Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1953, Qupperneq 8
180
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
SIMILLINGURIIMN VAN GOGH
MÁLVERK VAN GOGH eru enn
í augum margra marma tákn og
ímynd „nýtízku stefnu“ í málara-
list. Það cr þess vegna næsta ótrú-
legt að nú skuli liðin hnndrað ár
siðan listamaðurinn fæddist.
Hvernig stendur á því að list lians
er cnn í fullu gildi?
Van Gogh íæddist í Hollandi og
er norrænn í húð og hár, enda þótt
hann málaði flestar myndir sínar
i Frakklandi og sé af sumum talinn
meðal franskra málara frá þeim
tíma. Faðir hans var prestur í Norð-
ur-Brabant, cn íorfeður hans i
móðurætt voru bókaútgefendur.
Þegar Van Gogh var 16 ára komst
hann að við hollenzkt listasafn í
London. Hann undi þar ekki og var
það máske meðal annars vegna
þess að hann feldi ástarhug til
enskrar stúlku, sem hvorki vildi
heyra hagft.né sjá. Upp úr því
hneigðist hugur hans allur að trú-
malum og sjálfsfórn í þágu ann-
ara-
Hann gerðist nú skólastjóri ' í
Englandi og stundaði það starf um
hríð, en hvarf svo til Hollands, ein-
ráðinn í því að boða hinum fátæku
fagnaðarerindið. Hann fékk þó
ekki nðurkenmngu, þar eð hann
skorti þá þekkingu er krafizt var af
hollenzkum kristmboðum. Hvarf
hann þá til Belgíu og tok að pré-
dika yfir namamonnunum í Le
Borinage. Þarna lifði hann i hinni
sarustu fátækt. Hann prédikaði og
hjúkraði sjúklingum og gamal-
mennum, en jafnframt tók hann að
fást nokkuð við drátthst. Hann
neitaði ser um allt, fórnaði öllu fyr-
ir það fólk, sem hann umgekkst
og taldi sig einn af smæhngjunum.
liirkj umaiastjcrnmru þótti harm of
ALDARMINNING
(18511 — 30. marz — 1953)
öfgafullur og vildi ekki gefa hon-
um opinbera viðurkenningu fyrir
því að hanj\ mætti starfa sem
kristniboði. En hann helt áfram
engu að síður, leið skort og um-
hirðuleysi, og að lokum rak að því
að honum voru allar bjargir bann-
aðar. Hvarf hann þá aftur heim til
foreldra sinna. Tók hann nú að gefa
sig við dráttlist af meiri alvöru en
áður. Og nú lenti hann aftur í
raunalegum ástamálum og olli það
algerri stefnubrcytingu í lífi hans.
Nú missti hann algjörlega áhug-
ann fyrir prédikunarstarfi. Þá var
hann 28 ara að aldri. Það bættist
svo ofan á, að hann varð ósáttur
við föður sinn og fór að heiman.
Var hann nú ákveðinn í því að
stunda drátthst og málaralist af
fullu kappi, til þess að geta túlkað
trú sína og samúð með þeim sem
bágt eiga, í lífrænum myndum.
Þótt hann lifði í basli alla ævi,
þá er langt frá því að hann hafi
skort alla þekkingu á málaralist,
eins og sumir hafa haldið fram.
Hann hafði aflað sér mikillar þekk-
ingar á list, cn hafði ekki notið
tilsagnar, þegar hann byrjaði að
mála og hafði ekki efni á að læra.
En hann bætti það upp með sjálfs-
námi. Um tveggja ára skeið var
hann vakinn og sofinn í þvj að
afla séf þekkingar og æfa sig. Fór
hann þá stundum á fætur kJukk-
an fjögur á nóttunni og vann til
miðnættis- Lifði hann þá mest
megnis á þurru brauði og kaffi, til
Vao Gogh: Stráþaktir kofar bjá Montcel