Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1901, Page 46

Eimreiðin - 01.01.1901, Page 46
46 »Jón í Kotinu greiddi líka atkvæði áðan og aftur núna, það verður að ganga til atkvæða aftur,« sagði síra Sveinn og hálf- gerðum kvíðahrolli sló að honum, ef það nú yrði af því, þá......... lengra gat hann ekki hugsað, hann varð að fara að telja þá, sem voru með. Aftur tuttugu, og gamli Sigurður í Bæ fremstur í röðinni. »Og á móti,« sagði Pórður og hélt nú að hann mundi vinna. Enn lyftust hendurnar upp; Pórður og síra Sveinn, töldu grandgæfilega og rétt þegar þeir ætluðu að kalla upp með töluna, bættist við ein hönd, mögur og þreytuleg, sem gægðist upp bak hinar allar. »Tuttugu og einn,« flýtti síra Sveinn sér að segja — »félags- stofnunin er feld með atkvæðamun.« »Seinna koma sumir dagar og koma þó, prestur minn,« sagði Pórður og beit á jaxlinn af gremju yfir úrslitunum. Pað var Hafliði á Gili, sem réð úrslitunum; hann hafði staðið bak viö hina eins og í draumi og fyrst rankað við sér, þegar Sig- urður í Bæ á elleftu stundu brá sér aftur fyrir, hnipti í hann og og urgaði: »Ætlarð’ ekki að greiða atkvæði, eða á ég . . . .« Pað var eins og naðra hefði stungið Hafliða, hann flýtti sér að rétta höndina upp, læddist svo út og á stað án þess að kveðja. Eftir það fóru allir, nema síra Sveinn, hann var nóttina og svaf í húsi hjónanna, eins og vant var. Um kvöldið, þegar þeir vinirnir sátu yfir rjúkandi toddyglös- um, »til þess,« eins og presturinn sagði, »að drekka úr sér ræm- una,« sagði hann við Sigurð: »Ekki talaði Hafliði nú mikið á fundinum í dag.« »Nei, nei, en það sem dugði,« sagði Sigurður, hallaði undir flatt og hrærði í glasinu sínu. »En því voruð þér að greiða atkvæði með félaginu, Sigurður minn ?« »Ég vissi að það mundi verða felt fyrir því, svo ég vildi efna loforð mitt við Tórð, að verða heldur með en móti.« — »Já, þér munuð kunna betur við það, Sigurður minn, að efna orð yðar,« sagði síra Sveinn, hallaði sér aftur á bak, upp að þilinu, lygndi augunum, opnaði þau lítið eitt aftur og leit spekingslega upp í loftið og undur hægt þakklætis andvarp leið upp frá brjósti hans, upp til þess, sem nú í dag, eins og jafnan endrarnær, hefði gefið

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.