Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Side 40

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Side 40
42 kollana uppúr«. — Nefnd er enn Garðey og munu flest þessi örnefni þekkjast ennþá. Stunga og torfrista spiltust mjög, eins og hagar alls hverfisins. En kotatúnin lítið. Aftur urðu skemdir töluverðar á Egil- stöðum. Og fyr eða síðar hafa brotnað árbakkarnir að utanverðu, enn lengra uppeftir, bæði fyrir Auðholtslandi og Kirkjuferju. Einni öld fyr en nú var sagt, 1706, eða fyrir rúmlega 220 árum, er þetta bókað um Arnarbæli: »Tún og engjar brýtur Ölfusá árlega nokkuð. Engið liggur alt undir sjávarflæðum, og verður það margoft að stórskaða. Engjavegur mestallur á skipi að fara og þarf þó hesta við«. Nú eru ekki orðnar í bygð nema 2 eða 3 hjáleigur við Arn- arbæli og um 30 kýr til samans á allri jörðinni. 1706 voru ekki bygðar nema 5 hjáleigur þar, og þó 55 kýr og kvígur samtals. Vafa- laust enn fleiri nokkru áður, þvi þá — um 1686 — voru þarna um 10 hjáleigur. Nokkru seinna á 18. öld var áin að klóra í bakkana, líka að utanverðu. Skal þvi enn nefnt eitt dæmi. Með konungsbrjefi 1786 var skipað að leggja niður Reykjakirkju, en sóknin sæki að Arnar- bæli. Ekki var þó hróflað við sókn eða kirkju næstu 3 árin1), því sóknarmenn vildu það ekki. Biðja þeir þá (1789) konung leyfis að kirkja þeirra fái að vera í friði. Og færa það til meðal annars — ásamt sönnunarvottorði frá Arnarbælissóknarmönnum — að siðan samsteypan var ákveðin, hafi Ölfusá brotið bakka þar sem lá vegur Reykjasóknamanna heim að Arnarbæli. Auk þess hafi áin borið ís og flætt inn í Ölfusið tvö árin siðustu, meira en elstu menn muna, svo oft geti orðið ófær vegur milli sóknanna. — Kon- ungur veitti þeim bænheyrslu árið eftir. Skeiðið. Oftast er nefnt einu nafni Skeiði eða Sandskeiði, svæðið alt, eyrartanginn mikli milli árlóns og sjávar. Nær það sjávarmegin frá árósum vestur í Skötubót — og er á 10. km. — þangað sem ströndin snarbeygist til suðuráttar, en spölkorn er eftir að Þorlákshöfn. Að norðanverðu, vestur með árlóni, er Skeiðið mikið styttra — á 6. km. — að Hamarendum. Þaðan, þvert til sjávar er 1,7 km.; en svo bráð- mjókkar skeiðið austur undir miðju, og er þar um 400 metrar. Breikk- ar þá ögn aftur, um Miðöldu, og endar með mjóum eyrarodda, sem heitir Óseyri. Þó skeiðið sé að mestu úr sandi bygt, er það nógu þykkur og 1) Kirkja var á Reykjum þar til hún og Arnarbæliskirkja voru sameinaðar á Kotströnd 1909.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.