Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1955, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1955, Blaðsíða 1
15. tbl. HÁKON BJARNASON: HORFT UM OXL Skógræktarfélag Islands að verða 25 ára Stofnun félagsins Á KÖLDU og sólarlausu vorkvöldi hinn 27. júní 1930 var Skóg- ræktarfélag íslands stofnað á Þing- velli við Öxará. Voru ekki nema sex tugir manna staddir við þá at- höfn af öllum þeim fjölda, er þá gisti Þingvöll, á þúsund ára af- mæli Alþingis. Af því má ráða, að ekki hefur atburðurinn þótt merki- legur í augum almennings. Um 600 manns höfðu að vísu lofað að styðja félagið, en þegar til kastanna kom, urðu hinir fyrstu félagar aðeins um 230 talsins. —• Skömmu eftir stofnun félagsins dundi kreppan mikla yfir, ásamt deyfð og athafnaleysi á öllum svið- um, og átti hið unga félag afar erfitt uppdráttar um nokkur ár. í Ársriti Skógræktarfélags ís- lands er all nákvæmlega skýrt frá 20 ára starfi félagsins 1950. Vísast því til þess, ef einhver kynni að vilja vita meira um félagið en hér verður sagt, því að hér verður stikl- að á stóru. Starfið hefst ÁRIÐ 1932 fékk félagið land undir gróðrarstöð í Fossvogi. Var strax hafizt handa um að koma stöð á fót, en um mörg ár miðaði því verki hægt. Árið 1946 tók Skógræktar- félag Reykjavíkur við rekstri stöðv- arinnar, og síðan hefur hann auk- izt svo, að stöðin er einna fremst af uppeldisstöðvum landsins. Á sama ári hóf félagið að gefa út Ársritið. Var það lítið í sniðum til Frá 1. aðalfundi Skógræktarfélags íslands eftir að það varð sambandsfélag, í Vaglaskógi 1947. (Ljósm. E. Sigurgeirsson).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.