Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1955, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1955, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 223 Hcimsókn Norðmanna 1949. Þessi hópur gróðursetti hér um 20.000 trjáplöntur. (Ljósm. E. Sigurgeirsson). girðinga og uppeldi trjáplantna er líka metin. Árið 1954 leystu félögin 3431 dagsverk af hendi. Meira en helmingur var vinna áhugasamra sjálfboðaliða, og ef þetta er metið til fjár, má a. m. k. bæta kr. 200.000.00 oían á tekjur félaganna, og verður þá heildartillag þeirra tii skógræktar alls um kr. 1.300.000.00 árið sem leið. Á því ári nam ríkisstyrkurinn til félaganna kr. 325.000.00, en sú íjár- hæð er ekki nema fjórði hluti af því, sem félögin inna af hendi, og reyndar tæpur fjórði hluti, ef allt væri tíundað rétt. Félögin leggja því fram þriggja krónu verðmæti fyrir hverja eina, sem þau hljóta af opinberu í'é, og er það vel. 1950 — 25 — — — 5200 — 1955 — 28 — — — 7700 — Þó segir gróðursetningarstarf héraðsfélaganna meira um afköst þeirra en langf mál, en undanfarin 5 ár hefur það verið þetta: 1950 gróðurs. fél. alls 181.100 plöntur 1951 — — — 283.000 1952 — — — 388.800 1953 — ( _ _ 454.600 1954 — — — 560.000 í sambandi við þetta er vert að geta þess, að meiri hluti þeirra plantna, sem félögin setja niður, er gróðursettur af sjálfboðaliðum inn- an félaganna. Auk þessa hafa félög- in reist fjölda girðinga til þess að gróðursetja í á starfssvæðum sín- um. Alls eru girðingarnar 130 tals- ins, og samanlögð lengd þeirra um 112 kílómetrar. Margar þeirra eru auðvitað litlar, en nú orðið reyna félögin að koma upp a.m.k. einni sæmilega stórri girðingu í hverju byggðarlagi til þess að koma upp vísi að héraðsskógum. Girðingar félaganna taka nú yfir um 2500 hektara lands, og enn er hvergi nærri fullsett í þær. STÖRFIN í FYRRA ■ TIL FRÓÐLEIKS má að end- ingu líta á störf félaganna í fyrra. Þá námu heildartekj- ur þeirra um kr. 1.100.000.00. Tekj- ur og útgjöld stóðust hér um bil á. Auk teknanna var mikil vinna leyst af hendi ókeypis. Öll vinna félaganna er metin í dagsverkum, og þannig er gróðursetning 250 trjáplantna talin eitt dagsverk, en önnur vinna, svo sem uppsetning' Starfið næstu árin AF ÞVÍ, sem nú hefur verið sagt er ljóst, að skógræktarfélagsskapur inn er í örum vexti, og ennfremur að margs má vænta af honum, ef vel er að honum búið og góðir menn veljast til forustu á hverjum stað. Skógrækt á Islandi er svo um- fangsmikið starf, að það verður aldrei leyst af hendi svo að vel sé, nema með almennum samtökum Rauðgrenitré í Hailormsstaóaskógi. Markmió Skógræktarfél. er að rækta hér nytjaskóga. (Ljósm. Sig. Blöndal).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.