Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Síða 27

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Síða 27
29 yfir1) frá Þverá. Hann hafði blót á Hofsstöðum«. Þetta er vafalaust rjett. En bær Kollsveins hefur eyðst afarsnemma, því að hans er hvergi getið í fornum eða nýjum heimildum. Samt geyma munnmæl- in menjar hans og setja honum stað, uppundan Framnesi. Eru þar tóftarbrot allmikil, og túnmál í kring, er kallast Kollsveinsstaðir. Virð- ist rjett að geta þessa, frásögninni til stuðnings, þvi að ýms atvik geta valdið því, að rústimar eyðist með öllu. IX. Landnámabók, ásamt öðrum íslendingasögum, er svo merkur og einstæður fornritaflokkur í heimi, að furðu gegnir. Frægir vísinda- menn ýmsra þjóða hafa unnið kappsamlega að því, að gefa þær út á máli þjóða sinna, og ekkert sparað til þeirra verka, hvorki tíma eða peninga, fegurð eða fróðleik. Heimskringla Snorra, ásamt öllum íslendingasögum, Eddunum og Sturiungu, ættu fyrir löngu að vera komnar út í glæsilegri útgáfu á íslenzku, því að þessar bækur hafa fyrst og fremst skapað íslenzku þjóðinni þá bókmentafrægð meðal annara þjóða, sem orðið hefur henni drýgst til álits og aðdáunar, kúgunar- varnar og vinsældafylgis út á við, síðari hluta 19. aldar og til þessa. Þetta segi jeg að nýbókmentum íslendinga alveg ólöstuðum, sem enn þá eru á gelgjuskeiði, þótt þroskasvipur þeirra sje auðsær.2) En þótt ekki hafi tekist, að fá áðurgreindar bækur til þessa, í ljómandi vandaðri útgáfu, hafa ýmsir sýnt lofsverðan dugnað í því, aö rannsaka leshætti handritanna, sem slík útgáfa yrði að byggjast á, og þar hafa verið svo margir að verki, að ekki þýðir að þylja nöfn þeirra hjer. Skýringar á fornvísum eru einnig komnar það á leið, að tæplega verður búist við víðtækari uppgötvunum á vafastöðum úr þessu. Nú er mjer það gleðiefni, að nokkrir áhugasamir mentamenn hafa bundist samtökum um að stofna til nýrrar, vandaðrar útgáfu íslendingasagna og annara gullaldarrita vorra. Vil jeg í lok þessar- ar ritgerðar beina því til þeirra, að með skýringum þeim, sem nauð- synlegt er að fylgi yfir bundið mál og torskilin orð, verði getið um allar leiðrjettingar, sem gerðar hafa verið um ýmsar sveita- og örnefnalýsingar sagnanna. Það er að vísu mikið verk, að tína það saman, sem er á strjálingi í ritum, en sú hlið útgáfunnar fær þá fast gildi og getur meira að segja í sumum atriðum náð hinum frumlega 1) »Upp frá Þverá« hafa Hauksbók og Melabók, er það fullt svo rjett, því að Þverá stendur (sunnar og) allmiklu neðar. 2) Georg Brandes ljet svo mælt um fornbókmentir íslands, að þær væm »aðalsbrjef þjóðarinnar*.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.