Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.1959, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGIJNBLAÐSINS
63
*
Alaga
SVO er að sjá sem hægt sé að
hrinda álögum, ef menn eru nógu
staðfastir ,og eru ýmsar sögur um
það. En elztu söguna áf því tagi
mun að finna í sögu Jóns biskups
helga, og er hún á þessa leið:
Nautadauði á Hólum
Sá hlutur lá á staðnum á Hól-
um, að þar var bás sá einn í fjósi,
er menn sögðu, að eigi mætti naut
á binda, því að dautt lá hvert Um
morguninn, það er á var bundið_
um kvöldið. Þá var það eitthvert
haust, að Jón biskup gekk til með
ráðsmanni sínum að ætla naut til
lífs, þau er heima skyldu vera á
staðnum. Og er þeir höfðu til ætl-
sem allt hyggst skilja, en fátt eitt kann,
og telur sig eindæma afreksmann, —
Hann brosir að barnaskap þínum!
Líf vort er ættað úr eilífðarheim,
einn ómandi hljómur í strengleik þeim,
sem fyllir geimana himneskum hreim
með hrynjandi samræmiskliði, —
og hjörtu vor hafdjúpum friði“.
Og þannig mun það alltaf vérða,
meðan jarðneskir menn lyfta höfði til
að virða fyrir sér himinljósin björtu
á heiðskírum nóttum, í leit að huggun
og styrk og trú um að þarna úti bíði
þeirra það, sem þeir leituðu að og
þráðu mest á þessari jörð, en fundu
ekki. Og þá ekki síður hitt, sem þeir
fundu, en var frá þeim tekið.
Um allar aldir, meðan jörð vor elur
verur, sem heita menn, munu því þessi
orðs skáldsins, Einars Benediktssonar,
lýsa eins og logandi viti á vegi sann-
leikans:
„Veit duftsins son nokkra dýrlegri
sýn,
en drottnanna hásal í rafurloga“.
Gamlárskvöld 1958.
Theodór Gunnlaugsson
frá Bjarmalandi.
blettir
að, þá segir nautrekinn, að eigi
mundi nautin rúm hafa í fjósinu,
því að einn básinn var ónýtur
og eigi mætti á skipa. Herra biskup
sagði svo vera skyldu sem hann
hafði til skipað og sagði, að á einn
veg skyldi binda á þann bás sem
aðra bása í fjósinu, og var svo gert.
En um morguninn kom nautamað-
ur til fjóss og fann kúna dauða
á básinum. Kom hann þá og sagði
herra biskupi, en hann bauð hon-
um að binda á inn sama bás naut
annað og hið þriðja. Var svo gert,
og þau dóu bæði sem hið fyrsta.
Þá mælti nautamaður: „Hversu
lengi, herra, skal svo fram fara
sem nú horfist á?“
Inn heilagi Jón biskup svarar:
„Svo skal gera meðan nokkurt
naut er á staðnum, ef guð vill að
staðurinn eyðist fyrir þessa skuld“.
En eftir þetta hans umtal tók af
fallið á básinum, og sigraði Jón
biskup þetta óvmarins áfelli með
sannri trú og staðfestu, og af því
að óvinurinn hafði tekið sér gist-
ing á sögðum bási og inn gengið
fyrir nokkura vantrú manna, var
nauðsyn, að hann væri sneypilega
út rekinn með sannri trú og heil-
agri þolinmæði blessaðs biskups
Jóhannis.
Sjálfstæði Alaska
ÞAÐ hefir margs konar kostnað í för
með sér, að Alaska er nú orðið sjálf-
stætt ríki, eigi aðeins vegna breyttra
stjórnarhátta, heidur og margs ann-
ars.
Fáni Bandaríkjanna breytist nú, þeg-
ar stjarna Alaska bætist inn í hann,
og stjörnurnar verða 49 í stað 48. Sam-
kvæmt lögum á hinn nýi fáni að takast
í notkun á þjóðhátíðardegi Bandaríkj-
anna 4. júlí á sumri komanda. Þetta er
vatn á mylnu þeirra, sem fánana gera,
því að búist er við því að hver maður
sem á fánastöng, muni þá hafa fengið
sér nýan fána. Að vísu segir í tilkynn-
ingu frá skrifstofu þingsins, að það
sé ekki skylda að skipta um fána. Hver
einasti fáni Bandaríkjanna, sem til
hefir verið, sé löglegur. Mönnum sé
leyfilegt að draga að hún fána með
13 stjörnum, ef þeir eigi hann. Eins
sé þeim leyfilegt að draga að hún fána
með 46 stjörnum (en svo var fáninn
áður en Arizona og New Mexikó gengu
í ríkjasambandið 1912), eða með 48
stjörnum, eins og hann var áður en
Alaska gerðist sambandsríki. Eina
skilyrðið er það að fáninn sé hreinn
og vel með farinn. Ekki má sýna ó-
hreinan né slitinn fána, samkvæmt lög-
um frá 1942.1 þeim lögum er og þannig
fyrir mælt, að í hvert skifti, sem fáni
verður ónothæfur, skuli eyðileggja
hann á „virðulegan“ hátt, helzt með
því að brenna hann.
Sjálfstæði Alaska hefir einnig áhrif
á bókaútgáfu. Forstjóri alfræðibókar-
innar „Encyclopedia Americana“ hefir
sagt, að breytingar þær, sem nú verði
að gera á bókinni, muni kosta eigi
minna en 27.000 dollara. Alls staðar
þar sem Alaska sé getið, en það er á
200 stöðum í bókinni (sem er 30 bindi),
þurfi að breyta lesmálinu, en þetta
lesmál nái yfir 300 blaðsíður. Aðrar
alfræðibækur munu hlutfallslega verða
að taka á sig slíkan kostnað.
Það var í ensku gistihúsi, klukkan
6 að morgni. Hringt er í afgreiðslusím-
ann og einhver dauðadrukkinn maður
spyr hvenær „barinn" verði opnaður.
— Ekki fyr en á hádegi, svaraði gisti-
hússvörður.
Lítilli stundu síðar er hringt aftur og
sama röddin spyr hvenær eigi að opna
barinn. Svarið var hið sama. Um klukk
-an 7 er hringt enn og spurt í drafandi
rómi hvenær eigi að opna barinn.
— Þrisvar hafið þér nú spurt að
þessu, og í þriðja sinn segi eg yður að
þér getið ekki komizt inn á barinn fyr
en um hádegi, svaraði þjónninn ösku-
vondur.
— Komast inn? drafaði í þeim fulla.
Eg ætla ekki að komast inn í barinn,
eg vil komast út úr honum.