Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1901, Qupperneq 34

Eimreiðin - 01.01.1901, Qupperneq 34
34 inum, og verið þér nú blessaðir og sælir og þakka yður æfinlega fyrir mig.« »Ekki að þakka, Sigurður minn, og farið þér ætíð vel,« sagði síra Sveinn og rak að Sigurði rembingskoss. Sigurður sté svo á bak og reið í hægðum sínum fram að Gili. Hann lét hestinn lötra hægast fót fyrir fót, eins og honum riði lífið á að mæla vegalengdina í skrefum. Hann grúfði höfuðið ofan í bringuna, hóf það aðeins upp endur og eins, þegar hann þurfti að skirpa út úr sér mauktuggnu tóbaki, til þess að fá sér annað nýtt. í huga hans börðust metnaðurinn og löngunin til að koma fé- lagsmynduninni fyrir kattarnef. Reiðin og hatrið til Pórðar svall og ólmaðist í brjósti hans; við og við börðust varirnar og hann hreytti sundurlausum setn- ingum á millum tannanna, út í þokuna og myrkrið.............. »Bölvaður strákurinn . . honum ferst að hæla sér . . . hann hafi narrað mig .... mér þótt upphefð að vera með, já svei . . . Nei, Pórður, það er ekki sopið kálið, þó í ausuna sé komið, karl minn. — Blessuð kerlingin hún Manga . . ef hún hefði ekki sagt mér þetta; ég ætti að muna henni það . . . Hafliði getur ekki borgað . . . ég skal neyða hann til að vera með . . hann má verða feginn .... 200 krónur, það er mikið fé . . ef ég þyrfti nú að bæta honum til . . . það er tilvinnandi . . . félagið á hausinn . . . Pórður á rassinn . . . hæli hann sér á eftir . . . Já, ég slcal alt til vinna . . . sóminn í veði . . . ég ginningarfífl . . . nei aldrei — aldrei . . . heldur að borga . . . ég er nógu ríkur . . . nú jæja, ég er þá kominn alla leið.« Hann fór af baki, gekk að bæjardyrunum á Gili, barði og bað þann, sem kom til dyra, að segja Hafliða, að sig langaði til að finna hann. Hafliði var maður rúmlega fertugur, lágur og þrekinn, en fremur veiklu- legur í andliti. Hann hafði búið á Gili síðan hann var 22 ára gamall. Aldrei hafði auðurinn heimsótt hann í búskapnum. Konan hans hafði alla tíð verið heilsutæp og börnin hlaðist á hann jafnt og þétt; nú lifðu 12 af 16. Með stakri reglu og framúrskarandi dugnaði hafði honum tekist að komast af, án þess að þiggja af sveit, enda höfðu margir orðið til að rétta honum hjálparhönd, því hann hafði notið almennrar hylli fyrir framkomu sína; þótti skynsamur vel, sanngjarn og greiðvikinn, það sem hann gat, og var í mörgu á undan samtímamönnum sínum. Að vörmu spori
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.