Lesbók Morgunblaðsins - 26.08.1956, Page 10
478
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Nýr tímamælir
vegna stjörnuíræði
CTJÖRNUFRÆÐINGAR hafa
komið sér saman um nýan
tímamæli. Þr.ð er „sekúnda“ reikn-
uð út eítir gangi tunglsins um
jörðina. Þessi sekúnda var opin-
berlega staðfest í september í fyrra
á fundi International Astronomical
Union, sem haldinn var í Dublin,
og verður sennilega grundvöllur
allra inna nákvæmustu tímamæl-
inga um allan heim.
Þetta er nefndur „ephemeris"
tími (stjörnutími) til aðgreiningar
frá meðal-sóltíma, sem nú er farið
eftir. Má segja að aðalbreytingin
sé í því fólgin að miða við göngu
tungls, í stað þess að miða við
göngu jarðar, svo sem gert hefir
verið. En þó er það ekki nákvæmt
og þarf frekari skýringar við.
Þessi nýi tímamælir hefir ekki
nein áhrif á tímatalið, eins og það
hefir verið. Mismunurinn á inni
nýu sekúndu og þeirri gömlu, er
ekki nema brot úr millisekúndu
(þúsundasta hluta úr sekúndu) og
því svo lítill, að hann verður ekki
mældur á neinum venjulegum úr-
um. Þess vegna verður klukkunni
ekki breytt og allt tímatal í dag-
legum viðskiftum manna verður
áiram miðað við hana.
IIVAÐA gagn er þá að þessu?
munu menn spyrja.
Fyrir vísindamennina getur in
nýa sekúnda haft stórkostlega þýð-
ingu, því að gamla sekúndan var
hvergi nærri svo stöðug, að henni
megi alltaf treysta. Hundraðasti
hlutinn úr millisekúndu mun að
flestra dómi ekki skifta neinu máli.
við tímareikning, en vísindamenn,
sem fást við in nýu eðlisvís-
indi, eru þar á öðru máli. —
Frá þeirra sjónarmiði hefir þessi
litli tímaskakki stórkostlega þýð-
ingu. Tökum til dæmis kjarnorku-
stóllinn var settur hér og fekk yfir«
ráð íslenzku kirkjunnar, þá hlaut
að fara svo að in veraldlegu yfir-
ráð fylgdi á eftir. ísland glataði
þá og sjálfstæði sínu upp úr innan-
landserjum Sturlungaaldar, og
komst undir Noreg og síðan með
honum undir Danmörk og laut
valdi hennar um aldir. Nú eru bæði
löndin, Noregur og ísland, frjáls
og fullvalda ríki á bekk með öðr-
um norrænum þjóðum.
Dýrlingurinn Ólafur helgi átti
sinn þátt í þessum atburðum. Eng-
inn Noregskonungur hefir orðið ís-
lendingum jafn kær og hann, og á
íslandi var minningu hans haldið
hátt á loft. Og þess megum vér
minnast á þessari stund og þess-
um stað, að án Ólafs hefði þessi
dagur ekki verið neinn hátíðisdag-
ur né átt slík ítök í hjörtum allra
Norðmanna. Og í sambandi við það
viljum vér minnast Snorra Sturlu-
sonar, sem fremur öllum öðrum
reisti Ólafí óbrotgjarnan bauta-
stein. Hásnilldin í Heimskringlu er
saga Ólafs helga, er Snorri reit
fyrst og skeytti svo framan og
aftan við sögu annara konunga,
sem falla að henni eins og ris.
Og í sögulok er Ólafur hafinn til
himna með kvæði Þórarins lof-
tungu. En fyrir orustuna á Stiklar-
stöðum var Ólafur breizkur maður
hjá Sr.orra. Nú er hann hafinn yfir
það. Það er engu líkara en Snorri
finni til andlegs skyldleika með sér
og dýrlingnum. Þeir höfðu báðir
sömu galla. í þeim stríddu valda-
fíkn og sjálfsafneitun, það var
barátta milli sálarinnar og andans,
ef svo mætti að orði kveða. Sálin
er deilugjörn og ágjörn, en andinn
vill sátt og frið. Sagan varð full-
komin. Hún er borin uppi af sann-
leika ins innra lífs og geðhrifa,
hvað svo sem er um inn ytri sann-
leik eða réttbreytni, sem vér þekkj-
um svo sáralítið. Um aldir hefir
þessi saga verið norsku þjóðinni
leiðarvísir til skilnings á dýrlingn-
um. —
Fyrir tveimur árum var ég
staddur í Reykholti á dánardegi
Snorra, 23. september. Reyniberin
voru eins og blóðdropar, grasið var
sölnað og kvöldskuggar fellu yfir
dalinn með inum mörgu rjúkandi
hverum. H é r var það þá að réttur
skilningur á Ólafi helga kom fyrst
fram, eins og sjálfsrannsókn og
friðþæging í sál snillingsins og
sagnritarans. H é r hafði hann fyrir
sálaraugum dómkirkjuna í Niðar-
ósi, eins og hann hafði séð hana
þegar hann var í Þrándheimi, og
gulnuð handrit geyma nú þessar
sýnir. Nú eru flest þessi handrit
geymd í Kaupmannahöfn og Stokk-
hólmi — en þess getur ekki orðið
langt að bíða að þau komi aftur
heim til þeirrar þjóðar, sem skóp
þau, því að þau eru hennar and-
legi arfur.
Þessi dómkirkja kastar bæði ljósi
og skuggum á ísland — yfirdrotn-
unaranda og fórnfýsi. En ef ekki
heíði verið útflytjendurnir norsku,
sem stofnuðu ið frjálsa ríki þarna
norður í hafi, þá mundum vér
tæplega standa hér á þessum stað
í dag.