Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1989, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1989, Page 23
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1989. ni n , H Tl tH/'JO'jfl Öl- 0 TT > / I I / '.V 1 h 1 23 Sviðsljós Er lítil prinsessa á leiðinni? Díana prinessa hefur ekki alltaf átt sjö dagana sæla í hjónabandi sínu, ef marka má helstu slúöurblöð heims, sem hafa velt sér upp úr hjónabandi Díönu og KaRa. Varla getur þaö verið svo slæmt því aö nú ganga þær sögur fjöllunum hærra að íljótlega muni Buckingham Palace tilkynna aö þau hjónin eigi von á sínu þriðja barni. Eins og kunnugt er eiga þau fyrir tvo stráka og nú er því bara spurningin hvort lítil prins- essa sé á leiðinni. Verktakar kæra Johnson Tíu verktakar, sem sáu um breyt- ingar á húsi Don Johnson í Aspen, því sama og hann og Melanie GrifQth giftu sig í í júní, hafa nú kært kap- pann. Fara verktakamir fram á litlar 6 milljónir sem þeir segja að Don skuldi þeim. Don hefur auðvitað svarað fyrir sig opinberlega og sagði m.a. aö verktakamir hefðu veriðfú- skarar og ekki kunnað til verka, t.d. læki baðkarið. Segir hann kröfuna vera alls órökstudda. 7 ' Allt í plati JiU Eikenberry - sem Lagakróka- aðdáendur ættu að kannast við, mun ala bam í þættinum sem sýndur verður um jólin í Bandaríkjunum. Það verður samt allt í plati en þrátt fyrir það hefur þátturinn vakið mikla athygh þar ytra. Michael Tucker, eiginmaður hennar, sem leikur eig- inmann hennar í þáttunum, mun að sjálfsögðu vera viðstaddur fæðing- una og ætti ekki að vera skotaskuld úr því því að sjálfur var hann við- staddur fæðingu tveggja bama þeirra hjóna. JiU sagði að senan hefði verið svo raunvemleg fyrir sér að hún missti röddina en það henti hana einnig er hún átti bömin. lög um húsbréfaviðskipti gilda um kaup og sölu notaðra íbúða, sem eiga sér stað eftir 15. nóvember 1989. Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar fær hjá húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir fasteignaveðbréf, sem kaupandi íbúðarinnar gefur út. SAMÞYKKI HÚSNÆÐISSTOFNUNAR ER SKILYRÐI. Það er skilyrði fyrir skuldabréfaskiptum, að greiðslugeta hlutaðeigandi íbúðarkaupanda og veðhæfni íbúðar hafi verið athuguð áður en íbúðarkaup eiga sér stað og að húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar samþykki íbúðarkaupin. , Greiðslumat. Tilvonandi kaupandi verður að sækja um mat á greiðslugetu sinni til ráðgjafastöðvar Húsnæðisstofnunar. \ Skrifleg umsögn. ' Að fenginni skriflegri umsögn ráðgjafastöðvarinnar, þar sem m.a. er tilgreint hugsanlegt kaupverð íbúðar, er tímabært að skoða sig um á fasteignamarkaðnum. Z\V Jbúð fundin - gert kauptilboð. Þegar seljandi hefur gengið að tilboði, sækir tiivonandi kaupandi um skuldabréfa- skipti við húsbréfadeildina, þ.e. að skipt verði á fasteignaveðbréfi, útgefnu af kaupanda og húsbréfum, sem verða eign seljanda. Fasteigna- veðbréfið getur numið allt að 65% af kaupverði íbúðarinnar. /VXAAfgreiðsla húsbréfadeildarinnar. ' V _______A Húsbréfadeild metur veðhæfni ibúðarinnar og matsverð og athugar greiðslugetu væntanlegs íbúðarkaupanda með tilliti til kaupverðs. Samþykki hún kaupin sendir hún væntanlegum kaupanda fasteignaveðbréfið til undirritunar, útgefið á nafni seljanda. /\ tCL \Kaupsamningur undirritaður - L..........\ fasteignaveðbréf afhent seljanda. Ibúðarkaupandi og íbúðarseljandi gera með sér kaupsamning og seljandinn fær afhent fasteigna- veðbréfið. Fram að 15. maí 1990 eiga þeir einir aðgang að húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars sl. og hafa lánsrétt. HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HÚSBRÉFADEILD SUÐURLANDSBRAUT 24-108 REYKJAVÍK ■ SÍMI • 696900 /\ C. \Kaupandinn lætur þinglýsa —a kaupsamningnum. /\ -* \Seljandi lætur þinglýsa ,.V, \ fasteignaveðbréfinu. /^^B^Seljandi skiptir á fasteigna- veðbréfi fyrir húsbréf. \ Greiðslur kaupanda hefjast. —\ Húsnæðisstofnun innheimtir afborganir af fasteignaveðbréfinu af kaupandanum. Þær hefjast á 2. almennum gjalddaga frá útgáfudegi fasteignaveðbréfsins, en gjalddagar eru 4 á ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.