Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Side 26

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Side 26
28 alveg óvíst, og engin heimild finst fyrir því. (Sbr. t. d. Sleitustaðir 1388 í jarðaleiguskrá Hólastóls). (DI. III. 411). VIII. Jeg gat þess í inngangi þessarar greinar, að benda mætti á ýms atriði, sem styðja sannsögugildi Landnámu, í öðrum frásögnum, en þau er að framan eru greind. Á jeg þó einkum við Skagafjörð. Vildi jeg ekki lúka svo máli mínu, að sá skilningur slæddist í hug einhvers, að frásögn Landnámu um Hegranesþing væri yfirleitt óábyggileg. Mikill meiri hluti þeirrar lýsingar virðist í alla staði rjettur, en ekkert tiltökumál, þótt ónákvæmni landnámsmerkja fyndist á þeim stöðum, sem fjærst hafa legið Landnámuhöfundi. — Er og ekki tiltöku- mál, þó að takmörk landnáma sjeu ekki alstaðar tilgreind, t. d. um landnám Hjálmólfs. Sturlubók getur þess á þennan veg: »Maðr hjet Hjálmólfr, er land nam um Blönduhlíð«. Melabók og Haukabók hafa: .... ofan um Blönduhlíð«. Er það öllu rjettara, því að landnám Hjálmólfs hefur náð ofan frá Bólstaðará (nú; Bóluá) niður (eða norður) til Djúpadalsár (áður Djúpárdalsár, nú venjulega Dalsá). Skilja mætti frásögnina svo, að Hjálmólfur hefði numið alla Blönduhlíð. En þetta er aðeins framhluti Blönduhlíðar. Landnám Gunnólfs, Þóris dúfunefs og vestari hlutinn af landnámi Þorbrands örreks er einnig í Blöndu- hlíð. (Sjá Landn. bls. 106—107). Framarlega í landi Hjálmólfs eru Úlfsstaðir. Jeg hef heyrt það haft eftir gömlum fróðum Blöndhlíðingum, að þeir hefðu heyrt þau munnmæli, að Úlfsstaðir væri landnámsjörð. Bæði nafnið og munn- mælin styrkja því Landnámusögnina, þótt stutt sje hún og ekki ná- kvæm. Mun Hjálmólfur heitið hafa Úlfur, en fengið auknefni sbr. Kveld-Úlfur. Það er alleinkennilegt, að hvergi er getið um, hver numið hafi Hegranes. Aftur á móti má ráða það af þeirri sögu í Landnámu, þeg- ar Hávarður hegrí bauð Kráku-Hreiðari vetrarvist, og var hann með Hávarði »í Hegranesi«. Sýnir þetta gætni og samvizkusemi frumhöf- undar, að telja ekki Hávarð hreint og beint með landnámsmönnum. En aðeins þetta hefur hann heyrt sagt um Hávarð og ekki annað. En þetta mun rjett hermt, því að í Áslandi (í Hegranesi) er eyði- býlið Hegrastaðir, og getur Árni Magnússon þess í Jarðabók sinni. Mun það hafa verið landnámsjörð Hávarðs, og einnig bendir Hegra- nessnafnið á Hávarð, sem landnámsmann þeirrar sveitar. Áður í grein þessari hefur verið minst á Kollsvein hinn ramma, sem nam milli Þverár og Gljúfrár, »ok bjó á Kollsveinsstöðum

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.