Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1938, Blaðsíða 6
174
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
suiulur í stofu uieð timburgólfi
og blóðaeklhús tneð torfgólfi, sem
jafnfranit er eldiviðargeymsla,
búr og bæjardyr. I stofunni eru
söniu búsgögn og í |»eirri röð.
sem l»au stóðu, þegar síðast var
búið í þessu húsi — e.u j»að voru
bjón með níu börn. Undir norður-
veggnum standa t»ii rúm — í
öðru þein-a sváfu bjónin, en í
hinu þrjú elstu börnin, I tdfær-
anlegum setubekk undir framhlið
inni sváfu fjögur börn, í kassa
undir reykofninunr (Bilæggeren)
svaf einn drengur og í vögguuni
framan við hjóuarúmið svaf
yngsta barnið.
Eitt þessara níu svstkina er
enn á lífi, gamall maður — Peter
Otto heitir hann. Leitaði jeg liann
uppi og spurði, hvort það væri
rjett, að liann hefði sofið sín
bernskuár í kassanum undir ofn-
inuni. Hann kvað svo vera, og
um leið steig bann öðrum fæti
upp á brunahana', er þar var í
grend, fletti buxunum upp fvrir
hnje og sokkunum niður á ökla
og sýndi mjer svarblátt, saman-
strengt brunaör framan á bá
sköflungnum.
— Þetta á jeg til minningar
um dvöl mína þar, sagði gam:i
maðurinn. Einu sinni var jeg að
rjetta íir mjer í kassanum mín-
um og rak fótinn upp í glóðheit-
an ofninn. Þá fekk jeg þetta sár
og svo gróf í því.
Frainan við dvrnar á Fattig-
mands Huset er spelkaskúr og er
þakið gamall bátur á hvolfi. Þetta
var peningshúsið. Þarna liafði
fjölskyldan tvær ær til mjólkur
og annara afurða. Aðra mjólk
fengu þessi níu börn ekki á upp-
vaxtarárunum. Þegar kalt var á
vetrum voru ærnar fluttar inn í
stofu, til þess að nienn og dýr
liefðu vl hvort af öðru.
★
Suðaustan við lautina er þriðja
og síðasta húsið r þessari ein-
angruðu fortíð. Það er nefnt:
Bedremands Huset, og á að sýna
við liver kjör formenn og betur
efnaðir borgarar bjuggu. Þar
höfðu hjónin stórt og A'eglegt
svefnherbergi, dagstofu, eldhús,
búr, vinnustófu, svefnloft —- og
loks gesta- og veislustofu. Einnig
fjós fyrir eina kú út af eldhús-
inu. Við veislustofuiia var tvent
merkilegast. I fyrsta lagi er ann-
ar gluggiim á einum björum og
lokaður með hengilás. Er þetta
útbúið með það fyrir auguni. að
ekki þurfi að brjóta gluggatrjeð
eða taka úr karminn, við bús-
kveðjur og aunan flutning
dauðra. Mikil er sú fyrirhyggja.
I stofunhi er og gestarijm með
liáum stuðlum ög tjaldað vfir það
með hvttu Ijerefti. Þetta var
nefnt englarúm, og var sjerstak-
lega ætlað fvrir skipstjóra af
strönduðum skipum. Það var bæði
virðing og stundum hagur í því
að hýsa skipstjórana — og stund
um kom það fyrir. að bátsliöfnuin
björgunarbátanna lenti í hár sam
an, bæði á sjó og landi, út af
því, hverjum bæri að bjarga skip
stjóranum, því fyrir hann voru
goldin hærri björgunarlaun en
aðra inenn. Er sagt, að skipstjóri
einn hafi spurt, hvort hann A'æri
fallinn í ræningjaheiidur, þegar
tvær bátshafnir flugust á um
hann í flæðarmáliuu. Það ganga
reyndar ýmsar sögur uin gamla
skipstjóra á Skagen. Ein er þessi:
Sænskt seglskip hrepti óveður
undan Skagen og stýrimaður fór
niður til skipstjórans og bað liann
að koma á vettvang, því þeir
væru í hættu. Skipstjórinn brá
fljótt við og öskraði upp um lúgu-
gatið:
— Fari það í kolþreifandi, sót-
svart helv... Fyr skal jeg drepast
en stranda á Skagen! Er hann
hafði þetta inælt varð honum fóta
skortur í stigagatinu, svo bann
fjell fvrir borð og sökk í hafrót-
ið. Um leið tók skipið niðri og
brotnaði.
Þetta voru molar úr fortíðar-
sögu þorpsins, sem ölduin saman
var í dauðans greipum. — —
S. B.
íbúarnir í arabiska landshlut-
anuin Vemen fá ekki leyfí til að
ferðast til útlanda. Yfíirvöldin
líta svo á, að ferðalög til útlands-
ins eyðileggi siðgæði Arabanna.
Fjaðrafok.
Fyrir fjórum árum dó kona
auðugs Grikkja í Píræus.
Eiginmaðurinn ljet lækna smyrja
lík konu sinnar og setti það í
glerkistu. Það leit út eins og kon-
an svæfi. I fjögur ár hefir Grikk-
inn þannig haft konu sína hjá sjer
á heimilinu, þar tiI fyrir skömmu
að hann flutti kistuna í kirkju,
sem liann liefir látið smíða í því
augnamiði að geyma þar lík konu
sinnar. A hverjum degi fer liiiin
trúi eiginmaður í kirkjuna til að
dvelja hjá líki konu sinnar.
★
talskur verkfræðingur, sem Am-
adeo Tomassini heitir, liefir
smíðað minsta mótor í heimi. —
Mótor þessi er 0.16 grömm að
þyngd, eða með öðrum orðiini
6520 slíka mótora þarf í kílóið!
Yerkfræðingurinn var 200 klukku
stundir að koma mótornum sam-
an. Mótorinn er samsettur af 46
stvkkjum; snúningshraðinn er 25
þús. snúningar á mínútu og fram
leiðir mótorinn 0.0008 hestöfl.
★
Fangarnir í ríkisfangelsinu í
Kaliforníu gerðu nýlega verkfall
og heimtuðu vinnutímann styttan.
Töklu þeir frítíma sína altof
stutta! Eftir miklar bollalegging-
ar og fundahöld fór frain atkvæða
greiðsla, þar sem fangarnir sam-
þyktu að heimta lengra frí en þeir
hafa haft um miðjan daginn.
Verkfallsforsprakkarnir hafa ver-
fð settir í eins manns klefa og fá
fvrst um sinn „frí“ frá vinnu all-
an sólarhringinn.
★
Nýlega varð elsta kona í Italíu
104 ára. Hún liefir verið ekk.ja í
57 ár. Þrátt fvrir aldurinn vinn-
ur hún daglega alla algenga
vinnu, og hún segir, að vandmn
sje lítill, ef menn vilji ná liáum
aldri. Menn eigi bara að borða
það sem þeim sýnist. drekka lít-
ið, en umfram alt vera í góðu
skapi. því ekkert lengi lífið eins
og gott skap.
★
MÁLSHÁTTUR:
Nær hjartað fagnar styrkist all-
ur líkaminn.