Lesbók Morgunblaðsins - 08.05.1949, Síða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
241
björg var ekki í neinum vafa um
það að hún mundi geta selt það
íyrir stórfje, cf hún kærði sig
um.
Á næstu árum ferðuðu'st bau
Cui'ry hjónin viða. Þau dvöldust
mörg ár í Englandi og á megin-
landi Evrópu. En hvert sem þau
íóru höfðu þau borðið fagra með
sjcr, því að ekki vildu þau skilja
það við sig, svo vænt þótti þeim
um það. Að lokum hurfu þau svo
aítur til San Francisco og þaðan
nokkru seinna til San Diego
Það var árið 1916 að þau flutt-
ust aftur frá San Diego til Coron-
ado. Og á meðan verið var að
flytja húsgögnin, hafði Sigurbjörg
vakandi auga á flutningamönnun-
um að þeir skemdu ekki neitt.
Einu sinni varð henni litið út um
glugga og sá þá að bómullarflyks-
ur fuku eftir götunni. Datt henni
þá í hug að dýna mundi hafa
rifnað og hljóp niður til þess að
vita hverjar skemdir hefái orðið.
En þegar hún kom út, sá hún fyrst
að annar flutningamaðurinn var
önnum kafinn við að tína peninga
upp af götunni.
Þeir liöfðu verið með kínverska
borðið, cn mist það úr höndum
sjer niður á gangstjettina. En við
skellinn hrökk upp hinn smelti
reitur í plötunni. Þar undir var
mjög haglega gert leynihólf og
upp úr því skoppuðu nokkrir gull-
peningar.
Þegar betur var að gáð, voru
þarna í hólfinu 300 dollarar í gulli
og 700 dollarar í seðlum. Var þetta
alt vandlega vafið innan í bóm-
ull, svo að aldrei hafði heyrst
hrmgla i borðinu, þótt þau ferð-
uðust með það heimsálfanna milli.
Segi menn svo að öllum ævin-
týrum sje lokið.
(Úr Söguþáttum landpóstanna og
The Icelandie Canadian).
4' 4' 4' 4
Sát
\l%
mimii vcixct vœncjir
Sál minni vaxa vængir,
er vorar og loftin blána;
fannir í huga hlána.
Hitnar mjer hjarta í barmi,
er hvítir við sólu ljóma
svanir og söngvar hljóma.
Yngjast mjer æskudraumar
við upprisu lífs úr dauða;
brosir senn rósin rauða.
Sál minni vaxa vængir
með vori og flugið hækkar;
útsýni andans stækkar.
RICHARD BECK
JL
emiann
Pd
óóon,
AF ÍRUM
ÍRSK alþýðumenning á vorum dög-
um er ærið fjölbreytt og sundur-
leit að uppruna. Elstu þættir henn-
ar eru ævafornir og eiga rætur síu-
ar að rekja til tíma löngu fyrir
Krists burð. Samhengið við forna
írska rnenmngu hefur aldrei rofn-
að til fulls, þótt oft hafi liöggvið
nærri, og erlendir straumar hafi
um langan aldur sett henni svip.
Á forsögulegum timum lágu leiðir
keltneskra bjoðflokka inn i Irland,
og blonduðust þexr hmuni fornu
íbúum þess. Kristni barst þangað
á fimtu öld, og varð írland á
skömmum tíina alkristið. Forn
keltnesk menning og kristnar suð
rænar hugsjónir höfðu gagnkvæm
áhrif hvor a aðra, og aí þeir eru
traustustu þættirnir í menningu íra
undnir. Blómaskeið íra voru fyrstu
aldirnar eftir kristnitöku þeirra.
Þeir urðu hinir miklu kristniboðar
Mið- og Vestur-Evrópu, og mennta
setur þeirra og skólar urðu víð’-
fræg.
Með vikingáoldínm. iykur guil-
öld íra, og hafa þeir raunar aldrei