Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.1959, Qupperneq 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
53
Nú fœkkar bráðkvöddum
og fœrri fá slag en áður
gamalt byggðarhverfi, og Árbær
verður sjálfur aðeins einn hluti
þess hverfis.
— o —
Minnst var á það hér áður, að
nefndin vildi láta reisa veitinga-
skála á hinu friðlýsta svæði. Þess
gerist eflaust þörf þegar gestum
fer að fjölga þarna. En það er
nokkurn veginn ljóst, að áður en
mörg ár líða munu flestir útlend-
ingar, sem til Reykjavíkur koma,
telja sér skyit að skoða byggðar-
safnið á Árbæ.
Þessi veitingaskáli ætti að líkj-
ast svo sem unnt er skálanum, sem
Ingólfur Arnarson reisti í Reykja-
vík. Hann mætti gjarna hafa ein-
hvern svip af veitingaskálanum á
flugvellinum hjá £>óla, sem stend-
ur á aettararfleifð Erlings Skjalgs-
sonar. Sá skáli og allt sem í honum
er, er ekki aðeins með fornu sniði,
heldur er og reykur í honum og
sótugir ásar eins og í höllum hinna
fornu höfðingja. En í slíkan veizlu-
sal þykir hæfa að bjóða hinum
göfgustu gestum. Bæarstjórn
Reykjavíkur gæti og boðið góðum
gestum sínum til veizlu í þessum
skála, í stað þess að fara með þá
austur á Þingvöll. Og þegar um
matarveizlur væri að ræða, þá
skyldi þar eingöngu framreiddur
íslenzkur matur, svo sem hangi-
kjöt og skyr.
Reykjavík þyrfti ekki að fyrir-
verða sig fyrir það að vera svo
þjóðleg. Á. Ó.
Tveir ferðalangar voru að tala um
ýmsa staði og borgir, sem þeir höfðu
heimsótt.
— London er áreiðanlega mesta
þokubæli í heiminum, sagði annar.
— O-sussu nei, eg hefi komið á stað,
sem er miklu verri.
— Hvaða staður var það?
— Svei mér þá ef ekki var svo
dimmt að eg hafði ekki hugmynd um
hvaða staður það var.
Á UNDANFÖRNUM árum hefir
það mjög farið í vöxt að menn fái
slag, einkum í menningarlöndum.
í Bandaríkjunum hafa t. d. dáið
170.000 manna af slagi að meðaltali
á uiidanförnum árum, og er það
þrisvar sinnum meiri fjöldi en
sykursýki og berklaveiki drepa
samanlagt. Auk þess eru nú í
Bandaríkjunum 830.000 manna,
sem hafa fengið slag, en lifa þó,
meira og minna lamaðir og ósjálf-
bjarga. Sumir, sem fengið hafa
slag, hafa náð sér furðanlega aft-
ur, eftir langan tíma, en flestir eru
ósjálfbjarga og þurfa hjúkrunar.
Og það eru ekki eingöngu gamal-
menni sem fá slag. Á einu ári urðu
44.000 menn á bezta aldri bráð-
kvaddir.
Þetta ástand hefir vakið ugg og
ótta ,en þótt undarlegt kunni að
virðast hafa læknavísindin látið
þetta afskiptalaust að mestu.
Læknar hafa haldið að við þessu
væri ekkert að gera annað en láta
sjúklinga fá sem bezta aðhlynn-
ingu. Þeir heldu að engin meðul
mundu duga við þessu og ekki
væri hægt að sjá það fyrirfram
hvort menn væri komnir að því
að fá slag.
Nú hefir mikil breyting orðið á
þessu, eins og enn mun sagt verða.
— o —
Hér á landi er slag ýmist kallað
heilablæðing eða hjartaslag. Áður
var það kallað niðurfallssýki eða
brotfall. Slag getur haft margar
orsakir, en undanfari þess er
venjulega hár blóðþrýstingur, eða
æðakölkun, eða hvort tveggja sam-
tímis.
Oft er það að skemmd æð bilar
í höfðinu, og þá blæðir inn á heil-
ann. Stundum stíflast æð í heil-
anum, svo að nokkur hluti hans
veslast upp. Þessi stífla getur
myndast í sjálfri æðinni, en það
getur líka vel verið að blóðkökkur
losni einhvers staðar í líkamanum
og berist þangað. Þá líkist dánar-
orsökin mjög hjartaslagi, sem staf-
ar af krónæðastíflu, er lokar blóð-
rennsli hjartans.
En í báðum tilfellum verða þýð-
ingarmiklar heilastöðvar fyrir
skemmdum. Og þessar skemmdir
geta orðið svo miklar, að bráður
dauði fylgi. Þó er hitt oftar, að
sjúklingurinn deyr ekki þegar,
heldur lamast meira eða minna.
— o —
Fyrir skömmu var komið með
sjúkling til sjúkrahúss í Banda-
ríkjunum. Hafði hann fengið slag
fyrir tveimur sólarhringum. Lækn-
unum kom þá til hugar að gefa
honum cortisone. Það hafði að vísu
aldrei verið reynt við slagi, en
frægð sína hlaut það fyrir það, hve
vel það hafði reynzt gegn æða-
kölkun. Að vísu hafði það verið
reynt á lömuðu fólki, mörgum
mánuðum eftir að það hafði feng-
ið slag, en ekki haft önnur áhrif
en lina þjáningar og auka kjark
sjúklinganna. Nú var það reynt í
fyrsta sinn á manni, sem nýskeð
hafði fengið slag.
Árangurinn varð merkileg-
ur. Þegar fyrstu nóttina
urðu miklar breytingar á
sjúklingnum. Hann hafði verið
rænulaus, þegar komið var með
hann, en nú fekk hann fulla rænu.