Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1954, Síða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
407
Aðalleikendur í kvik-
myndinni Sölku
Völku, Gunnel Bro-
ström (Salka Valka)
og Folke Sundquist
(Arnaldur)
reist í trjágarðinum við Aðalstræti
(27.)
Gengið var frá endurskoðun her-
varnarsamningsins við Bandaríkin (27.)
Flugfélag íslands hefur keypt nýa
Douglas Dakotaflugvél í Bandaríkjun-
um og getur hún flutt 28 farþega (29.)
FJÁRMÁL
Landsbankinn hefur ákveðið að gefa
hverju skólabarni sparisjóðsbók til að
glæða hjá þeim sparsemi (11.)
Reikningar Reykjavíkurbæjar árið
1953 sýna að eignir hafa aukizt um 38
milljónir króna á árinu. — Rekstrar-
afgangur varð 21.4 millj. kr. og er það
með mesta móti (21.)
Vísitölur voru óbreyttar frá því sem
verið hefur (25).
MENN OG MÁLEFNI
Hörður Sigurjónsson flugmaður öðl-
aðist réttindi til þess að stjórna fjög-
urra hreyfla farþegaflugvél (8.)
Séra Magnús Guðmundsson í Súða-
vík var kosinn prestur í Setbergs-
prestakalli (11).
Tveir fulltrúar Kanadastjórnar komu
hingað til þess að kynna sér æðarvarp
og umhirðu þess og eiga síðan að reyna
að kenna Eskimóum nyrzt í Kanada að
koma sér upp æðarvarpi (13.)
Leikfélag Reykjavíkur sýndi nýtt ís-
lenzkt leikrit, er Gimbill nefnist. Höf-
undur lét sín ekki getið (16.)
Hreppsnefndarkosning fór fram að
nýu í Kópavogshreppi. Hafði nú hrak-
að fylgi kommúnista þar síðan í vetur,
en Framsóknarmenn unnið á (18.)
Tíu ára drengur bjargaði sex ára
dreng frá drukknun í Kópavogi (26 )
Hópur 11 ferðamanna kom heim úr
7 vikna ferðalagi um meginland Ev-
rópu í íslenzkum bíl. Er það fyrsta
skemmtiferð af slíku tagi (29.)
ÝMISLEGT
Vb. Unnur frá Vestmannaeyum var
tekinn fyrir dragnótarveiði í landhelgi
(8.)
Þrjár útigangskindur (þar af ær ný-
borin og tvílembd) fundust i Hvítmögu
í Sólheimajökli (5.)
Samþykkt hafði verið að flytja inn
100 lestir af kjöti frá Danmörku og
menn sendir út til að velja það. En
ekki fengust nema 60 lestir (7.)
Nýrækt varð 2918 hektarar árið sem
leið (11.)
Siglufjarðarskarð varð bílfært 11.
maí.
Áfengislögin nýu gengu að nokkru
leyti í gildi 1. maí (13.)
Minkur komst út í Æðey á ísafjarð-
ardjúpi og gerði spjöll í varpi, en eftir
mikla leit fannst hann og var drepinn.
Var hann þá í landi á Snæfjallaströnd,
en hafði synt út í ey til veiða (19.)
C_-^®®®G^_5
Gott húsráð
Læknir: — Hvað eruð j^i^gamall?
— Áttatíu og sjö ára.
Læknir: — Jseja, á öllum mínum
langa læknisferli hefi ég aþirei hitt
ncinn mann, jafnvel þótt hann væri
tuttugu árum yngri, er hefir aðra eins
hestaheilsu og þér. Hver haldið þér
að ástæðan sé?
— Þegar ég giftist þá gerðum við
hjónin samning okkar á milli um
að við skyldum aldrei rífast. Hún lof-
aði því að segja ekkert ef hún reidd-
ist við mig, en fara fram í eldhús og
bíða þar meðan sér rynni reiðin. Ég
lofaði því aftur á móti a'ð fara út í
garðinn, ef ég reiddist og ganga þar
um þangað til mér væri runnin reið-
in.
Læknir: — Hvað kemur það þessu
við?
— Jú, sjáið þér nú til, læknir góð-
ur, vögna þessa samn(ings hefi ég
eytt miklum hluta ævi minnar undir
beru lofti, og þess vegna er ég svona
hraustur.