða á netfangi fyrir kl.
16 á miðvikudögum merktar: Morgunblaðið,
Menning/listir, Kringlunni 1, 103 Rvík.
Myndsendir: 5691222. Netfang: menning-
@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 28. MARZ1998