Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.1959, Qupperneq 16
64
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
FRÆ AF ÍSLENZKUM BARRTRJÁM — Þessum könglum var safnað í garði
Magnúsar Ágústssonar læknis í Hveragerði. Annað hvort fræ er fuliþroska, en
trén, sem þau eru af, eru ekki nema 30 ára gömul. Á miðri myndinni er sígar
ettupakki merktur Landgræðslusjóði. Þeir sem á annað borð reykja sígarettui
styðja Landgræðslusjóð með því að kaupa þær sígarettur sem honum eru
merktar. — Hér hyllir undir nýa tíma fyrir Island, sbr. grein í seinustu Les-
bók. — (Ljósm. Ól. K. Magnússon).
BRIDGE
A 10 8 7 6 3
V 6 4 3
♦ D 10 8
+ A D
* ÁKDG
9 5
V 2
♦ 9 7 3
+ 10 5 4
+ 4
V K D G 7 5
♦ Á K 4
+ K G 9 2
Sagnir voru þessar:
A S V N
3 sp. tvöf. pass * 3 gr.
pass 4 hj. tvöf. pass
pass pass
Það var yfirsjón hjá V að tvöfalda,
enda hefndi það sín. Hann sló út S3,
en A fekk slaginn og sló út spaða aft-
ur. Nú verður S að gæta sín. Hann
má missa tvo slagi í trompi, en ekki
þrjá. Drepi hann nú með hátrompi,
mun V ekki eyða ásnum, heldur fleygja
einhverju hraki í, og hlýtur svo að
fá 3 slagi í trompi. S verður því að
drepa með lágtrompi. Að vísu fær V
þá slaginn, en svo getur hann ekki
fengið slag í trompi nema á ásinn.
Þótt V hefði ekki tvöfaldað, var
rétt að spila þannig, en sögn V bendir
S ótvírætt til þess að þetta sé örugg-
asta leiðin til að vinna.
ÁRNI HELGASON
stiftprófastur eignaðist á námsárun-
um í Höfn tvo vini, sem heldu tryggð
við hann meðan lifðu. Annar þeirra
var Rasmus Kristján Rask og hinn
Frederik Peter Jakob Dahl, síðar
prófessor. Daginn, sem Árni lauk em-
bættisprófi, átti hann að sitja veizlu á
heimili foreldra Dahls, svo sem heið-
ursgestur þeirra. Á tilsettum tíma
komu aðrir boðsgestir, en íslendingur-
inn ekki. Þegar koma hans þótti drag-
ast óeðlilega lengi, var sonurinn Frede-
rik sendur út af örkinni til þess að
grennslast eftir, hvort Árni hefði orðið
veikur, eða farið út og gert sér glaðan
dag eftir jafn stórheiðarlega aflokið
próf, og svo gleymt heimboðinu. Gekk
Dahl rakleitt upp á Garð V>g inn í her-
bergi Árna. Kom hann þá að nýbakaða
kandidatinum snöggklæddum og stein-
stofandi í rúmi sínu. Hafði hann, er
heim kom frá prófborðinu, farið úr
kjólnum og fleygt sér í rúmið sitt og
sofnað! Var það látið fylgja sögunni,
að slík stilling væri óhugsandi hjá öðr-
um en íslendingi; danskur kandidat
með ágætiseinkunn hefði fundið meira
til sín en svo, að hann hefði getað
lagzt til svefns, er heim kom. (Jón
Helgason)
UM ÞJÓÐBRAUT ÞVERA
í Landnámu er sagt frá tveimur land-
námskonum á Snæfellsnesi, er létu
gera skála sinn um þjóðbraut þvera,
létu þar jafnan standa borð með vist-
um, en sátu úti og löðuðu gesti, hvern
er mat vildi eta. önnur þeirra var
Langaholts-Þóra á sunnanverðu nesinu,
hin Geirríður í Borgardal norðan á
nesinu. I ritgerð um bæanöfn og eyði-
býla á Skógarströnd segir séra Lárus
Halldórsson svo um Borgardal: Dalur
þessi er í Narfeyrarhlíð fram með
Álftafirði. Hlíðin er brött ofan að sjón-
um og dalurinn er stórt hvapp inn í
hlíðina. Bratt er á allar hliðar upp í
hvamm þenna eða dal; í honum miðj-
um er afarhár hóll og uppi á toppi hans
klettar. Það er borgin, sem dalurinn
er við kenndur. Alfaravegur er skammt
neðar, en alls ekki um sjálfan dalinn
eða þar um, sem bæar- eða skála-rúst
Geirríðar er. Ekki hefir heyrzt að aðr-
ir en Geirríður hafi búið í Borgardal.
HAFÍS Á BREIÐAFIRÐI
Veturinn 1680 rak hafís inn á
Breiðafjörð daginn fyrir Kyndilmessu
(þ. e. 1. febr.), svo fjörðurinn var að
segja allur fullur með hroða. Varð
ei róið tvo eður þrjá daga til eyanna,
en hrærðist þó allur í sundur þegar
frá leið. Þá mundu ekki elztu menn,
að hafís hefði komið inn á Breiðafjörð,
og þekktist ekki af þar uppöldu fólki.
— (Grímsst. ann.j
+ 3
V A 10 9 8
♦ G 8 5 3
+ 8 7 6 3
N
V A
S