Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.1960, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.1960, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 81 hefir gefið kirkju Óháða safnaðarins 1 Reykjavík upplýstan kross til minn- ingar um systur sína (3.) Margrét Halldórsdóttir gaf Torfa- staðakirkju rafmagnsljósatæki og ljós- kross á kirkjuna til minningar um for- eldra sína. Afkomendur sr. Árna Þórarinssonar gefa kirkjunum, sem hann þjónaði á Snæfellsnesi Guðbrandarbiblíu. Fj áröflunarnefnd Landhelgismerkis- ins afhenti dómsmálaráðherra hálfa miljón kr. er ganga skal til kaupa á þyrilvængju á nýa Óðinn (28.) ELDSVOÐAR Eldur kom upp í bakhúsi að Lauga- vegi 1, þar sem til húsa var bókbands- stofa á neðri hæð og prentmyndagerð á efri hæð. Kom eldurinn tvívegis upp, fyrst kl. 8 á gamlárskvöld og síðan eft- ir miðnætti. Sýnt þótti að um íkveikju væri að ræða. Tjón varð mjög mikið í bruna þessum (3.) Eldur kom upp í Barnaskóla Kópa- vogs. Lækningastofa og allt, sem í henni var eyðilagðist (8.) Hlaða brann á Laugarvatni og mikið af heyjum. Nálægum gripahúsum varð bjargað (10.) Eldur kom upp í mannlausu húsi á Hólmavík (26.) lÞRÓTTIR Stefán G. Bjömsson endurkjörinn formaður Skíðafélags Reykjavíkur (10.) FH sigraði í afmælismóti KR í hand- knattleik í karlaflokki, en KR i kvennaflokki (10.) Iþróttafréttamenn kusu Valbjörn Þorláksson „íþróttamann ársins“ (15.) Skúli G. Ágústsson varð Akureyrar- meistari í skautahlaupi (19.) Firmakeppni hafin í skák með þátt- töku 42ja sveita frá 30 fyrirtækjum (19.) Skíðalyfta sett upp á Siglufirði (22.) 16 milj. kr. íþróttahöll reist á Kefla- víkurflugvelli (22.) Einar Sæmundsson endurkjörinn formaður KR (6.) Pétur Bjarnason kosinn formaður Knattspyxnufélagsins Víkings (6.) Friðrik Ólafssyni boðið á tvö skák- mót í Argentínu (24.) Fjórir íslendingar taka þátt í Vetrar- Ólympíuleikunum í Squaw Valley í Bandaríkjunum, Eysteinn Þórðarson, Kristján Benediktsson, Jóhann Vil- bergsson og Skarphéðinn Guðmunds- son. Fararstjóri Hermann Stefánsson (27.) FÉLAGSMÁL Garðar Jónsson endurkjörinn for- maður Sjómannafélags Reykjavíkur (17.) Einar Ögmundsson endurkjörinn for- maður Vörubílstjórafélagsins Þróttar (19.) Árni Jónsson, tilraunastjóri, endur- kjörinn formaður Sjálfstæðisfélags Ak- ureyrar (26.) ÝMISLEGT Kanadamenn nota símann mest allra þjóða, en íslendingar eru í öðru sæti (3.) íslenzku flugfélögin fluttu alls 116 þús. farþega á sl. ári, og eru það um 10 þús. fleiri en árið áður (5.) Kristinn Jónsson, bóndi að Dröng- um gekk yfir Drangajökul með 15 ára Valbjöm Þorláksson var kjörinn „bezti íþrótta- maður ársins 1959“ gamlan son sinn á leið í skóla. Villtust þeir í slæmu veðri og voru 20 tíma á jöklinum (5.) Vegleg þrettándabrenna og álfadans var haldinn að Hlégarði í Mosfells- sveit (5.) 460 þús. bréf voru borin Reykvíking- um fyrir jólin (7.) Fjórir bátar frá Dalvík verða gerðir út á vetrarvertið frá Keflavík (7.) Vinningum var fjölgað um 5000 miða í Happdrætti Háskólans. Seldust allir miðar upp á skömmum tíma. Trúar- og kirkjusöguleg sýning opn- uð í Reykjavík (9.) Nefhjól brotnaði af þýzkri flugvél við lendingu á Keflavíkurflugvelli (9.) Uppþot varð í Miðbænum í Reykja- vík, er strákaskríll réðst að lögregl- unni, eftir að maður, sem réðst á tvo útlendinga hafði verið handtekinn. Sex piltar voru dæmdir í allt að 1500 kr. sekt (12.) Farið var að óttast um togarann Úr- ■ f

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.