Lesbók Morgunblaðsins - 07.02.1981, Blaðsíða 16
u
Samtalið við James Mason er truflað
af símhringingu. Það er umboðsmaður
hans, sem hringir.
„Nei, ég skipti ekki um skoðun." Hann
hækkar röddina. „Stundum veröur maður
að lifa eftir ákveðnum meginreglum. Ég
kæri mig ekki um, að dýr séu kvalin til aö
skemmta fólki."
Hann leggur símtóliö á. Þar með
hafnaði hann hlutverki í myndinni „Fire-
power", eftir Winner, vegna þess, að í
henni átti að fara fram hanaat.
„Það er óhugsandi aö maður sé að
meiða skepnur sér til skemmtunar," segir
Mason. „Ég ætla ekki að veröa þátttak-
andi í því að efna til hanaats."
Eins og Mason hefur alltaf gert á sínum
langa leikferli, þá lét hann hér í Ijós álit
sitt, án allra vífilengja. Hann er nú
sjötugur, en lítur út fyrir að vera tíu árum
yngri. Gránandi hárið, sem fariö er aö
þynnast, greiðir hann til hliðar, augun eru
dökk og skær. Hann er alltaf jafn
hreinskilinn og blátt áfram. Á næstunni
ætlar hann til New York og troöa þar upp
á sviði í fyrsta skipti í 32 ár. Um þaö segir
hann: „Leiöinlegt. Þetta er sérstaklega
taugatrekkjandi fyrir alla aöila. Ég veit
ekki, hvort þeir taka þessu með meiri ró í
Englandi, en Broadway er svo viðkvæmt
fyrir gagnrýni, aö þaö nálgast algjöra
taugaveiklun."
Trúarlæknirinn (Faith Healer), eftir
írska leikritaskáldiö Brian Friel (Höf.
Philadelfia, Here I Come) verður einnig
leikið af konu Masons, áströlsku leikkon-
unni Clarissa Kaye og Ed Flanders. Því
James Mason á gangi nálægt heimili sínu í Vevey, Svisslandi.
James Mason sáttur heim
verður leikstýrt af José Quintero. Mason
leikur írskan farandtrúarlækni, og í för
með honum eru kona hans og umboös-
maöur.
„Þetta er einkennilegt leikrit," segir
hann, „þreytandi fyrir áhorfendur, því það
samanstendur af fjórum eintalsþáttum."
Mason kom síðast fram á Broadway
1947 ásamt þáverandi eiginkonu sinni,
Pamelu Kellino, í algjörlega misheppnuöu
stykki, sem nefndist „Bathsheba". A þeim
tíma gat hann ekki leikið í kvikmyndum,
vegna mikilla málaferla, er hann átti í,
gegn David Rose, en eitt sinn stóð til, aö
þeir stofnuöu saman kvikmyndafélag.
„Ég varð að berjast eins og Ijón og
koma þessum málum á hreint og það
kostaði mig mikinn og góðan leiktíma og
100 þús. dali til lögfræðinga. En leikritiö
gat dreift huganum dálítið."
Hann og Clarissa höfðu á sínum tíma
ráögert að færa upp fáeina einþáttunga í
Mermaid-leikhúsinu í London, en því var
þá lokað einhverra hluta vegna.
Á síðustu árum hefur Mason leikiö í
fjórum stórmyndum. í myndinni „The
Passage" leikur hann Ameríkana, sem
lendir í fangabúðum Þjóöverja í Frakk-
landi, ásamt þeim Patricia Neal, Malcolm
McDowell og Anthony Quinn.
í myndinni „Drengirnir frá Brazilíu"
(sýnd hér nýlega) leikur hann meö Sir
Laurence Olivier og Gregory Peck. Þar
'eikur hann gamlan Nazista, sem býr í
Paraguay. í „Bloodline" leikur hann
frænda Audrey Hepburn. Sú mynd
kostaði 12 milljónir dala og er tekin í
Róm, París, á Sardiníu, í London,
Múnchen og New York.
„Ég er einn af þessum veistæðu
mönnum með nafn, Rolls Royce og
Bentley, á húseign á Eaton Square og
sveitarsetur í Gloucestershire, ásamt
hesthúsum. Ég er hissa á því hve fáir
slíkir eru orðnir eftir í Englandi núna."
Leikur hans sem Dr. Watson í „Morö
eftir fyrirskipun" er talinn eitt þaö allra-
besta, sem hann hefur sýnt af sér á ferli
sínum. Þar var hann „sá svarti senuþjóf-
ur.“
Með sinni miklu reynslu og leiktækni,
Moira Hodgson
ræðir við
kvikmynda-
leikarann,
sem nú býr í
Sviss
ásamt valdsmannslegu og rólegu fasi,
verður alltaf þörf fyrir hann í miklum
skapgerðarhlutverkum, eins og hann
hefur alltaf leikið, síðan hann kom frá
Hollywood fyrir rúmlega hálfum öðrum
áratug.
„Fólk gerði sér ekki alltaf Ijóst, að hann
var ekki aðeins fallegur maöur, heldur
líka sérlega gáfaöur," segir leikkonan
Yvonne André um hann. „Þegar þú sérö
hann, jafnvel í smáhlutverki, þá finnst þér
þú sjá allan bakgrunn persónuleikans, —
móöur hans, föður, bræður og systur og
hvernig íbúö hann býr í.“
John Gielgud segir einnig um Mason:
„Hann er dásamlegur leikari, ég er mikill
aðdáandi hans og man hann sérstaklega
í myndunum „Lolita" og „The Punpkín
Eater". En fyrst og fremst minnist ég
hans frá árunum fyrir stríð, sem sérlega
laglegs ungmennis í leikriti, sem ég
stjórnaöi um Mariu Stuart — hann lék
þjón Bothwells. Þegar ég kom til Holly-
wood til aö gera myndina Julius Sesar,
var hann mér mjög hjálplegur í
nærmyndatöku og ýmiss konar tækni-
atriðum. Ég á honum að þakka minn
góða árangur meö þeirri mynd."
Sumum virðist ótrúlegt núna að James
Mason lék í sinni fyrstu kvikmynd, þegar
árið 1935. Og 1943 var hann oröinn
kvikmyndastjai na í Bretlandi, þegar hann
lék greifa í myndinni „Maðurinn í gráu
fötunum", en þar er hann haldinn kvala-
losta og er látinn hýða Margaret Lock-
wood með svipu. Hann segist ekki hafa
verið ánægöur meö myndina, en þakkaði
góðan árangur sinn því, aö hann var í
slæmu skapi þaö tímabil, sem hún var
tekin. „Time" skrifaði: „Hann svífur í
gegnum myndina, glottandi eins og
Laughton, geltandi eins og Gable og
hleypir í brúnirnar eins og Laurence
Olivier. Hann mun sannarlega eignast
margan aðdáanda í kvennahópi."
Hann varð heimsfrægur tveim árum
síðar í myndinni „The Seventh Veil" þar
sem hann lék ofsafenginn píanókennara,
sem lemur á hendur nemanda síns (Anne
Todd) þegar hún er aö æfa sig. (Sýnd hér
fyrir allmörgum árum).
Charlie Chaplin sagöi honum síöar, aö
þetta væri það hlutverk hans, sem hann
héldi mest af, af því að — „þú varst svo
gjörspilltur."
Eftir aö hafa leikið í myndinni „Odd
Man Out“, sem hann heldur mikið af
sjálfur, var hann kosinn vinsælasti leikari
Bretlands. Skömmu síöar, eða 1947, fór
hann til Ameríku, til að freista gæfunnar á
hálum brautum Hollywood. Síðan hefur
hann ekki búiö í Englandi.
Nú býr hann á hæö einni við Genfar-
vatn ásamt annarri konu sinni, sem fyrr
segir, en þau giftust 1970.
Stór gluggi er á einum veggnum.
Setustofan er blá- og hvítmáluö og
veggirnir eru þaktir bókum. Clarissa er
að sauma í poka, sem hún ætlar að gefa
Portland, dóttur Masons frá hjónabandi
hans og Pamelu Kellino, sem bæöi er
rithöfundur og leikari. Hann á einnig son,
sem heitir Morgan.
Mason sjálfur, klæddur köflóttum föt-
um úr ullarefni og meö tilsvarandi
hálsbindi, situr í ruggustól og dreypir á
tei. Myndin er mjög heimilisleg; minnir
frekar á sveitaheimili í Yorkshire, en á
fræga kvikmyndastjörnu í skattaútlegö. ,
„Eg gæti ekki farið aftur til Englands,
því miður. En þannig er það, að ég get
ekki veriö einum degi lengur í Englandi
en 3 mánuöi á ári. Ég skulda víst skatta,
allt aftur til ársins 1948.“
í borðstofunni er gríöarstórt málverk
frá æskustöðvum Masons, málaö af
Huddersfield. „Húsið var rifiö. Það var
leiðinlegt, því þaö hefði verið dásamlegt
að geta búiö þar."
í Sviss búa Masonhjónin eins og
einsetufólk, líkt og Chaplin og Nabokov
geröu þar í nágrenninu. „Viö lifum mjög
einföldu lífi," segir frú Mason og ber fram
kalda kjötrétti meö saladi og ágætu
rauövíni, „og viö erum í megrun, svo þaö
er ekkert brauð á boröum." „Það er
ekkert sérstakt, sem við gerum hérna,"
segir Mason.
„En hvað gera þau, James og Clar-
issa?" spyr fólk sjálft sig. „Eitthvaö gera
þau þó.“
Masonhjónin fara í heimsóknir til
rithöfundarins Eric Ambler og konu hans
og einnig til nokkurra svissneskra kunn-
ingja. Þau fara einnig í langar gönguferöir
upp á hæöina og Mason veifar stafpriki,
því frétzt hefur um hunda með hundaæöi
í nágrenninu.
Masonhjónin eru ákafir fylgjendur fót-
boltaliösins á staðnum og Mason sýnir
það meö merki, sem hann ber í jakka-
horninu.
Mason lítur til baka yfir 40 ára leikferil
sinn án sérstakrar hrifningar. „Ég bar
engan ákafan metnaö í brjósti til að
verða leikari. Ég kom út úr Cambridge í
miöri kreppunni og ég sá enga framtíð
fyrir mig í húsageröarlistinni, sem ég
haföi lagt stund á. Ég var ekki góöur
teiknari. En ég vissi, að ég gæti þénað
peninga á leiklist og ég var hrifinn af
kvikmyndum. Og ég var ákveðinn í að ná
í mína sneið af þeirri köku, hvaö sem þaö
kostaöi.1' Og þrátt fyrir, aö hann léki á
sviöi í Cambridge og síöar í Old Vic og í
Dublin, þá yfirgaf hann leiksviðiö og snéri
sér að kvikmyndunum. „Og ég er ennþá
meö kvikmyndadellu, það er sannleikur-
inn.“
„Að leika," bætir hann viö, „er mjög
áhugavert starf, og ánægjulegt aö vita af
sér í góöri kvikmynd, en þú mátt ekki
búast við, að þaö sé oft, sem þaö
skeöur."
Og satt að segja eru aöeins nokkrar
myndir verulega athyglisveröar af þeim
rúmlega þrjátíu, sem hann lék í í
Hollywood. Þær voru „Eyðimerkurrefur-
inn“ (um Rommel), Fimm fingur, Julius
©