Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.1960, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.1960, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 73 Flugvél finnst langt inni í Sahara ÞAÐ vekur alltaf nokkurn óhug, þegar menn rekast af hendingu á flugvélaflök. Svo var þegar rússneska flugvélin fannst norður í Grænlandsísnum í vetur. Fljótlega vitnaðist þó, að flakið hafði legið á ísnum nokkur ár og áhöfn flugvélarinnar hafði bjargazt. Sögulegri var sá atburður er gerðist í sumar sem leið suður í Sahara-eyðimörkinni, og nú verður sagt frá. ÞAÐ var í maímánuði s.l að hópur brezkra jarðeðlisfræðinga fór í leiðangur suður í Sahara-eyði- mörkina. Þeir voru sendir af rann- sóknafélaginu „D’Arcy Exploration Co. Ltd.“ og áttu að rannsaka sandauðnir Libyu um 650 km. suð- ur af Benghazi, þar sem ekki var kunnugt að neinn hvítur maður hefði stigið fæti sínum fyr. Leiðangursmenn ferðuðust í flutningabíl með stórum hjólbörð- um, því að sanddyngjurnar þarna eru erfiðar yfirferðar. Auk þess var lítil flugvél með í ferðinni, og átti hún að vísa þeim leið, því að villugjarnt er á þessum slóðum, þar sem ekki er annað en háar sanddyngjur og djúpar kvosir á milli. Ferðalagið gekk vel, og er þeir höfðu farið langa leið, hurfu sanddyngjurnar allt í einu, en framundan blasti við slétta, eins langt og auga eygði. Slétta þessi var öll þakin einkennilegum smá- steinum, sem líktust grófri möl á sjávarströnd. Vísindamennimir komust þegar að því, að þarna höfðu þeir fundið fornan vatns- botn, því að steinarnir voru allir vatnsnúnir. Ferðinni var nú haldið suður eftir þessari einkennilegu sléttu. Og sunnarlega á henni rákust þeir á herflugvél, og á hana stóð letrað nafnið „Lady Be Good“. Það var engu líkara en að flugvélin hefði „magalent“ þarna daginn áður. Hún var heil að öðru leyti en því, að stélið hafði brotnað af. Glugg- arnir voru allir heilir og þegar vís- indamennirnir litu inn um þá, sáu þeir að ýmiskonar fatnaður hekk þar á snögum, en engan mann var að sjá, hvorki lifandi né dauðan. Þar sem stélið hafði brotnað af, fundu þeir bækling, algjörlega óskemmdan. Þessi bæklingur hét „Bjargráð í norðurhöfum“, og þótti einkennilegt að finna hann hér langt inni í brennandi eyðimörk- inni. Leiðangursmenn sneru þegar við og heldu rakleitt til Benghazi. Þangað komu þeir eftir þriggja daga ferð og skýrðu frá flugvél- inni, sem þeir höfðu fundið. Eftir lýsingu þeirra var flugvélin frá Wheelus-flugstöðinni í Tripoli. Nú var símað þangað, en þeir í Wheelus brugðust ókunnuglega við. Engin árásarflugvél af þessari gerð (B-24) hafði verið þar síðan 1944. Þetta þótti undarlegt og nú voru sendar tvær amerískar flugvélar suður á bóginn. Var í annarri þeirra herforingi, sem Rubertus heitir og átti hann að reyna að leysa þessa gátu. Þeir komu að flugvélinni og brutust inn í hana. Þar fundu þeir flöskur með vatni og kaffibrúsa með kaffi, allt á sínum stað. Þar voru líka súkkulaðibitar, jórtur- leður og sígarettur. En þar voru hvorki fallhlífar né fallhlífabún- ingar. Auðséð var á því, að flug- mennirnir höfðu stokkið út úr flugvélinni. En hvar? Rupertus fór inn í stýrisklefann og litaðist þar um. Af einhverri rælni dró hann upp klukkuna, sem þar var — og hún fór þegar að ganga. Hann sá að sjálfstjórnar- útbúnaður var í vélinni. Hann reyndi leiðslurnar og komst þá að raun um að bensíngeymarnir voru tómir. Öll áhöld voru reynd og voru þau í bezta lagi. Þá fór Rup- ertus út úr flugvélinni og athug- aði hæðarstýrið. Að því loknu mælti hann: „Þeir hafa stokkið út úr flugvélinni hér einhvers staðar nærri. Hæðarstýrið er sett þannig, að flugvélinni hefir verið ætlað að lenda mjög fljótt“ Fleira kom í ljós. Hreyflarnir höfðu bilað og seinast hafði flug- vélin flogið á einum hreyfli. — 'k — Það kom nú í ljós hvaða flugvél þetta var.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.