Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.1960, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.1960, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 83 gang Hefte I. 1933: „Fjeldrype, Lagapus mutus reinhardti. Meget almindelig, men Forekomsten svinger dog ret stærkt; saaledes saas den í mengde i 1930, betydelig færre i 1931“. — Enda þótt ekki hafi verið sann- að með óyggjandi "ökum, enn sem komið er, að rjúpur fljúgi milli ís- lands og Grænlands, þá tel ég ekk- ert til fyrirstöðu að svo geti verið, og er það einkum af þeim ástæð- um er nú skal greina, enda þótt ýmsir ágætir náttúrufræðingar vilji ekki viðurkenna íslenzku rjúpuna nema sem innlendan stað- og flökkufugl“. I fyrsta lagi er ísl. rjúpan há- norrænn fugl og atbragðs flugfugl, hraðfleyg og þolin. Þetta gildir yfirleitt um allar fjallrjúputegund- ir, ef þær eru ekki veikar eða magrar af fæðuskorti. í öðru lagi er sennilegt, að hvarf rjúpnanna af landinu með vissu árabili, oftast eftir óeðlilega fjölg- un, sé í sambandi við fæðuskort, með því hver rjúpa þarf mikið fóð- ur á dag til viðhalds. Þótt ísland sé víðáttumikið er meiri hluti þess ógróið land og hvarvetna á fjöllum, afréttum og öræfum þar sem fugl mætti fá korn í nef sitt, löngu upp- urið af rjúpnaflokkum áður en fannbreiður hylja hálendið. ísland getur því ekki fætt nema tak- markaðan skara af fuglum þess- um. t þriðja lagi virðist óeðlileg f jölg- 1 . -----------------¥ un rjúpna á haustin og algert hvarf þeirra á vorin, héðan af landinu, standa í nánu sambandi við suður- og norðurflug rjúpnanna haust og vor, er þær flýja myrkvatímann, — heimskautsnótt. Norður-Græn- lands. Þangað leita þær svo aftur á vorin og lifa þar hið langa, ljósa sumar, verpa þar eggjum sínum og ala upp unga sína. Og þetta flug rjúpnanna, yfir ísauðnir, mörg þús- und kílómetra frá suðri til norðurs um endilangt Grænland, allt norð- ur til Peary-lands, stendur í nánu sambandi við fæðu þeirra, sem óhreyfð og iðjagræn hefur legið undir skraufþurrum snjónum um margra mánaða skeið Nú er þetta sem nýgræðingur í og undir mjall- arhjúpnum, því að á Norður-Græn- landi koma nær aldrei blotar eða hlákur vetrar langt. Rjúpurnar, svangar og vegmóðar skella sér niður í kröfsin eftir snæhéra og læmingja, sauðnaut og hreindýr, sem fjöldi er af á þessum slóðum, og eru fljótar að fylla sarpinn. Rjúpnahóparnir taka þá strax til að para sig og víðátturnar geta algerlega fullnægt þeirra hæfilega jöfnu dreifingu, sem eðli þessara fugla heimtar um varptímann. Grænlenzkar rjúpur ílendast ekki hér á landi og verpa hér ekki og sama má segja um grænlenzka fálkann (hvítvalinn), fylgjanda þeirra. Hann verpir ekki heldur hér á landi, enda þótt mergð af honum komi hingað til lands með grænlezku rjúpunni. Hvítvalurinn stendur og fellur með grænlenzku rjúpunni. Fyrir síðustu aldamót, eða nánar tiltekið haustið 1893. kom hingað til lands gífurlegur fjöldi af græn- lenzkri rjúpu í fylgd með hvít- fálkanum grænlenzka. Skari þessi tók land á fjöllum og heiðum vest-* fjarða að hausti til svo allt sýndist hvítt og snævi þakið enda þótt alautt væri. Fljótlega var allt rjúpnafóður uppurið á Vestfjarða- fjöllum og heiðum og fluttist þá rjúpnaskarinn austur eftir landinu, unz allt var uppurið um öll afrétti og hálendi íslands. (ísland getur ekki fætt nema tasmarkaðan fjölda rjúpna. Ein miljón rjúpna þarf um 100 smálestir á dag). Mun megnið af þessari grænlenzku flug- rjúpu hafa fallið hér á landi af megurð og fæðuskorti eftir fárra vikna dvöl. Bar mest á rjúpnafall- inu í Múlasýslum, syðst og austast á landinu; er það ofurskiljanlegt, því lengra komust rjúpurnar ekki. Þorsteinn Hermann Sveinsson Kjarval, fæddur 4. marz 1878, minnist á þetta mikla rjúpnafall i endurminningum sínum, útg. 1954. Hann átti þá heima á Rannveigar- stöðum í Geithellnahreppi í Suður- Múlasýslu. Var hann ásamt öðrum í eftirleit seint þetta sama haust, 1893. Lá leið þeirra yfir Hofsjökul (eystri) allt til Víðidals í Jökul- dalshreppi í Norður-Múlasýslu. Segir hann á bls. 61 í endurminn- ingunum: „.... Er við höfðum gengið nokkuð langt frá byggð, fórum við að ganga fram á dauðar rjúpur. Er lengra var komið frá byggð, grán- uðu dalir og heiðar meir og meir af dauðri rjúpu. Á stórum svæð- um lá rjúpan dauð t tugþúsunda tali, svo að hugsað gæti ég mér, að um Múlasýsluna alla hafi hundr- uð þúsunda dauðra rjúpna legið. Þarna lá hún um víða haga stirð og horuð. Þar var ömurleg sjón“. Svo skammt er milli Vestfjarða og Græn- lands, að sannorðir menn segjast hafa eygt Grænlandsjökul og „nunataka" af hæstu Vestfjarðafjöllum, í góðu skygni.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.