Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Page 22

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1927, Page 22
24 hafa takmarkað, ásamt sjónum, land Öndótts að vestan. Þetta hefur verið dálagleg bújörð, sem hann hefur keypt að Sljettu-Birni. Átti Björn þó álitlegan skika eftir eða alla Óslandshlíð, og meira þó. Allur Viðvíkurhreppur er því í landnámi Öndótts, yztu bæirnir í Hólahreppi milli ánna og einnig Garðakot (áður Garðar) og Skúfsstaðir1). IV. Landnáma kveður þannig að orði um landnám Friðleifs hins gauzka, að hann hafi numið »Sléttahlíð alla ok Friðleifsdal milli Frið- leifsdalsár ok Stafár, ok bjó í Holti. (Ldn. 109). Næsti landnámsmaður sunnan við Friðleif var í raun og veru Hrolleifur mikli, er bygði fyrstur Hrolleifsdal, en Höfða-Þórður gerði hann burt þaðan fyrir víg Odds Unasonar. Augsýnilega hefur Friðleifur numið að Hrolleifsdal eða að landi því, er dalnum taldist. Og jafnvíst er það, að Friðleifur hefur búið í landnámi sínu í Holti, þó að bæjarnafnið þekkist þar ekki. Er þó engin ástæða til að rengja frásögn Landnámu, því að höf. hennar hefur haft sannar sagnir um staðháttu þar um slóðir. Friðleifsdalsá og Friðleifsdalur þekkjast ekki í landnámi Friðleifs nú, en þegar þess er gætt, að landnám eru talin í röð að sunnan til norðurs, þá getur ekki verið um annan dal að ræða en Skálárdal, sem er næstur Hrolleifsdal að norðan, Skálá (eða Skálárdalsá) er því sama áin og Friðleifsdalsá, sem Landnáma nefnir, og Skálárdalur sami dalur og Friðleifsdalur til forna. Þetta stendur einnig alt heima við frásögn- ina og getur ekki öðruvísi verið. Einmitt þetta, að dalur þessi hjet eftir Friðleifi, bendir á, að hann hafi reist bæ sinn þar í nánd eða í dalnum. En það leiðir aftur til þeirrar ályktunar, að bæjarnafnið hafi breyzt í svipaða átt og dalsheitið, sem vissa er um að orðið hefur. Eftir því ætti Skálá að vera sama jörð og Holt, Iandnámsjörð Friðleifs. Þetta styðst líka við munnmæli, sem kunn hafa verið til skamms tíma, þar um slóðir, en voru alkunn áður, að Skálá hafi í fornöld heitið Friðleifsholt'2). Þegar munnmæli styrkjast við aðrar 1) Orðalag Ldn.: »læk þeim er verðr út frá Nautabúi«, ber auðvitað að skilja þannig, að hann sje fyrir norðan Nautabú. En þar er ekki um annan »læk« að ræða en Skúfsstaðaána, sem rennur sunnan við Skúfsstaðatún og niður í Hjaltadalsá. 2) í Sóknarlýsingu Fellssóknar um 1840—1850, segir síra Davíð Guð- mundsson, þá prestur í Felli, að »mælt sje, að Skálá hafi heitið Friðleifsholt*. (Hdrs. Bmf. í Lbs. nr. 21). Munnmæli þessi heyrði og Jón hreppstjóri Jónsson á Hafsteinsstöðum i ungdæmi sínu, og hafði jeg heyrt hann segja þau, löngu áður en jeg sá nefnda sóknarlýsingu.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.